Þjóðviljinn - 24.06.1983, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 24.06.1983, Blaðsíða 11
Einherjar skoruðu 5 Einherji, Vopnafirði, tók Þrótt frá Neskaupstað illilega í karphúsið þegar félögin mœttust í bikarkeppni KSÍá Vopnafirði ífyrrakvöld. Ein- herji sigraði 5-1 og leikurþví heima gegn Val frá Reyðarfirði um sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. Ólafur Ármannsson skoraði fyrsta mark leiksins en skíðakapp- inn Valþór Þorgeirsson jafnaði fyrir Þrótt. Gísli Davíðsson skoraði síðan tvívegis fyrir Einherja, Krist- ján bróðir hans og Baldur Kjartans- son eitt hvor. Einn leikur var fyrir austan í 4. deildinni í fyrrakvöld. Höttur sigr- aði Egil rauða frá Norðfirði 2-0 á Egilsstöðum og skoraði Jón Jóns- son bæði mörkin. - VS Nicholas til Arsenal Enska knattspyrnufélagið Arse- nal hefur keypt markamaskínuna stórefnilegu, Charlie Nicholas, frá skoska liðinu Celtic. Nicholas skoraði 52 mörk fyrir Celtic sl. vet- ur og það verður fróðlegt að fylgjast með gengi hans í ensku knattspyrn- unni nœsta vetur. Við sögðum frá þvífyrr í vikunni að Everton væri að reyna að ná í Burnley-leikmanninn Trevor Stev- en, sem vakti mikla athygli sl. vetur, einkum í hinum fjölmörgu bikar- leikjum Burnley gegn stórliðum 1. deildar, og ífyrradag tókst Howard Kendall, framkvœmdastjóra Evert- on, að ná samkomulagi við kollega sinn hjá Burnley, John Bond. Stev- en klæðist því blá/hvíta Everton- búningnum á komandi keppnistím- abili. Sigurbjörg skoraði sex mörk fyrir KR í Hafnarfirði Sigurbjörg Sigþórsdóttir skoraði hvorki meira né minna en sex mörk ígœrkvöldiþegar KR kafsigldi FH, 8-1, á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í bikarkeppni kvenna í knatt- spyrnu. Staðan í hálfleik var 3-0, KR í vil, og Sigurbjörg gerði sér lítið fyrir og skoraði öll fimm mörk Vesturbœjarliðsins í síðari hálfleik. Sigurbjörg skoraði eftir 10 mín- útur, síðan Kolbrún Jóhannsdóttir og Ragnheiður Rúriksdóttir, 3-0, fimtn mínútum eftir leikhlé. Þá var komið að Sigurbjörgu en Halldóra Sigurðardóttir skoraði eina mark FH þegar 10 mínútur voru til leiks- loka. Erna Flygering stóð sig einna best hjá FH en hún er ein eftir úr sigurliði félagsins frá árunum 1972- 76. Ungu stelpurnar í liðinu stóðu sig ágœtlega. Sigurbjörg var lang- best í annars jöfnu liði KR. Breiðablik vann Fylki 4-0 á Ár- bæjarvelli. Asta M. Reynisdóttir skoraði eftir 9 mínútur, 1-0 í hálf- leik. Ásta B. Gunnlaugsdóttir bætti öðru við, 2-0, og Sigríður Tryggva- dóttir gerði það þriðja, drauma- mark af 23 m færi efst í vinkilinn með viðstöðulausu skoti. Ásta M. innsiglaði sigur Breiðabliks þegar 15 sekúndur voru eftir, beint úr hornspyrnu. Eva Baldursdóttir stóð sig mjög vel í marki Fylkis. Völsungur gaf leikinn við Akranes sem fram átti að fara á Húsavík en engar fréttir fengust úr leik Víðis og Vals í Garðinum. -MHMIVS Föstudagur 24. júní 1983 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 11 íþróttir Víðir Sigurðsson Þannig er umhorfs þessa dagana á hinni óviðjafnan- legu Hallarflöt í Laugardal. Leik Þróttar og Breiða- bliks í 1. deild í knattspyrnu sein fram átti að fara í gærkvöidi var frestað vegna vallarskilyrða, og þannig hlýtur að fara fyrir fleiri leikjum ef áfram rignir. A meðan standa aðalleikvangurinn og Valbjarnarvöllur óhreyfðir og ónotaðir. Bágborið ástand í höfuðborg- inni á meðan þeir í næsta byggðarlagi brosa breitt, breiða yfir völlinn sinn og skerpa á hitanum undir honum ef þurfa þykir. Svo eru menn hissa á að aðsókn á leiki í höfuðborginni fari dvínandi! - Mynd: -eik. Dregið 1 bikarnum: Valur gegn ÍA! Eitt 2. deildarlið öruggt áfram Valsmenn mæta Akranesi! Gömlu erkifjendurnir lentu saman þegar dregið var til 1. umferðar- innar í aðalkeppni bikarkcppni KSI. Valsmenn hafa leikið sjö sinn- um til úrslita í bikarkeppninni, sigrað fjórum sinnum, en Skaga- menn, núverandi bikarmeistarar, hafa tíu sinnum komist í úrslit en aðeins tvívegis farið með sigur af hólmi. Þessi lið leika saman í 1. umferð bikarkeppninnar: Fylkir-Völsungur eða KS. Einherji eða Valur Rf.-KR Valur-Akranes Víkverji-Breiðablik FH-Þór Akureyri Leiftur eða Tindastóll-ÍBK Vestmannaeyjar-Þróttur R. Víkingur-Í safj örður. Fyrstudeildarliðin tíu koma nú inní keppnina en hin sex eru þau neðrideildalið sem komist hafa í gegnurn undankeppnina. Þrír leikjanna eru innbyrðis viðureignir 1. deildarliða, Valur-Akranes, ÍBV-Þróttur og Víkingur-ÍBÍ. Leikirnir fara fram dagana 5.-7. júlí og þau félög sent nefnd eru á undan eiga heimaleik. Úrslit liggja ekki fyrir á Norður- og Austurlandi en sigurvegararnir úr viðureignum Einherja og Vals Reyðarfirði og Leifturs-Tindastóll hafa dottið í lukkupottinn, leika á heimavöllum gegn 1. deildarliðum. Nýja Reykjavíkurfélagið, Vík- verji, fær heldur betur erfiðan andstæðing, Breiðablik, en óskalið þeirra flestra var víst KR. Öruggt er að a.m.k. eitt 2. deildarlið kemst í 8-liða úrslitin, Fylkir, Völsungur eða KS frá Siglufirði. Þangað gætu hins vegar hæglega farið sjö 1. deildarlið ef allt fer eftir bókinni. - VS. Greiðist eitthvað úr flækju 1. deildar um helgina? / Attunda umferð leikin Áttunda umferð 1. deildar ís- landsmótsins í knattspyrnu hefst í kvöld norður á Akureyri. Þar mæta nýliðar Þórs íslandsmeistur- um Víkings á iðjagrænum aðal- leikvangi bæjarins og hefst leikur- inn kl. 20. Síðan verða tveir leikir á morg- un, laugardag. Tvö af efstu liðun- um, Vestmannaeyjar og Akranes, eigast við í Eyjum og er það tví- mælalaust viðureign helgarinnar. Bæði lið eru til alls líkleg og ættu bæði að verða með í slagnum um meistaratitilinn þegar á líður. Keflvíkingar fá KR-inga í heim- sókn og hefst sá leikur kl. 14 eins og sá í Eyjum. Keflvíkingar hafa aðeins leikið einn leik meðan önn- ur hafa leikið þrjá þar sem leikjum þeirra gegn Víkingi og Akranesi var frestað. Loks mætast Valur og ísafjörður á Laugardalsvelli kl. 20 á sunnu- dagskvöldið. Það hefur verið skorað mikið af mörkum í leikjum Valsmanna undanfarið og ekki á- stæða til að ætla annað en að svo verði einnig í þessum leik. Staðan í 1. deild fyrir leiki helg- arinnar er þessi: Vestm. eyjar..........7 3 2 2 13-6 8 Breiðablik.............7 3 2 2 6-4 8 KR.....................7 2 4 1 8-9 8 Akranes................6 3 1 2 7-3 7 Valur.................7 3 1 3 12-14 7 ísafjörður.............7 2 3 2 7-9 7 ÞórAk..................7 1 4 2 8-9 6 Þróttur R..............7 2 2 3 8-12 6 Víkingur...............6 1 3 2 5-7 5 Keflavík...............5 2 0 3 7-8 4 f 2. deild verður einnig heil um- ferð, sú sjöunda í röðinni. Völs- ungur mætir Fylki á Húsavík í kvöld kl. 20 og þrír leikir verða kl. 14 á morgun, FH-Njarðvík, Fram- KA og KS-Einherji. Loks mætast Víðir og Reynir í Garðinum kl. 20 á sunnudagskvöldið og þar verður örugglega ekkert gefið eftir í ná- grannaslagnum. Heil umferð verður einnig í 3. deild, sjötta umferð. í kvöld mæt- ast Grindavík-ÍK og Víkingur Ól- HV í A-riðli og Austri-Huginn í B-riðli. Á morgun leika svo Skallagrímur-Ármann og Snæfell- Selfoss í A-riðli og Magni- Tindstóll, Þróttur N.-HSÞ og Val- ur Rf.-Sindri í B-riðli. Þá verður leikið í 4. deildinni um allt land. Ingi Björn Albertsson, Valsmaður, markahæsti leikmaður 1. deildar í sumar og frá uphafi, reynir markskot með tilrifum gegn KR um síðustu helgi. Ingi Björn og félagar leika við ísafjörð um helgina en KR-ingar fara til Keflavíkur. Mynd: - eik

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.