Þjóðviljinn - 18.08.1983, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 18. ágúst 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA ll
íþróttir!
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
„Ég var eiginlega hissa á
að strákarnir skyldu ekki
brotna alveg niður eftir að
hafa fengið þessi ódýru
mörk á sig í byrjun. Þau voru
svekkjandi, ekki síst vegna
þess að það var mikil stemm-
ing í liðinu og upphafsmín-
úturnar voru góðar, en þeir
héldu haus í síðari hálf-
leiknum, börðust þá betur
þótt sóknarlega séð sé ég
ánægðari með fyrri hálf-
leikinn," sagði Jóhannes
Atlason landsliðsþjálfari í
knattspyrnu eftir að ungt og
reynslulítið landslið íslands
hafði fengið slæman skell, 0-
4, gegn Svíum á Laugardals-
vellinum í gærkvöldi.
„Við gerðum okkur þetta alltof
erfitt sjálfir,“ sagði Viðar Hall-
dórsson fyrirliði. „Ef við hefðum
getað haldið út fyrstu 15-20 mínút-
urnar hefðu úrslitin getað orðið
mun hagstæðari, tapið var alltof
stórt. Mér fannst okkur vanta meiri
yfirvegun á miðjunni, menn voru
að reyna að senda boltan frarn of
snemma og misstu hann þá þannig
að vörnin stóð eftir berskjölduð
fyrir snöggum sóknum Svíanna,"
sagði Viðar Halldórsson.
Svíar tóku forystu á 4. mínútu og
voru komnir í 3-0 eftir hálftíma.
Mörkin voru einum of ódýr, Mats
Jingblad skoraði fyrst eftir mis-
heppnuð úthlaup hjá Þorsteini
Bjarnasyni, Sten-Ove Ramberg
bætti öðru við á 20. mínútu, sendi
boltann í mannlaust markið frá vít-
ateig eftir að Þorsteinn og Sunes-
son höfðu rekist saman með þeim
afleiðingum að Þorsteinn missti
boltann, og Glenn Hysen sá urn
það þriðja eftir skyndisókn og
fyrirgjöf Tommy Holmgren.
Ragnar Margeirsson, besti
leikmaður íslenska liðsins, fékk
besta marktækifærið strax á 11.
mínútu, Óli Þór hirti boltannn af
varnarmanni, renndi á Ragnar sem
Keflvíkingurinn Óli Þór Magnússon í baráttu við sænska varnarmenn í leiknum í gærkvöldi en í þetta skiptið
sem oftar höfðu þeir sænsku betur. Mynd: -eik
Jingblad sem hafði leikið á Bjarna
Sigurðsson markvörð, og Stig
Fredriksen sá um framkvæmd
hennar. Stórsigur Svía í höfn.
Við getum ekki verið án atvinnu-
mannanna okkar í landsleikjum
við sterkar þjóðir á borð við Svía,
þ.e.a.s. ef við viljum gera okkur
vonir um íslenskan sigur. Liðið
sem lék í gærkvöldi var ungt, rnikið
af leikmönnum úr landsliðinu 21
árs og yngri, og leikurinn bar þess
merki. Að auki er samæfingin tak-
mörkuð en útúr leik sem þessum fá
yngri mennirnir tækifæri til að
sanna getu sína,
Ragnar Margeirsson stóð uppúr
í íslenska liðinu og var einn í sama
gæðaflokki og Svíarnir. Mikil vinn-
sla í honum og flestar sóknir ís-
lenska liðsins hófust á því að hann
braust upp ntiðjuna. Óli Þór Magn-
ússon var frískur frantan af og Sig-
urður Jónsson og Sveinbjörn Há-
konarson áttu ágætar rispur og þá
var Viðar taustur í vörninni. Bjarni
var síðari hálfleikinn í markinu og
lék vel, Þorsteinn hins vegar langt
frá sínu besta milli stanganna í fyrri
hálfleik. Vörnin var óörugg og í
þessunt leik hefði hún þurft sterkan
varnartengilið fyrir frarrian sig.
Varnarmönnunum hættir til að
„selja sig“, einkunt má Óntar
Rafnsson bæta hjá sér varnar-
leikinn hvað það varðar. Gunnar
Gíslason og Helgi Bentsson kontu
inná í síðari hálfleik og við það
Odýr mörk í byrjun
lék að vítateig og skaut hörkuskoti
sem Bernt Ljung varði vel. Sigurð-
ur Grétarsson og Sveinbjörn Hák-
onarson áttu einnig ágætar skottil-
raunir í hálfleiknum en Ljung varði
af öryggi í bæði skiptin. Svíarnir
höfðu undirtökin, spiluðu oft hratt
og vel í gegnum óþétta íslenska
vörn og verðskulduðu forystuna
þótt þrjú mörk væru í það mesta.
Fjögur hefðu þau þó getað orðið,
Ramberg skaut hörkuskot í sam-
skeytin rétt fyrir leikhlé.
Meiri barátta var í íslenska liðinu
í síðari hálfleik en í þeim fyrri en
sóknarleikurinn var tilviljana-
kenndur og lítt markviss. Agætar
skottilraunir sáust þó, menn voru
ófeimnari við að reyna skot fyrir
utan vítateig, en aldrei þurfti Ljung
þó að grípa til sparihanskanna.
Svíar voru áfram meira með
boltann og fengu nokkur mark-
tækifæri, flest eftir varnarmistök ís-
lenskra. Fjórða markið kont svo úr
vítaspyrnu á 83. mínútu, dæmdri á
Ólaf Ííjörnsson fyrir að brjóta á
jókst baráttan í íslenska liðinu.
Sem sagt, slæmt tap, en af því má
læra á ntargvíslegan hátt. Ljóst er
að varnarleikinn verður að bæta
fyrir Evrópuleikina í haust en þeg-
ar sex til sjö atvinnumenn bætast
við hópinn sem lék í gærkvöldi
þurfum við tæpast nokkru að
kvíða. -VS
Svavar Jóhannsson mundar kjuðann í úrslitaleiknum, eitt af mörgum giæsiskotum í uppsiglingu. Mynd:
Leifur
„Vann ég þá alla -
og suma tvisvar!”
„Vann ég þá alla - og sunta tvisvar“, varð Svavari
Jóhannssyni, hinum 69 ára gamla billiardmeistara,
að orði eftir að hafa tryggt sér sigur á stórmeistara-
móti gamalla billiardspilara í Ballskák á Hverfisgötu
í fyrrakvöld. Hann mætti Jóhanncsi Magnússyni,
„Nóa“, í úrslitaleik og sigraði á sannfærandi hátt.
Svavar lagði alla andstæðinga sína að velli í
undankeppninni, þar á meðal Jóhannes, en þeir
urðu í tveimur efstu sætunum og léku því til úrslita.
Stefán Guðjónsson hafnaði í þriðja sæti, Sigurður
Sigurðsson, „Sídó“, í fjórða, Sigurður Jónsson varð
fimmti og Dagbjartur Grímsson sjötti. Þessir kapp-
ar eru allir hættir keppni en voru hér á árum áöur
litríkir og sigursælir billiardspilarar.
Svavar vann sinn fyrsta meistaratitil í billiard árið
1930 og hefur síðan verið talinn jafnbestur í þessari
íþróttagrein hér á landi í gegnum árin. Hann hefur
greinilega litlu gleymt og fór á kostum undir lokin í
úrslitaleiknum.
-VS
Kvennaliðið tilkynnt
Islenski landsliðshópurinn fyrir
leikina gegn Finnum á sunnudag,
Svíum á miðvikudag og Finnum
annan laugardag í Kvrópukcppni
landsliða í knattspyrnu kvenna hef-
ur verið valinn. I honuni cru eftir-
taldar stúlkur:
Guðríður Guðjónsdóttir, Mar-
grét Sigurðardóttir, Erla Rafns-
dóttir, Ásta M. Reynisdóttir,
Magnea Magnúsdóttir, Ásta B.
Gunnlaugsdóttir, Bryndís Einars-
dóttir og Rósa Á. Valdimarsdóttir
frá Breiðabliki, Erna Lúðvíksdótt-
ir, Jóhanna Pálsdóttir, Kristín
Arnþórsdóttir og Ragnheiöur Vík-
ingsdóttir frá Val, Laufey Sigurð-
ardóttir, ÍA, Brynja Guðjónsdótt-
ir, Víkingi, Arna Steinsen. KR, og
Eva Baldursdóttir, Fylki. Þjálfari
liðsins er Guðmundur Þórðarson.
-MHM
Kampavínið bíður
Höttur, Egilsstöðum, vann stór-
sigur á Súlunni frá Stöðvarfirði, 7-
1, í A-riðli 2. deildar kvcnna í
knattspyrnu í fyrrakvöld. Þar með
hefðu Hattarstúlkur átt að vera
búnar að tryggja sér sigur í riðlin-
um en Helgi Indriða og dömur hans
neyðast til að bíða mcð að opna
kampavínsflöskurnar, a.m.k. þar
til í kvöld.
Kæra hefur nefnilega borist frá
FH vegna leiks Hattar og FH sem
Egilsstaðastúlkurnar unnu 1-0.
Þar var óvart notaður bolti nr. 5 í
stað nr. 4 og gerðu FH-ingar athug-
asemd fyrir leikinn við dómarann.
Hann lét þó leikinn fara fram en
ntældi stærð boltans þegar honum
var lokið. Málið verður tekið fyrir í
héraðsdómi eystra í dag. _VS
Jafntefli í Hólminum
Snæfell og Víkingur frá Ólafsvík
gerðu markalaust jafntefli þegar
félögin mættust í A-riðli 3. deildar-
innar í knattspyrnu í Stykkishólmi í
fyrrakvöld. Mikil barátta var í
leiknum, Snæfellsmenn sóttu öllu
meira, en náðu ekki að knýja frant
sigur og Iosa sig þar með úr fallbar-
áttunni. Snæfell hefur 7 stig en
Ármann 5 fyrir lokaumferðina.
Snæfell mætir HV heima en Ár-
mann fer til Ólafsvíkur og Snæfelli
dugir því annað stigið til að halda
sæti sínu í 3. deild.
Haukar unnu á Patró
Haukar úr Hafnarfirði eru svo
Igott sem komnir í úrslit 4. deildar-
innar í knattspyrnu eftir 6-1 sigur á
Hrafna-Flóka á Patreksfirði í fyrra-
kvöld. Haukar liafa 19 stig en
Afturelding 18 fyrir síðustu um-
ferðina. Haukar mæta neðsta
Iiðinu, Óðni, en Afturelding leikur
gegn Reyni frá Hnífsdal sem er í
þriðja sæti. Haukar hafa sjö mörk-
um betri markatölu og dugir því
líklega annað stigið gegn Öðni til
að komast í úrslitakeppnina.