Þjóðviljinn - 07.07.1983, Blaðsíða 3
Fimm'tudagur 7ijUlI 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐÁ 3
Hvert er umboðið?
Hvaða utanríkisnefnd
fjallaði um flugstöðina?
Er utanríkisnefnd tveggja
manna nefnd? Ef hún er það ekki,
þá er framkvæmdavaldið með
jafn marga aðalmenn og löggjaf-
arvaldið í utanríkismálanefnd
alþingis. Þeir Eyjólfur Konráð
Jónsson og Kjartan Jóhannsson
eru einu aimennu þingmennirnir
sem kosnir voru í nefndina sem
aðalmenn á síðasta kjörtímabili
og eru enn á þingi. Aðrir tveir
nefndarmanna, þeir Halldór Ás-
grímsson og Albert Guðmunds-
son eru nú orðnir ráðherrar og
þarmeð í forystu framkvæmda-
valdsins í iandinu.
Einn nefndarmanna var núver-
andi utanríkisráöherra Geir Hall-
grímsson sem náði ekki kjöri til
alþingis í síðustu kosningum. Það
gerðu heldur ekki nefndarmenn-
irnir Ólafur Ragnar Grímsson og
Jóhann Einvarðsson.
Á klukkutíma miljarðafundin-
um í fyrradag mætti þingflokks-
formaður Alþýðubandalagsins
Ragnar Arnalds og mótmælti af-
greiðslu flugstöðvarmálsins.
Varamenn í utanríkisnefnd
síðasta þings voru boðaðir á fund
nefndarinnar í fyrradag, en með-
al varamanna eru einnig menn
sem ekki náðu kjöri í síðustu
kosningum. Spurningar vakna
um formlega hlið þessa máls. Er
það eðlilegt að nefnd sem kosin
er af löggjafarsamkomu sem ekki
hefur lengur umboð skuli koma
saman til að fjaila fjalla stórpólit-
ísk mál - og er það eðlilegt að
tveir nýir þingflokkar njóti engra
réttinda við afgreiðslu málsins?
Vert er og að minna á gagnrýni
þingmanna og Morgunblaðsins á
síðasta kjörtímabili um að ráð-
herrar gegni nefndarstörfum á
þingi.
Eina milliþinga-
nefndin
Utanríkisnefnd alþingis er eina
nefnd þingsins sem starfar sam-
kvæmt þingsköpum allt árið.
Hins vegar er umboð hennar
einsog annarra nefnda fallið úr
gildi, þarsem hún hefur ekki ver-
ið kjörin af nýju löggjafarþingi.
Embættismenn þingsins sitja
áfram samkvæmt hefð á milli
þinga og þess eru dæmi að forset-
ar alþingis gegni áfram því emb-
ætti jafnvel þó að þeir hafi ekki
verið í framboði við síðustu kosn-
ingar. Hins vegar er ekki kunnugt
um að forseti sameinaðs alþingis
og þarmeð handhafi forseta-
valdsins hafi áður gegnt störfum
ráðherra, einsog Jón Helgason
nú.
Stjórnað eftir hendinni
Lögspakur maður í þingflokki
Sjálfstæðisflokksins sagði blaða-
manni að það hefðu skapast viss-
ar hefðir í þessu efni, en að þessu
sinni kæmu nýir fletir upp. Þann-
ig væri álitamál hvort ekki hefði
átt að kalla saman aðalmenn úr
síðustu utanríkismálanefnd, það
væri nýtt að forseti sameinaðs
alþingis væri samtímis ráðherra,
það væri nýtt að helmingur
nefndarmanna í einu milliþinga-
nefndinni væri ekki lengur á
þingi, það væri nýtt að nefndin
fengi jafn fjárfrekt og viðamikið
verkefni einsog flugstöðina inná
sitt borð til lokaafgreiðslu á milli
þinga og það væri óvenjulegt að
jafn langur tími líði frá alþingis-
kosningum til þinghalds um leið
og ný ríkistjórn tæki við.
„Gallinn við okkar stjórnsýslu
er sá, að okkur vantar meir og
minna reglur og hefðir þarsem
lögunum sleppir. Þetta er meir og
minna á reiki og þess vegna geta
menn því miður stjórnað bara
eftir hendinni" sagði þessi þing-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Á klukkutíma -
rúmur miljarður
Þingmaður í Sjálfstæðisflokkn-
um sem er ákafur fylgismaður
flugstöðvarbyggingarinnar sagði
að lengi vel hefði utanríkisnefnd
ekki komið saman að sumri til
þrátt fyrir heimild til slíks. Það
væri hins vegar spurning hvort
um eðlilega stjómarháttu væri
að ræða þegar utanríkisnefnd
er kölluð saman á klukkut íma-
fund til að ráðslagast um jafn
stórpólitískt mál og hér er á ferð-
Þartil ný kosning hefur
farið fram
Friðjón Sigurðsson skrifstofu-
stjóri alþingis sagði að meginregl-
an væri sú að kosning væri í gildi
þartil ný kosning hefði farið fram.
Þess vegna væri sú ein leið fær að
boða gömlu utanríkisnefndina að
þessu sinni, með þeim breyting-
um sem orðið hefðu á nefndinni
við síðustu kosningar. í stað
þeirra aðalmanna sem ekki væru
lengur á þingi, kæmu varamenn.
Sagði Friðjón að í þessu efni sem
og í sambandi við forseta alþingis
væri farið samkvæmt hefð.
Eðlilegt?
Ljóst er að lög kveða ekki
nema að takmörkuðu leyti á um
atriði einsog hér um ræðir.
Spurningin er sú hvort um eðli-
lega stjórnarháttu sé að ræða eða
ekki. Er það eðlilegt að heilu
þingflokkarnir sem kjörnir hafa
verið til að gegna störfum á lög-
gjafarsamkomunni fái ekki að
fjalla um mál sem framkvæmda-
valdið er að taka stórpólitískar
ákvarðanir um?
-<>g
Guðrún Agnarsdóttir, Kvennalista:
Ekkert rætt við okkur
Andvígar frekari umsvifum heráns
T ónlistarviðburður:
Ray Charles
á íslandi
Bandaríski tónlistarmaður-
inn Ray Charles hefur stutta
viðdvöl á landinu í dag og
treður tvivegis upp í veitinga-
húsinu Breiðvangi í Breiðholti í
kvöld, fyrst kl. 20.00 og síðan
aftur kl. 23.00.
Að sögn Fálkamanna hefur
miðasala gengið nokkuð vel og er
búist við húsfylli. Ray Charles er
með í föggum sínum eigin 25
manna hljómsveit skipaða af-
bragðs tónlistarmönnum. Eru þeir
nokkuð plássfrekir og þurfa allt
dansgólfið í Broadway svo hér
verður eingöngu um tónleika að
ræða, að sögn forráðamanna
staðarins. Tilefni þess að þessi
þekkti listamaður kemur til lands-
ins er það að hann er á leið á stóra
tónlistarhátíð í Haag í Hollandi en
gefur sér tíma til að stoppa hér í
einn dag. Það er Ámundi Amunda-
son, umboðsmaður skemmtik-
rafta, sem hefur veg og vanda af
komu Ray Charles.
Hinn heimsfrægi tónlistarmaður
Ray Charles leikur í Broadway í
kvöld.
„Okkur flnnst slæmt að jafn
mikilvæg og skuldbindandi á-
kvörðun skuli tekin utan þings án
þess að allir þingmenn hafl haft
tækifæri til að kynna sér málvöxtu
eða fjalla um málin“, sagði Guðrún
Agnarsdóttir formaður þingflokks
Kvennalistaþingmanna þegar Þjv.
bar undir hana máiatilbúnað utan-
ríkisráðherra við samkomulagið
um flugstöðina í Keflavík. „Með-
ferð þessa máis er enn ein sönnun
þess að þing hefði átt að kalla
saman strax í júní“.
„Ríkisstjórnin er að vanvirða
lýðræðið í þessu máli einsog svo
mörgum síðustu vikur,“ sagði
Stefán Benediktsson hjá Banda-
lagi jafnaðarmanna, þegar
blaðið innti hann álits á fundi
utanríkismálanefndar í fyrra-
í slenskar konur
í myndlist
Fimmtudaginn 7. júlí kl. 20:30
flytur Hrafnhildur Schram, list-
fræðingur, fyririestur um íslenskar
konur í myndlist. Þessi dagskrá er í
„opnu húsi“ í Norræna húsinu.
Með fyrirlestri sínum sýnir
Hrafnhildur Schram fjölda lit-
skyggna. Hún talar á sænsku.
Að vanda verður hlé að loknum
fyrirlestrinum, en síðan verður
sýnd kvikmynd Ósvaldar Knud-
sens um Asgrím Jónsson, list-
málara.
Hver er afstaða ykkar tii efnis-
atriða samkomulagsins?
„Okkur finnst fráleitt að gera
byggingu nýrrar flugstöðvar að
forgangsverkefni í núverandi efna-
hagsástandi. Hvernig gétum við
haft efni á því að ráðast í slíkar
framkvæmdir meðan ríkisstjórnin
finnur ekki fé til að greiða hinum
lægstlaunuðu mannsæmandi laun?
Jafnframt finnst okkur
óskynsamlegt að ráðast í byggingu
slíks mannvirkis meðan óljóst er
dag, þarsem tekin var á-
kvörðun um byggingu flug-
stöðvar án þess að leitað væri
álits þeirra þingflokka sem
kosnir voru nýir á alþingi í síð-
ustu þingkosningum.
„Utanríkisráðherra eða utanrík-
isnefnd hefur aldrei kallað fulltrúa
Bandalags jafnaðarmanna á sinn
fund til að upplýsa um þetta mál,
hvað þá að við höfum fengið tæki-
færi til að fjalla um það. Viðkom-
andi stjórnvöld hafa ekki sent okk-
ur neinar upplýsingar um af-
greiðslu málsins.
Það fer ekki á milli mála að hér
er um að ræða afgreiðsluaðferð
sem er alveg óskiljanleg. Það er
ekki annað að sjá en að síðasta al-
þingi ráði ferðinni - og ég skil ekki
til hvers kosningar eru til löggjaf-
arþings, ef afdrifarík mál eru á-
kveðin af þeirri löggjafarsamkomu
sem hefur ekki lengur umboð. Ég
mótmæli því að Bandalag jafnaðar-
manna skuli ekki njóta þeirra rétt-
hver verður þróun farþegaflugs yfir
Atlantshaf. Það væri nær að verja
fé til að bæta öryggi og aðbúnað
flugvalla útum landið, en þessu er
víða ábótavant.
Þegar byggð verður ný flugstöð
finnst okkur eðlilegt að íslendingar
fjármagni hana sjálfir. Við erum
andvígar frekari umsvifum banda-
ríska hersins í Keflavík og höfum
alltaf lagt áherslu á mikilvægi þess
að íslendingar væru efnahagslega
óháðir veru erlends hers f
landinu.“ -«n
inda sem það hlýtur að eiga að
njóta í umboði kjósenda,“ sagði
Stefán Benediktsson að lokum.
-óg.
Guðrún Agnarsdóttir.
Var haft samband við ykkur um
þetta mál?
„Nei. Mér vitanlega hefur ekk-
ert samband verið haft við okkar
þingflokk um þetta mál.“
Stefán Benediktsson.
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát oq útför Ólafs R. Einarssonar menntaskóiakennara Sérstaklega þökkum við hjartanlega öllum þeim mikla fjölda sem heiðruðu minningu hans með gjöfum til líknar- og minningar- sjóða. Því miður eru ekki tök á að votta þeim persónulegt þakklæti okkar. Jóhanna Axelsdóttir Gísli Rafn Ólafsson Þorvarður Tjörvi Ólafsson Sigríður Þorvarðardóttir Einar Olgeirsson Guðrún Gísladóttir Axel Jónsson Sólveig Einarsdóttir.
Stefán Benediktsson, Bandalagi jafnaðarmanna
Vanvlrða lýðræði
Oskiljanlegur afgreiðslumáti stjórnvalda