Þjóðviljinn - 16.07.1983, Síða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 16.-17. júlí 1983
Ein af ljósmyndum Frakkans Philippe Carré sem varpað verður á veggi meðan tónverkið er flutt.
Hrafnaþing frá Færeyjum
Ásunnudagskvöld kl. 20.30 veröur
uppfært í Norræna húsinu færeyskt
verk sem vakið hefur mikla athygli í
Færeyjum og víöar. Þaö nefnist
Hrafnaþing (Ravnating) og er jass með
þjóðlagaívafi eftir Kristian Blak og
jafnframt tónleikunum er eins konar
„show“ meö Ijósmyndum eftir
Frakkann Philippe Carré.
Kristian Blak er danskur að uppruna en
hefur undanfarin 9 ár verið búsettur í Þórs-
höfn. Hann tilheyrir listamannahóp sem
nefnir sig Yggdrasil og hefur aðsetur í Fær-
eyjum þó að listamenn af margs konar
þjóðerni tilheyri honum. Meðal þeirra sem
hafa lagt sitt af mörkum er skáldið og mál-
arinn William Heinesen.
Hrafnaþing í Norræna húsinu á sunnu-
dagskvöld verður flutt af þeim Kristian
Blak sem leikur á píanó og Ernst Dalsgarð
sem leikur á flautu. Það fjallar um, eins og
nafnið bendir til, hrafninn sem er sú skepna
sem mestar sagnir og goðsagnir eru til um í
Færeyjum. Það skiptist í 8 kafla sem heita
Hrafnagjá, Huginn, Muninn, Hrafnaþing,
Pas de Deux, Hrafninn flýgur um aftaninn,
Hvíti hrafninn og Himnaríki. Franski
ljósmyndarinn Philippe Carré dvaldi í Fær-
eyjum veturinn 1982 og tók ljósmyndir af
hrafninum fyrir þetta verk og þeim verður
varpað upp á veggi meðan á tónleikunum
stendur og í beinum tengslum við tónlist-
ina. Tónverkið kom út á hljómplötu í fyrra
og styrkti Norræni menningarmálasjóð-
urinn útgáfuna.
Kristian Blak er 36 ára gamall. Hann
nam tónlist og frönsku við háskólann í
Árósum og fór upphaflega til Færeyja til að
kenna þar við menntaskólann í eitt ár.
Jass með þjóðlaga-
og myndaívafi
í Norrœna húsinu
á sunnudagskvöld
Kristian Blak er höfundur Hrafnaþings og
flytur það ásamt Ernst Dalsgarð. Það er
jass með þjóðlagaívafi.
Hann varð fljótlega miðpunktur í öllu
tónlistarlífi eyjanna, spilaði m.a. með
þjóðlagahópnum Spælimennirnir en eftir
þá liggja þrjár stórar hljómplötur og hefur
verið einn aðalmaðurinn í Havnar J azzfelag
sem er jassklúbbur í Þórshöfn.
Yggdrasill, sem áður er nefndur, hefur
flutt þrjú tónverk eftir Kristian Blak. Auk
Hrafnaþings var flutt tónverkið Den yder-
ste Ö í Þórshöfn 1981 en það er tónlist við
ljóð eftir Heinesen og við vígslu Norræna
hússins var frumflutt verkið Heygar og
Dreygar sem sækir efni í færeyska þjóðtrú.
Blaðamaður Þjóðviljans hitti að máli
tvær íslenskar konur sem voru á ráðstefnu í
Færeyjum nýlega og sáu uppfærslu Hrafna-
þings og voru þær uppi í skýjunum og verð-
ur því líklega enginn svikinn sem fer í Nor-
ræna húsið á sunnudag.
- GFr
ritstjórnargrein
Komdu niður, komdu niðurl
Newton uppgötvaði þyngdar-
lögmálið fyrir nærri þremur
öldum, þegar eplið féll í höfuð
honum eins og sagan greinir. Hér
uppi á Islandi virðast þeir Jón og
Jóhannes hafa fengið það í höf-
uðið þrem öldum síðar að þyngd-
arlögmálið mætti einnig nota í
efnahagsmálum. Þeir fundu upp
formúluna um að það sem færi
upp hlyti að koma niður aftur
vegna þess aðdráttarafls sem býr í
skertri kaupgetu almennings.
Það er eftir þessari formúlu sem
rikisstjórn Steingríms Her-
mannssonar vinnur þegar hún
keppist við að ná verðbólgunni
upp svo hún detti niður í náinni
framtíð.
Góður árangur
Fyrsta skilyrðið til þess að
koma verðbóígunni niður er að
koma verðlaginu upp. Þetta hef-
ur gengið prýðilega hjá hæstvirtri
ríkisstjórn Steingríms Hermanns-
sonar, enda kann alþýða manna
ráðherrum öllum bestu þakkir
fyrir. Ef einhver hefur efasemdir
um getu þeirra á þessu sviði nægir
að kveða slíkar raddir niður með
stuttum lista um hlutfallslegar
hækkanir vöruverðs á tímabilinu
maí til júlí:
Hækkun erlends gjaldeyris ...24.5 %
Hækkun matvöruverðs.....20.19%
Hækkun mjólkurmatar.....28.72%
Hækkun drykkjarvöruverðs 20.15%
Hækkunframfærsluvísitölu 14.1 %
Og áfram upp
Þetta er allnokkuð á tveimur
mánuðum eða svo og þarf ekki
mikla reikningshausa til þess að
sjá að verðbólgumet er í mikilli
hættu á hinum fræga ársgrund-
velli. Þó er það hreint ekki svo að
ráðherrar ætli sér að láta hér við
sitja og leggjast í leti. Hitaveitu-
gjöld í Reykjavík eiga að hækka
um 42% og verð á rafmagni til
neytenda um 23% á næstunni.
Aðrir landsmenn munu sjálfsagt
njóta sömu náðar. Ekki má
gleyma Pósti og síma sem fær
fjórðungshækkun á öllu sínu
verðlagi fyrir veitta þjónustu. Og
til þess að spenna nú enn betur
upp verðbólguna nýtti fjármála-
ráðherra heimild til þess að
hækka bensín í topp, þannig að
við fengum 13% verðhækkun á
bensíni. Sérstaka hyllí hafa ráð-
herrar öðlast hjá fólki vegna þess
að vísitala lánskjara er látin æða
áfram meðan vísitala kaupsins
kemst varla úr sporunum. Þyng-
darlögmálið á að tosa lánskjörin
niður þegar fram í sækir.
Sláturtíð í vœndum
Það væri að gera lítið úr afrek-
um ráðherra ef þess væri ekki get-
ið að þeir hafa sleppt öllum Da-
víðum landsins lausum, þannig
að þjónustugjöld má nú hækka
upp úr öllu valdi í því skyni að
koma verðbólgunni upp til þess
að hún geti dottið niður. Þetta er
gert með þeim hætti að nauðsyn
þess að lækka skatta á eignafólki
er ekki látin bitna á sveitar-
sjóðum, heldur eru alls konar
þjónustugjöld hækkuð á gamal-
mennum og börnum svo ekki
verði kassaþurrð.
Og svo geta menn farið að
hlakka til sláturtíðarinnar í haust
þegar allt búvöruverð mun rjúka
upp til búdrýginda fyrir al-
menning.
Kaupið niður og upp
Aðeins á einu atriði stendur
aðdráttaraflskenningin í verð-
bólgumálunum á veikum grunni.
Og svo óheppilega vill til að það
er einmitt í höfuðatriði hennar
sem allt hitt byggist á. Aðdráttar-
aflið sem á að kveða verðbólguna
niður eftir að hún er farin upp átti
að skapa með því að leyfa ekki
nema 8% kauphækkun 1. júní sl.
í stað 22% og ekki nema 4%
kauphaækkun 1. októbernk. Það
er að segja svona 30%
kaupskerðing yfir línuna á árinu.
Hér skilja leiðir með sérfræðing-
um í aflfræði efnahagsmála. Þeir
fóstbræður Jón og Jóhannes trúa
enn á það aðdráttarafl sem felst í
stórskerðingu kaupmáttarins.
Einar Karl________________
Haraldsson
skrifar
Aðrir halda því fram að úr verði
aðeins tilbúin kreppa og atvinnu-
leysi án nokkurs varanlegs árang-
urs í baráttunni við verðbólguna.
Þeir benda á fordæmi Geirs Hall-
grímssonar sem lét sína ríkis-
stjórn keyra niður kaupmáttinn
og vakti með því upp enn magn-
aðri verðbólgudraug sem riðið
hefur húsum síðan. Kollsteypur
af þessu tagi kalla fram þá afl-
fræði sem segir að sé kaupið
pressað niður með sameigin-
legum ráðherraþunga íhalds og
framsóknar hefur það til-
hneigingu til þess að hoppa upp
þegar fer að hitna undir ónefnd-
um líkamshlutum. Og menn
benda á vænlegri leiðir svo sem
verðlagsaðhald, vaxtalækkun,
samdrátt f fjárfestingum, opin-
bera stýringu í fjárfestingarmál-
um, bætta stjórn peningamála
o.s.frv.
Verðlagið upp og upp
Það er semsagt valt að treysta
eingönu á aðdráttarafl minnk-
andi kaupgetu til þess að koma
verðbólgunni niður. Ráðherrar
hafa að vísu staðið sig frábærlega
vel í að koma verðbólgunni upp,
og eiga verðskuldaðan heiður í
því efni. En þó að þeir kalli allir í
kór næstu misserin: Komdu nið-
ur, komdu niður, verður að telja
líklegast því miður, að verðbólg-
an ansi því engu eins og kenjóttur
krakki og magnist sem aldrei
fyrr.
-ekh
Ríkisstjórnin fetar í fótspor New-
tons í baráttunni við verð-
bólguna.