Þjóðviljinn - 21.10.1983, Side 24
MOÐVIUINN
Föstudagur 21. október 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er
hægt aö ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er
hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348
eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld.
Albert staðfestir frétt Þjóðviljans:
B-álma stöðvuð
Aðalsími
81333
Kvöldsími
81348
Helgarsími
81663
Gísli B. Björnsson: Ávallt með áskriftarávísanir tii reiðu í veskinu. Mynd -
Magnús. _____________________________________
„Það er margt sem er
hroðalegt að þurfa að
stoppa. Þetta er eitt af
því”, sagði Albert Guð-
mundsson fjármálaráð-
herra um gagnrýni Öddu
Sigfúsdóttur borg-
arfulltrúa í Þjóðviljanum í
gær. Ef fjárlagafrumvarp
Alberts fer óbreytt í gegn-
um þingið, verður ekki
einni krónu veitt til B-
álmu Borgarspítalans, en
hún á að veita öldruðum
sjúkrarými.
H j úkrunardeildir
fyrir aldraða eru
ekki starfræktar
Albert benti á að hann og aðrir
borgarfulltrúar í Reykjavík hafi í
gegnum árin barist fyrir fjármagni
frá ríkinu til Borgarspítalans. Því
skilji hann afstöðu Öddu Báru
mjög vel. „En fjármagn er ekki til
nú”, sagði Albert.
Hann benti líka á að þær deildir
fyrir aldraða sem tilbúnar eru á
Borgarspítalanum hafa ekki verið
teknar í notkun vegna þess að það
skortir starfsfólk til þess. „Á með-
an ekki er til mannskapur að starf-
rækja þær tel ég óhætt að fara hæg-
ar í sakirnar með B-álmuna”.
„Hitt er svo annað mál að ég skil
afstöðu Öddu Báru mjög vel. Þetta
hefur verið sameiginlegt baráttu-
mál okkar beggja í gegnum ár. Það
má segja að það séu undarleg örlög
að ég skuli vera kominn í embætti
fjármálaráðherra og verða að
skera þarna niður”, sagði Albert
og bætti við: „Það er svo víða sem
þarf að skera niður nú. Ekki bara í
Reykjavík, heldur út um allt land.
En málið er bara það, að peningar
eru ekki til um þessar mundir, því
miður”.
-S.dór
Fjölmargir stuðn-
ingsmenn Þjóðvilj-
ans duglegir við
áskrifendasöfnun
Leikandi
létt og
enginn
vandi
segir Gísli B.
Björnsson sem hefur
náð í fjölmarga
nýja áskrifendur
„Þetta er leikandi létt og eng-
inn vandi. Aðalatriðið er að
vera með áskrifendaávísunina í
vasanum eða veskinu og læða
henni að vinum og samstarfs-
mönnum og láta þá taka að sér
miða líka”, sagði Gísli B.
Björnsson auglýsingatciknari í
samtali við Þjóðviljann í gær.
„Ég náði í tvo áskrifendur í dag
og einn í gær og ásamt konunni hef
ég náð í 17 nýja áskrifendur að
blaðinu og það má reikna með að
þeir verði 5-10 í viðbót í þessu
átaki”, sagði Gísli.
„Þjóðviljinn hefur illa sinnt út-
breiðslu sinni. Það eru furðulega
margir sem vilja endurnýja kynni
sín við blaðið sem áður hafa hætt
að kaupa það. Þessu fólki hefur
fundist blaðið lélegt og útburður
þess lélegur”.
- Hver er þá ástæða þess að Þjóð-
viljinn er í sókn núna og höfðar
betur til þessa fólks?
„Blaðið er líflegra en áður og
pólitískt ástand í landinu krefst
þess að fólk fylgist betur með því
sem er að gerast. Fólki er nauðsyn-
legt að fylgjast með og Þjóðviljinn
hefur verið líflegur í fréttaflutningi
og mikið verið vitnað í blaðið.
Ég vil aðeins ítreka við stuðn-
ingsmenn blaðsins og aðra þá sem
vinna að útbreiðsluherferðinni að
þetta er ekkert mál. Við umgöng-
umst allan daginn fólk sem við vit-
um að vill fylgjast með þjóðmál-
um, bæði samherjar okkar og ekki
síður andstæðingar. Þetta fólk
þurfum við að ræða við. Spurning-
in um það hvort okkur helst á
öllum þessum nýju áskrifendum
eða ekki er síðan undir blaðinu
sjálfu komin”, sagði Gísli B.
Björnsson. -lg.
Islensk
þekking -
Alþjóðleg
tœkni
alveg steinhissa. Það er undrandi á
því að íslenskir starfsmenn IBM
séu að vinna við lausn á vanda-
sömu verkefni á Ítalíu, í Zambíu
eða Dubai. Alveg steinhissa.
Af hverju ætti íslenskt IBM fólk
ekki að geta starfað þar eins og hér?
IBM hefur fjárfest í þekkingu ís-
lenskra starfsmanna sinna í fjölda-
mörg ár. Enda er menntun þeirra
og þjálfun fyllilega sambærileg við
það sem gerist hjá starfsfólki IBM
erlendis. Auk þess hefur IBM þjálfað
og leiðbeint starfsfólki við tölvu-
vinnslu um allt land. Það er hin
raunverulega fjárfesting IBM í fram-
tíðarmöguleikum ungs fólks í at-
vinnulífinu.
Stór hluti þeirra sem starfa við
tölvutækni hérlendis hafa á einn
eða annan hátt sótt þekkingu sína
og þjálfun til IBM: í tölvuskóla, á
námskeið, í tækniþjálfun og við
tæknistörf. IBM á því stóran þátt í
menntun ungs fólks víðs vegar um
landið. Það er því ekki neitt til að
undrast yfir þó að íslenskir tækni-
menn starfi við lausn tæknivanda í
Toronto. Vandamálin eru hin
sömu og annars staðar. Tæknin er
sú hin sama, tækjabúnaður eins og
verkefnin svipuð.
\
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
Síml 27700
í dag eru starfsmenn IBM sér-
þjálfað fólk sem nýtur góðs af al-
þjóðlegri tækni, sem það hefur
kunnáttu til að nýta sér í starfi
sínu. Þess vegna er engin ástæða
til að undrast!