Þjóðviljinn - 21.10.1983, Blaðsíða 9
TOLVUR
Á síðari helming síðasta
áratugs hundraðfaldaðist
fjöldi þeirra agna sem
rúmast í einum sílikonbita
sem erfrumeining
örtölvunnar.
Grein þessi ergrófend-
ursögn á grein eftir
bandarískan
hagfræóing, RobertD.
Hamrin, sem starfar viö
Umhverfis-
verndarstofnun
Bandaríkjanna. Greinin
birtist upphaflega í
tímaritinu The Futurist
1981 undirfyrirsögninni
„ The Information
Economy.An Infinite
Resource“.
Að virkja
hugvitið
í stað
hinna
takmörkuðu
náttúru-
auðlinda
BLAÐAUKI
UPPLYSINGABYLTINGIN
í hinu háþróaða tækniþjóðfélagi er upplýsingaöf lun og
upplýsingamiðlun orðin stöðugt mikilvægari þáttur í allri
þjónustu og framleiðslu. Stöðugt fleiri hafa atvinnu af
meðhöndlun upplýsinga og hvergi hafa tæknif ramfarir orðið
meiri en á sviði upplýsingaöflunar, meðhöndlun upplýsinga
og dreifingu upplýsinga. Þessu veldur örtölvubyltingin. Að
sögn fróðra manna á þessi bylting eftir að skila eftir sig enn
stórbrotnari tímamót en sjálf iðnbyltingin með þeirri
vélvæðingu og fjöldaframleiðslu sem henni fylgdi.
Á sama hátt og iönbyltingin jók
við möguleika mannsins til efnis-
legrar umsköpunar á upplýsinga-
byltingin eftir að stórauka við
möguleika hans til nýsköpunar á
hinu andlega sviði. En þarsem iðn-
byltingin byggði á takmörkuðum
auðlindum orku og efnis, þá byggir
upplýsingabyltingin á þrotlausri
uppsprettu þekkingar og hug-
mynda. En að baki þessum nýju
möguleikum liggur örtölvan, eitt
stórkostlegasta tækniundur 20.
aldarinnar. Á engu sviði tækni hafa
framfarir orðið jafn miklar. Ör-
tölvutæknin gerði það kleift að
hundraðfalda afköst sílikoneining-
ar sem er minna en frímerki að
stærð á síðari hluta 8. áratugarins
og í lok þessa áratugar er talið að
hægt verði að ná 10.000 földum ár-
angri með sama tilkostnaði. Ör-
tölvueining sem áður hafði stærð
frímerkis mun brátt vera eins og
saltkorn, og þegar hafa verið unnar
tölvurásir sem gefa boð á 13 pícós-
ekúdnum (það eru jafn margar píc-
Sjánæstusíöu.