Þjóðviljinn - 25.06.1983, Qupperneq 7
Helgin 25.-26. júní 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Sjálfsbjörg, félag fatlaöra
25 ára á mánudaginn
Árið 1958 27. júní komu sainan
nokkrir fatlaðir cinstaklinar, um
það bil 20 manns, í Skátaheimilinu
við Snorrabraut og stofnuðu félag
fatlaðra.
Þeir sem stóðu að stofnun þess
höfðu þá trú að fatlaðir vissu best
sjálfir hvað gera þyrfti til úrbóta
svo þeir yrðu fullgildir þjóðfélags-
þegnar.
Aðalhvatamaður var Sigur-
sveinn D. Kristinsson og fleiri.
Hafði hann stofnað félag fatlaðs
fólks á Siglufirði lOunda sama
mánaðar, og hafði því verið gefið
nafnið Sjálfsbjörg. Lagði hann til
að félagið í Reykjavík hlyti sama
nafn.
Markmið félagsins er að efla
samhjálp hinna fötluðu, vinna að
auknum réttindum þeirra og bættri
Sigursveinn D. Kristinsson
í jafnréttisgöngu fatlaðra
aðstöðu í þjóðfélaginu, svo sem því
að:
„Vinna að og vekja athygli
sveitarstjórna í Reykjavík og ná-
grenni. alntennings og ríkisvaldsins
á því að beiur mætti fara um að-
búnað. menntun. starfsþjálfun,
atvinnuréttindi, bótaréttindi og
önnur þau atriði. er stuðla geta að
því að fatlað fólk geti lifað mann-
sæmandi lífi".
Félagið á sitt eigið húsnæði í
Hátúni 12 og rekur alla sína starf-
semi þar. svo sem félagsfundi,
námskeið. föndur og fleira.
í félaginu eru nú 024 aðalfélagar
og 549 styrktarfélagar, allir þeiri
sem vilja geta orðið styrktarfé-
lagar.
Fréttablað Sjálfsbjargar í
Reykjavík og nágrenni er gefið út
þrisvar á ári.
Félagið rekur eigin skrifstofu að
Hátúni 12 og er hún opin frá mánu-
degi til föstudags á venjulegum
skrifstofutíma.
Félagið ntun minnast þessara
tímamóta á margvíslegan máta á
árinu og byrjar rneð afmælisfundi
sunnudaginn 26. júní í Lækjar-
hvammi að Hótel Sögu kl. 15.00.
Stjórn félagsins skipa nú: Trausti
'Sigurlaugsson form., Sigurður
Björnsson ritari, Guðríður Ólafs-
dóttir gjaldk., Sigurrós M. Sigurj-
ónsdóttir varaform. og Óskar Jón
Konráðsson vararitari.
-Ig.
Heiðraði lesandi!
Ekki vill svo ótrúlega til, aö þú hafir yfir aö ráöa hús-
næöi til ráðstöfunar frá og meö 1. ágúst, því mér er
farið að líða eins og útskúfaöri sál fyrir luktum dyrum
himnaríkis í þessari endalausu húsnæöisleit. Ef ti!
kæmi vinsamlegast hafiö samband viö mig í síma
81611 á vinnustað eöa heima 10242.
Dóra Kondrup
IMYTT VÖRUMERK! YFIR
Arfells-skilrúm — hilluskilrúm — skapa-
skilrúm — handriðseiningar úti og inni
og húsgögn
1000
MOGULEIKAR
Sýning
laugardag
kl. 9-4
ATH.
Hafið með ykkur mál
og þið fáið hönnun á
staðnum.
Á rmuia 20 — Símar: 84630 og 84635
Kaupið 19. júní
Lesið 19. júní
Takið 19. júní
með í ferðaiagið.
Lausar stöður
hjá Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg viil ráöa starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör skv. kjarasamningum.
• Staða felagsraðgjafa á hverfaskrifstofu fjöl-
skyldudeildar, Asparfelli 12, frá 1. sept. n.k. Um-
sóknarfrestur til 13/7.
Upplýsingar gefur yfirmaöur fjölskyldudeildar í síma
25500.
• Tvær stöður við almenn skrifstofustörf hjá
Borgarbókasafni (uppl. veittar á skrifstofu Borg-
arbókasafns í síma 27155) og hjá Dagvistun
barna (uppl. veittar hjá Dagvistun í síma 27277).
• Staða umsjónarfóstra v/ Dagvistarheimilin.
• Stöður fóstra hjá:
- Múlaborg
- Ösp
- Staðarborg
- Skóladagh. Auðarstr. 3
- Tjarnarborg
Umsóknir skulu vera skriflegar og greina m.a. frá
menntun og starfsreynslu, auk almennra persónu-
legra upplýsinga.
Umsóknum ber aö skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæö fyrir kl. 16.00,
föstudáginn 8. júlí 1983.
Kennarar
athugið
Kennara vantar að Brekkubæjarskóla á
Akranesi, 7. og 8. bekk. Kennslugreinar:
Raungreinar og tungumál.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí. Upplýsingar
veitir yfirkennari í síma 93-2563 og formaður
skólanefndar í síma 93-2547. Umsóknir ber-
ist til þeirra.
Skólanefndin.
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
Fríðu Ingimundardóttur
Klúku, Bjarnarfirði.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.