Þjóðviljinn - 16.07.1983, Side 11
v\V
Helgin 16.-17. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Sænskur listamaður, Lars Höfsjö, hefur í sumar verið á
Staðastað á Snæfellsnesi og málað altaristöflu í kirkj-
una þar í sjálfboðavinnu. Aðdragandinn að því að þessi
mynd varð til er rakinn hér á eftir, sem og ýmislegt um
myndina sjálfa, samstarf norrænna myndlistarmanna
ogfleira.
„Legg þú
á djúpið”.
Samtal í óveðri
Sá er aðdragandinn að þessari
altaristöflu, segir Lars Hofsjö í við-
tali við Þjóðviljann, að fyrir þrem
árum kom ég á Snæfellsnes og lenti
heima hjá séra Rögnvaldi
Finnbogasyni. Úti var hið versta
veður og við sátum inni daglangt og
töluðum um alla skapaða hluti. Svo
fórum við út í kirkju og héldum
áfram að tala. Við töluðum líka um
útlit kirkjunnar og hvernig mætti
hressa upp á það. Við settumst nið-
ur og ég bjó til tillögu að litavali
þegar kirkjan yrði máluð að innan.
Og um leið rissaði ég upp óveðurs-
mynd og sagði sisona að þetta gæti
kannski orðið góð altaristafla í
kirkjuna.
Framkvæmd
Ári síðar kom ég aftur, þá hélt
Norræna myndlistarsambandið
þing og fór í leiðangur um Snæfells-
nes. Þá hitti ég aftur séra Rögnvald
og þá var búið að mála kirkjuna
eins og ég hafði lagt til. Og þá
minntum við hver annan á það að
nú væri ekkert eftir annað en altar-
istaflan.
Við urðum sammála um að ég
reyndi. Við sóttum báðir um fyrir-
greiðslu, hann til sænskra sjóða. í
vor fengust svo peningar úr ýmsum
sjóðum sem dugðu fyrir farinu.
Rögnvaldur og hans safnaðarnefnd
sáu svo um uppihaldið en að öðru
leyti var þetta sjálfboðavinna. Og
nú er myndin tilbúin, 2,50 sinnum 3
metrar. Safnaðarnefndin sá hana
áður en ég fór og þeir sögðu við mig
Sœnskur
listamaður
málaði
sérkennilega
altaristöflu
á kórvegg
Staðastaða
kirkju
að minnsta kosti að þeim þætti hún
góð svo ég vona að allt hafi þetta
vel farið.
Maður á báti
Og þá er að segja frá myndinni
sjálfri, sem er máluð í akrýllitum.
Yfir altarinu mála ég haf og himin
og fer að óveður mikið, en á hafinu
situr mannvera í báti. Tveir textar
verða sitt hvorum megin við altarið
- annar er upphafið á íslenskum
sálmi, „Legg þú á djúpið“, hitt er
texti eftir mig sem er á þessa leið:
„Sú stund kemur í lífi hvers manns
að hann verður sjálfur að kveða á
um framtíð sína“. í þessari mynd
geta menn ef til vill fundið margs-
konar tákn. Andspænis hinum
dýpstu spurningum er maðurinn
einn, þetta er líka fiskimaðurinn
Pétur sem veiðir sálir manna, bát-
urinn er oft kirkjutákn - já og var
ekki örkin hans Nóa einnig bátur í
óveðri? Báturinn getur einnig ver-
ið ísland í heiminum þar sem
margra veðra er von, og þar að
auki vona ég að fólk á Snæfellsnesi
eigi auðvelt með að samsama sig
þessum litla manni á báti á stóru
hafi - og óveður í aðsigi.
Það er allt og sumt. Mér fannst
að ég hefði fengið góða hugmynd
sem ætti vel við á þessum stað og
því væri sjálfsagt að gera þetta. Svo
vona ég að hægt verði að skipta um
gler í kirkjunni svo ljósið í henni
verði hlýrra en það er nú.
Listamaður
og uppalari
Ég hefi starfað sem málari og
höggmyndasmiður, einnig hefi ég
líka verið ráðgjafi um innkaup á
listaverkum fyrir skóla í Stokk-
hólmi og unnið að því að gera list
þá sem til er í skólum lifandi fyrir
nemendum. Ég hefi skreytt í-
þróttahús, skóla og sjúkrahús - en
þetta var mín fyrsta kirkja.
Lars Hofsjö var um fjögurra ára
skeið formaður Norrænu myndlist-
arsamtakanna - og „þar byrjuðu
mín íslensku sambönd" sagði
hann. íslandsdeild samtakanna
bauð honum að halda sýningu, sem
fram fór í FÍM-salnum fyrir þrem
árum.
Lars Hofsjö lét einnig í ljós von
um að tíðindi eins og altaristaflan í
kirkjunni á Staðastað ýttu undir
það að menn efldu tengsl milli lista-
manna og að þeir færu milli landa
til starfs. Lars er reyndar einn
þeirra sem stjórnar norrænni
myndlistarmiðstöð í Sveaborg fyrir
utan Helsinki.
- ÁB.
„Himinn og haf og óveður fer að, en í litlum báti manneskja.“ Þetta lýsir mikilleika himins og hafs og vinda.
Það er háski í myndinni, en einnig von. (Ijósm. RF)
Lars Hofsjö og kona hans Ragnhild - Ég taldi mig hafa fengi góða hugmynd. (Ljósm. eik.)