Þjóðviljinn - 07.07.1983, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 07.07.1983, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. júlí 1983 BLAÐAUKI , RættvidJónSigurjónsson deildarverkfræðing í húsbyggingar- tæknideildRannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins Orku- sparnaður eitt helsta verkefnið „ Orkusparnaðarverkefnið er eitt stærsta viðfangsef ni okkar núna. Við höfum í þeim málum það helst fyrir stafni að svara fyrirspurnum, ferðast um landið til að kynnast staðháttum og stunda gæðaprófanir. Þetta er sama sagan í öllum byggingariðnaðinum. Spursmálið stendur um að velja réttu efnin við mismunandi aðstæður. Hvort nota eigi stífa uil eða létta ull til einangrunar eða hvort það borgi sig að hafa tvöfalt eða þrefalt glersagði Jón Sigurjónsson deildarverkfræðingur hjá Rannsóknarstofnun bygg- ingariðnaðarins. Jón Sigurjónsson deildarverkfræðingur við hlera á útvegg. Myndavélin greinir galla á hleranum svo sem sést á myndinni til vinstri. Efst til vinstri má greina leka og fyrir miðju er steypuklessa sem komið var fyrir á hleranum í tiiraunaskyni. Myndavélin er eins og gefur að skilja afar hentug til að greina skemmdir á húsum. - Ljósm.: -eik. „Blásarinn" sem mælir loftleka í húsum. Þrýstingurinn eykst eftir því sem að loftlekinn er meiri. Á meðan einhver tiltekinn flötur húss er mældur er lokað fyrir aðra. Blásarinn mælir mjög nákvæmlega loftflæðið sem fer í gegnum hann. - Ljósm: -eik. auður Látiö Hörpu gefa tóninn Þú veröur ekki eldrauður af áreynslu viö aö mála meö Hörpusilki — því þaö er leikur einn. Að undanförnu hefur húsbygg- ingartæknideild skoðað um 300 hús víðsvegar um landið með tilliti tii orkusparnaður. Kyndingarkostn- aður er óheyrilegur víða um land og menn reyna að bæta sér það upp með einangrunum, þreföldu gleri, klæðningum o.s.frv. Með því móti tekst að lækka orkureikningana, en á móti kemur oft mikill kostn- aður. Jón sagði að mikið væri spurt um hvort hentugt væri að nota þrefalt gler í glugga og væri því helst til að svara í fæstum tilvikum sparaði það upphæðir og ekki væri ástæða til að ráðleggja fólki á höfuðborgarsvæð- inu til að nota tvöfalt gler. Út um land horfðu málin oft öðruvísi við. Hjá Rannsóknarstofnun getur fólk fengið upp gefið um gæði þeirra ullar sem notuð er til einang- runar. Þá hefur sú skylda verið lögð á húsbyggingartæknideildina að prófa einingarhúsin sem hér eru framleidd eða flutt inn. Prófanir fara fram með þeim hætti að „blása upp“ húsin sem kallað er en með því fæst ákveðinn mælikvarði á hversu húsið er vel byggt. Þetta er mjög áhrifarík aðferð við einingar- húsin þar sem þau eru með fjöl- mörgum samskeytum vegna gerðar þeirra. _ hól Húsbyggingartæknideildin hef- ur athugað þau einingahús sem hér eru framleidd eða flutt inn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.