Þjóðviljinn - 21.09.1983, Síða 15
Miðvikiidágur 21. septembcr 1983 ÞJÓÐVIL.ÍlNN - SÍÐA 15 ' *
RUV0
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. bæn. Tónleikar.
Þulur velur og kynnir. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Stína Gísladóttir talar. Tón-
leikar.
8.40 Tónbilið.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Sagan af
Frans litla fiskastrák" eftir Guðjón
Sveinsson Andrés Sigurvinsson lýkur lestr-
inum (12).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
10.35 Sjávarútvegur og siglingar Umsjónar-
maöur: Ingólfur Arnarson.
10.50 Söguspegill Þáttur Haraldar Inga Har-
aldssonar (RUVAK).
11.20 Blugrass og Bræðingur.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.30 Emerson, Lake & Palmer og Moody
Blues syngja og leika.
14.00 „Ég var njósnari“ eftir Mörthu
McKenna Hersteinn Pálsson þýddi. Kristin
Sveinbjörnsdóttir les (12).
14.30 Miðdegistónleikar Philip Jones-
blásarasveitin leikur „Canzon Cornetto" og
„Courant Dolorosa" eftir Samuel Scheidt. /
„Musica Dolce“-blásarasveitin leikur Kons-
ert í d-moll eftir Joseph Bodin de Boismorli-
er.
14.45 Nýtt undir nálinni Kristin Björg Þor-
steinsdóttir kynnir nýútkomnar hljómplötur.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Nicanor Zabaleta og
Kammersveit Pauls Kuentz leika Hörpu-
konsert í A-dúr eftir Karl Ditters von Ditters-
dorf. / Fílharmóníusveitin í Berlín leikur Sin-
fóníu nr. 8 í F-dúr eftir Ludwig van Beet-
hoven. Herbert von Karajan stj.
17.05 Ferðamál í umsjá Birnu G. Bjarnleifs-
dóttur.
17.25 Evrópukeppni landsliða í knatt-
spyrnu, ísland-írland. Hermann Gunnars-
son lýsir fyrri hálfleik á Laugardalsvelli.
18.05 Tilkynningar.
18.30 Landsleikur, framhald.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Gunnvör Braga heldur á-
fram að segja börnunum sögu fyrir svefninn.
20.00 Sagan: „Drengirnir frá Gjögri" eftir
Bergþóru Pálsdóttur Jón Gunnarsson les
(7).
20.30 Athatnamenn á Austurlandi Umsjón-
armaðurinn, Vilhjálmur Einarsson skóla-
meistari á Egilsstöðum, ræðir við Jóhannes
Stefánsson á Neskaupstað.
21.10 Einsöngur Dietrich Fischer-Dieskau
syngur ballöður eftir Carl Loewe. Jörg Dem-
us leikur á pianó.
21.40 Útvarpssagan: „Strætið“ eftir Pat
Barker Erlingur E. Halldórsson les þýðingu
sína (18).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 íþróttaþáttur Hermanns Gunnars-
sonar.
23.00 Kvöldtónleikar a. Aríur eftir Mússorgs-
ký og Rimsky-Korsakoff. b. Sinfónía nr. 9
op. 70 ettir Sjostakovitsj. Sinfóniuhljómsveit
útvarpsins í Helsinki leikur. Leif Segerstam
stj. Einsöngvari: Martti Talvela.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.20 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Píanóið. Kanadísk heimildarmynd. Ant-
on Kuerti pianóleikari og John Steinway
hljóðfærasmiður kynna pianóið, gerð þess,
sögu og tóna. Þýðandi og þulur Jón Þórar-
insson.
21.10 Fontamara. Þriðji þáttur. Italskur fram-
haldsmyndaflokkur í fjórum þáttum. Efni
annars þáttar: Bændurnir í Fontamara eru
sviptir áveituvatni og sviknir um nýtt jarð-
næði. Þeir hyggja á hefndir en Berardo vill
ekki taka þátt í ráðagerðum þeirra. Hann
ætlar til Rómar að vinna sér inn fé fyrir jörð til
að geta gengið að eiga Elviru. Forsprakkinn
brennir bæ i eigu æðsta valdsmanns fasista
í héraðinu. Þýðandi Þuríður Magnúsdóttir.
22.05 Úr safni sjónvarpsins. Fjallferð.
Göngur hafa löngum þótt ævintýraferðir og
oft er glatt á hjalla í tjöldum og leitarmannak-
ofum. Haustið 1976 fóru sjónvarpsmenn á
fjall og fylgdust með haustsmölun bænda á
Hrunamannaafrétti. Umsjónarmaður Ómar
Ragnarsson. Áður sýnt i Sjónvarpinu
haustið 1976.
23.05 Dagskrárlok.
frá lesendum
Vestmannaeyjahöfn Ojósm. -eik-).
Haustmorgunn
við höfnina
Magnús frá Hafnarnesi skrif-
ar:
Það er haustlegt við höfnina.
Þó er september aðeins að byrja.
Sólin skín þó glatt á móberginu og
Kletturinn er ennþá grænn og
fagur. Bátarnir, sem ekki eru í
róðri, halla sér hver að öðrum
eins og þreytt gamalmenni. Svip-
ur þeirra er uppgjafarlegur og
maður gæti hugsað sér að þeir
segðu hver við aðra. Nú verðum
við ekki hreyfðir fyrr en í febrú-
ar. Gamall og gráskeggjaður þul-
ur með kaskciti á höfðinu er að
lensa eina trilluna. Það hafði
rignt mikið um nóttina. Það var
enginn uppgjafartónn í honum er
ég spurði: „A ekki að fara að ýta á
hann?“ ,Jú, blessaður vertu, nú
fer hann að koma á línuna“.
„Hvar heldurðu að hann verði
bestur?“
„í Skarðinu", sagði hann og þó
sér um hendurnar á olíublautum
tvisti. „Hvað segirðu unt Höfuð-
daginn?“ spurði ég. „Höfuð-
daginn?“. „Já“. „Hann breytir
um tíðarfar, gengur til norðursins
og kólnar. Þá kemur ýsan í síldar-
hrognin undir sandi“. Margt er
gott sem gamlir kveða. „Er þjóð-
hátíðardosið horfið úr
mönnum?" „Að minnsta kosti úr
mér“, sagði hann dálítið snegglu-
lega.
Síðan kveð ég þennan gamla
trillukarl, sem ætlaði að fá hann í
Skarðinu og undir Sandi, og held
áfram göngu minni um bryggjur.
Víða er tómlegt um að litast,
lundinn löngu farinn og lunda-
pisjurnar drukknaðar í hokunum
að sagt er. Þær höfðu ekki flogið
á bæjarljósin eins og vant er og
strákarnir urðu fyrir vonbrigð-
um. Eitthvað hlaut að hafa gerst.
Hann rigndi svo mikið í ágúst.
Togararnir eru í túr. Það er mest
karfi, sem þeir fá, karfi handa
Rússum, enda herja þeir á Pak-
istan. Kannski* eta þeir líka
menn? Nei, fari það kolað, segi
ég við sjálfan mig.
í Friðarhöfninni er verið að
skipa út hraðfrystum fiski á.
Bandaríkjamarkað. Bandaríkja-
menn líta ekki við karfanum.
Máfurinn snöfflar í sorpinu því
ekki er búið að leggja skolp-
leiðsiur gegnum Eiðið. Það er
ekki allt hægt að gera í einu, mal-
bika og leggja skolpleiðslur, enda
er staða bæjarsjóðs hrikaleg, að
sagt er. Þó er hérna nóg að vinna
og fólk hefur nóg að bíta og
brenna, - ef það legur nótt við
dag í vinnunni.
Bómur skipsins sveiflast til og
frá og maðurinn á lúgunni baðar
út öllum öngum og hrópar: „Híf
opp“. Verksmiðjuflauturnar
skera þögnina. Það er kaffitími
hjá fólkinu í hraðfrystistöðvun-
um. Síðan byrjar vinnan aftur
meðfullum krafti. Þannigerlífið,
vinna og aftur vinna.
Guöbjörg Jónsdóttir skrifar:
Þann 10. ágúst sl. var alveg yndis-
legt veður svo ég ákvað strax fyrir
hádegi að láta verða af þvi að
heimsækja kunningja í suðurbæn-
um í Hafnarfirði. Þegar ég hafði
lokið heimsóknunum lá leiðin í versl-
anir Kaupfélagsins við Strandgötu.
Ég fékk fljóta og góða afgreiðslu í
matarbúðinni og fer þaðan við svo
búið. Gegnt matarbúðinni er
rafrnagnsvöru- og búsáhaldadeild
Kaupfélagsins. Dlu heilli varð mér
gengið inn og sá ég hillur á hverjum
vegg með fullt af dóti og glysvam-
ingi, auðvitað til þarfa og óþarfa. Ég
gekk um verslunina án þess að sjá
nokkra manneskju við afgreiðslu.
Allt í einu hrasaði ég, féll á gólfið og
hljóðaði upp yfir mig. Þá koma strax
tveir drengir og afgreiðslukona og
vilja allt fyrir mig gera. Það reyndist
útilokað fyrir mig að standa á fætur
Slysagildra
vegna mikils sársauka í hægri fæti og
það varð úr að fengjnn var sjúkrabíll
og var mér ekið inn á Borgarspítala
og sfðan á Landakotsspítala.Meiðsl-
in reyndust vera lærbrot á hægra fæti
og mun ég væntanlega, ef allt gengur
vel, eiga í þessu a.m.k. í þrjá mán-
uði, sem er óskaplega langur tími
fyrir manneskju ámínum aldri.
Þegar ég fór að hugsa um þefta
slys og hvemig það bar að er ég
sannfærð að að þama er um að ræða
vonda slysagildru, sem þarf að laga
skilyrðislaust og því fyrr þess betra.
A meðan ég lá á gólfinu og beið
eftir sjúkrabílnum, sem ók mér á
Slysavarðstofuna, sá ég að gólfið í
versluninni er mishátt en engin
sjáanleg tilraun er gerð til að vara
við þessu þegar gengið er inn í versl-
unina, svo að teppalagt gólfið og
tepplögð trappan niður á nassta pall
renna saman í einn samfelldan flöt,
sem ég varaðist ekki og því fór sem
fór.
Það má hver sem er lá mér þó að
ég finni sárt fyrir þessu óhappi og sé -
reið og sár út í þá stóm menn, sem
búa til svona slysagildrur. Ég er viss
um að þetta hefði ekki koinið fyrir ef
handrið eða einhverskonar hindmn
hefði vakið athygli á tröppunni.
Ég vona að þessi frásögn mín
verði til þess að hafa einhver áhrif á
þá átt að koma í veg fyrir slys, sem
ætti að vera hægt að sjá fyrir. Mér
verður hugsað til þess hver borgi
skaðann. Það kostar ekki lítið að
liggj a á spítala í a. m. k. þrj ár vikur og
láta flytja sig fram og til baka í
sjúkrabílum. Sjálfsagt emþað trygg-
ingamar sem borga, en það finnst
mér ekki rétt, heldur ætti sá að
borga, sem á sök á slysinu.
Mér leið mjög vel þessar vikur
sem ég var á Landakotspítala og bið
guð að blessa lækni minn og allt lið,
sem með honum hefur verið og allt
starfsfólk á deildinni 2 B. Það er
ekki hægt að þakka með orðum
þann hlýhug og kærleiksfóm, sem
þetta fólk hefur látið mér í té.
Skák
Karpov að tafli - 202
Það er dálítið merkilegt að
flestir þeir sem fylgdust með ein-
víginu í Baguio eftir sigur Korts-
nojs í 31. skák voru þeirrar skoð-
unnar að hrein úrslit fengust í
næstu skák. Þrátt fyrir að Korts-
noj hefði hlotið 3V2 vinning úr síð-
ustu fjórum skákum voru margir í
hópi sterkari skákmanna sem
spáðu Karpov sigri í næstu skák!
Hann átti jú að hafa hvítt en það
var e.t.v. ekki allt málið. Ein-
hvern veginn fannst mörgum
komið að honum og þeir bættu
við að löngu áður í einvíginu hafi
Kortsnoj innst inni verið búinn
að gefa upp þá von að öðlast
heimsmeistaratitilinn. Karpov
tók sér frí þegar tefla átti skákina,
hélt til Manila þar sem hann
fylgdist með Sovétríkjunum tapa
fyrir Júgóslövum í úrslitaleik
heimsmeistarakeppninnar í
körfuknattleik. Svo hófst skákin
og varð snemma Ijóst að Karpov
var aftur búinn að ná sínum fyrri
síyrk:
(Ekki 25. - Rfxd5 26. Rf5 + ! og
vinnur).
26. Dxe5 Rfxd5
27. Bxb5 Ha7
28. Rh4! Bc8
29. Be2 Be6
30. c4 Rb4
31. Dxc5 Db8
32. Bfl Hc8
33. Dg5 Kh8
34. Hd2 Rc6
35. Dh6 Hg8
36. RO Df8
37. De3 Kg7
38. Rg5 Bd7
39. b4! I)a8
40. b5 Ra5
41. b6
- Hér fór skákin í bið og Korts-
noj lék 41. - Hb7 í biðleik. Hann
mætti ekki til leiks daginn eftir.
Karpov stóð því uppi sem sigur-
vergari í æsispennandi viðureign,
en hetjuleg barátta Kortsnojs
vakti aðdáun fjölmargra. Sá
sterkari sigraði.
Prinsessur og drottningar eru
þær einu sem bókstaflega geta
fætt frétt.
Bridge
Karpov - Kortsnoj
25. e5! dxe5
Leikur Ólafs Lár. og Boga Sig-
urbjörnssonar frá Siglufirði í 3.
umf. bikarkeppninnar var jafn og
skemmtilegur til síðasta spils.
Strax í 2. spili voru þó teikn á
lofti, vísbending um það sem í
vændum var:
Norður
S Dxx
H AKx Jón hafði rétt sig í sætinu var
T Dxx ekkert slegið af. Með jafna skift-
L KDxx ingu og 29-31 punkt milli hand- anna. 6 grönd..
Suður Nú, hálfslemman er liðlega
SAK 15%, Laufás þarf að vera réttur,
M DGxx tígulkóngur að liggja og loks þarf
T AGx laufið að skiftast 3-2.
L 98xx Allt gekk þetta eftir og
Ásgrímur, með suðurspilin
vakti á grandi (13-15) og eftir að
Siglfirðingar hrósuðu sigri, þegar
Hrólfur Hjalta. og Jónas P. Er-
lings. „lyktuðu" ekki leguna.