Þjóðviljinn - 25.10.1983, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 25. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Dæmigerð kvennastörf:
Lítfls metin og
mjög illa laumið
Er nýtt starfsmat nauðsynlegt til að rétta
hlut kvenna á launamarkaðnum eða þurfa
konur að segja skilið við karla í verkalýðs-
hreyfíngunni og taka málin í eigin hendur?
Er kannski nóg að konur taki virkari þátt í
störfum stéttafélaganna og ef svo er, hvernig
á að gera þeim það mögulegt?
Þetta eru spurningar sem veit hefur verið *
upp í umræðunni um kaup og kjör kvenna á
vinnumarkaðnum undanfarið. Yfirgnæf-
andi meirihluti giftra kvenna á íslandi vinn-
ur úti, enda viðurkennt að daglaun eins
manns duga ekki fyrir framfærslu fjöl-
skyldu hér á landi. En fjöldi barna, reyndar
svo þúsundum skiptir, hafa hins vegar að-
eins eina fyrirvinnu sem í flestum tilfellum er
kona.
Á næstu dögum mun Þjóðviljinn kynna
dæmigerð kvennastörf, sem eiga það sam-
merkt að vera lítils metin og lágt launuð eins
og einn viðmælandi blaðsins orðaði það í
gær. í dag eiga viðmælendur okk2r það
sammerkt að vera eina fyrirvinnan á heimil-
inu. Ljósmyndir tók Magnús. -ÁI
Tíu ár í mötuneyti
„Maður rcynir auðvitað að taka
allar aukavaktir sem gefast, en ég
er nú bara orðin svo illa farin af
þræfdómi að því eru takmörk sett
hvað ég get”. Fríða Helgadóttir
hefur unnið á Borgarspítalanum í
tæplega 10 ár, fyrst í eldhúsinu, síð-
an í bakaríinu og nú afgreiðir hún
starfsfólk spítalans í mötuneytinu.
Hún er með þriggja manna heimili
og hvað skyldi kaupið vera? „Rúm-
lega 15 þúsund með álagstímunum
öllum”, segir Fríða.
Fríða er búin að vera tæp 5 ár ein
með tvo drengi. Annar er farinn að
vinna og borgar heim, - hinn er enn
í skóla. „Þessir endar ná auðvitað
ekki saman”, sagði hún. „Petta er
stíf vaktavinna hér alltaf aðra
hvora helgi og oft um hátíðir, en án
þess yrðu launin enn lægri”.
- Er ekki dýrt að halda úti ung-
lingi í framhaldsskóla?
„Jú. Hann vinnur auðvitað yfir
sumarið, en það hrekkur varla fyrir
bókum. Þetta er orðið þannig hér
að það þarf að skipta um bækur á
hverjum vetri, jafnvel þótt krakk-
arnir séu í sama skóla. Og þær eru
ofsalega dýrar þessar bækur sem
þeir þurfa að kaupa í Tækniskólan-
um. Auðvitað finnst manni það
líka synd þegar þessi grey vilja læra
að geta ekki stutt þau eitthvað”.
-AI
17 ár í verslun
„Ég er búin að vera 17 ár í VR og
taxtinn er um 15 þúsund á mánuði.
Ég get nokkurn veginn ráðið því
hvað ég tek mikla yfirvinnu og þá
hækkar auðvitað kaupið”, segir
Sigrún Einarsóttir afgreiðslustúlka
í Vörumarkaðnum.
Sigrún er ein með tvö börn 13 og
15 ára og býr í eigin húsnæði. „VR
taxtinn var betri hér áður fyrr í
samanburði við verðlag og aðra
taxta”, sagði hún. „Maður lifir á
yfirvinnunni núna, en það var erf-
iðara áður þegar börnin voru lítil,
því þá gat maður ekki tekið neina
yfirvinnu”, sagði Sigrún. „Það er
líka eins gott því það er mikið dýr-
ara að klæða börn sem komin eru á
þennan aldur en þegar þau eru
lítil”. -ÁI
Starfsstúlka á spítala
„Ég hef getað haldið heimilinu af
því að ég hef smá leigutekjur af iðn-
aðarhúsnæði sem maðurinn minn
átti hlut í. Launin mín myndu
aldrei hökkva til og af því maður-
inn minn var sjálfstæður atvinnu-
rekandi, þá hef ég engan lífeyri eftir
hann”, sagði Kristjana Guðmunds-
dóttir, starfsstúlka á Borgarspítal-
anum.
Kristjana hefur unnið þar í 2 ár
en er á 5 ára taxta þar sem húsmóð-
urstörf eru metin til 3ja ára starfs-
reynslu í samningum Sóknar.
„Eftir að 4% koma nú í lok þessa
mánaðar er taxtinn 11.786 krón-
ur”, segir hún. „Launin fara í 14-15
þúsund með vaktaálagi og vinnu
tvær helgar í röð og frí þá þriðju”.
Kristjana er ekkja og býr ein
með 18 ára dóttur sinni sem er í
skóla. Hún býr í eigin húsnæði.
- Nú áttu von á 4% kauphækkun
í mánaðarlok?
„Ég er hrædd um að það hafi
ekki mikið að segja. Launin hafa
dregist svo mikið afturúr og allt
annað hefur hækkað svo óskap-
lega”, segir hún.
-ÁI
10%
afsláttarkort
Ákveðið hefur verið að gefa fé-
lagsmönnum Kaupfélags Hafn-
firðinga kost á 10% afslætti út á
afsláttarkort. Kortin gilda frá
október til 31. desember, eitt kort
fyrir hvern mánuð.
Nýir félagar fá einnig að njóta
þessara viðskiptakjara.
Hægt er að gerast félagsmaður í
verslunum og skrifstofu Kaupfé-
lagsins á Strandgötu 28, Miðvangi
og Garðaflöt Garðabæ.
Með félagskveðju og þökkum
fyrir góð samskipti.
Kaupfélag Hafnfiröinga
Rautt þríhyrnt merki
á lyfjaumbúðum
táknar að notkun lyfsins dregur
úr hæfni manna í umferðinni