Þjóðviljinn - 25.06.1983, Síða 19
Helgin 25.-26. júní 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
1. afborgun
hjá SÁÁ
Þann 5. júní var fyrsti gjalddagi
gjafabréfanna í landssöfnun SÁA,
sem nú stendur yfir. Samkvæmt
skilmálum bréfanna voru tíu þeirra
dregin út hálfum mánuði síðar.
Hafi eigendur þessara bréfa greitt
fyrstu afborgun skilvíslega fá þeir í
verðlaun vöruúttekt að verðmæti
kr. 100.000.
Vegna þeirra fjölmörgu, sem
samþykktu bréf sín rétt fyrir gjald-
daga og hafa ekki fengið gíróseðla í
hendur nógu fljótt, hefur stjórn
SÁÁ ákveðið að framlengja skila-
frestinn til föstudagsins 1. júlí nk.
Allir, sem hafa greitt fyrstu afborg-
un að kvöldi þess dags, eiga því rett
til vinnings í fyrsta útdrætti.
Vinningsnúmerin, sem eru inn-
sigluð og geymd hjá borgarfóget-
anum í Reykjavík, verða væntan-
lega birt þriðjudaginn 5. júlí.
200
meina-
tæknar
þinga
Um 200 meinatæknar eru þcssa
dagana á norrænu móti hér á landi,
cn slík mót eru haldin annað hvert
ár, til skiptist í hverju Norðurland-
anna.
Þetta mót stendur til 26. þ.m. og
verða fluttir fjöldi fyrirlestra, flest-
ir af íslenskum meinatæknum, sem
eru meirihlutinn þeirra sem sækja
mótið. Þá verður farið í skoðunar-
ferðir á rannsóknarstofur sjúkra-
húsa.
Meinatæknafélag íslands telur
nú 326 félagsmenn, en námið sem
nýlega var tekið til gagngerðrar
endurskoðunar, er 3 ár og fer frain
í Tækniskóla íslands.
Norrænu
félögin
undirbúa-
fnðarrað
stefnu
Samtök Norrænu félaganna
héldu nýlega aðalfund sinn í Osló
og voru þar mættir fulltrúar frá öll-
um sjö Norrænu félögunum á
Norðurlöndum. Fulltrúar íslands
voru Hjálmar Ólafsson, formaður
Norræna félagsins á íslandi, Ólafur
Guðmundsson og Elísabet Svavars-
dóttir frá Egilsstöðum.
Á fundinum var ákveðið að efna
til ráðstefnu um friðar- og öryggis-
mál og gefa þingmönnum allra
stjórnmálaflokka á Norðurlöndun-
um kost á að fjalla um friðarmál.
Þessar áætlanir verða kynntar for-
sætisnefnd Norðurlandaráðs og
framkvæmdastjórum stjórnmála-
flokka sem hittast í Færeyjum 27.-
30. júní í fyrsta sinn allir saman. Þá
var fjallað um svæðaskrifstofur,
fyrirhugaða norræna stofnun á
Grænlandi, sjónvarpsmál og fleira.
Tuure Salo frá Finnlandi var
endurkjörinn formaður samtak-
anna og Hjálmar Ólafsson vara-
form.
þs.
bridsc
Séð yfir spilasal Bridgefélags Hreyfils, frá heimsókn norsku gestanna til Hreyfilsmanna um daginn. Mjög athyglisverð tilraun hjá þeim ' Hreyfli.
Ný andlit í Sumarbridge
Metþátttaka var í Sumarbridge
sl. fimmtudag í Uomus. Alls mættu
64 pör til leiks og var spilað í 5
riðlum.
Urslit urðu þessi:
A) stig
Steinunn Snorrud.—
Þorgerður Eyjólfsd. 252
Valgcrður Eiríksd.-
Hrafnhildur Jónsd. 247
Arni Magnússon-
Jón Stefánsson 238
Alda Hansen-
Stefán Guðntundsson 234
B)
Esther Jakobsd.-
Guðmundurl’éturss. 194
Högni Torfason-
Stcingrímur Jónass. 189
Jón Björnsson-
Ingólfur Lillcndul 174
Bjarki Bragason-
Bragijónss. 173
C)
Ragnar Ragnarsson-
Stefán Oddsson 204
Jónatan Líndal-
Vilhjálmur Vilhjálmss. 189
Páll Valdimarsson-
Valgarð Blöndal 185
Jón Steinar Gunnlaugss.-
Guðjón Sigurðss. 167
D)
Hallgrímur Hallgrímsson-
SigmundurStefánss. 132
Hrólfur Hjaltason-
Jónas P. Erlingss. 122
Ragnar Magnússon-
Svavar Björnss. 121
E)
Friðrik Guðniundsson-
Hreinn Hreinsson 149
Jón Páll Sigurjónss.-
Sigfús Ö. Árnason 132
Matthías Kjeld-
Ólafur Jóhanness. 119
Meðalskor í A: 210 í B og C: 156
og í D og E: 108.
Alls hafa nú 416 manns mætt á
spilakvöld í Sumarbridge (4
kvöld), eða að meðaltali 52 pör á
kvöldi. Sigtryggur Sigurðsson er
enn efstur í Sumarbridge, með 8,5
stig en síðan korna 9 spilarar með 6
stig. Gefin eru 3 stig fyrir efsta sæt-
ið í riðli á kvöldi, 2 stig fyrir 2. sætið
og 1 stig fyrir 3. sætið (auk meistar-
astiga Bridgesambandsins).
Spilað verður að venju nk.
fimmtudag og hefst spilamennska í
síðasta lagi kl. 19.30. Allir vel-
komnir.
Noröurlandamót
í yngri flokki
Landslið okkar í yngri flokki hélt
utan í gærkvöldi til keppni á Norð-
urlandamótinu, sem hefst nú um
helgina. Liðið skipa: Aðalsteinn
Jörgensen, Stefán Pálsson, Hróð-
mar Sigurbjörnsson, Karl Loga-
son, Sigríður Sóley Kristjánsdóttir
og Bragi Hauksson.
Fyrirliði liðsins er Sigurður
Sverrisson.
Mótið verður með sama sniði og
verið hefur undanfarin ár, þ.e. 2 lið
frá hverju landi (yngra og eldra)
nema fslandi. Alls því 9 lið, sem
munu keppa á mótinu í Noregi.
Umsjón
Ólafur
Lárusson
Landsliðið okkar hefur æft
þokkalega fyrir mótið, en búast má
við að róðurinn verði því erfiður.
þarsem þarna mæta nokkur af
sterkustu liðunt heims í þessum
aldursflokki.
Nánar síðar.
Bikarkeppnin
Dregið hefur verið í 2. umferð í
Bikarkeppni Bridgesambands ís-
lands, sem nú stendur yfir. Eftir-
taldar sveitir lentu saman:
Brynjólfur Gestss. Self,-
Runólfur Pálss. Rvík
Karl Sigurhj.son Rvik-
Vilhjálmur Þ. Pálss. Self.
Valgarð Blöndal Self.-
Þórarinn Sigþórss. Rvík
Ásgrímur Sigurbj.son Sigluf.-
Tryggvi Gíslason Rvík
Olafur Lárusson Rvík-
Sigmundur Stefánss. Rvík
Hrannar Erlingsson Sell'.-
Sævar Þorbjörnss. Rvík
Stefán Vilhjálmss. Akureyri-
Gestur Jónsson Rvík
Árni Guömundsson Rvík-
Einar Svansson Sauðárkr.
Þær sveitir sem taldar eru á
undan, eiga heimaleik. Búast má
við að leikjum eigi að vera lokið
fyrir ca. 20. júlí nk. Fyrirliðar eru
minntir á að hafa samband við þátt-
inn er leik er lokið, til að halda uppi
einhverri spennu í mótinu (auk
fréttagildis o.þ.h.).
Vikuferð
með Eddu
Eins og fram hefur komið í bri-
dgefréttum blaðanna, stendur til
að farin verður hópferð með Eddu
í september þarsem mönnum gefst
kostur á að sameina skemmtilegt
ferðalag og spennandi bridge-
keppnir.
Ekki þarf að fjölyrða um ágæti
slíks feröalags, en þetta er tilraun
sem vonandi tekst vel. Öllum
kostnaði er haldið í algjöru lág-
marki og um borð verður úrvals
aðstaða, undir styrkri stjórn Guð-
mundar Sv. Hermannssonar.
Ferðin verður auglýst nánar síð-
ar hér í þættinum, en þeir sem hafa
áhuga (eru ákveðnir nú þegar) geta
haft samband við Samvinnuferðir/
Landsýn og fengið þar línuna.
Sögur úr sveitinni
(bikarsveitinni...)
Þar sem nú fer í hönd gúrkutíð í
íslenskum bridge, og aðeins er
keppt í Bikarkeppni næstu mán-
uöi, ntá ætla að einhver skemmti-
leg atvik eða spil hafi orðið á vegi
þeirra sem taka þátt í Bikarkeppni
B.í.
Þættinum barst í hendur
skemmtilegt bréf frá Stefáni Vil-
hjálmssyni Akureyri, þar sem rak-
in eru nokkur spil úr 1. untferð
Bikarkeppni (úr leik milli Stefáns
og sveitar Baldurs Bjartmarssonar
Reykjavík). Um leið og þátturinn
þakkar Stefáni framtakið, er
skorað á fleiri að rissa niður áhuga-
veröa punkta og senda þættinum
hið snarasta. Og þá er bara að út-
vega sér blað og blýant. Utaná-
skriftin er : Þjöðviljinn, Síðumúla
6, 105 Rvík., merkt „Bridge".
HARMONI: Stærð 150x200 cm, með útvarpi.
ROMANS: Stærð 180 x 200cm, með náttborðum.
Munið okkar hagstæðu greiðs/uskilmála.
Jón Loftsson hf.
HRINGBRAUT121 - SÍM110600