Þjóðviljinn - 25.10.1983, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 25. október 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Bandarískir landgönguliðar lenda í Líbanon: 160 þeirra létu lífið á sunnudaginn.
Eftir sprengingarnar í Beirút:
Hermaður úr Amalsveitum kemur félaga sínum særð-
um í skjól: einkaherir eru margir.
Líbanon
kviksyndið
Um tvö hundruð bandarískir og franskir hcrmenn týndu
lífi í miklum sprengingum í bækistöðvum þeirra í Beirút,
höfuðborg Líbanons á sunnudag, og er líklegt að tala látinna
eigi eftir að hækka enn þegar björgunarsveitir hafa leitað af
sér allan grun. Sjálfsmorðssveitir voru að verki: var herbíl-
um hlöðnum sprengiefni ekið inn undir húsin og þau sprengd
í loft upp. Samtök sem nefna sig „Frjálsa íslamska byltingar-
hreyfíngin“ hafa lýst ábyrgð á hendur sér, en þegar þetta er
skrifað virðist enginn vita neitt um þau samtök.
lengra
neyta um opinbera fjárfestingu
voru lagðar fram til umræðu. Á
fundum sem þessum sagði fólk álit
sitt og kom með tillögur um það
sem því þótti brýnt. Allar slíkar til-
lögur komu síðan til ríkisstjórnar-
innar áður en endanlega var gengið
frá fjárlögunum, og ég varð vitni að
því að tillit var tekið til þeirra til-
lagna sem fram komu á þessum
fundi sem ég sat í endanlegri gerð
fjárlaganna, þannig að þetta var
ekki bara til að sýnast.
Fleiri mikilvæg lög hafa verið af-
greidd með sama hætti, en fjárlag-l
afundina sóttu á milli 40 og 50 þús-
und íbúar.
Hagvöxtur hefur verið á Gren-
ada síðustu ár þrátt fyrir verðfall á
ávöxtum, og hefur jákvæður ár-
angur í efnahagsmálum verið stað-
festur í skýrslu Alþjóðabankans.
Helstu viðskiptaþjóðir Grenada
eru Bretland (43%), Holland, V-
Þýskaland, Belgía og Trinidad.
Flugvöllurinn
Bandaríkjastjórn hefur litið
stjórn Maurice Bishop hornauga,
sérstaklega vegna vinsamlegra
samskipta Grenada við Kúbu. Það
sem Reagan Bandaríkjaforseti hef-
ur helst sett fyrir sig í þeim efnum
er bygging alþjóðlegs flugvallar á
Grenada, sem Kúbanir hafa að-
stoðað við. Hafa Bandaríkjamenn
hvað eftir annað ráðist á þessa fram-
kvæmd í orði og haldið því fram að
hér sé um sovésk/kúbanska her-
stöð að ræða.
Slíkar ásakanir eru fáránlegar og
út í hött. Bygging flugvallarins,
sem hófst 1980, er hins vegar for-
senda þess að hægt sé að byggja upp
ferðamannaþjónustu í landinu.
Eins og er, er ekki hægt að komast
til Grenada frá Evrópu nema með
því að millilenda á Kúbu eða Bar-
bados og fara þaðan með lítilli vél
sem rúmar ekki nema 20 farþega í
sæti. Flugvallarsvæðið er opið
öllum, og þar er ekki hægt að leyna
neinu. Ég hefsjálfséð teikningar af
framkvæmdum og farið um svæð-
ið, og það er vinsælt hjá eyjar-
skeggjum að fara í sunnudaga-
göngu á flugvöllinn og dást að
framkvæmdunum þar.
Byltingar-
afmælið
Ég tók þát í undirbúningi hátíða-
haldanna fyrir 3 ára afmæli bylt-
ingarinnar í mars 1982. Það voru
starfandi undirbúningsnefndir á
vinnustöðum og víðar. Á sjálfri
hátíðinni mættu um 35.000 manns
á íþróttaleikvanginn í St. George’s,
þar á meðal margir erlendir gestir.
Þar voru bæði ræðuhöld, söngur og
dans. Leikin var Reggae- og
calypso-tónlist og fólkið dansaði.
Mauice Bishop talaði í 2 klst. en
það var áberandi að fólk hlustaði
með athygli allan tímann og lét við-
brögð sín í ljós með húrrahrópum
og frammíköllum. Bishop naut
ótrúlegra vinsælda meðal fólksins.
Hann var frábær ræðumaður og
gleymdi sér þegar hann talaði. Ég
hlustaði einu sinni á hann skýra út
fjárlögin fyrir fólki úti undir beru
lofti í steikjandi sól. Hann byrjaði á
að segja að hann ætlaði ekki að tala
í nema 15 mínútur. En síðan
gleymdi hann sér og talaði í nærri 2
klukkustundir.
Bishop var sýnt banatilræði
sumarið 1980, og var bandaríska
leyniþjónustan grunuð um að hafa
staðið að baki þess. Hann slapp, en
3 skólastúlkur biðu bana. Ég skil
ekki hvað nú hefur gerst, en það er
ljóst að hann var drepinn gegn vilja
fólksins. Mannfjöldinn frelsaði
hann úr stofufangelsinu áður en
hann var drepinn, og það sýnir best
að hann hafði fólkið á bak við sig.
Grenada verður ekki það sama
eftir þetta blóðbað. Það stingur í
stúf við alla reynslu mína af þessu
yndislega landi og þeirri nýsköpun
sem þar átti sér stað. Ég kvaddi
Grenada með tárin í augunum og
fór strax við heimkomuna að safna
mér fyrir annarri ferð. En nú get ég
ekki vitað hvað framtíðin ber í
skauti sér....
ólg.
Fljótt eftir að fregnir bárust frá
Beirút voru hafðar uppi kenningar
um að hér væru íranir að verki, en
stjórnvöld þar í landi neita þeim
áburði. Sýrlenska stjórnin afneitar
einnig þessum sprengingum, en
hún hefur um leið ítrekað þá af-
stöðu sína að hersveitir Vestur-
veldanna, sem eiga að sinna frið-
argæslu, verði á brott frá Líbanon.
Frelsissamtök Palestínumanna,
PLO, og svo Drúsar, eru einnig
andvígir því að bandarískar her-
sveitir séu í landinu, enda hafi þær í
reynd tekið afstöðu með sveitum
kristinna manna í bardögum að
undanförnu. Skoðanir munu hins-
vegar skiptari um nærveru Frakka
-t.d. varþaðhafteftirhermálaráð-
herra Frakka í gær, að Walid
Jumblatt, leiðtogi Drúsa vildi, að
Frakkar væru með í friðargæslu í
landinu. Og enn hafa ítalskir her-
menn í fyrrnefndum gæslusveitum
ekki orðið fyrir teljandi skakkaföll-
um.
Slitið valdakerfi
Ef gera á grein fyrir rótum á-
standsins í Líbanon þurfa menn
helst að bregða sér aftur á
Krossfaratímana, en það verður
reyndar ekki reynt hér. Það nægir
vonandi að minna á það, að þegar
Líbanon varð sjálfstætt ríki fyrir
um 40 árunt var búin til stjórnar-
skrá, sem tryggði kristnum
mönnum meirihluta á þingi sem og
forseta landsins, en deildi ýmsum
valdastöðum að öðru leyti með
nokkru tilliti til þess, að um helm-
ingur íbúanna var múhameðstrúar.
(Forsætisráðherrann átti t.d. jafn-
an að vera múhameðstrúarmaður
úr flokki Súnníta en þingforsetinn
Sjííti). Með stjórnarskrá af þessu
tagi var lagt upp með ótal tilefni til
ófriðar í landinu - einkum þegar
múhameðstrúarmönnum fjölgaði
sýnu meira en kristnum, bæði
vegna meiri viðkomu og tilkomu
palestínskra flóttamanna. Þær
borgarastyrjaldir sem staðið hafa
með hléum í um það bil tuttugu ár,
eru meira eða minna tengdar þessu
úrelta valdakerfi, sem byggir á
hæpnu manntali frá því á fjórða
áratugnum - ótta kristinna manna
við að missa völd og áhrif og óá-
nægju hinna ýmsu sveita íslams
með hlutskipti sitt. Það gerir svo
málið flóknara, að hvorki kristnir
né liðsmenn íslams eru sameinaðir
í samstæðar fylkingar, heldur leita
menn oftlega bandalaga út fyrir
grófar trúarbragðalínur.
Innrásir
Ef til vill hefði samt verið hægt
að finna lausn á þessari valda-
streitu ef ekki kæmu til erlendar
íhlutanir. Á sjötta áratugnum var
bandarískt landgöngulið sent á
vettvang til að halda Líbanon á
vestrænum brautum í utanríkis-
málum. En verst hefur það leikið
landið, að ísrealar hafa hvað eftir
annað gert innrásir í það og hafa nú
búið um sig í suðurhluta þess og að
því er virðist til frambúðar. Á hinn
bóginn hafa Sýrlendingar, sem
fyrir nokkrum árum sendu her á
vettvang, sem átti að gegna friðar-
gæsluhlutverki, bersýnilega lítinn
áhuga á að sleppa þeim ítökum,
sem þeir hafa náð í landinu austan-
verðu. En þess er að geta, að Sýr-
lendingar hafa hallast að því að líta
á Líbanon sem gerfiríki, til orðið
upp úr skiptingu fyrrum Tyrkja-
veldis í áhrifasvæði vestrænna stór-
velda eftir heimsstyrjöldina fyrri.
Hvað næst?
Það gæslulið frá Bandaríkjun-
um, Frakklandi og fleiri ríkjum,
sem nú um helgina varð fyrir miklu
mannfalli, er svo tengt viðleitni til
að efla ríkisstjórn Líbanons, sem
hefur séð umboð sitt myljast í
sundur milli ótal einkaherja trú-
flokkanna og svo innrásarliða. En
sá
er mestur hængur á þeirri friða-
rgæslu, að mikill hluti múhameðs-
trúarmanna mun líta svo á, að með
því að efla ríkisstjórnina og ríkis-
herinn sé verið að framlengja völd
hinna kristnu maroníta, sem er
stærsta einstakt trúfélag í landinu.
Að vísu hefur svo átt að heita, að
hefjast ættu viðræður um þjóðar-
sátt og var fyrir helgi búið að semja
um að fundarstaðurinn yrði í Genf í
Sviss. En hvort sem til meiriháttar
mannvíga hefði komið nú um helg-
ina eða ekki, voru ekki miklar líkur
á að þær viðræður bæru árangur,
allra síst skjótan.
Á Bandaríkjaþingi höfðu verið
uppi raddir um að farsælast væri að
kveða bandarísku landgönguliða-
sveitirnar heim frá Líbanon. Reag-
anstjórnin mun ekki, af við-
brögðum hennar við sprengjutil-
ræðunum í fyrradag að ráða, hafa í
huga að fara að þeim ráðum - og nú
eru nýjar sveitir bandarískar á
leiðinni austur í stað þeirra manna
sem féllu eða særðust.
Eiginmaður minn
Haukur Björnsson
stórkaupmaður
Sólheimum 23, Reykjavík
lést á Landspitala íslands föstudaginn 21. október.
Ingibjörg Guðjónsdóttir Björnsson.
Kristín Jensdóttir
frá Árnagerði
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
26. október kl. 3.
Árni Björnsson
Guðný Bjarnar
Ingi Lövdal
og barnabörn.
ÁB tók saman.
Konur í Alþýðubandalaginu!
FUNDUR
fimmtudaginn 27. október kl. 20.30 aö
Hverfisgötu 105.
Undirbúningur fyrir landsfund
Umræöur í hópum m.a. um:
Atvinnu- og
menntunarmál kvenna
Fjölskyldupólitík
Flokksstarfið
í Ijósi kynjajafnréttis
Fjölmennum Miðstöð kvenna