Þjóðviljinn - 25.06.1983, Side 20
Nr. 377
sunnudagskrossgatan
20 SIÐA - ÞJÓÐVILJLNN Helgin 2S.-26. júní 1983
Að fara til útlanda í flugvél hef-
ur lengi verið meiri háttar þrek-
virki fyrir morgunsvæfa. Á
fimmtudagsmorgun fór einn úr
fjölskyldu minni til Danmerkur
og var meira en lítið spenntur.
Hann er bara 8 ára. Flugvélin átti
að leggja af stað kl. 8.15 og það
þýddi aö farþegar áttu að mæta á
Keflavíkurflugvelli kl. 7.15. Við
sem fylgdum snáðanum þurftum
því að leggja af stað upp úr kl. 6
og þ.a.l.. að vakna upp úr 5. Fað
er óguðlegur tími.
Sá litli var reyndar svo spennt-
ur að hann vaknaði kl. 4 og byrj-
aöi þá aö halda vöku fyrir öðrum
á heimilinu. Svo dróst maður úr
bælinu kl. 5 skjálfandi af kuldaog
svefnleysi, hellti upp á kaffi og
setti Mozart á fóninn. Sat síðan
Vissirðu...
að Jón Thoroddsen skáld var
danskur dáti á yngri árum.
að Ólafur Thors var skírður
Ólafur Tryggvason og í höf-
uðið á kónginum sem kristn-
aði íslendinga.
að Matthías Á. Mathiesen við-
skiptaráðherra og Geir
Gunnarsson þingmaður Al-
þýðubandalagsins lásu saman
undir stúdentspróf.
að Pétur Pétursson þulur er
þannig tengdur bræðrunum
Jóni Múla og Jónasi Árnasyni
að hann er tengdafaðir hins
fyrra en svili hins síðara.
að Steinn Steinarr var skálda-
nafn. Hann hét í raun og veru
Aðalsteinn Kristmundsson.
að Fjalakötturinn í Aðalstræti
hefur að geyma elsta bíósal
sem vitað er um að enn sé til í
heiminum.
að Jón Sigurðsson forseti,
þjóðfrelsisforinginn mikli, sat
öll sín Alþing í gamla Mennt-
askólanum við Lækjargötu.
að afi Sveinbjarnar Beinteins-
sonar allsherjargoða á Drag-
hálsi var fæddur -1799 og væri
því orðinn nær 200 ára gamall
ef hann væri á lífi.
að Sjálfstæðisflokkurinn gerði
kosningabandalag við ís-
lenska nasista í alþingiskosn-
ingunum 1937.
að Auður Eir Vilhjálmsdóttir,
fyrsti kvenpresturinn og
Hjördís Björk Hákonardótt-
ir, fyrsti kvensýslumaðurinn,
eru systradætur.
að EinarOlgeirssonogBrynjólf-
ur Bjarnason hófu sinn
stjórnmálaferil í Alþýðu-
flokknum.
að þegar kratar höfðu hreinan
meirihluta í bæjarstjórn fsa-
fjarðar var bærinn kallaður
Rauði bærinn.
Óguðlegur tími
sljór í eldhúsinu og horfði frarn í
gráöiö og reyndi að gera að
gamni sínu. Úti var hellirigning,
grár himinn og hvergi nokkur
hreyfing í I llíðunum.
Úngi maðurinn vildi óður og
uppvægur leggja af stað sem fyrst
til þess að ná örugglega flugvél-
inni. Eg spurði hvort liann væri
heldur að fara til Bólivíu eða
Kína eöa hvort viö þyrftum kann-
ski að fara Fjallabaksleið? Flann
sagðist nú bara vera að fara til
Danmerkur
Svo lögðum við í hann 10 mín-
útur yfir 6 og ókum greitt, enda
lítil sem engin umferö. Keflavík-
urvegurinn var grátt og gljáandi
strik í súldinni og vinnukonurnar
hömuðust án aíláts. Snáðinn lék
á als oddi, og við álverið byrjaði
hann að spyrja hvort við værum
ekki alveg að koma til Keflavík-
ur. Þessarar spurningar var síðan
spurt á þriggja rnínútna fresti.
Svona var ég líka þegar ég var 8
ára og skildi piltinn því vei.
Þrátt fyrir svefndrungann
þennangráti morgun var reynt að
halda uppi lágmarkssamræöum
og tókst það nokkurn veginn.
Ungur flugþjónn tók við patt-
anum á flugvellinum og svo var
hann horfinn inn í fríhöfnina.
Ekki rigndi minna á baka-
leiðinni en umferðin var heldur
meiri. Ég dáðist í huganum að
öllu því fólki sem tekst að vakna
kl. 7 eða fyrr á hverjum morgni í
svona veðri til að fara í vinnuna.
Regndroparnir dönsuðu á vegin-
um eins og þeir væru að spila villt
trommusóló. Geisparnir urðu æ
lengri og augnlokin þyngri. Kl.
7.30 vorum við komin heim ánýj-
an leik, löngu fyrir okkar venju-
lega fótaferóartíma. Hvers vegna
rífa Flugleiðir fólk upp á rassin-
um um miðjar nætur ef það vill
fljúga til útlanda? Það er mér hul-
in ráðgáta. En svona hefur það
verið frá þvf að ég man fyrst eftir
mér.
Er við gengum inn í íbúðina
litum við syfjulega hv.ort á annað
með spurn í augum og fórum síð-
an orðalaust í rúmið og steinsofn-
uðum á augabragði. Mér tókst að
vísu að vakna aftur og komast í
vinnuna kl. 10, en dagurinn var
hálfónýtur. Einhver hrollur var í
mér allan daginn og syfjan ætlaði
mig lifandi að drepa. Ekki bætti
veðrið úr skák. Allan fimmtudag-
inn rigndi eins og hellt væri úr
fötu og skuggsýnt var í húsum
þrátt fyrir þá staðreynd að nú er
sól hæst á lofti, bak við skýin.
Bændur á suðurlandi minntust
lengi rigningarsumarsins mikla
1955. Ætlar þetta sumar að verða
eins? Við getum víst ekki gert við
því með góðu móti, en Flugleiðir
ættu að athuga sinn gang. Það
væri það minnsta.
- Guðjón
/ 2 3 5r (p 7- 1 T~ 7 9
/<? // S? 7- /3 H- (? 7 7- V ?- 12 /2
]<r V * y— /8 *> /2 2o 2/ 22 Úp
// V /8 ¥ Ifí 9 27 /0 V 10 & /3
3 )H lf /o /fí /V f <3 27 lo V 13 io V
l /3 V /fí W 2é, 7- 20 27 22 V /2
2o /7- lo /<7 lo V 1 Ifí /0 é> 20 20
V 12 s? JT~ /0 /3 (? /o y /3 / 6? V 2T~
Z!T / /2 ífí /0 (? 7 2 /3 /O 12 23 n
3o S? Ifí ZS' /3 20 2 r é /2 $2 12 22 31 7
27 h V 5 32 22 (? V 18 K H 7 22
V "'r /2 22 & 20 /<7 21 Ifí ¥ 6? V /3
/ ¥L Jf V V l<fí /t /g 13 V 12 22 28 13 ú?
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á
blómi. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans,
Síðumúla 6, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 377“. Skilafrestur er
þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
12 22 2 32 !(p 9 8 /3 (p 10
Verðlaun fyrir krosssgátu nr.
373 hlaut Sigríður Árnadóttir,
Garðabraut 45, Akranesi. Þau
eru Riddarar hringstigans eftir
Einar Má Guðmundsson.
Lausnarorðið var Ferjukot.
Verðlaunin að þessu sinni er
skáldsagan í Svörtukötlum eftir
William Heinesen í þýðingu
Þorgeirs Þorgeirssonar.
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá
að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp,
því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því
eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir
því sem tölurnar segja til um. Eihnig er rétt að taka fram, að í
þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér-
hljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað í og öfugt.
Verðlaunin