Þjóðviljinn - 21.10.1983, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 21.10.1983, Blaðsíða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. október 1983 Það vakti heimsathygli fyrir nokkrum dögum þegar Tanaka, fyrrum forsætisráðherra Japans, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa á sínum tíma þegið sem svarar 60 miljónum króna í mútur frá Lockhead flugvélaverksmiðjunum bandarísku. Enn furðulegra er það reyndar, að þessi maður, sem japanskur almenn- ingur er sagður líta á sem tákn og ímynd alls þess sem rotið er og spillt, skuli viss um að halda miklum áhrifum á stjórn landsins áfram - eins þótt hann sitji ekki í henni sjálfur. Svo mikið er víst, að stjórnarf- lokkurinn japanski, Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn kallar hann sig, hefur lofað Tanaka fullum stuðn- ingi gagnvart stjórnarandstöðunni, sem vill fá dæmdan mútuþega af þingi þegar í stað. Formlega séð getur Tanaka lafað áfram á því, að Um 70 manns stofnuðu flokkinn og þurfa þeir að safna 20 þúsund meðmæl- endum til að geta boðið fram til þings. Græningjar stofna flokk í Danmörku Danir eiga sér pólitíska flokka fleiri en flestir aðrir - samt finnst mönnum ekki nóg að gert og um síðustu helgi var enn einn flokkur stofnaður þar í landi, Grænin- gjarnir. Þeir ætla sér að verða sjálf- stæður danskur flokkur, en viður- kenna um leið að velgengni Græn- ingja í Vestur-Þýskalandi hafi haft sín áhrif á flokksstofnunina. Stofn- endur flokksins eru aðeins 70, og hann þarf að safna 20 þúsund stuðningsundirskriftum til að geta boðið fram til þings. Græningjarnir segjast hvorki vera til vinstri né hægri og hafi þeir í pússi sínu spánnýja hugmynda- fræði. Þegar betur er að gáð, er þar töluvert að finna af áherslum sem hafðar eru í þekktri bók, Uppreisn frá miðju, en þar er m.a. lögð áhersla á valddreifingu, smáar ein- ingar, umhverfisvernd og fleira þessháttar, rétt eins og hjá Græn- ingjum. Græningjar kynntu stefnumál sín eftir stofnfundinn og lögðu áherslu á fjögur atriði, sem lúta að gagngerðum breytingum á dönsku samfélagi. í fyrsta lagi vilja þeir vinna að algjörri afvopnun um all- an heim og eiga Danir að ganga á undan með fordæmi einhliða af- vopnunar. Það á að skipta auð- lindum jarðar jafnar niður og styr- kja Sameinuðu þjóðirnar. Algjöran forgang á að hafa til- litssemi við náttúruna og vistfræði- legt jafnvægi. í Danmörku á þetta að koma fram í meðal annars í því, að hverskyns orkubruðl sé skatt- lagt grimmilega og hagvöxtur stöðvaður. Samfélaginu á svo að umbylta með sem altækastri valddreifingu og er það rökstutt með því, að mið- stýring leiði til þessa að vald safnist á fáar hendur og allt vald spilli. Pólitískar ákvarðunar á að taka sem flestar í bæjarfélögum eða hverfum - og í fyrirtækjum á að efla áhrif starfsfólks. Öllum á að tryggja atvinnu - með því að stytta vinnutímann verulega. Um leið á að tryggja öllum lífeyri, eða borgaralaun eins og það heitir. Flokkurinn vildi ekki kjósa sér stjórn, heldur aðeins átta manna samráðsnefnd sem á að vinna úr þessum meginhugmyndum, sem játað er að séu enn hangandi í lausu lofti. Græningjar játa, að flokkur eins og SF, Sósíalíski alþýðuflokkur- inn, eða Róttækir, hafi ýmislegt af málum þeirra ofarlega á stefnu- skrám, en þeir telja að hugur og framkvæmd fylgi ekki máli hjá þeim. - (byggt á Information)1 hann sé ekki endanlega dæmdur fyrr en allar áfrýjanir hans hafa verið skoðaðar og úrskurður felld- ur um þær. Flokkur í flokknum Saga Tanaka var framan af í anda kapítalísks ævintýris um bóndasoninn fátæka, sem lagði upp með nesti og nýja skó og varð miljónamæringur og forsætisráð- herra. Síðan ætti hún að líkjast annarri sögu, sem flytur þann boð- skap að dramb sé falli næst. Árið 1974 var Tanaka neyddur til að segja af sér ráðherraembætti vegna mútuhneykslisins, sem hann er loks dæmdur fyrir. En þetta gerist ekki. Tanaka hafði í vasanum um 74 þingmenn stjórnárfloksins þeg- ar hann varð að segja af sér. Hneykslið virðist ekki hafa skaðað hann í hinum ríkjandi hægriflokki: en nú eru hans menn á þingi 119 eða meira en fjórðungur af 422 þingmönnum Frjálslyndra. Þetta er öflugasta klíka flokksins. Þetta þýðir að Tanaka hefur myndað flokk í flokknum (og heitir Mokujoklúbburinn eða Fimmtu- dagsklúbburinn), og að sá maður sem er forsætisráðherra hverju sinni fær sig hvergi hrært nema að spyrja Tanaka ráða. Reyndar er það svo, að allar götur síðan 1978 hefur það verið Tanaka sem réði því hver af forsætisráðherraefnum sigraði í valdabaráttunni. Nakas- Tanaka: hann ræður því hverjir fara í framboð og hver verður forsætis- ráðherra. one, sem nú er forsætisráðherra, hefur líka étið úr lófa Tanaka. Keyptir menn Tvennt er það sem framlengir hin miklu völd mútuþegans: vitnes- kja og peningar. Tanaka veit flest það sem vita þarf um veikleika og styrk þeirra sem hafa sig í frammi í japönskum stjórnmálufn og um að- stæður í kjördæmum. Hann hefur líka komið sínum mönnum fyrir í þýðingarmiklum nefndum og ráðu- neytum, og getur því miklu ráðið bæði um val á frambjóðendum og svo um fjárveitingar til bygginga, brúargerða osfrv. sem ráða miklu um það hvort þingmenn ná endur- kjöri. Auk þess fær hver maður í klúbbi hans sem býður sig fram svosem eina til þrjár miljónir króna í styrk frá Tanaka. Þar að auki fá þeir bónus tvisvar á ári sem svarar ca 450 þúsund krónum. Talið er að það kosti um 80 miljónir króna að reka flokksbrot Tanaka í venjulegu ári, en á kosningaári kostar það 3-4 sinnum meira. Peningarnir koma svo frá ýms- um fyrirtækjum sem þurfa á þjón- ustu þingliða Tanaka að halda - en vilja ekki auglýsa þau sambönd samt. Tanaka er semsagt ekki neinn venjulegur mútuþegi heldur meiri- háttar listamaður í þeirri grein að tvinna saman brask og valdapó- litík. ÁB tók saman. Vestur-Þýskaland: Kratar vinna með friðarhreyfingunni „Tími cr kominn að hafna bandarískum eldflaugum“, segir formaður Sósíaldemókrataflok- ksins vesturþýska, SPD, um þá ákvörðun flokksforystunnar að taká upp formlegt samstarf við friðarhreyfingu landsins um mót- mæli gegn uppsetningu kjarnork- ueldflauga Nató í V-Þýskalandi. Forystumenn sósíaldemókrata munu verða í fremstu línu þegar friðarhreyfingin lýkur baráttu- viku sinni á morgun, laugardag, með miklum mótmælafundi í Bonn. Willy Brandt verður einn aðal- ræðumaðurinn á fundinum - en um tíma ætlaði hann að hafna því vegna innri ágreinings í friðar- hreyfingunni um ræðumenn á fundinum í Bonn. En formaður sósíaldemókrata telur nú, að það Willy Brandt talar á útifundi í Bonn. sé svo mikil nauðsyn að stöðva eldflaugakapphlaupið, að hann leggur þar við pólitískan heiður sinn. Talsmenn friðarhreyfingar- innar segja, að þeir hafi í við- tölum við Willy Brandt sannfærst um að hann muni hafna uppsetn- ingu kjarnorkueldflauganna án fyrirvara. Þessi ákvörðun forystu SPD þykir benda til þess, að andstæð- ingar kjarnorkuvígbúnaðar hafi endanlega náð undirtökum í flok- knum. En eins og menn rekur minni til, var ákvörðunin um að setja upp eldflaugarnar, ef ekki semdist um annað milli risaveld- anna, tekin í stjórnartíð Helmut Schmidts, kanslara og leiðtoga sósíaldemókrata. Friðarsinnum hefur aukist fylgi jafnt og þétt eftir að flokkurinn komst í stjórn- arandstöðu. áb. Tanaka, fyrrum forsætisráðhera Japans: Dæmdur mútuþegí heldur völdum sínum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.