Þjóðviljinn - 25.06.1983, Page 2
2 SÍÐA - ÞjÖbÝYtjINN- Helgíii 25.-26.'júiií 1983
shammtur
Af Jónsmessunœturdraumi
í nótt var jónsmessuhátíð í Laugardalshöllinni.
í Lovsamling for Island III., 689. - 90. bls. - 3 er birt
konungsbréf frá 26. október 1770, þar sem jónsmess-
an er tekin úr helgidagatölu.
Þetta var auðvitað aðeins mannanna verk og breytti
í sjálfu sér engu um töframátt og helgi jónsmessunæt-
urinnar, sem landsmenn hafa öldum saman notið
góðs af.
í Drápuhlíðarfjalli, Kofra og Tindastóli, hefur alltaf
verið, og er enn, hægt að klófesta óskasteina, hulin-
hjálmssteina og lausnarsteina, sem dansa á lindum
og brunnum í bjartri sumarnóttinni, og er best að sæta
lagi að ná þessu töfragrjóti á sjálfa jónsmessunóttina.
Menn skulu þó muna, að ekki verður steinunum náð,
nema riðin sé eftir þeim gandreið.
Oft hefur það komiö sér vel, þegar þurft hefur að
hafa uppá þjófum, að taka mjaðurt á sjálfajónsmessu-
nótt um miðnætti, láta hana í munnlaug við hreint vatn
og leggja urtina á vatnið. Fljóti hún, þá er þjófurinn
kvennmaður; sökkvi hún þá er það drengur. Þar skal
viðhafa þennan formála: „Þjófur ég stefni þér heim
aftur með þann stuld, sem þú stalst frá mér, með svo
sterkri stefnu sem guð sjálfur stefndi djöflinum úr Par-
adís.“
Og síðast er að geta þess sem allir íslendingar hafa
allatíð talið sjálfsagt að aðhafast á jónsmessunótt, en
það er að fletta sig klæðum og velta sér uppúr dögg-
inni. Þetta hefur alltaf verið allra meina bót. Kirkjan
taldi þetta atferli lengi ósiðlegt og guði miður þóknan-
legt og víst gætu vinsældir daggarbaða bent til þess.
Enn gera menn sér dagamun á jónsmessunni.
Lengsta og bjartasta sumarnóttin býr enn sem fyrr yfir
sömu töfrum. Nú er að vísu ekki lengur riðin gandreið í
leit að óska- og lausnarsteinum, eða mjaðurt til að ná
þjófum, og sú líkamsrækt fer víst að heyra fortíðinni til
að fólk velti sér nakið í jónsmessudögginni til heilsu-
bótar.
Nú er öldin önnur og allir fara á vit hinnar helgu
nætur inní Laugardalshöll þar sem undanfarið hefur
verið lagður dagur við nótt til að „ná upp“ svokallaðri
„torgstemmningu með suðrænu yfirbragði“-
Það er semsagt orðinn árviss viðburður að Banda-
lag íslenskra listamanna og samtökin Líf og land haldi
uppá jónsmessuna ,með þessum hætti og er það
sannkallað fagnaðarefni. Hvílíkur stímúlans fyrir list-
ina og lífið i landinu þegar vér listamenn og aðdáendur
vorir stíga dans og blanda geði, einu sinni á ári, í
listrænu og alþjóðlegu andrúmslofti Laugardalshallar-
innar á sjálfa jónsmessunótt.
Ég hef fylgst agndofa með undirbúningnum að há-
tíðinni og með hverjum degi hefur undrun mín og
aðdáun vaxið, þar til í gær að hún náði hámarki.
Aðaláherslan var lögð á það að breyta útistemm-
ningu í innistemmningu og innistemmningu í úti-
stemmningu. Þetta er gert til þess að manni finnist
maður vera inni þegar maður er úti og úti þegar maður
er inni og er alveg óstjórnlega skemmtilegt.
Útistemmningu er hægt að ná upp í Laugardalshöll-
inni með því að fara með hafurtaskið neðanaf Lækjar-
torgi og koma því fyrir inní höllinni með pulsu og pissu-
vögnum, grænmeti, skarti og skranvörum, reikunar-
mönnum og rigningarskúrum. Með þessu er hægt að
ná því sem eftirsóknarverðast er á jónsmessuhátíðum
í Laugardalshöll, „torgstemmningu".
Þeir sem eru úti eru bókstaflega sannfærðir um að
þeir séu inni og þeir sem eru inni eru í sjöunda himni
yfir að vera úti.
Nokkrir voru að vísu þarna í nótt sem héldu að þeir
væru úti, þegar þeir voru úti, en það var nú bara af því
að þeir voru eitthvað úti að aka, eins og stundum er
sagt, en af ástæðum sem ekki verða raktar hér.
Já, þarna var gaman á jónsmessunótt. Allir
draumar undirbúningsnefndarinnar rættust: ítalskar
pissur, frönsk vín, suðræn tónlist, íslenski dansflokk-
urinn með útlenda dansa og útlend punkgrúppa með
„Ríðum, ríðum“, íslenskir tónlistarmenn fluttu „rag-
time“ og létt þýsk danslög, en íslenskur fiðluleikari
spilaði ungverska tataramúsík á austurríska fiðlu. Og
undirbúningsnefndin getur verið hreykin af því að allt
fór eins og ætlað hafði verið: Samkoman var með
suðrænu yfirbragði, leikjum og uppákomum, og það
sem mest var um vert: Það tókst að tryggja „torg-
stemmninguna".
Töfrar hinnar björtu nætur líkt og leystu hallargesti
úr álagahamnum. Menn vörpuðu sér af rasssíða, ís-
lenska hjassanum og hættu að vera heimóttarlegir í
framan. Sjálfur jónsmessunæturdraumurinn hafði
ræst. Þeir voru ekki lengur íslendingar, heldur torg-
vanir, suðrænir, alþjóðlegir heimsborgararfyrirmann-
legir í fasi, drukknir af hinni vellukkuðu útlensku úti-
stemmningu inní höllinni. íslendingar á útlensku balli,
eða útlendingar á íslensku balli?
Þegar gleðin stóð sem hæst sló klukkan tólf, og þá
brá einn gestanna sér útúr útistemmningunni inni, inní
innistemmninguna úti, til að gá til veðurs og heyrðist
tauta gamla, íslenska veðurfarsvísu, helgaða jóns-
messunni:
Skín klárt veður á dag dýra
dulið gott mun eftir skýra
ef mjög rignir á jónsmessu
minnkun gróða gegnir þessu.
Viðeyjarferð frestað
til morguns:
Jónsmessu-
hátið
í Viðey
Gott veðurút-
lit á sunnudag
„Þetta hlýtur aö veröa sannkölluð hátíð, því veöurfræöingarnir
hafa eiginlega ábyrgst gott veður á sunnudag, sem ekki veitir af
eftir alla rigninguna undanfariö hér á suð-vesturhorninu“, sagði
Guðrún Hallgrímsdóttir fararstjóri í Sumarferð Alþýðubandalags-
ins í gær. Ferðinni sem fara átti í Viðey í dag, laugardag, var frestað
til morguns, sunnudag, á sama stað og tíma vegna batnandi veður-
útlits. „Við veðjum á sólina á sunnudag", var upphafið að auglýs-
ingu um frestun ferðarinnar í útvarpinu í gær.
Allir eru velkomnir í þessa einstæðu ferð og verða miðar seldir
úr bíl í Sundahöfn kl. 9.30 - 10.15 á sunnudagsmorgun. Farið
verður kl. 10 og 10.30 og tekur siglingin út í Viðey aðeins 5-6
mínútur. Þar tekur við fjölbreytt skemmtan og fróðleikur og ekki
má gleyma matnum! Félagið leggur til kol og kyndivökva en allir
verða að vera vel nestaðir, bæði með smurt brauð og svo kjöthleif
eða pylsu til að leggja á grillið.
Miðarnir kosta 150 krónur en ókeypis er fyrir börn 12 ára og
yngri.
Farið frá sama stað
og á sama tíma
Minnismerki um Skúla fógeta í Viðey.
a
sunnudag
Kl. 13.00 Langeldur (útigrill) og skemmtan
undir Helj'arkinn. Fjöldasöngur undir
stjórn Gunnars Guttormssonar. Nafn-
lausa tríóið (Guðmundur Hallvarösson,
Kolbeinn Bjarnason og Kristín Ólafsdótt-
ir) skemmtir. Matur. Harmoníka: Elías
Davíðsson. Leikir, söngur og reiptog
(menntamannaklíkan og verkalýðsarm-
urinn takast á).
Kl. 15.00 Gönguferð austur að Sundbakka.
Þar segir Guðjón Friðriksson blaðamað-
ur frá Miljónarfélaginu, Kárafélagipu,
Stöðinni og þorpinu á Sundbakka.
Kl. 17.00 Náttúruskoðun, gönguferðir og
önnur skemmtun eða heimferö eftir vali.
Kl. 21.00 Síðasta ferð í land!
Kl. 10.00 og 10.30 Hafsteinn Sveinsson ferj-
ar fólkið frá athafnasvæði Eimskipafé-
lagsins í austurhluta Sundahafnar út í
Viöey.
Kl. 11.30 Safnast saman við Sjónarhól
Björn Th. Björnsson listfræðingur segir
frá Viðey og sögu hennar.
Kl. 12.00 Gengið að Viöeyjarstofu og kirkj-
unni. Hjörleifur Stefánsson arkitekt lýsir
byggingunum og síðan gefst fólki tæki-
færi til að skoða þær og kirkjugarðinn.