Þjóðviljinn - 21.09.1983, Side 4
4 SÍÐA - ÞJÓÖVILJINN Miðvikudagur 21. september 1983
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarsnn.
Símavarsla: Slgríður Krístjánsdóttlr, Margrét Guömundsd.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bllstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar:
Siðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prant.
Prentun: Blaöaprent h.f.
Lyfin
A sama tíma og forsætisráðherrann ferðast um
landið og boðar fagnaðarerindið um hve mikið ríkis-
stjórnin sé að gera fyrir þig heldur hinn napri veruleiki
áfram sína beinu braut. Afleiðingar kjaraskerðingar-
innar og þrengingastefnu stjórnvalda birtast daglega á
mörgum sviðum.
í gær skýrði Þjóðviljinn frá hækkunum á lyfjum sem
heilbrigðisráðherrann hafði reynt í fela í frumskógi
reglugerðarmáls. Þegar ríkisútvarpið var svo í gær-
morgun að tíunda fréttir úr dagblöðunum kaus það
auövitað að hlýða ráðherranum og hylma líka yfir þess-
ar hækkanir. Hlustendur ríkisútvarpsins fengu ekki að
vita hve mikið lyf og læknisþjónusta hafa hækkað und-
anfarna daga. !
I frétt Þjóðviljans kom fram að greiðslur almennings í
vegna innlendra lyfja hafa í þessum mánuði hækkað um |
nærri 100%. Á sama tíma og kaupið og lífeyrir gamla j
fólksins standa óbreytt sýnir þessi hækkun vel grund- j
vallareðli stjórnarstefnunnar.
i
l
Lœknishjálpin j
Markmið ríkisstjórnarinnar er að láta almenning í!
landinu borga brúsann og hefja lögmál markaðskrepp- j
unnar til vegs í heilbrigðisþjónustunni birtist líka í stór- i
felldum hækkunum á hvers kyns læknishjálp. j
Fyrr í þessum mánuði voru gjöld sjúklinga, sem í
hljóta almenna læknishjálp, hækkuð um tugi prósenta.
Fjölskyldur sem þurfa oft að leita læknishjálpar verða
nú að greiða árlega þúsundum króna meira fyrir lyfja-
gjöf og læknisþjónustu. Þetta er nú ríkisstjórnin að gera
fyrir þig.
Húsnœðið I
Kjarakreppa almennings birtist einnig á fleiri svið- j
um. Þrátt fyrir loforðaleik ráðherranna um úrbætur í j
húsnæðismálum fer ástandið hjá húsbyggjendum hríð- j
versnandi. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokk- j
urinn Iofuðu húsbyggjendum gulli og grænum skógum í;
síðustu kosningum. Áldrei hefur ástandið verið verra.
í forsíðufrétt Þjóðviljans í gær var greint frá því að
fjöldi húsbyggjenda hefur neyðst til þess að gefast upp í
miðjum klíðum og selja hálfbyggð hús langt undir j
kostnaðarverði. Stjórnarstefnan hrekur því húsbyggj- j
endur í stórum stíl út í hreint fjárhagslegt tjón.
Bílarnir
Húsnæði og bifreið hafa á undanförnum árum verið 1
frumþáttur í kjaragrundvelli almennings. Kjarakrepp- ;
an birtist nú á þessum báðum sviðum. Þjóðviljinn
skýrði frá því í gær að þúsundir bifreiðaeigenda eru ;
komnir í greiðsluþrot. Fólkið hefur ekki lengur efni á j
að greiða tryggingargjöldin eða borga minniháttar við- i
gerðir sem nauðsynlegar eru til að bílarnir fáist skoðað- j
ir- . . !
Hillurnar hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins, sem nú eru að :
fyllast af númerum þeirra sem komnir eru í greiðslu- I
þrot, eru sláandi vitnisburður um það ástand sem e að j
skapast í þjóðfélaginu. Og svo spyr forsætisráðherrann
bifreiðaeigendur: Hvað er ríkisstjórnin að gera fyrir
Þig?
Uppboðin
Staðfesting þrotabússtefnunnar birtist svo einnig í
nýútkomnu Lögbirtingarblaði. Þar eru hundruð
auglýsinga um nauðungaruppboð á eignum almenn-
ings. Það er hlálegt að séreignastefna Sjálfstæðisflokks-
ins skuli leiða hundruð fjölskyldna í landinu inn á
uppboðssíðurnar í Lögbirtingarblaðinu. Það sýnir bet-
ur en flest annað hið hróplega misræmi milli orða og
verka. ór.
klippt
Ný byggðastefna
í opinberum skýrslum er þegar
farið að gera ráð fyrir tekjuauka
af framkvæmdum á Keflavíkur-
flugvelli svo hundruðum miljóna
skiptir. Það er hin nýja byggða-
stefna sem landsmenn eiga eftir
að kynnast. Almennur samdrátt-
ur í atvinnu um allt land mun að
öllum líkindum leiða til ásóknar í
Vallarvinnu á Suðurnesjum með
tilheyrandi búseturöskun og mis-
vísun milli atvinnugreina. Og þó
er vandinn ærinn á Suðurnesjum
og kyrkingur í atvinnustarfsemi
sem má rekja til sambýlisins við
herinn. Guðbergur Ingólfsson
fiskverkandi í Garðinum lýsir
þessum vandkvæðum í viðtali við
Keili 16. september sl.:
Maður hélt að mannekla og
atvinnuleysi færi ekki saman
„Manneklan er okkar stærsti
höfuðverkur. Við erum með 150
manns í vinnu. Hérna í verkun-
inni þurfum við 65 manns. Þegar
skólinn byrjaði hættu 30. Ég er
búinn að auglýsa, biðja fólk að
tala við kunningjana, yfirleitt
reynt alla skapaða hluti, fengum
tvo menn. Á sama tíma auglýst-
um við eftir bflstjóra á vörubíí og
18 sóttu um. í Keflavík voru 20-
30 manns á atvinnuleysisskrá,
enginn þeirra fékkst í vinnu. Þeg-
ar Hagkaup opnaði nýja verslun í
Njarðvík komust færri í störf en
vildu. Hér hjá okkur er unnið til
10 á hverju kvöldi þessa dagana
og því meiri tekjumöguleikar en
t.d. í verslunum eða á Vellinum
sem keppir við okkur um vinnu-
afl. Fólk segist ekki hafa áhuga á
miklum tekjum, það fari allt í
skatta, það vill heldur ganga
atvinnulaust en að fara í fisk-
vinnu, eða er ef til vill eitthvað
bogið við þær reglur sem atvinnu-
leysisstyrkur er greiddur eftir? Er
skattakerfið orðinn dragbítur á
vinnuvilja fólks? Það er von að
maður spyrji, einhvernveginn
fínnst manni að mannekla og at-
vinnuleysi eigi ekki að fara sam-
an, en það gerir það.,Við höfum
verið með rútu í gangi undanfarin
ár á milli Keflavíkur og Garðsins,
um 50-80 manns úr Keflavík
vinna hjá okkur að staðaldri. Það
hefur oft verið eriftt að fá mann-
skap í vinnsluna en ég hef aldrei
kynnst öðru eins og því sem nú er
og við erum ekki einir um þetta,
alls staðar í kringum okkur vant-
ar fólk í fiskvinnu. Augljóst ér
t.d. að stöðvarnar hér í Garðin-
um eru orðnar of stórar miðað
við vinnuaflsframboðið og því
erum við að hugsa um að setja
annan skuttogarann okkar á
rækju, við þorum ekki að taka
aflann á land af hættu við að hafa
ekki mannskap til að vinna
hann.”
Ég sé alltaf eftir ungum mönn-
um í vinnu uppá Völl
„Það er erfitt að keppa við Völl-
inn um vinnuafl, jafnvel þótt
tekjumöguleikarnir séu mun
meiri í fiskvinnslunni virðist það
ekki hafa neitt að segja, þar spila
eflaust skattareglur inní, það er
orðið svart þegar ekki borgar sig
að vinna fyrir hærri tekjum.
Manni finnst alltaf jafn sárt að sjá
á eftir ungum mönnum sem fara í
vinnu uppá Völl, þeir koma yfir-
leitt ekki þaðan aftur, ef svo má
að orði komast. En það er fleira
sem maður á erfitt með að skilja,
verkalýðsfélagið í Keflavík vill
kaupa hlut ríkisins í íslenskum
aðalverktökum, mérfinnst miklu
skynsamlegra að-það kaupi stóra
frystihúsið í Keflavík og tryggi
þannig stöðugri atvinnu, því þú
mátt bera mig fyrir því að það er
andskotann ekkert meira mál að
reka það frystihús en Verktakana
svo vel sé. Annars gerir það
mann bjartsýnni á framtíð sjávar-
útvegsins að ungir menn ráðast í
stórvirki t.d. hér í Garðinum enn
þann dag í dag. Hér er gamalt og
gott fyrirtæki Sveinbjörns Árna-
sonar í Kothúsum og það kom
ungur maður úr Hafnarfirði sem
rekur það nú með miklum krafti,
kominn með skuttogara og stór-
an bát. Njáll Benediktsson, góð-
ur vinur minn er nýlega hættur,
og tveir ungir synir hans teknir
við rekstrinum og þeir drífa þetta
áfram, - svona á þetta að vera.”
-e.k.h.
Svarað með
árásum
Jón Steinar Gunnlaugsson
skrifar grein í Morgunblaðið þar
sem hann ber sig upp undan
„rógskrifum” Þjóðviljans í garð
forystumanna Samtaka áhuga-
manna um áfengismál. Það er
undarlegur samsetningur eins og
fleira sem frá þessum forystu-
mönnum kemur. { stað þess að
gera hreint fyrir sínum dyrum er
offorsið og árásargirnin í fyrir-
rúmi. En spyrja má hversvegna
þeir forystumenn SÁÁ og aðrir
er í forsvari hafa verið með ein-
hverjum hætti í sambandi við
sjúkrastöð SÁÁ svara ekki
spurningum blaðamanna, láta
ekki ná í sig, og vilja ekki gefa
svör við -spurningum sem risið
hafa vegna húsgagnakaupa og
fjársöfnunar til sjúkrastöðvar-
innar. Þrátt fyrir eftirleit Þjóð-
viljans hefur aðeins einn þessara
manna verið fús til þess að gefa
sína sýn á málið og voru yfirlýs-
ingar hans að sjálfsögðu birtar
orðréttar í blaðinu.
Óljóst um fjármál
Sigurður Þ. Guðmundsson
læknir skrifar ádrepu í Tímann
um SÁÁ-málin, og segir að skýr-
ingar SÁÁ manna á húsgagna-
kaupunum séu gott dæmi um
hvemig þeir forklúðri hverju mál-
inu á fætur öðru. „Það virðast
hálfgerðir viðvaningar sem ann-
ast mál fyrir SÁÁ sem ekki geta
komið málum sínum skammlaust
fyrir almenning þannig að hann
skilji þeirra röksemdir og fái
smám saman traust á gerðum
þessara manna.”
Sigurður ber síðan saman
hvernig SÁÁ og Krabbameinsfé-
lagið hafa staðið að sínum söfn-
unum, og bendir á að það séu að-
ferðir og meðul SÁÁ manna við
safnanirnar sem valdið hafi and-
byr en ekki andúð á málstað
þeirra. SÁÁ kaus að kaupa sér
þjónustu athafnamanns og fyrir-
tækis „sem enga reynslu virðist
hafa í verkum af þessu tagi”.
„Enn sem fyrr eru SÁÁ menn
mjög óljósir í öllum sínum
svörum um fjármál. Þeir virðast
einhvernveginn vilja dylja með
óljósum orðum hvað þessi söfnun
kostaði eiginlega. Af fréttum í
Tímanum má þó ráða að ekki sé
fjarri að kostnaður sé kominn
upp í 30% af söfnunarfé eða gjafa-
loforðum. Hvort um er að ræða
er ekki gott að sjá.”
30% eða 3%
Til samanburðar nefnir Sigurð-
ur að kostnaður við nýafstaðna
söfnun Krabbameinsfélagsins
hafi verið 3% eða einn tíundi
hluti þess sem hann virðist hafa
orðið hjá SÁÁ, þó að þar séu
ekki öll kurl komin til grafar.
„Væri ekki rétt hjá SÁÁ
mönnum að líta í eigin barm og
hætta að kenna öðrum um þau
mistök sem þeir hafa gert og snúa
sér þess í stað að því að skilja
þjóðarsálina. Þeir geta áreiðan-
lega reitt sig á aðstoð ýmissa sem
sýnt hafa að þeir kunna sín verk:
Krabbameinsfélagsins, Rauða
krossins, Hjálparstofnunar kirkj-
unnar, SÍBS, DAS, Hjartavemd-
ar, Slysavarnarfélagsins, svo
nokkur dæmi séu nefnd”, segir
Sigurður Þ. Guðmundsson. Við
þetta mætti bæta ósk um að stjórn
SÁÁ láti óháðan aðila semja ýt-
arlega greinargerð urri söfnunina,
ráðstöfun söfnunarfjárins og
framkvæmdirnar, þannig að al-
menningur geti aftur öðlast traust
á þessum þarfa félagsskap.
-e.k.h.
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf-
ingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Pjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
pitstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Helgi Ólafsson,
Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason,
Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Viðir Sigurðsson.
Utlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ, Jónsson.