Þjóðviljinn - 16.07.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 16.07.1983, Blaðsíða 3
Helgin 16.-17. júlí 1983 MÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Blöndusamningarnir: Ekkert miðar Samningum verkalýðshreyfing- arinnar við Vinnuveitendasam- bandið um kaup og kjör við vænt- anlega Blönduvirkjun hefur ekkert miðað þótt undanfarið hafi aðilar ræðst við hjá sáttasemjara. Búast má við tíðindum í næstu viku. „Það hefur ekkert skeð, samning- arnir eru alveg kjurrir", sagði Hilmar Jónasson hjá ASÍ í samtali við Þjv. í gær. „En sáttasemjari hefur boðað til fundar á þriðju- dagsmorgun og þá á að reyna til þrautar. Við verðum sjálfsagt hjá honum alla vikuna." Deilumál í samningunum eru einkum forgangsréttur heima- manna til vinnu, greiðsla fyrir ferð- ir til vinnustaðar og gildistími samningsins. VSÍ semur fyrir hönd Landsvirkjunar og Verktakasam- bandsins við rúmlega 10 manna hóp frá landssamböndum og fé- lögum á Norðvesturlandi: Verka- lýðsfélagi Skagafjarðar, Verka- lýðsfélagi Austur-Húnvetninga, Verslunarmannafélagi Húnvetn- inga, Vörubílstjórafélaginu Neista Blönduósi, Iðnsveinafélagi Hún- vetninga, landssamböndum verka- manna, vörubifreiðastjóra, málm- og skipasmiða, verslunarmanna, rafiðnaðarmanna, byggingar- manna og frá ASÍ. -m Jafnréttisráð: Aukin útgáfa Jafnréttisráð hefur ýtt úr vör nýju fréttabréfi sem ætlað er að komi út þrisvar til fjórum sinnum á ári. Er ætlunin að það beri fréttir frá ráðinu, skýri frá starfi jafnrétt- isnefnda sveitarfélaga o.fl. Með þessu hefur Jafnréttisráð aukið útgáfustarf sitt en í ráði er að fleira komi á eftir. Forsíðumyndin Nýráðinn Jafnréttisráðs Flygenring. framkvæmdastjóri Elín Pálsdóttir er Þegar Bússi kom í heimsókn fjÚ.jU. BF Z* 4 JftFN btfÝTUR'l tAX- .Ver.ÐUM, 06 ATK'/Æf>ft- þ'A ÆTTÍ ÞftB ! Að OLR-ÆT > 06 éCfc ‘-eM hkct A& MfiOl/R AT' o Afc KOMft l BdiWM ■ ■ SYNING IBUÐA Konur á Suðurlandi: 80 mættu á friðarfund í Tryggvaskála sl.mánudag Fundur Friðarhreyfingar kvenna á Suðurlandi sem haldinn var í Tryggvaskála á Selfossi sl. mánudagskvöld, 11. júlí, tókst með ágætum og sóttu hann konur víða af Suðurlandi, allt frá Hvolsvelli og Laugarvatni. Um áttatíu konur mættu á fundinn. Nk. mánudag stendur friðarhóp- urinn á Selfossi fyrir myndbanda- sýningu um friðarmál, í Gagn- fræðaskólanum. Hefst hún kl. 21. Guðfinna Ólafsdóttir, Selfossi, setti fundinn og bauð gesti vel- komna, síðan tók Valgerður Tryggvadóttir frá Vogi við fundar- stjórn. Sigríður Thorlacius hélt ræðu um starf og undirbúning að stofnun Friðarhreyfingar kvenna á íslandi og tilgang friðarhrejjfinga almennt. Því næst flutti Margrét Heinreksdóttir, fréttamaður, er- indi um vígbúnaðarkapphlaupið og viðræður stórveldanna. Sigríður Karlsdóttir frá Selfossi las upp úr bókinni Blómin í ánni og Auður Eir Vilhjálmsdóttir flutti ávarp. Lokaávarpið flutti Kolbrún Guðnadóttir frá Selfossi og minnti á ógn kjarnorkustríðsins og þann hættulega hugsunarhátt þegar fólk telur ekkert slæmt geta komið fyrir það sjálft. Mikill hugur er í konum á Suðurlandi að vinna að friðar- málum. EÞ Séð yfir fundarsalinn í Tryggva- skála. Konur fjölmcnntu víða að á Suðurlandi. Ljósm. Ingi Ingason. Sigríður Thorlacius í ræðustól cn við borðið sitja f.v. Kolbrún Guðnadóttir, Selfossi, Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Guðfinna Ólafs- dóttir, Selfossi, Alda Andrésdóttir fundarritari og Valgerður Tryggvadóttir, fundarstjóri. Ljósm. Ingi Ingason. Forsíðumyndin er af hinni til- komumiklu holu við Eldvörp á Suðurnesjum, sem menn binda miklar vonir við og hafa jafnvel tal- ið vera svo kraftmikla að úr henni megi fá rafmagn fyrir öll Suðurnes- in. Æðin sem tekið er úr er á 600 metra dýpi 250° heit. Nokkurn tíma tekur að mæla holuna, svo að marktækt sé en gert er ráð fyrir, að eftir 1-2 mánuði fari að sjást hvort holan ætlar að uppfylla þær vonir sem menn binda við hana. Strókur- inn úr henni náði langt upp í himin- inn í bjartviðrinu í gær, en eins og sjá má á myndinni kemur gufan ‘upp úr stórri trekt, sem er hljóð- deyfir. Sjálf holan er hægra megin á myndinni og gufan leidd úr henni í hljóðdeyfinn. Myndina tók - eik íbúðir í 3. byggingaráfanga Stjórnar verkamannabústaða við Eiðs- granda, verða til sýnis laugardaginn 16. og sunnudaginn 17. júlí 1983 frá kl. 14 - 22 báða dagana. Sýningaríbúðir eru að Oldugranda 1,1. hæð. Framleiðslu- kostnaður á heyi Búreikningaskrifstofan hefur nú framreiknað framleiðslukostnað á heyi. Er þá miöað við vcrðið eins og það hef- ur verið undanfarin ár, að þeim hækkunum viðbættum, sem orð- ið hafa á árinu. í fyrra var þessi kostnaður áætlaður kr. 2.00 á kg. þuírheys komið i hlöðu. - Nú ef fram- ieiðslukostnaðarverðið reiknað á kr. 3.30 kg. af fullþurru heyi, komnu í hlöðu. Sé heyið tekið á túninu er það reiknað 10-15% lægra. -mhg Vextir af sauðfjár- innleggi Framleiðsluráð landbúnaðar- ins hcfur ákveðið að vextir af cftirstöðvum sauðfjárafurða frá haustinu 1982 verði að lágmarki 42% á ári. Vextir reiknast frá 5. okt. 1982 til greiðsiudags, enda verði gerð krafa um að réttmætur vaxtakostnaður verði samþyk- ktur af Sexmanna-nefnd. -mhg Útflutnings- bætur á búvörur Á yfirstandandi verðlagsári er áætluð útflutningsbótaþörf land- búnaðarafurða, miðað við þann útflutning, sem ákveðinn var í júní, talin vera 160,9 milj. kr. Til viðbótar kentur svo vaxta- og geymslugjald þess kjöts, sem flutt hefur verið út eftir 1. nóv. 1982. Af þessari upphæð hafa 116,8 milj. kr. þegar verið greiddar. - Áætlað hefur verið að útflutningsbótarétturinn geti numið um 330 milj. kr. -mhg Minni mjólk i jum Mjólkurinnlcgg var rúmlega 1% minna í júní í ár en j sama mánuði í fyrra. Fyrstu 6 mánuði þcssa árs hafa mjólkursamlögin tekið á móti 50,9 milj. Itr. af mjólk en það er 2,17% meira en á sama tíma í fyrra. Hjá Mjólkurbúi Flóamanna var mjólkin í júní nú 3% minni en í sama mánuði í fyrra, hjá Mjólk- ursamlagi KEA, 1,8% minni, hjá Mjólkursamiaginu í Borgarnesi um 5% minni og hjá Mjólkur- samlaginu í Búðardal rúmlega 4% 111100!. Hjá flestum öðrum mjólkursamlögum varð lítils háttar aukning. -nlilg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.