Þjóðviljinn - 25.06.1983, Qupperneq 9
Helgin 25.-26. júnf 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
crlcndar baekur
Alfred Döblin
Alfred Döblin: Babylonische
Wandrung oder Hochmut kommt vor
demFall. Roman. Deutscher
Taschenbuch Verlag 1982.
Alfred Döblin var af gyðingaætt-
um, fæddist 1878, starfaði sem
taugalæknir í Berlín,átti hlut að ex-
pressionista tímaritinu „Der
Sturm". Daginn eftir ríkisþinghús
brunann í Berlín, 28. febrúar 1933
hvarf hann brott úr borginni, vinir
hans höfðu varað hann við því að
hann yrði handtekinn. Hann fór
um Stuttgart og yfir svissnesku
landamærin hjá Kreuzlingen.
Flóttinn bjargaði honum frá
pyntingum og dauða. Hann hafði
sett saman bækur þar sem skoðanir
hans á nazismanum komu skýrt
fram. í „Berlín Alexanderplatz",
1929, mátti greina álit hans á hver
framvinda mála yrði í Þýskalandi
og hvert stefndi. „Wissen und Ve-
rándern" frá 1931, var hugvekja
ætluð til þess að sameina menn um
andstöðu gegn ógnum frá hægri og
vinstri og hvatning til þess að sam-
einast í and-marxískum sósíalisma
gegn ofstækisöflunum. Nasistar
þekktu skoðanir hans og lögðu á
hann ofstækisfullt hatur.
Þetta hatur göturennulýðsins
kom síðan glögglega í ljós í maí
þetta vor, þegar skríllinn óð urn og
rændi og ruplaði bókum bestu þá-
verandi höfunda Þýskalands og
brenndi.
Döblin hélt til Zúrich, þar var
mikill fjöldi flóttamanna frá Þýska-
landi. Hann hafði haft með sér frá
Berlín fyrstu drög að skáldsögu,
sem hann hafði byrjað á í Berlín
1932. Hugmyndin kviknaði 1932,
um fornan babylónskan guð, sem
neyðist til þess að stíga af hásætis-
himni sínum niður á jörðina til þess
að afplána fornar syndir. Döblin
segist ekki hafa áttað sig í fyrstu um
hvað væri að ræða. Þegar hann
byrjaði á sögunni sá hann til-
ganginn, þetta var saga hans sjálfs,
flóttinn og útlegðin og afplánun
synda, sem hann gerði sér ljósa
grein fyrir, eftir því sem leið á
söguna.
Þrátt fyrir hina ískyggilegu at-
burðarás í Þýskalandi áleit Döblin
ásamt fleiri þýskum rithöfundum,
að sigur Hitlers yrði skammær, sem
byggðist á skyndilegu upphlaupi
pöpulsins, sem myndi innan
skamms hjaðna niður og ýmsir á-
kveðnustu andstæðingar nasism-
ans, svo sem Toller og Barlach ólu
með sér þá skoðun um tíma, hvort
ekki væri skynsamiegast að berjast
gegn „brúnu pestinni" innanfrá,
yfirgefa ekki landið, heldur taka
upp baráttuna þar. Þeir góðu menn
áttuðu sig ekki á því, að þegar skríl-
linn hefur náð völdunum, lætur
hann þau alls ekki af hendi og til
þess að halda þeim, neytir hann
allra bragða. Þetta sýndi sig greini-
lega 1933.
Döblin vann að skáldsögu sinni á
Zentralbibliothek fram í ágúst,
hélt þá til Parísar og sat löngum á
Ólafur, —
ekki Egill
Nafnabrengl varð hér í blaðinu í
gær í texta með einni af myndum
þeim? sem birtar voru úr ferð for-
seta Isiands um Vestfirði.
Þar var sagt að á myndinni tækjust
í hendur Egill Ólafsson og Vigdís
forseti. Þarna átti að standa Ólafur
Egilsson og Vigdís forseti takast í
hendur, og rugluðust nöfn þeirra
feðga í prentverkinu, en voru rétt í
handriti blaðamanns.
Þá skal einnig leiðrétt að í frá-
sögn af ferð forseta íslands um
Austur-Barðastrandarsýslu nú í
vikunni var Geiradalshreppur
nefndur Geirhólahreppur. og var
það prentvillupúkinn, sem þar
komst einnig í spilið.
Leiðrétting:
Bibliothéque nationale og hélt
áfram með skáldsöguna. Sagan var
svo gefin út í Amsterdam, 1934.
Heimur Döblins var í rústum.
Þýskaland Schillers, Goethes,
Lessings, Herders og Kants og arf-
taka þeirra á 20. öld var troðið í
svaðið af sorplýð, sem dró upp
hanann á skammbyssunni, þegar
hann heyrði orðið menning. Þessi
undirdjúpalýður myndaðist við að
réttlæta sig með fábjánalegri ídeo-
lógíu.
Þessi skáldsaga Döblins er upp-
gjör hans við sjálfan sig og út-
legðarsaga hans. Sagan er surreal-
istísk, ekkert er öruggt og hvergi
neitt finnanlegt, sem stenst. Sagan
er full af gálgahúmor. hann fer í
sögunni gegnum Evrópusöguna,
ótal persónur og fyrirbrigði koma
við sögu og allt verður á hverfanda
hveli. Upplausnin verður algjör og
hann átti sjálfur þátt í þessari upp-
lausn, eins og goðið Konrad, sem
er aðalpersóna skáldsögunnar
hafði hann brotið lögmálið. Því fór
sem fór. Þessvegna er rökrétt af-
leiðing sektar hans, að hann gerist
kaþólikki, eftir að hann er kominn
til Bandaríkjanna 1940. Hann
dvaldi um tíma í Þýskalandi eftir ____________________________________________________________________
styrjöldina (1946-53), en hvarf aft- Nasistarnir merktu gvðinga með gyðingastjörnu áður en þeir voru sendir í
ur til Parísar 1953 og lést þar 1957. dauðalestirnar. Myndin er af fjölskyldu í Berlín.
Við bíðum þín
við
brúarsporðinn!
Skeljungur opnar um helgina glæsilega og fullkomna
bensínstöð í Borgarnesi, á besta stað við Borgarfjarðarbrúna.
Þar erum við tilbúnir að taka við þyrstum ferðalöngum
úr öllum áttum og Borgnesingum að sjálfsögðu líka.
Tilboð í tilefni dagsins
í tilefni opnunarinnar gerum við útigrillmeisturum
og áhugamönnum um gljáfægða og bónaða bíla tilboð sem þeir
geta ekki hafnað:
Við bjóðum grillkol og uppkveikilög með 40% afslætti.
Við bjóðum Blue Poly bónvörurnar með 40% afslætti.
Tilboðið stendur á meðan birgðir endast.
Komdu við með galtóman tankinn,
við sjáum um framhaldið með bros á vör!
Shellstöðin Borgamesi
Skeljungur h.f.