Þjóðviljinn - 25.10.1983, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 25. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Guðrún Helgadóttir með ályktun á þingi
Stöðvum Seðlabankabyggmguna!
í gærdag unnu starfsmenn Rásar 2 við að koma sér fyrir í nýja útvarpshús-
inu við Bústaðaveg, en að sögn Þorgeirs Ástvaldssonar munu útsendingar
hefjast í byrjun nóvembermánaðar. Rás 2 verður fyrsta deild ríkisútvarps-
ins sem flytur í nýja húsið og á meðfylgjandi mynd má sjá þrjá starfsmenn
hennar koma sér fyrir. Frá vinstri Ragnheiður Þórðardóttir fulltrúi,
Helga Margrét Reinhardsdóttir, auglýsingastjóri og Þorgeir Ástvaidsson,
útvarpsstjóri á Rás 2. Ljósm. -eik.
í gær var lögð fram á alþingi þingsályktunartillaga frá Guðrúnu Helga-
dóttur um stöðvun framkvæmda við byggingu Seðlabanka íslands.
í ályktuninni segir að alþingi feli ríkisstjórninni að stöðva nú
þegar þær framkvæmdir við byggingu Seðlabankans sem ekki
hefur þegar verið samið um við verktaka. í greinargerð gerir
Guðrún grein fyrir efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar þarsem
segir m.a. að markmið sé að „beina fjárfestingu fyrst og fremst í
arðbær verkefni“. — óg.
Haukur
Bjömsson
látínn
Haukur Björnsson stórkaup-
maður í Reykjavík og einn af for-
ystumönnum íslenskra kommún-
ista á fyrri tíð, lést sl. föstudag.
Haukur Björnsson var fæddur
27. júlí 1906. Gerðist hann snem-
ma virkur á vinstri væng íslenskra
stjórnmála og m.a. í stjórn Félags
.ungra kommúnista 1922. Tveimur
járum síðar var hann kjörinn í mið-
stjórn Sambands ungra kommún-
ista. Síðla nóvembermánaðar árið
1930 var Kommúnistaflokkur ís-
lands stofnaður á heimili Hauks og
konu hans Marcibil Ingibjargar
Guðjónsdóttur að Bergstaðastræti
72 í Reykjavík. Sinnti Haukur
mjög skipulagsmálum hreyfingar-
innar og þótti mjög hæfur á því
sviði. Hann var einn af stofnendum
Sameiningarflokks alþýðu, Sósíal-
istaflokksins árið 1938.
Kirkjuþingið gegn
kjarnorkuvopnum
Þjóðviljanum barst í gær eftir-
farandi samþykkt frá Kirkjuþingi:
Kirkjuþing 1983 skorar á Is-
lendinga og allar þjóðir heims að
vinna að friði í heiminum, stöðvun
vígbúnaðarkapphlaupsins og út-
rýmingu gereyðingarvopna.
Þingið beinir því til stjórnmála-
flokkanna og ríkisstjórnarinnar að
fylgja þessu máli eftir bæði innan-
lands sem og á alþjóðavettvangi.
Þingið lýsir samstöðu með þeim
samtökum sem vinna að friði, frelsi
og mannréttindum á þeim grund-
velli sem Kristur boðar og brýnir
fyrir fslendingum að meta það
frelsi sem þjóðin býr við og nýta
það til að skapa réttlátari heim, þar
sem almenn afvopnun verður liður
í þeirri nýskipan efnahagsmála að
lífsgæðum verði jafnað meðal jarð-
arbarna allra.
Þessi ályktun var samþykkt sam-
hljóða á Kirkjuþingi í gær en þing-
inu lýkur í dag.
-S.dór
Frostskemmda kjötíð í matí
Eins og menn eflaust rekur minni til, krafðist Heilbrigðiseftirlitið endur-
mats á frostskcnrmda kjötinu sem Afurðasala SÍS geymdi í gamla ísbjarn-
arhúsinu á Seltjarnarnesi. Að sögn Andrésar Jóhannssonar kjötmats-
manns er enn verið að meta kjötið og sagðist hann vænta þess að vcrkinu
lyki í þessari viku.
-S.dór
Banaslys á Reykjavíkurflugvelli
Síðastliðinn laugardag varð banaslys á Reykjavíkurflug-
velli. Farþegi sem var að koma með 10 manna flugvél
austan af Egilsstöðum opnaði hurð vélarinnar og fór út
áður en skrúfurnar höfðu stöðvast. Gat flugmaðurinn ekk-
ert að gert og lenti maðurinn í vinstri skrúfu vélarinnar og
lést samstundis. Hann hét Ólafur Torfason, fertugur að
aldri, búsettur í Garðinum. Hann lætur eftir sig foreldra og
son.
Halló 002 skipti!
Bílasímar eru nú tæplega 20 á landinu og kannski ekki
nema von, hvert tæki kostar 100-120 þúsund krónur.
Stofngjaldið er hins vegar það sama og hjá venjulegum
símnotendum. Fyrsta mínútan kostar 11.70 og 7.80 hver
mínúta úr því, hvoru tveggja að viðbættum söluskatti.
Þóra Marinósdóttir, varðstjóri hjá Landsímanum sagði í
gær að ekki væri mjög mikið að gera á 002, en það er
númerið sem hringt er í þegar beðið er um samtal við bíl.
Starfsstúlkur Landsímans afgreiða samtalið á svipaðan
hátt og venjulegt landssímtal nema hvað oft þarf að leita að
bflnum á fleiri en einu svæði.
Ovenju mikið um lús
í frétt frá borgarlækninum í Reykjavík kemur fram að
óvenju mikið hefur borið á lús í haust einkum í grunn-
skólum, leikskólum og dagheimilum. Lúsin breiðist
auðveldlega út milli heimilisfólks, ef sessunautar t.d. halla
saman höfðum, ef fatnaður er lagður frá sér eða hengdur
upp saman á íþrótta- og sundstöðum o.s.frv.
„Veðjað á verðbólguna“
Á morgun, miðvikudaginn 26. októbergengst Kaupþing
hf. fyrir almennum fræðslufundi um fasteignamarkaðinn
að Hótel Loftleiðumog hefst fundurinn í Kristalssalnum
kl. 20.30.
Á fundinum, sem ber yfirskriftina „Fasteignamarkaður-
inn í ljósi breyttra aðstæðna“, flytja erindi Stefán Ingólfs-
son, Fasteignamati ríkisins og dr. Pétur Blöndal, Lífeyris-
sjóði verslunarmanna. Fjallar Stefán m.a. um vandamál
kaupenda um þessar mundir, þróun fasteignaverðs, hvað
ráða muni verðinu á næstunni og nauðsynlegar breytingar,
á fasteignamarkaði. Erindi Péturs ber yfirskriftina „Veðj-
að á verðbólguna“.
Sjávarútvegur á Nýfundnalandi
í kvöld kl. 20.30 heldur Sigfús Jónsson fyrirlestur um
sögulega landafræði sjávarútvegs á Nýfundnalandi. Fyrir-
lesturinn verður haldinn í stofir 102 í Lögbergi Háskóla
íslands og sýnir Sigfús fjölda skuggamynda frá Nýfundna-
landi.
Eitt banaslys í september
Eitt banaslys varð í umferðinni í september og 56 slösuð
ust, samkvæmt bráðabirgðayfirliti Umferðaráðs. Á
fyrstu 9 mánuðum ársins hafa því 12 látið lífið í umferðarsl-
ysum, sem er 3 færri en á sama tíma í fyrra. 474 hafa siasast
á árinu fram til 1. október s. 1. og er það 110 færra en á sama
tíma 1982.
Loðnurannsókninni lokið
Loðnurannsóknarleiðangri norskra og íslenskra fiski-
fræðinga sem hófst 4. október sl. lauk sl. sunnudag. í
leiðangrinum tóku þátt 3 rannsóknarskip, tvö íslensk og
eitt norskt. Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur vildi í gær
ekki tjá sig um niðurstöður leiðangursins, en sagði að í dag,
þriðjudag, hæfist í Kaupmannahöfn fundur í alþjóðlegri
síldar- og loðnuvinnslunefnd og sagðist hann búast við að
niðurstöður þessa leiðangurs lægju fyrir í vikulokin.
- S.dór.
Loðnuveiði í haust
í sjónvarpsviðtali í gærkveldi sagði Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra að loðnuveiðar hér við land yrðu
leyfðar í haust, jafnvel þegar í næstu viku.
-óg.