Þjóðviljinn - 25.10.1983, Page 2

Þjóðviljinn - 25.10.1983, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 25. október 1983 . Jón Laxdal málar Á morgun, miðvikudaginn 26.' okt. kl. 18, verður opnuð sýning í anddyri Norræna hússins á um 40 myndum eftir Jón Laxdal. Mynd- irnar eru allar unnar með bland- aðri tækni. Jóni er margt til lista lagt og hér sýnir hann nýja hlið á sér. Hann hefur málað allt frá blautu barns- beini og heldur nú sína fyrstu sýn- ingu á Islandi, en hann hefur sýnt víða í Þýskalandi og Sviss, m.a. með Dietmar Schönherr og Vivi Bach. Gagnrýnendur hafa borið lofs- orð á myndir hans og einn gagnrýnandi í Sviss skrifaði: „Það er eins og Jón Laxdal sé alltaf að endurskapa heimaland sitt svo að það verði honum áþreifanlegt". Jón nefnir sýningu sína Mynd- þanka, en hann segist búa til myndir í staðinn fyrir ljóð. Um myndirsínarsegirhann: „Þæreru fyrir mig eins konar hugleiðsla og ég vona að þær hafi svipuð áhrif á áhorfandann“. Myndirnar á sýningunni í Nor- ræna húsinu verða flestar til sölu. Húsgögn og menning Fil. dr. Ulf Hárd af Segerstad heldur fyrirlestur og sýnir lit- skyggnur í Norræna húsinu í kvöld þriðjudaginn 25. okt. kl. 20.30. Fyrirlesturinn nefnist: „Moderna möbler som kulturfö- remál“, og fjallar um þróun þá, sem átt hefur sér stað í gerð hús- gagna bæði í hagnýtu, hug- myndafræðilegu og menningar- sögulegu tilliti. Húsgögn eru í raun orðin norrænn satnnefnari gagnvart umheiminum. Með Svíþjóð sem viðmiðun lítur fyrirlesarinn til annarra Norðurlanda og leitast við að draga fram hið sameiginlega og jafnframt á hvern hátt þau hafa áhrif hvert á annað. Ulf Hárd af Segerstad er hér í boði Norræna hússins og sænska sendiráðsins í tilefni af sænskri húsgagnaviku, sem hófst 21. okt. Tikkanen Ekta vinátta er svo örlát að það er sorglegt að hún skuli snúast svona oft upp i ást. Á afmælisdaginn var haldinn dansleikur fyrir nemendur í Félagsmiðstöð bæjarins. Mynd - eik. Flataskóli 25 ára Nœr 2000 nemendur hafa útskrifast frá skólanum Flataskóli í Garðabæ hélt hátíðlega upp á 25 ára afmæli sitt á dögun- um, en skólinn tók form- lega til starfa 18. október 1958. F»á var aðeins eitt lítið hús á Flötunum og býlið Minkagerði, en íbúar í Garðahreppi voru þá um 800. - Fyrsta árið í sögu skólans voru nemenþdur 137 en fjölgaði ört með vaxandi byggð og urðu flest- ir til þessa árið 1975 eða 782. Nær 2000 börn hafa burtsk- ráðst frá skólanum þennan aldar- fjórðung. Kennarar við skólann eru nú 32 og annað starfsfólk 16 talsins. Á afmælisdaginn fóru 11 ára fnemendur í boðhlaup til Bessast- aða og færðu forseta íslands bréf Einbeitnin leynir sér ekki í svip þessara ungu pilta sem skrifa og rýna í Gagn og gaman í skólastofu Flataskóla hér fyrr á árum. en frú Vigdís Finnbogadóttir heimsótti skólann síðar um morg- uninn og ávarpaði nemendur. Þá komu ýmsir aðrir gestir í heim- sókn. Dansleikur var fyrir nemendur síðdegis í Félagsmiðstöð Garð- bæinga og flugeldasýning á íþróttavellinum um kvöldið. Skólastjóri Flataskóla hefur frá upphafi verið Vilbergur Jú- líusson og yfirkennari Hallgrímur Sæmundsson. -lg- Myndarlegur togarafloti smíðaður í handavinnustofunni. Kaupfélag ísfirðinga er nú að untiirbúa byggingu húss fyrir vörumarkað. I fyrra fékk félagið lóð, í mak.tskiptum við ísafjarð- arkaupstaó. Er hún í miðbænum, beint á móti aðal verslunarhúsi kaupfélagsins. í fyrra var fyllt að mestu upp í lóðina en nú er verið að aka 1800 rúmm. af uppfyllingarefni í hana til viðbótar. Þess er vænst að Kaupfélag ísfirðinga: Nýr vörumarkaður framkvæmdir við bygginguna geti hafist snemma á næsta ári o;1 unnt verði að opna verslunina síðar á árinu. Að sögn Sverris Bergmanns kaupfélagsstjóra er ætlunin að reisa þarna 1710 ferm. hús, í þremur áföngum. Fyrsti áfanginn verður855 ferm. jarðhæð. Annar áfangi verður 342 ferm. og sá þriðji 513 ferm. A næsta ári er ■ ætlunin að flytja aðalverslun fé- lagsins í fyrsta áfanga byggingar- innar. Verslunin er nú í naumlega 300 ferm. húsrými í aðalverslun- arhúsinu og þrengsli orðin þar mjög mikil bæði fyrir viðskipta- |vini og starfsfólk. Mikið kapp verður á það lagt að hið nýja hús komist upp svo fljótt sem verða má. - mhg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.