Þjóðviljinn - 25.06.1983, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 25.06.1983, Blaðsíða 17
Helgin 25.-26. júní 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 unslingasíðan Umsjón Helgi Hjörvar Eins og fiestum er kunnugt er ekki til ver launaðri né ver þokkaðri „vinna“en „unglingavinnan". Reyndar heitir hún vist „vinnuskóli" Reykjavíkurborgar en það er hið mesta öfugnefni og sennilega upp fundið af einhverjum landsfrægum „húmorista". Laun (svo virðulegt heiti hæfir varla þessari lús) eru kr. 30 á klst. hjá 14 ára en 35 hjá 15 ára. Auk þessa telst það barnaþrælkun ef 14 ára unglingsgrey ligguríleti meiren 4 klst. daglega og einnig telja fróðirmennaðhvorki 14né15 ára unglingum sé hollt að flatmaga lengur en í tvo mánuði hvert sumar á túnskæklum borgarinnar. Vinnuskóli Reykjavíkur- borgar Lífið er stutt en áður en Grasmaðkurinn dó eignaðist hann ánamaðk. Rönguður Það er í lagi að skrifa undir dulnefni en fullt nafn, heimiiisfang og símanúmer verður að fylgja! Rás Steinars hf Það sem Sigurður Aðalheiðar- son Magnússon skrifaði um ný- ráðinn útvarpsstjóra Rásar 2 var bara það sem allir tala um. Það vita allir sem fylgjast með músík að Þorgeir Ástvaldsson kemur fram sem útbreiðslu- og auglýsingastjóri Steinars h/f. Hann söng líka inn á plötuna Valli & Víkingarnir fyrir Steinar h/f. Það átti að vera einhver leynihljómsveit „a la Stuðmenn". Undirleikararnir voru úr hljóm- sveit Péturs Kristjánssonar núver- andi forstjóra Steinars h/f. Þorgeir var mjög hlutdrægur í „spilun" á þessari plötu, eins og öllum plötum sem hann kemur nálægt. Það var líka rétt hjá Sigurði Aðalheiðarsyni Magnússyni að Þorgeir er löngu staðnaður (músík- inni. Hann spilar eingöngu lélegt skallapopp. Pönk, reggí, og öll framsækin rokktónlist er alveg út- skúfuð úr hans sjóndeildarhring. Þetta vita allir sem vilja vita. Ég veit að Rás 2 verður í raun stöð Steinars h/f, líkt og poppþættir dagblaðanna, vinsældalisti DV og útvarpið. Þetta kemur því ekkert |dð hvort Þorgeir er góður strákur, eins og Helga dagskrárstjóri vill meina. Pétur Pönkari Ljóð Einu sinni var rautt fiðrildi sem flögraði um og lenti í œvintýrum. Lífið er stutt en fiðrildið rauða eignaðist afkvœmi - Grasmaðk - Grœnan Grasmaðk sem skreið um og missti af flestum œvintýrunum. „Opinn skógur” Við hittum nokkra hressa krakka upp við Rauðavatn og tjáðu þau okkur að nú væri heldur betur að færast fjör í fé- lagslífið í Vinnuskólanum. Þau væru á kafi í undirbúningi og sífellt væru að koma fram nýjar og nýjar hugmyndir að bættu félagslífi í Vinnuskólanum. Þau sögðu aö stefnt væri að því að halda keppnir í ýmsum íþróttum (fótbolta, brennó, kílóo.fl.). Einn- ig hafa þau hugsað sér að efna til „opins skógar" unt miðjan júlí. Þá vilja þau láta helga félagslífinu einn dag þar sem allir krakkarnir í þeirra deild innan unglingavinn- unnar gætu hist. Aö kvöldi þessa dags vilja þau fá að halda diskótek. Þau sögðu einnig að upp hefði komið sú hugntynd hvort allur Vinnuskólinn (u.þ.b. 1200manns) gæti ekki farið eitthvert út fyrir bæ- inn t.d. Viðey eða Heiðmörk. Pétur pönkari segir Þorgeir löngu staðnaðan í músíkinni! Já er það nema von að maður spyrji! Þetta (hversu undarlega sem það kann að hljóma) er heiti á hinni sögufrægu unglingavinnu, sem mikið hefur verið skrifað og skrafað um seinustu vikur og það ekki að ástæðulausu. Þetta er illa launuð vinna, unglingarnir (flestir) leggja sig þar af leiðandi lítið fram og fer leti þeirra afskaplega fyrir hjartað á mörgum góðborgurum. Okkur fannst sjálfsagt að gefa yfir- manni „Vinnuskólans" tækifæri á því að svara fyrir sig. Sá maður heitir Hjálmar Guðmundsson og lögðurn við fyrir hann nokkrar spurningar. Us: Hvert er markmið „Vinnu- skóla“ Reykjavíkurborgar? Hjálmar: Það hefur nú aldrei verið skilgreint. Ætli það sé ekki að gefa unglingunum tækifæri til að vinna sér inn peninga og bjarga þeim frá götunni. Us: Hvar starfa krakkarnir og við hvað? Hjáimar: Þau starfa við ýmis- konar snyrtingu gróðurs á útivist- arsvæðum borgarinnar (Miklatúni, Hljómskálagarðinum o.s.frv.), einnig við að gróðursetja tré uppi í Heiðmörk, og margir vinna einnig við leikvelli skólanna og íþrótta- velli, það eru líka nokkrir að vinna í görðum hjá ellilífeyrisþegum og að lokum er líka fólk frá okkur á Iljálmar Guðmundsson, stjóri Vinnuskólans. skóla- gæslu- og starfsvöllum borgarinnar við að sinna þeim er þar koma. Us: Hversu margir hafa skráð sig í „vinnuskólann“? Hjálmar: Það eru eitthvað um 1050 manns. Us: Nú höfum við heyrt það á skotspónum að 14 ára unglingum sé meinað að vinna lengur en í fjórar klukkustundir á dag og einnig að hvorki 14 né 15 ára unglingar fái að vinna lengur en í tvo mánuði. Er þetta rétt og þá hvers vegna?. Hjálmar: Þetta er rétt. Þetta er líklega svona af tveimur ástæðum. Bæði vegna þess að það þykir kannski heldur mikið að láta ung- lingana vinna lengur og einnig af fj árh agsástæð u m. Us: Nú eru nokkrir hópar t.d. að gróðursetja plöntur báða mán- uðina mcðan aðrir eru að reyta arfa. Að flestra mati er ólíkt skemmtiiegra að gróðursetja. Er ekki möguleiki á „skiptivinnu" þarna? Hjálmar: Jú möguleikinn er fyrir hendi, en þetta hefur verið reynt og gaf ekki góða raun. Afköstin minnkuðu þó nokkuð. Það tekur nefnilega upp undir heila viku að læra aö gróðursetja tré. Us: Nú er „vinnuskólinn" stund- um kallaður „lctigarðurinn" og kafnar vissulcga ekki undir nafni. Hver er þín skýring á þessu? Hjálmar: Þetta er eins og annars staðar, sumir eru dugmiklir og drífa hina með sér en aðrir eru latir til allrar vinnu og hefur þaö oft mjög slæm áhrif, sérstaklega í stór- um hóp unglinga. En einnig má nefna að það eru helst til margir krakkar á hvern verkstjóra. Við œtlum í Þórsmörk 1.-3. júlí KEMURÐU MEÐ? Skráningarsími: 17300 ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Hvaða fyrirbæri er það.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.