Þjóðviljinn - 12.11.1983, Side 6

Þjóðviljinn - 12.11.1983, Side 6
Austantjalds- aðferðum hafnað Austantjalds-aðferðum ríkisstjórnarinnar hefur ver- ið hrundið að hluta. Það hefur verið þung undiralda gegn þeim í landinu frá því í vor og nú hefur hún skolað undan stjórninni. Ráðherrrar Sjálfstæðisflokksins féll- ust á að beita austantjalds-aðferðum við stjórn efna- hagsmála og hafa verið hvattir af Morgunblaðinu til þess að halda ótrauðir gegnum brimgarðinn. Þrýstingur á þingmenn Sjálfstæðisflokksins reyndist hinsvegar meiri en ætlað var, og einhverjir þeirra munu hafa minnst varnarorða Morgunblaðsins um þær hættur sem felast í því að beita einræðiskenndum stjórnaraðferð- um. Margoft hefur í þeirri umræðu verið vitnað til sögu Arthurs Köestlers „Myrkurs um miðjan dag“. Þar er því lýst hvernig fer fyrir stjórnarherrum sem láta til- ganginn helga meðalið, og upphefja að lokum meðölin og þá menn sem þeim beita sem tilgang í ljósi „sögu- legrar nauðsynjar“. Á þessari braut var ríkisstjórnin þegar hún afnam grundvallarmannréttindi í landinu með sjö mánaða banni við samningum. Ríkisstjórnin hefur ekki tekið neinum sinnaskiptum. Hinsvegar átti hún engra annarra úrkosta en að falla frá samningsréttarbanninu. Tvístringur var kominn í stjórnarliðið. Þrekið til þess að halda úti austantjalds- aðferðum var á þrotum. Meirihluti var ekki á Alþingi fyrir því ákvæði bráðabirgðalaganna frá í vor sem af- nám samningsréttinn. Ef til vill hefur sá meirihluti sem ríkisstjórnin höfðaði til við setningu bráðabirgðalag- anna aldrei verið fyrir hendi. Þegar það var orðið ljóst landslýð öllum að stjórnin hafði ekki stuðning við stefnu sína var henni nauðugur einn kostur að beygja sig. Andóf verkalýðshreyfingarinnar, sá stuðningur við kröfuna um frjálsan samningsrétt sem fram kom í 35 þúsund undirskriftum, og málflutningur stjórnarand- stöðunnar hafa skilað árangri. Smásaman hefur verið flett ofan af því virðingarleysi sem ríkisstjórnin hefur í valdahroka sínum sýnt grundvallárviðhorfum íslenska lýðveldisins. í ákvörðuninni um að falla frá samninga- banninu felst einnig viðurkenning á því að ekki er hægt að valta yfir sjónarmið verkalýðshreyfingarinnar í stjórn landsins. Sé það ætlunin að ná tökum á stjórn efnahagsmála til frambúðar verður að hafa hana með í ráðum. Enda þótt ríkisstjórnin sé nú á undanhaldi og hafi orðið að slá af frá stefnu sinni þá er samningsrétturinn enn skertur þar sem bannað er samkvæmt bráðabirgða- lögunum að semja um hverskonar verðbætur á laun í tvö ár. Það verður því að halda baráttunni áfram og reka flóttann þar til fullur sigur er unninn. Verkalýðs- hreyfingin fagnar áfangasigri, en hún á fyrir höndum vandasamt verkefni við samningaborðið og miklu skiptir að góð samstaða náist og félagar í hreyfingunni verði ósparir á stuðning sinn. Verkamannasambandið og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hafa sett fram kröfur um 15 þúsund krónur lágmarkslaun. Sú krafa hlýtur að nást fram og það þarf ekki að breyta tekju- skiptingunni í þjóðfélaginu mikið til þess að hún verði að veruleika. Morgunblaðið hefur hvatt til þess að haldið verði áfram að stjórna með austantjalds-aðferðum á íslandi. Það er auðséð á viðbrögðum þess að því þykir súrt í broti að fyrirmælum þess skyldi ekki hlýtt. Geir Hall- grímsson vitnaði í bók George Orwells 1984 á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins og má það heita bíræfni af manni sem tók þátt í að innleiða aðferðir „stóra bróður“ í stjórnarfarinu. Stóra-bróður-hugarfarið er enn við líði í herbúðum stjórnarliða og það er auðfund- ið að sumum þeirra er mikil eftirsjá í að því hefur verið vísað á bug. -ekh Hjónin Höskuldur Ottó Guðmundsson og Ingibjörg Vaidimarsdóttir, en þau bera út Þjóðviljann í hverfi í Þingholtunum: það munar um minna en 6-7 þúsund krónur á mánuði í dýrtíðinni. Ljósm. Magnús. Besta heilsubótin að bera út blöð segja fullorðin hjón sem bera út Þjóðviljann í Þingholtunum „Það munu vera 11 ársíðan við byrjuðum í þessu og við urðum þess fljótt áskynja að ekki er hægt að hugsa sér betri heilsubót en þá að vakna snemma á morgnana og bera út blöðin. Svo er það auðvitað með þetta starf eins og önnur að maður fær borgað fyrir og það munar um minna en 6-7 þúsund krónur á mánuði í dýrtíðinni núna“. Viðmælendur okkar að þessu sinni eru hjónin Ingibjörg Vald- emarsdóttir og Höskuldur Ottó Guðmundsson, en þau búa í einu elsta húsinu í Þingholtunum, Bjargarstíg 17. Þau fluttu í hverf- ið fyrir fjórum árum síðan og byrjuðu þá strax að bera út Þjóð- viljann, Tímann og Alþýðublað- ið „sem engan drepur að bera út“, eins og Ottó komst að orði sposkur á svip. Við spurðum þau hvort þau hefðu einhvern tíma verið litin hornauga fyrir að bera út blöð? „Já, það var ekki laust við það fyrst í stað. Fólki fannst einhvern veginn að það væri einungis starf við barna hæfi en viðhorfin eru sem betur fer að breytast. Áskrif- endur blaðanna eru orðnir ágætis kunningjar okkar fyrir löngu og öll okkar viðskipti ganga vel, enda standa báðir við sitt; við berum snemma út og kaupend- urnir greiða áskriftargjöldin feg- ins hendi“. Hvenær byrjið þið á morgn- ana? „Við vöknum um sexleytið og erum komin af stað fljótlega eftir það. Við skiptum hverfinu á milli okkar þannig að hvort okkar um sig þarf aldrei að fara yfir götu. Svo er auðvitað öryggi í því að vera tvö á ferð ef eitthvað skyldi koma fyrir, sérstaklega í hálk- unni á veturna. Annars er ekki nokkrum manni vorkunn að arka með blöðin þó eitthvað sé að veðri. Það er enginn verri þótt hann vökni, eins og sagt er.“ Er ekki erfitt að muna eftir öllu áskrifendunum? „Það leggst strax á minnið, blessaður vertu. Annars hefur svo mikið bæst við af áskrifend- um að Þjóðviljanum síðustu vik- urnar að við höfum varla undan að skrá þá á bak við eyrað en vonandi gleymum við sem fæst- um. Maður veit hvað það er mikilvægt að fá blaðið sitt snemma og örugglega og flestum nauðsyn aðhafa þaðmeðankaffi- bollinn er drukkinn áður en farið er til vinnu“. Munduð þið ráðleggja eldra fólki að bera út blöð? „Alveg tvímælalaust. Fólk sem komið er á eftirlaunaaldurinn hefur oft lítið fyrir stafni og það er ekki hægt að hugsa sér betra ráð til að koma kroppnum á hreyfingu en að taka að sér út- burð á dagblöðunum. Svo munar um minna en þau laun sem maður fær fyrir. í okkar tilfelli er Ottó kominn á eftirlaunaaldur og fær rúmlega 10.000 kr. á mánuði í eft- iriaun og lífeyri frá Lífeyrissjóði Dagsbrúnar. Fyrir að bera út blöðin hér í einu hverfi í Þingholt- unum fáum við 6-7000 kr. á mán- uði og sú tala á eftir að hækka ef Þjóðviljinn heldur áfram að bæta við sig áskrifendum, sem við auðvitað vonum! Aðalatriðið er hins vegar heilsubótin því það er ólíku saman að jafna að drífa sig út undir bert loft í morgunsárið í stað þess að lúra frameftir öllu“. Bjóða ekki blöðin misjöfn kjör? „Jú, ekki er hægt að neita því. Þjóðviljinn og Tíminn borga bæði vel fyrir rukkunina, orlof, og auk þess greiðir Þjóðviljinn sérstakt vetrarálag frá því á haustin og fram á vor. Við bárum út Morgunblaðið hér áður en þeir borguðu verr en hin blöðin auk þess sem Mogginn var oft svo ansi þungur. Okkur hafði fundist lág- mark að þeir greiddu að minnsta kosti ekki verr en hin blöðin fyrir allan pappírinn sem í Mogganum er“. Við sátum lengur en við ætluð- um hjá hjónunum á Bjargarstígn- um og ræddum m.a. um ættir þeirra og uppruna. Það kom í ljós að Ingibjörg er fædd og uppalin í Svefneyjum á Breiðafirði en Ottó er fæddur að Streiti í Breiðdals- hreppi í S-Múlasýslu. Hann hefur fengist við ljóðagerð allt frá 16-17 ára aldri og gaf út ágæta ljóðabók í fyrra, Stefjaþanka, sem hlaut góða dóma gagnrýnenda. Við kvöddum þau Ingibjörgu og Ottó sem um árabil hafa borið út Þjóðviljann af miklum dugn- aði og þökkuðum fyrir kaffið og ástarpungana. - v. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Heigin 12.-13. nóvember 1983 ______________ Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jóhannes Haröarson. Sfmavarsla: Sigrföur Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsd. >; Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bflstjóri: Ólöf Siguröardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson.' Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir. Karen Jónsdóttir Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síöumúla 6, Reykjavik, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaöaprent h.f. ritstjórnargrei n starf og HJör DJÚDVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastióri: Guðrún Guðmundsdóttir Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Kar! Haraldsson, Kjartan Olafsson. Umsjónarmaöur Sunnudagsblaðs: Guöjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristin Pétursdóttir. Blaðamenn: Auöur Styrkársdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúövík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Viðir Sígurösson. Utlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson. > Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.