Þjóðviljinn - 12.11.1983, Page 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 12.-13. nóvember 1983
um helaina
r
Skartgripir Ofeigs Björnssonar
í Gallerí Grjót:
„Huldumaður í ís-
lenskri myndlist”
„Ófeigur Björnsson hefur um
árabil verið meðal huldumanna í
íslenskri myndlist, sem og list-
iðn.... Þar að auki hefur mað-
urinn villt á sér heimildir. Eg hef
Ófeig nefnilega sterklega grunað-
an um skúlptör í gervi gullsmiðs.
Öðruvísi er vart hægt að skýra
það sem gerist í skartgripum
hans. Þeir tolia ekki í eyrum á
fólki, á fíngrum þess, um hálsinn,
á úlnliðum, heldur gera tilkall til
að vera skoðaðir einir og sér.”
skrifar Aðalsteinn Ingólfsson list-
fræðingur m.a. um sýningu sem
Ófeigur Björnsson hefur opnað í
Gallerí Grjót á Skólavörðustíg.
Ófeigur er hálffertugur, hefur
numið gull- og silfursmíði í Iðn-
skólanum í Reykjavík. Þá hefur
hann stundað nám í höggmynda-
og teiknideild undir leiðsögn
Hrings Jóhannessonar, Ragnars
Kjartanssonar, Gylfa Gíslasonar
svo nokkrir séu nefndir. Sýningin
í Gallerí Grjót er hans fyrsta
einkasýning.
„Ég hef verið að vinna að þessari
sýningu í allt sumar með þeirri
aðferð er ég eitt sinn lærði, hin
aldagamla vinnuaðferð við gull-
smíðina hefur heillað mig. Ný-
tískutól og tæki læt ég lönd og leið
og móta efniviðinn á þann hátt
sem hugurinn segir til um. Stund-
arstemninguna reyni ég að
höndla þegar ég kem heim úr um-
hverfi sem er svo gjörólíkt gulls-
míðinni. Ég er slökkviliðsmaður
og það starf er hið prýðilegasta í
bland með gullsmíðarvinnunni.
Sannleikurinn er nefnilega sá að
gullsmíðin er lýjandi þegar til
lengdar lætur, allt að því andlaust
starf hafi maður ekki í einhverju
öðru að snúast”, sagði listamað-
urinn þegar Þjóðviljinn hafði tal
af honum þar sem hann var
staddur niður í Gallerí Grjót.
Ekki kvaðst Ófeigur hafa selt
mikið af verkum sínum, „ekki
þrautalaust að vera gullsmiður
hér á landi upp á þau býti að ætla
að selja einshver ósköp, þegar
fólk gerir ekki greinarmun á
handverki og því sem er fjölda-
framleitt”.
Ófeigur sýnir einnig skúlptúr
úr leðri í galleríinu. Allir þeir
munir sem hann hefur komið
fyrir í tilefni þessarar sýningar
verða teknir saman að loknum
fimmtánda degi nóvembermán-
aðar, þá laumast nýr sýningarað-
ili inn í sýningarsalinn á Skóla-
vörðuholtinu.
„Sumt af þessu sem er hérna
ferðast úr landi að sýningunni
lokinni”, sagði Ófeigur „það er
verið að koma á sýningum á
Norðurlöndunum „Form Is-
land”, heitir fyrirbærið, einhvers-
konar farándsýningar sem byrjar
í Helsinki og fer síðan í Alvar
Alto safninu í Finnlandi. Ég á
von á að fá að sjá þessa muni
aftur, því sýningum lýkur í Nor-
ræna húsinu eftir u.þ.b. tvö ár”. í
framhjáhlaupi má geta þess að í
upphafi næsta árs mun Ófeigur
halda sína fyrstu einkasýningu á
erlendri grund. Það verða Finnar
sem njóta munu sérstæðrar listar
hans. -hól.
Ófeigur Björnsson við nokkra þá skartmuni sem hann sýnir í Gallerí
Grjót. Hann er einn af sjö stofnendum gallerísins.
Eðlisfræð-
ingarnir á
Akranesi
Fyrir viku frumsýndi Skaga-
ieikflokkurinn á Akranesi leikrit
Dúrrenmatts, Eðlisfræðingana, í
þýðingu Halldórs Stefánssonar og
undir ieikstjórn Kjartans Ragn-
arssonar.
Eðlisfræðingarnir er spenn-
andi sakamálaleikrit með óvænt-
um endalokum, gráu gamni ýmis-
konar - og um leið er því velt upp
hvort hægt sé að fela fyrir illum
öflum þá miklu en tvíbentu þekk-
ingu sem vísindin hafa safnað.
Með helstu hlutverk fara Kristján
E. Jónsson og Gerður Rafnsdótt-
ir, Hlynur Eggertsson sér um lýs-
ingu og sviðsmynd gerðu Bjarni
Þ. Bjarnason og Guðjón Guð-
mundsson. Sviðið í Bíóhöllinni
hefur verið stækkað fram í salinn
fyrir þessa sýningu.
Næsta sýning er í dag, og laug-
ardag 12. nóv. kl. 15.00, í Bíó-
höllinni á Akranesi.
Handíð sem listgrein
Bandaríski listfræðingurinn,
Lloyd Herman, forstjóri Ren-
wick safnsins við Smithsonian In-
stitution í Washington D.C., sem
er jafnframt einn fremsti listiðn-
fræðingur Bandaríkjanna mun
flytja fyrirlestur á Kjarvalsstöð-
um laugardaginn 12. nóvember
kl. 17.00 og sýna litskyggnur.
Efni fyrirlestrar hans mun verða:
„Bandarísk handíð sem list-
grein”.
Herman er forstjóri fyrsta al-
hliða safns bandarísks handiðn-
aðar, Renwick safnsins í Was-
hington D.C. Sem deild í Smit-
hsonian safninu, sýnir Renwick
safnið verk bandarískra hand-
verksmanna og hönnuða, auk
sýninga frá öðrum löndum.
Lloyd Herman
myndlist
Kjarvalsstaöir:
Yfirlitsýning á verkum 80 banda-
rískra handverksmanna. Gefur
góða mynd af listmunagerð í
Bandaríkjunum. Munir til sölu, and-
virði rennur í sjóð til styrktar lista-
samstarfi þjóðanna. Listamenn
sem eiga verk á sýningunni verða
með sýnikennslu á Kjarvalsstöð-
um á laugardag kl. 14-17 keramik,
og leðurvinnsla á sama tíma á
sunnudag.
Kjarvalssýningunni í austursal
sem vakið hefur sérstaka athygli er
að Ijúka. Síðasta sýningarheigi.
Gerðuberg:
Ávallt mikið um að vera í Gerðu-
bergi. Þar stendur nú yfir sýning 5
íslenskra listamanna I tengslum við
listiðnaðarsýningu Bandaríkja-
manna á Kjarvalsstöðum. Jens
Guðjónsson, gullsmiður, Kristrún
ísleifsdóttir og Sóley Eiríksdóttir
keramik og hjónin Sigrún Ó. Ein-
arsdóttir og Sören Larsen glerlist.
Þá stendur einnig yfir í Gerðu-
bergi norræn sýning á myndlist í
barnabókum. 100 myndir ásamt
bókum þeim sem myndirnar prýða.
M.a. myndskreytingar eftir 3 ís-
lenska listamenn: Brian Pilkington,
Hring Jóhannesson og Harald
Guðbergsson.
Mokka:
Rannveig Pálsdóttir sýnir vefnað-
arlist. Alls 17 myndir flestar unnar á
þessu ári. Fyrsta einkasýning
Rannveigar.
Gallerí Langbrók:
Örlygur Kristinsson myndlistar-
maður frá Siglufirði sýnir olíumál-
verk. Opnað kl. 14 í dag og opið til
18 um helgar.
Ásmundarsalur:
Björgvin Björgvinsson sýnir klippi-
myndir og önnur myndverk. Ópið
virka daga fra 16-22 og frá 14-22
um helgar fram til 20. nóvember.
Norræna húsið:
f anddyri er Jón Laxdal með sýn-
ingu sem hann nefnir Myndþanka.
Henni lýkur um helgina. I kjallaran-
um er síðasta sýningarhelgi á sam-
sýningunni íslensk grafík. Stórgóð
sýning sem enginn má missa af.
Listmunahúsið:
Síðasta sýningarhelgi á samsýn-
ingu þeirraÁsu Ólafsdótturog Ingu
Karlsson. Opið frá 14-18.
Nýlistasafnið:
Heit framtíð - gleymd fortíð er yfir-
skrift sýningar Gunnars Kristins-
sonar sem hann opnar í dag í Ný-
listasafninu Vatnsstíg. Opið um
helgina frá 14-22 en sýningin
stendur til 20. nóv.
Gallerí Lækjartorg:
Guðrún Elísabet Halldórsdóttir
opnar málverkasýningu í galleríinu
í dag. Hún sýnir þar olíumálverk og
viðarkolateikningar. Guðrún hefur
stundað myndlistarnám hér heima
og erlendis en þetta er þriðja einka-
sýning hennar.
Listasafn íslands:
Merkileg sýning á verkum Arn-
gríms Gíslasonar listmálara í tilefni
útkomu bókar dr. Kristjáns Eld-
járns heitins um ævi og störf Arng-
ríms. Alls eru á sýningunni 27 verk
sem spanna allan listferil þessa
merka málara. Opið 13.30-22 um
helgar.
Skeifan:
Sigurður Haukur Lúðvígsson opn-
ar málverkasýningu í húsgagna-
verslun Skeifunnar í Kópavogi.
Opið 9-6 í dag og 2-5 á morgun
sunnudag.
tónlist
Egilsstaðakirkja:
Tónlistarfélag Fljótsdalshéraðs
efnir til tónleika í Egilsstaðakirkju í
dag kl. 17.00. Elísabet F. Eiríks-
dóttir sópransöngkona og Lára S.
Rafnsdóttir píanóleikari flytja verk
eftir Dohnany, Grieg, Puccini,
Kaldalóns, Pál Isólfsson og Jón
Ásgeirsson.
Á morgun sunnudag verður ár-
leg kaffisala tónlistarfélagsins (
Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Tónskólinn sér þá um tónlistar-
flutning og ýmislegt fleira til
skemmtunar.
Vísnavinir:
Vísnakvöld í kjallaranum á mánu-
dagskvöld kl. 20.30. Hálft í hvoru
og félagar úr Leikfélagi Hafnar-
fjarðar leika og syngja. Einnig
koma fram Gunnar Guttormsson,
Sigrún Jóhannesdóttir og Þor-
steinn Bergsson. Ingibjörg Har-
aldsdóttir verður Ijóðskáld kvöld-
sins.
Nesklrkja:
Aðrir tónleikar Kammermúsík-
klúbbsins á þessu starfsári verða í
Neskirkju kl. 20.30 á sunnudags-
kvöld. Á efnisskránni eru verk eftir
Johannes Brahms.
Akureyrarklrkja
og Dalvíkurklrkja:
Gítarleikarinn Símon H. Ivarsson
verður á ferð um Norðurland um
helgina. Hann leikur í Akureyrar-
kirkju á laugardag kl. 16.00 og í
Daivíkurkirkju á sunnudag.á sama
tíma. Á efnisskránni eru spænsk
klassísk verk og flamenco-tónlist.
Selfoss og Skálholt:
Ragnar Björnsson organleikari og
Pétur Þorvaldsson sellóleikari
verða á ferð um Suðurland um
helgina. Þeir halda tónleika í Sel-
fosskirkju á laugardag kl. 17 og á
sama tíma á sunnudag í Skálholti.
Kópavogur
Söngleikurinn Gúmmí-Tarsan hef-
ur nú gengið um nokkurt skeið í
Kópavogi við miklar vinsældir.
Hann verður sýndur í 16. og 17.
sinn í dag og á morgun. Sími í
miðasölu er 41985.
Gamla bfó:
La traviata, ópera Verdis, verður
sýnd á sunnudagskvöldið kl. 20 og
er uppselt á sýninguna. Hefur
óperunni verið mjög vel tekið.
leiklist
Leikfélag Akureyrar
Sýningar á hinum geysivinsæla
söngleik My fair lady verða í
leikhúsinu bæði laugardags- og
sunnudagskvöld. Söngleikurinn
var frumsýndur 21. október síð-
astliðinn og hefur verið sýndur æ
síðan fyrir fullu húsi.
Leikfélag Reykjavíkur:
Næst síðasta sýning á leikritinu Úr
lífl ánamaðkanna verður í Iðnó í
kvöld og hefst sýningin kl. 20.30.
Með hlutverkin fara Þorsteinn
Gunnarsson, Guðrún Ásmunds-
dóttir, Steindór Hjörleifsson og
Margrét Ólafsdóttir.
Forsetahelmsóknin er á sínum
venjulega tíma kl. 23.30 í Austur-
bæjarbíó í kvöld. Þetta er gaman-
leikur með Kjartani Ragnarssyni,
Gísla Halldórssyni, Guðrúnu Ás-
mundsdóttur, Soffíu Jakobsdóttur,
Sigríði Hagalín og Guðmundi
Pálssyni í hlutverkum. Mikil og góð
aðsókn hefur verið að sýningum að
undanförnu.
Hart í bak verður sýnt í Iðnó á
sunnudagskvöldið. Þetta verk
Jökuls Jakobssonar nýtur mikilla
vinsælda. Með helstu hlutverk fara
Soffía Jakobsdóttir, Jón Sigur-
björnsson, Edda Heiðrún Back-
man, Kristján FrankKn Magnús og
Pétur Einarsson.
Brúðubíllinn Fríkirkjuvegi 11:
Brúðuleikhús yngstu barnanna.
Amma gamla og apinn í „Leikið
með liti'' og „Á sjó". Söngur og
gaman. Sýning á laugardag kl.
15.00.
Brúðuleikhúsið:
Tröllaleiklr, saga Guðrúnar
Helgadóttur hefur verið færð í
brúðuleikhúsform. Á sunnudag kl.
15 verða fjórir brúðuþættir sýndir í
Iðnó. Ástarsaga úr fjöllunum eftir
Guðrúnu, sagan um Búkollu, Egg-
ið og Risinn draumlyndi. Leikstjóri
er Þórhallur Sigurðsson, en það er
Leikbrúðuland sem stendur fyrir
sýningunum.
Þjóðleikhúsið:
Eftir konsertinn, leikrit Odds
Björnssonar er á dagskrá Þjóðleik-
hússins kl. 20 á laugardagskvöld-
ið.
Lína langsokkur, fjölskylduleikrit
Astrid Lindgren er enn á dagskrá
leikhússins og sýningar farnar að
nálgast sjötta tuginn. Lína verður I
leikhúsinu kl. 15 á sunnudaginn.
Návigi, eftir Jón Laxdal verður sýnt
öðru sinni á sunnudagskvöld kl.
20. Þetta er grár gamanleikur um
draumóramenn sem byggja
loftkastala til að sigra þrúgandi
veruleikann. Þeir nálgast það að
vera trúðar uns veruleikinn þrengir
sig inn í heim þeirra.
Lokaæfing, eftir Svövu Jakobs-
dóttir verður sýnd á Litla sviðinu á
sunnudagskvöldið kl. 20.30. Verk
þetta hefur vakið mikla athygli og
hefur verið uppselt á margar unda-
nfarnar sýningar.
ýmislegt
Hafnarfjarðarkirkja:
Fjóra næstu laugardagsmorgna
mun dr. Einar Sigurbjörnsson pró-
fessor halda fræðsluerindi í Hafn-
arfjarðarkirkju um postulega trúar-
játningu. Fundirnirhefjastkl. 10.30
og standa fram undir hádegi með
kaffihléi og fyrirspurnatíma. Fyrsti
fundurinn hefst í dag, laugardag.
Rauðl krossinn Kópavogi:
Námskeið í skyndihjálp tyrir bæjar-
búa verður haldið í vestur-álmu
Kópavogsskóla og hefst þann 15.
nóvember kl. 20.00. Námskeiðið
stendur í 4 kvöld, samtals 18
kennslustundir. Þátttaka tilkynnist í
síma 41382 14. og 15. nóv. frá 14-
18.
Þýsk bókasýning:
í gær var opnuð á Kjarvalsstöðum
sýning á 1600 þýskum bókum og
tímaritum sem er sýnishorn af út-
gáfu 150 þýskra bókaforlaga. Þá
hefur einnig verið opnuð sýning á
250 þýskum bókatitlum í bæjar-
bókasafninu á Akureyri.
Um helgina verða haldnir tón-
leikar ( sambandi við þessa stóru
bílasýningu á Kjarvalsstöðum. Þeir
hefjast kl. 20.30.