Þjóðviljinn - 07.07.1983, Side 1
OWÐVIUINN
Blaðauki um viðhald steinhúsa
fylgir Þjóðviljanum ídag.
Sjá 9 W
júli 1983
fimmtudagur
148. tölublað
48. árgangur
Ræddu um
framkvæmdir
á Vellinum.
George Bush varaforseti
Bandaríkjanna gekk hinn
glaðasti af fundi Steingríms
Hermannssonar forsætisráð-
herra í gærmorgun. Þeir ræddu
meðal annars um Natóaðild ís-
lands og framkvæmdir á Kefla-
víkurflugvelli. Eftir það fór
varaforsetinn í lax. (Ljósm.
Leifur).
Allir með Bush
Enginn
karlmaður
við...
- Það er enginn karlmaður við í
utanríkisráðuneytinu, þeir eru allir
með Bush, var svarið sem Þjóðvilj-
inn fékk er spurt var eftir ráðu-
neytisstjóranum í gær. Varaforset-
inn var þá við laxveiðar í Þverá.
Hallsteinn
Sveinsson
listasmiðurer
áttræður í dag.
Fyrsti hluti
nýstárlegs
afmælisviðtals við
hann er í blaðinu í
dag.
„Ég er hrædd“
sagði Bjarnfríður
Leósdóttirá
mótmælafundinum
í fyrradag, en
svipmyndir frá
aðgerðum eru í
blaðinu.
Hagfræðingur Vinnuveitendasambandsins:
Ný gengisfelling
er óhjákvæmileg!
„Það er rétt að ég lýsti þeirri skoðun á sam-
ráðsfundinum að gengi krónunnar væri ekki
rétt skráð og óhjákvæmilegt væri að lækka það
sem allra fyrst án þess að áhrifín yrðu bætt upp í
kaupi“, sagði dr. Vilhjálmur Egilsson hag-
fræðingur Vinnuveitendasambandsins í samtali
við blaðið í gær.
Þessi yfirlýsing vakti talsverða
athygli á fundi þeim sem forsætis-
ráðherra boðaði með samráðsaðil-
um í Ráðherrabústaðnum sl.
mánudag. Vilhjálmur sagðist í gær
fyrst og fremst líta á viðskiptahall-
ann í þessu sambandi, hann hefði
verið 7-8% í fyrra og stefndi í 4-
5% af þjóðarframleiðslu í ár.
„Þetta gengur ekki vegna þess að
við getum ekki safnað meiri
skuldum á þjóðarbúið. Ekki er
nein von á aflaaukningu og ekkert
er reynt til þess að draga úr halla á
ríkissjóði. Af þessu samanlögðu fæ
ég ekki séð að gengi fái staðist, og
auðvitað er spurningin í mínum
huga um að breyta hlutföllum milli
launa innanlands og erlends verð-
lags. Því er ekki að leyna.“
Eins og kunnugt er var gengis-
felling ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar 14.6% er hún tók
við, og þá var meðalhækkun er-
lends gjaldeyris 17%. Það fylgdi
með að genginu yrði haldið
stöðugu út árið.
Halli ríkis-
sjóðs verður
meiri en í
stefndi þegar
ríkisstjórnin
tók við
Hagfræðingur VSÍ sagði í gær að
stjórnin hefði byrjað á því „að
slaka út peningum", og jafnvel þó
að niðurskurðaráform hennar yrðu
að veruleika myndi hallinn á ríkis-
sjóði verða meiri en í stefndi þegar
hún tók við. Aðrar aðgerðir í að-
haldsátt væru ekki í sjónmáli, og nú
talað um að breyta lánskjaravísi-
tölu og lækka vexti. Vilhjálmur lét
þess getið að hagdeild VSf myndi
birta spá um efnahagsframvinduna
innan skamms.
-ekh
Flugstöðvamálið
Hvaða utanríkisnefnd?
Tveir þingflokkar útilokaðir frá upplýsingum
Tveir þingflokkar sem
kjörnir voru í síðustu kosning-
um fengu ekki að njóta neinna
upplýsinga eða annarra rétt-
inda þegar flugstöðvarmálið
var afgreitt á fundi utanríkis-
nefndar í fyrradag.
Þetta er vanvirða við lýðræðið
segir Stefán Benediktsson í
Bandalagi jafnaðarmanna í við-
tali við Þjóðviljann í dag. Og
Guðrún Agnarsdóttir Kvenna-
lista segir það fráleitt að gera
flugstöðvarbyggingu að for-
gangsverkefni í núverandi efna-
hagsástandi. Það vantar hefðir og
reglur þarsem lögunum sleppir,
þannig að menn geta bara stjórn-
að eftir hendinni, sagði iögspakur
þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
viðtali við Þjóðviljann. Um form-
legu hliðina eru mjög deildar
meiningar og einungis fáir eru
reiðubúnir að verja þá stjórnar-
háttu sem viðhafðir eru. Ragnar
Arnalds þingflokksformaður Al-
þýðubandalagsins mótmælti af-
greiðslu málsins á fundi utan-
ríkisnefndar í fyrradag og fór
fram á að annar fundur yrði boð-
aður en enginn hljómgrunnur
fékkst fyrir því í nefndinni. Um
málefni utanríkisnefndar er fjall-
að í blaðinu.
-óg
Sjá 3