Þjóðviljinn - 16.07.1983, Síða 28
DlOÐVIUINN
Helgin 16.-17. júlí 1983
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiöjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Bændur
hittast
Á milli sauðburðar og sláttar
gefsttækifæri hjá
sauðfjárbændum að ferðast af
bæ. Helgina 2.-3. júlí sl. tóku
bændur af Fellsströnd og
Skarðsströnd í Dalasýslu sig
saman, fengu sér rútu og héldu
norður á bóginn, í heimsókn að
Djúpi. í Reykjanesi við
ísafjarðardjúp gistu þeir og
skemmtu heimamönnum með
söng og spili um kvöldið og
síðan var dansað langt fram á
bjarta sumarnóttina.
Hópurinn sem fór í ferðina er
fólk sem í mörg ár hefur sungið í
kór undir stjórn Hajldórs Þórðar-
sonar á Breiðabólsstað á Fells-
strönd en hann hefur stjórnað kór i
sveitinni í rúm 20 ár. 1 lefur kórinn
aðallega sungið á þorrablóti í
sveitinni og á Jörvagleði sem hald-
in er í Dalabúð annað hvert ár. í
Sumum fínnst Þjóðviljinn birta of oft mynd af bróður mannsins sem hér dansar í Reykjanesi. Dansinn dunaði fram eftir öllu. I vinstra horninu
má sjá hjónin á Staðarfelii á Fellsströnd, Þóru Guðjónsdóttur og Svein Gestsson. Ljósm. GMÓ.
Dalamenn syngja
fyrir Djúpmenn
í leikfimisalnum í Reykjanesi
vor söng kórinn inn á hljómplötu
ásamt fleiri kórum úr sýslunni og
mun sú plata vrentanleg bráðlega.
Rúmlega fimmtíu manns tóku
þátt í ferðinni að Djúpi. Lagt var af
stað á laugardagsmorgni og ekið
yfir Þorskafjarðarheiði. í Djúpi
var Ari Sigurjónsson, bóndi í Þúf-
um í Reykjafjarðarhreppi
leiðsögumaður Dalamanna en
margir þeirra höfðu ekki komið á
þessar slóðir áður.
Skemmtunin í Reykjanesi hófst
rúmlega níu á laugardagskvöldi og
stjórnaði Ragnar Ingi Aðalsteins-
son henni af myndarbrag. Kvaðst
hann vona að með þessari ferð
styttist leiðin yfir Þorskafjarðar-
heiði í hugum bænda beggja hér-
aðanna. Blandaður kór Dala-
manna söng nokkur lög m.a. lag
eftir Guðbjart Björgvinsson á
Sveinsstöðum við ljóð eftir Ragnar
Inga og syrpu áf léttum lögum. Síð-
an var kórnum skipt í kvennakór
og karlakór. Sungu konurnar mörg
skemmtileg dægurlög og heima-
bakaðan texta sem samin var í til-
efni ferðarinnar með óskum um
gróandi byggð við Djúp.
Dóra Valdimarsdóttir frá Á, á
Skarðsströnd og fararstjórarnir
þeir Ragnar Ingi og Ástvaldur
Magnússon sungu frumsaminn
gamanbrag um raunir fararstjóra.
Síðan léku Dóra Valdimarsdóttir
og Jóhannes Sigurðsson á Hnúki
saman nokkur lög á munnhörpu.
Að lokum söng blandaði kórinn
nokkur lög m.a. lag og ljóð eftir
listamann Dalamanna, Jón frá
Ljárskógum. Að síðustu sfóðu allir
upp og sungu Erla, góða Erla til að
tengja saman Dalamenn og Djúp-
menn því textinn er eftir Stefán frá
Hvítadal og lagið eftir Sigvalda
Kaldalóns.
Félagar úr harmonikkusveit
Dansað var fram eftir nóttu og mikið spjallað. Harmonikkuleikararnir
f.v. Olafur Jensson, Laugum, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Staðarfelii,
Halidór Þórðarson, Breiðabólsstað, Ingibjörg Kristinsdóttir, Skarði og
Jón Benediktsson, Miðgarði. Ljósm. GMO.
Dalamanna léku áður en skemm-
tunin hófst og létu ekki þar við sitja
því þeir héldu uppi fjörinu langt
fram á nótt. Harmonikkuleikar-
arnir voru: Ólafur Jensson,
Laugum, Ragnar I. Aðalsteinsson,
Staðarfelli, Jóhannes Sigurðsson,
Hnúki, Ingibjörg Kristinsdóttir,
Skarði, Halldór Þórðarson Breiða-
bólsstað og Jón Benediktsson,
Miðgarði.
Daginn eftir var ekið um
Nauteyrar- og Snæfjallahrepp
undir leiðsögn Engilberts Ingvars-
sonar á Tyrðilmýri og snætt í Dal-
bæ á Snæfjallaströnd. Urn kvöldið
var haldið heim á leið.
Að sögn Sveins Gestssonar á
Staðarfelli voru Dalamenn hæstá-
nægðir með ferðina. Djúpmenn
fögnuðu að sjálfsögðu heimsókn-
inni vel og fjölmenntu í Reykjanes.
Spjölluðu bændur mikið en um
hvað, skal ósagt látið. EÞ
splfi
Blandaður kór Dalamanna, nánar tiltekið frá Felisströnd og Skarðsströnd, syngur í ieikfímisalnum Jóhannes Sigurðsson Irá Hnúki sem líka lék með harmonikkusveitinni, leikur
í Reykjanesi við ísafjarðardjúp undir stjórn Halldórs Þórðarsonar á Breiðabólsstað. Ljósm. GMÓ. hér á munnhörpu ásamt frænku sinni, Dóru ValdemarsdótturfráÁ. Dóra söng
einnig gamanvísur á skemmtuninni. Ljósm. GMÓ.