Þjóðviljinn - 07.07.1983, Page 20
20 SIÐA - ÞJOÐVILJINN Fimmtudagur 7. júlí 1983
Svipmyndir frá fjórðungsmóti
Melgerðismelamótið er um
garð gengið og flestir þeir er
þar komu við sögu horfnir til
sinna heima og
hversdagslegu anna. En
minningarnar um
^nægjulegt hestamannamót
lifa áfram og ilja mönnum
um hjartaræturnar og hvetja
til enn frekari dáða á næstu
mótum. Myndirnar segja
sína sögu.
Gunnar Egilsson
Gengið
vonum
framar
„Þetta hefur allt gengið vonum
framar. Við settum okkur það
markmið að dagskrá gæti gengið
hnökralaust fyrir sig og hefur það
náðst að mestu enda er svæðið gott
og bíður uppá fádæma mikla
möguleika“, sagði Gunnar Egilsson
formaður framkvæmdanefndar á
Melgerðismelum er Þjóðviljinn
spjallaði stuttlega við hann á milli
hlaupa í kappreiðum á sunnudeg-
inum.
- Hvernig hefur tölvan komið
út?
„Það er ótrúleg hagræðing af
henni. Allar upplýsingar og úrslit
liggja strax fyrir og hefur verið
gaman að sjá knapa sem hafa verið
aftarlega í þátttökuröðinni koma
við í tjaldinu þar sem úrslitin birt-
ast til þess að athuga hvernig þeir
þurfa að haga keppninni til þess að
hafa von um að komast í vinnings-
sæti “.
- Hafið þið riðið á vaðið með
fleiri nýjungar á þessu móti?
„Já, önnur nýjung er vinnu-
aðstaða gæðingadómara. Þau mál
hafa verið í miklum ólestri en með
þessum dómhúsum hefur þeirra
aðstaða batnað til stórra muna og
ég efast ekki um að aðrir fylgja í
fótspor okkar á þessu sviði.“
- Hvernig hefur þér fundist
mótið vera?
„Mér hefur fundist mjög ánægju-
legt að sjá öil þessi glöðu andlit
þessa sólardaga hér fyrir norðan.
Og þó einhverjir hafi haft munn-
herkju vegna kulda á föstudag og
laugardag þá sýndist mér skína
gleði og ánægja úr hverju andliti
allan tímann.“
-áþj
Myndir og
texti: - áþj
Gamalreyndir hestamenn bera saman bækur sínar meðan aðrir áhorfendur fylgjast af athygli með dómum í gæðingakeppninni.
Vinningshafarnir í flokki klárhesta í gæðingakeppninni á Melgerðismelum. Fremst má sjá Gylfa Gunnarsson á hesti sínum Kristal sem sigraði
örugglega.