Þjóðviljinn - 16.07.1983, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 16.07.1983, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 16.-17. júlí 1983 I í kringum gróðrastöðina á Lauga- brekku við Varmahlíð í Skagafirði er skjólbelti úr norskri viðju. Ljósm.: Sig. Blöndal. borist til landsins eftir að norrænir menn fluttust hingað fyrir 1100 árum. Það er meira og minna fyrir tilviljun. Skógrækt ríkisins, sem um þess- ar mundir er 75 ára, hefir unnið markvissar að því á löngum tíma en flestir aðrir aðiljar með þessari þjóð að auðga gróðurríki landsins. A vegum þessarar litlu stofnunar hafa verið gróðursettar um 80 teg- undir trjáa, sem ættuð eru frá 5-6Ö0 stöðum á jarðarkringlunni. 20 þessara tegunda hafa borið þroskað íræ og 6 þeirra hafa þegar numið land. En í því felst, að tréð hefir borið þroskað fræ, fræið hefir fallið til jarðar og spírað og upp af því vaxið sjálfstæður einstaklingur af eigin rammleik. Þessar tegundir ættu þannig að vera taldar íslensk- ar í næstu útgáfu af Flóru íslands á . sama hátt og þær 90 aðrar, sem ég nefndi áðan að borist hefðu hingað eftir landnám. I sambandi við þennan innflutn- ing af fjörrum löndum er það ein- mitt samanburður á veðurfari hér og þar, sem er leiðarljósið. Fyrir því erum við skógræktarmenn ein- lægt að hugsa um veðurfarið, og af einstökum þáttum þess er hitafarið þýðingarmest. Einhver kann nú að hugsa sem svo, að þessi innflutningur plantna - í okkar tilviki trjátegunda - sé ekki mál, sem skiptir sköpum fyrir framtíð þessarar þjóðar í landi sínu. Um slíkt má endalaust deila vitaskuld. Ég hefi reyndar alltaf haldið, að lönd væru því byggilegri sem þau væru grænni, og fyrir því yrði ísland enn byggilegra en nú er, ef stærri hluti þess væri klæddur grænum skógi, sem náttúrlega er kóróna alls gróðurs. Vangaveltur af þessu tagi leiða hugann að því, hvaða þýðingu flutningur nokkurra nytjajurta frá upphaflegum heimkynnum sínum hefir haft fyrir það mannfólk, sem nú byggir reikistjörnuna jörð. Ég ætla að biðja fróðleiksfúsa áheyrendur um að einbeita hugan- um smástund og hlýða á stutta upptalningu á nokícrum helstu nytjajurtum heimsins, þar sem jafnframt er greint frá því, að hvaða hundraðshluta þær eru nú ræktaðar utan þess meginlands, sem er náttúrlegt heimkynni þeirra: r Utvarpserindi Sigurðar Blöndals skógræktarstjóra 23. maí í vor Góðir áheyrendur. Skjólbelti af Alaska-víði í Holti í Onundarfirði, 15 ára gamalt. Ljósm.: Sig. Blöndal. líka - er aðallega notaður sem mæli- kvarði hitastigs meðalhiti mán- aðanna júní-september. Er þá átt við sólarhringsmeðalhita. Við nefnum þetta gildi „sumarhitann“, en alþjóðlegt heiti er „tetraterm“. Kirkjubæjarklaustur er með hæst- an sumarhita á íslandi. Hann var á fyrrnefndu góðæristímabili um 10.8 stig á Celsíus. Það var jafnhátt og Bodö í Norður-Noregi, sem er rétt norðan við heimskautsbaug. Um nokkurt skeið hefir Veður- stofa íslands notað meðaltöl um hitafar og aðra veðurfarsþætti fyrir þrjátíu ára skeiðið 1930-1960. Ef meðalsúmarhitinn á þessu skeiði er borinn saman við síðasta áratug, 1970-1980, þá hefir hann lækkað um hálfa gráðu á Celsíus. Það er ótrúlega mikið fall. Til þess að gefa ykkur, áheyrendur góðir, hug- mynd um það, sem þið getið sett ykkur fyrir sjónir, þá merkir hálfr- ar gráðu fall sumarhita eitt hundr- að m lækkun skógarmarka til fjalls, miðað við langvarandi ástand. Hér má þó minna á það, að langt er í það hitafar, sem var á níunda áratug síðustu aldar. Ég nefni þá hið lægsta, sem hitinn að sumri komst árið 1882, en þá var sumar- hitinn á Skagaströnd 3,2 stig á Celsíus, en hann er í venjulegum sumrum sunnanlands þetta 9-10 stig. Þannig má það vera nokkur huggun þessi árin, að við höfum ekki þurft að þola veðurfar, sem er neitt í námunda við það, sem knúði forfeður okkar og mæður til vest- urfara á síðasta hluta nítjándu aldar. Ég ætla að nefna eitt dæmi enn um hitafar, en það er sumarið 1980, sem þótti með afbrigðum gott og hlýtt í flestum landshlutum, nema á Austurlandi. Þegar ég fékk í hendur skýrslur skógarvarða Skógræktar ríkisins fyrir það ár, en í þeim draga þeir saman allmiklar upplýsingar um veðurfar í umdæmum sínum, þá kom í ljós, að sumarhitinn náði í besta falli meðaltali áranna 1930- 1960. Ég skal nú ekki þreyta góðfúsa áheyrendur með lengri romsu um veðurfar og tölur lútandi að því. En fyrir því er mér þetta efni hugleikið, að skógræktarmenn fást við innflutning trjáa til gagns og prýði víðs vegar að af þessum hnetti. Ástæðan fyrir þeim inn- flutningi er sú vissa okkar, að hér geti vaxið miklu fleiri tegundir en fyrir eru í landinu. Við vitum, að landfræðileg einangrun veldur því, að svo fáar tegundir plantna vaxa hér villtar sem raun ber vitni, þar á meðal tré og runnar. Af 450 teg- undum háplantna, sem greindar eru í Flóru íslands hafa einar 90 „Það er ekkert vor, þegar ekki er kominn sauðgróður um sumar- mál“, sagði frændi minn, Guttorm- ur Pálsson á Hallormsstað, við mig einhvern tíma kringum 1960, en upp úr því má telja að ljúki nær fjörutíu ára skeiði, sem kannski er hið hlýjasta í sögu þjóðarinnar, eða a.m.k. frá árdögum hennar. Já, hugsið ykkur, áheyrendur góðir, „sauðgróður um sumar- mál“. Slíkt þætti saga til næsta bæjar nú, jafnvel í suðursveitum landsins, þar sem fyrst vorar. Ég var einmitt staddur austur í Skafta- felli í Öræfum síðasta vetrardag í vor og þá voru þar engin merki vorsins, öðru nær. Daginn áður kom blindbylur um sunnanvert landið. Bílar festust á Breiðamerkursandi og jafnvel upp undir Hof í Öræfum. í Skaftafelli, þeirri veðraparadís, varð jörð al- hvít næstsíðasta vetrardag. Á hlýviðrisskeiðinu, sem hófst á íslandi upp úr 1925 og stóð fram yfir 1960 - ætli við megum ekki segja til 1963 - hefði veður af þessu tagi verið óhugsandi í Öræfasveít um sumarmál. Svo maður tali nú ekki um ástandið á Vestur-, Norður- og Austurlandi, þar sem vorið er að koma fyrst núna. Þetta rifj ar upp fyrir manni vorið og sum- arið 1979, sem sýnir einmitt vel, að yfir okkur ríkir annar veðraheimur en sá, sem Guttormur frændi minn lifði á meira en helmingi starfsævi sinnar. í tölum talið má gefa hugmynd um breytinguna á þann hátt, sem nú skal greina: í skógræktinni á Norðurlöndum - og þá að sjálfsögðu hér á íslandi Marmkynið lifir á innfluttum nytjajurtum %

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.