Þjóðviljinn - 25.06.1983, Blaðsíða 16
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 25.-26. júní 1983
Sif
Jón Vióar
Soloþenur
raddböndin af snilld í
Höllinni aöfaranótt
þjóðhátíðardagsins, en
senuþjóf urinn var þó
gítarleikarinn f innski
Jimi Sumen. Myndina
tók Leífur.
dings kemur í veg fyrir til-
breytingarleysi sem oft er
áberandi í hljóögerföri músik.
Hápunktur hljómleikanna
fannst mér þó vera þegar
sveitin í lokin brá undir sig
rokkfætinum og gítarleikarinn
tók sprett í stíl nafna síns heit-
ins Hendrix og lék á hljóöfær-
ið jafnt meö fingrum sem
tönnum.
Þaö sem setti strik í
reikninginn í sambandi viö
þessa ágætu hljómleika, þar
sem hljómlistarmennirnir
gerðu allir sitt besta (ég missti
að vísu af issinu, en Q4U
stóö sig þrælvel), var mann-
fæöin. Hrædd er ég um aö
skuldabagginn sé töluverður
á innflytjandanum, Metró-
músik. Annars vargóðmennt,
en mikiö ansi fannst mér van-
ta í áheyrendahópinn dálítið -
eöa helmingi - eldri „ung-
linga“. Hvar eru gömlu hipp-
arnir sem þóttust hafa svo
mikinn áhuga á músik hérna í
„denntíö"? Hér meö skora ég
á ykkur aö hressa upp á
andann og víkka sjóndeildar-
hringinn og mæta betur á
rokkkonserta í framtíðinni -
og tækifæriö er á næstu grös-
um: Kíkið á greinina hér fyrir
neöan.
Gömlu félagar, sjáumst í
Höllinni um næstu helgi -
látum ekki „börnin" vera ein
um hituna!
A
daegurmál (sígi
Þrœlgóðir hljómleikar:
Classix
Nouveaux
er hörku-
hljóm-
sveit!
Þeir mörgu sem
heima sátu urðu
af góðri skemmtun
Hljómsveitin Classix
Nouveaux, sem hér kom
fram á hljómleikum daginn
fyrir þjóðhátíö, kom a.m.k.
undirritaðri þægilega á
óvart með flutningi sínum í
Laugardalshöll. Hér eru á
ferð góðir hljóöfæraleikarar
og t.d. gítarleikarinn þeirra,
Finninn Jimi Sumen, er
næsta magnaður, bæði
sem hljóðfæraleikari og
„sjómaður" („show man“).
Honum tókst jafnvel að
stela senunni frá hinum
sérstæðaoggóöa
söngvara og aðalmanni
hljómsveitarinnar, Sai
Solo.
Músikin hjá Classix Nouve-
aux er ekta popp þar sem
hljóðgerflar eru mikiö notaðir,
en á smekklegan hátt (S. Paul
Wilson), og vel kryddað meö
gítarsólóum Jimis og kraft-
mikill trommuleikur B.P. Hur-
Andrea
Echo and The
Bunnymen,
Egó, Grýlurnar
og Deild 1
í Höllinni
á laugardaginn
kemur:
Þá er loksins komiö að því aö
breska hljómsveitin Echo and the
Bunnymen konii hingaö til lands
og leiki hér á tónleikum. Það hef-
ur veriö nokkuö þrálátur
orörómur á sveimi síöastliðin tvö
ár um að hljómsveitin væri á
leiðinni til landsins. Þaö má því
segja aö tími sé til kominn aö þeir
láti sjá sig hér á landi. Hljóm-
sveitin mun halda tónleika í
Laugardalshöll á laugardaginn
kemur, 2. júlí.
Auk Echo and thc Bunnymen
munu Grýlurnar, Deild 1 og Egó
koma fram, þannig aö þetta
veröa engir smáræöis tónleikar.
Svona í framhjáhlaupi má geta
þess aö Egóinu hefur bæst nýr
liðsmaður og heitir sá Gunnar
Rafnsson og var áður í hljóm-
sveitinni Kikk.
Echo and the Bunnymen var
stofnuð í Liverpool fyrir tæpum
ftmm árum mitt í tónlistarhrær-
tngunum miklu í Bretlandi.
Hljómsveitin skipaði sér furðú
skjótt í hóp athyglisverðustú
hljómsveita Breta og er af mörg-
um talin í dag eitt það besta sem
Echo and the Bunnymen verða aðalnúmerið á tónleikunum í Höllinni á
laugardaginn kemur. Hér troða þeir snjóinn í óbyggðum íslands.
Stórtónleikar 2. júlí
kom fram í umróti pönkbylgjunn- um mitt ár 1980 og hlaut einróma og lícho and the Bunnymen hlutu
ar. Fyrsta breiðskífa hljóm- lof í bresku músikpressunni. Það er frekar fátítt í Englandi því
sveitarinnar, Crocodiles, kom út að hljómsveit fái jafn almennt lof tónlistarblöðin þar fylgja nokkuð
ákveðinni stefnu og eru frekar
treg til að viðurkenna aðrar stefn-
ur en þá sem blaðið aðhyllist.
Crocodiles naut mikilla vinsælda
í Englandi og komst hátt upp á
lista yfir vinsælustu plöturnar.
Önnur plata hljómsveitarinn-
ar, Heaven up there, var gefin út í
júní 1981 og fór rakleiðis inná
topptíu. Platan hlaut samahól og
Crocodiles og er ég ekki frá því að
Heaven up there sé ein besta
breiðskífa sem út kom árið 1981.
Þrátt fyrir miklar vinsældir í
Englandi var hljómsveitin nánast
óþekkt hér á landi. Það var ekki
fyrr en með Porcupine sem út
kom á þessu ári að orðspor
hljómsveitarinnar fór að breiðast
út hér heima. Einkanlega var það
lagið „Cutter“ sem ruddi
brautina fyrir vinsældum hljóm-
sveitarinnar hér á landi.
Hljómsveitin hefur haldið
ótölulegan fjölda tónleika á ferli
sínum og má segja að hún hafi
verið á faraldsfæti frá því að hún
var stofnuð. Hingað kemur
hljómsveitin eftir tónleikaferð
um Bandaríkin og eftir tón-
leikana í Höllinni heldur hún til
Hróarskeldu en þar verða Echo
and the Bunnymcn eitt aðalnúm-
erið á hinni árlegu Hróarskeldu-
hátíð.
Það þarf varla að taka það fram
að allir sem vettlingi geta valdið
eru hvattir til að mæta í Höllina
þann 2. júlí því það er langt síðan
jafngóða gesti hefur borið að
garði. Tónleikarnir hefjast kl. 20
og kostar hver miði 390 krónur.
Verða miðar seldir í öllum hljóm-
plötuverslunum Fálkans, Karna-
bæjar, í Gramminu og í Skífunni.
JVS.