Þjóðviljinn - 07.07.1983, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 7. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
Þorkell
Bjarnason
„Mér iíkaði þetta mót ágætlega
vei. Veðrið hefur leikið við okkur
og aðstaðan hér er skemmtiieg.
Mótsbragurinn hefur verið með
ágætum og fólk yfirleitt komið
prúðmannlega fram“, sagði Þor-
kell Bjarnason ráðunauturog kyn-
bótahrossadómari á Melgerðis-
melamótinu.
- Hvernig voru kynbótahrossin á
þessu móti Þorkell?
„Það voru óvenju fáir kynbóta-
hestar og ekki alveg úrvalshestar í
Ovenju fálr
kynbótahestar
röðum einstaklinga. Hins vegar
voru tveir hestar sem sýndir voru
með afkvæmum ágætir. Hryssurn-
ar voru eðlilegur hópur að fjölda til
og tiltölulega jafngóðar. í heildina
má segja að það hafi verið góð út-
koma í þessu, það voru engin léleg
hross í þessu en ekki heldur nein
úrvalsgóð hross.“
- Hver er ástæðan fyrir því?
„Ástæðan er ma. sú að óeðlilega
mikið kapp var lagt á það að hafa
sem best kynbótahross á landsmót-
inu á síðasta ári og þau því í smá
öldudal í ár, ef svo má að orði kom-
ast. Annars var þessi kynbótasýn-
ing ágætlega jákvæð og stendur
fyllilega undir þeirri umsögn sem
kynbótahross hafa fengið á síðustu
árum. Hún markar ekki neitt stökk
framávið í þessum málum en undir-
strikar jafnan stíganda í ræktun
kynbótahrossa á íslandi ”.
- áþj
Rafn
Arnbjörnsson:
Þakklæti
efst
í huga
„Mér er efst í huga þakklæti til
allra þeirra sem lagt hafa hönd á
plóginn við undirbúning þessa
fjórðungsmóts“, sagði Rafn Arn-
björnsson mótsstjóri frá Dalvík er
Þjóðviljinn hitti hann að máli eftir
mótið. „Allt starfslið og keppendur
hafa staðið sig mjög vel og allir ver-
ið stundvísir. Mótið hefur farið
fram samkvæmt dagskrá og engar
tafír orðið né vandræði, þó svo
sunnanfólk hafí sést á svæðinu.“
— Vakti eitthvað sérstaka ánægju
þína?
„Ég er mjög ánægður með mótið
í heild en sérstaklega vil ég lýsa yfir
ánægju minni með tölvuútreikn-
ingana í unglinga- og gæðinga-
keppninni þar sem hægt var að
birta úrslitin strax.“
- Hefurðu einhverja bakþanka
eftir svona mót?
„Þessi mót eru náttúrlega orðin
ansi stór í sniðum og það er orðin
spurning hvort ekki sé hægt að ein-
falda þetta eitthvað og gera
aðgengilegra fyrir bæði áhorfendur
og keppendur. Einnig má spyrja
sig þeirrar spurningar hvort það sé
endilega rétt stefna að byggja upp
mörg landsmótssvæði í hverjum
fjórðung eins og td. hér fyrir norð-
an. Því það er ljóst að þau koma til
með að bítast um stórmótin í fram-
tíðinni.“
- Stendur svona mót undir sér
fjárhagslega?
„Við ímyndum okkur að svo sé
án þess að vita endanlega hvernig
þetta kemur út. Það munu um 2500
manns hafa borgað sig inn en í
heildina munu um 4000 manns hafa
verið hér þegar mest var.“
- Eitthvað í lokin?
„Þetta hefur allt gengið ljómandi
vel og ég vil færa stjórn Mel-
gerðismelasvæðisins og öllum sem
hafa unnið að undirbúningi svæðis-
ins bestu þakkir fyrir hversu vel
það var úr garði gert er við tókum
við því.“
-áþj
Gripið í strá meðan eigendurnir
ræða málin.
Minningarkapella séra Jóns
Steingrímssonar á Klaustri.
„Eldmess-
unnar’
minnst á
Klaustri
Þann 20. júlí 1983 eru 200 ár
liðin síðan séra Jón Steingrímsson
söng „Eldmessuna“ í kirkjunni á
Kirkj ubæjarklaustri, þegar Skaft-
áreldar voru í algleymingi og
hraunstraumurinn ógnaði kirkju
°g byggð. Undir messunni
stöðvaðist hraunið rétt vestan
Systrastapa og má þar enn lita Eld-
messutanga.
Þann 17. júlí í sumar verður
þessa atburðar minnst með kirkju-
hátíð á Prestsbakka og Kirkjubæj-
arklaustri.
Dagskrá hátfðarinnar verður,
sem hér segir:
Hátíðarmessa í Prestsbakka-
kirkju kl. 14.00 herra Pétur Sigur-
geirsson biskup predikar, sóknar-
prestar úr Vestur-Skaftafellssýslu
þjóna fyrir altari og kirkjukórarnir
syngja undir stjórn organista sinna.
Samkoma á Kirkjubæjarklaustri
við hina fornu kirkjutótt, þar sem
Eldmessan var sungin. Ræður
flytja: Dr. Sigurbjörn Einarsson,
biskup, og Einar Laxness, sagn-
fræðingur. Sóknarpresturinn, séra
Sigurjón Einarsson stjórnar sam-
komunni og kirkjukórarnir syngja
undir stjórn organista sinna.
Síðan verður fólki boðið að sjá
sýningar þær um Skaftárelda, sem
opnaðar voru í Kirkjubæjarskóla
og Minningarkapellu séra Jóns
Steingrímssonar þ. 8. júní s.l.
Vinnu- og
dvalarheimili
Sjálfsbjargar 10 ára
Kaffisala
í dag
í dag eru liðin 10 ár síðan Vinnu-
og dvalarheimili Sjálfsbjargar að
Hátúni 12 tók til starfa. í tilefni
afmælisins verður kaffísala í matsal
hússins laugardaginn 9. júlí.
Allt sem inn kemur fyrir selt
kaffi, rennur í ferðasjóð íbúa húss-
ins. Kaffisalan hefst kl. 14 og verð-
ur húsið til sýnis frá sama tíma.
Klukkan 14.30 leikur skólahljóm-
sveit Árbæjar og Breiðholts undir
stjórn Ólafs L. Kristjánsson á svöl-
unum á annarri hæð og klukkan
15.30 leikur Dixieland-hljómsveit
á sama stað.
Bílbelti
Af hverju
notar þú
það ekki
©
||U^FERÐAR
VOPNIÐ
gegn
ALKALI-
SKEMMDUM
Super-Silicone VATNVERJA
er vopn gegn alkalískemmdum
í steypu eins og við höfum sagt síðan 1960.
Super-Silicone VATNVERJA
er Silaxan efni sem borið er á
yfirborð steyptra veggja
Super-Silicone VATNVERJA
rýfur hárpípu kraftana í steypunni,
þannig að hún hrindir vatni frá sér
Super-Silicone VATNVERJA
hleypir út þeim raka sem fyrir
er í steypunni
Super-Silicone VATNVERJA
myndar ekki himnu utan á flötinn
Super-Silicone VATNVERJA
er áhrifameira og endingarbetra en
silikonate
Super-Silicone VATNVERJA
er reynt og prófað af Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins BS 3826
og stenst kröfur Building Research Station
Super-Silicone VATNVERJA
er ódýrari og aðgengilegri en flestar
aðrar aðferðir gegn alkaliskemmdum í
steinsteypu OG KOSTAR AÐEINS
kr. 90,- LÍTERINN
Super-Silicone VATNVERJA eykur endingu
málningar sem framleidd er hér á landi.
Super-Silicone VATNVERJA
er íslensk framleiðsla síðan 1960.
Leitið til framleiðenda um tæknilegar upp-
lýsingar
DOW CORNING
KÍSÍLLHF
Fyrstur í heimi með alls
konar silicone efni
Fyrstur á íslandi með alls konar
silicone efni
£ W
=Viðvörun
Gera aukaverkanir lyfsins
sem þú tekur þig hættulegan
í umferðinni?
ÖSK J U H LÍÐ ARSKÓLI
Tilboð óskast í að reisa og fullgera 2. áfanga
skólans við Suðurhlíð í Reykjavík.
Húsið er 1 hæð um 1300 m2 auk kjallara og
leiðsluganga um 550 m2. Verkinu skal að
fullu lokið fyrir 1. ágúst 1985,
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, Reykjavík gegn 5.000 kr. skila-
tryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað
þriðjudaginn 26. júlí 1983, kl. 11:00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sími 26844.
AUGLÝSING
Athygli gjaldenda er vakin á því að dráttar-
vextir af þinggjöldum verða reiknaðir að
kvöldi föstudagsins 8. júlí n.k. Vinsamlegast
gerið skil fyrir þann tíma.
Fjármálaráðuneytið,
5. júlí 1983
Rauður:
þríhymingur
AW