Þjóðviljinn - 26.11.1983, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 26.11.1983, Qupperneq 4
Bylgjan rýkur, bylur hvín, byrgist vík og ögur, hár þitt strýk ég, heillin mín, hrundin ýkja fögur. Fellur ofan fjúk og snær, flest vill dofa Ijá mér, myrk er stofa, mannlaus bœr, - má ég sofa hjá þér? Hart mig sló oft heimur bráður, hugarins nóga átta eg pín, harmi sóar helst sem áður hýrust móins-beðjalín. Fljótt sem galdur framhjá þustur flýgur skvaldur tvítugs manns, furðu kaldur feigðargustur fer um aldinn vanga hans. Reykjavik. 4 SÍJAÞJÓÐ’Vltj'lNN Helgin 26.-27. nóvember 1983 Astin er líkust blómi, vinátt- an er eins og tré sem veitir okkur skjól. S.T. Cooleridge ,-maeg sofa hjá þér?“ Steinn Steinarr var á sínum tíma þekkt- astur fyrir nýstárlegt ljóðform, en hann var jafnframt svo hagmæltur upp á gamla mátann að enginn gat efast um ljóðsnilli hans, ekki einu sinni verstu andskotar nýja ljóðsins. Meðal þess sem liggur eftir Stein er brot úr Hlíðar-Jóns rímum, og hér birtum við brotabrot úr þeim. Lífs um angurs víðan vang víst ég ganginn herði, eikin spanga, í þitt fang oft mig langa gerði. Bragarföngin burtu sett, botn í söng minn sleginn, situr löngum sorgum mett sál mín öngu fegin. Brautargengi brestur mig, bót ég enga þekki, ó hve lengi þreyði ég þig, þó ég fengi ekki. Aldamótamynd frá Reykjavík. Fremst á myndinni eru Brunn- hús (t.h.)og síðan smiðja Björns B. Hjalt- ested, en t. v. er íbúðar- hús Björns sem í sumar var flutt í Árbæ. Takið eftir h vað Tjörnin nær langt þó að uppfy lling í hana sé þegar hafin. XJtíí SijSf. Kymumistnn, Reytijavík Karólína og Musica Nova Þaö er mikið um að vera í íslensku tónlistarlífi. Á þriðjudaginn kemur verða tónleikar í Bústaðakirkju á veg- um Musica Nova þar sem frumflutt verða fjögur ný íslensk tónverk. Karó- línaEiríksdóttirtónskálderformaður Musica Nova um þessar mundir og við heimsóttum hana einn dag í vikunni á Hallveigarstíginn til að forvitnast um tónleikana, starfsemi félagsins og hana sjálfa. - Musica Nova er orðinn nokkuð gamall félagsskapur, ekki satt? - Hann starfaði hér á árum áður og sú starfsemi var mjög blómleg en svo lognaðist hann út af og dó. Það var svo fyrir þremur árum og félagið var endurvakið og stóð Leifur Þórarinsson aðallega fyrir því. - Er ekki tilgangurinn aðallega að flytja nýja músík eins og nafnið bendir til? - Jú, við pöntum ný verk og borgum fyrir þau og einnig er hugmyndin sú að flytja erlenda samtímatónlist en af því er alltof lítið gert. Við erum ótrúlega einangruð að þessu leyti... - Þú sagðir að þið pöntuðuð ný verk og borguðuð fyrir þau. Hvar fáið þið peninga? - Þetta er ógurlegt basl. Tónskáldasjóð- ur ríkisútvarpsins lagði út fé fyrir tvö verk í fyrra og menntamálaráðuneytið fyrir eitt. f vetur hafa nokkur stórfyrirtæki styrkt okk- ur og það bjargar okkur alveg. - Segðu mér af tónleikunum á þriðjudag. - Já,viðákváðumaðsetjaöllnyjuverkin í vetur saman og flytja þau á fyrstu tón- leikunum. Þetta gengur þannig fyrir sig að flytjendur verkanna panta þau. Trómet blásarasveitin mun flytja verk eftir Áskel Másson, Nýja strengjasveitin verk eftir Pál sínu abstrakt og óarðbær. Eg held að hæfi- leikarnir til að semja tónverk séu ekkert kynbundnir en konur hafa átt erfitt með að sameina sín praktísku störf og tónsmíðar. Þetta er þó að breytast. - Það er ekki hægt að benda á margar konur hér á landi sem eru tónskáld. - Nei, þær eru mjög fáar. Auðvitað Jór- unn Viðar. Ég held að það sé helst í Bret- landi sem konur hafa haslað sér völl á þessu sviði. Þar eru tvær konur sem eru í hópi mest metnu tónskálda þjóðarinnar. Önnur er háöldruð en hin erThea Musgrave, kona á besta aldri. - Að lokum Karólína. Byrjaðir þú snemma að semja tónlist? - Ég var alltaf að semja lög af og til með- an ég var í Tónlistarskólanum og þótti ekki tiltökumál. - GFr P. Pálsson, Pétur Jónasson gítarleikari verk eftir Atla Heimi Sveinsson og John Speight barytonsöngvari verk eftir Þorkel Sigur- björnsson. - Og hvað er svo fleira á dagskrá í vetur? - Við ætlum að halda upp á 100 ára af- mæli Antons Weberns með tónleikum og halda aðra með pólitískri samtímatónlist. Svo eigum við von á erlendum gestum. Wi- ener Blokfleuten Ensemble kemur hér í fe- brúar en þeir hafa sérhæft sig í að flytja gamla og nýja tónlist fyrir blokkflautur. Fólk tengir blokkflautur fyrst og fremst við gamla músík t.d. barokkmúsík en þeir flytja einnig nýja tónlist með þessu hljóð- færi. Þá kemur Berwald strengjakvartett- inn frá Svíþjóð í mars á vegum sænsku Ríkiskonsertanna. Það er stofnun sem skipuleggur tónleikahald víða um Svíþjóð og samskipti við önnur lönd. Þeir hafa gert mikið af því að kynna íslenska tónlist í Sví- þjóð og nú ætla þeir að endurgjalda heim- sóknir íslenskra hljóðfæraleikara með því að senda hingað þennan strengjakvartett en borga þó allt sjálfir. - Hvað ert þú sjálf að semja um þessar mundir? - Ég hef lítinn tíma til að semja í vetur. Tíminn fer allur í kennslu og eitthvað ann- að. Ég hef þó fengið pöntun frá Svíþjóð um að semja strengjakvartett og verð að reyna að finna einhvern tíma til þess. - Er mikið um svona pantanir? - Öll íslensk tónskáld fá mikið af pöntun- um og þá einkum frá Noðrurlöndum, sér- staklega Sviþjóð. - Nú vakti verk eftir þig sem flutt var á Scandinavia Today í Bandaríkjunum mikla athygli. Færðu engar pantanir þaðan? - Já, það vakti víst athygli. Mér er sagt það. Nei, ég fæ engar pantanir þaðan. — Svo að við víkjum að öðru. Hvers vegna stunda svo fáar konur tónsmíðar sem raun ber vitni og hvers vegna er engin kona meðal stóru tónskáldanna á borð við Bach og Beethoven? - Þetta er skrýtin spurning. Tónsmíðar hafa einfaldlega ekki verið kvennasvið. Konur Hafa um aldir fengist við praktíska hluti svo sem barnauppeldi og húsverk en tónlist er ákaflega abstrakt og ópraktísk. Það er erfitt að benda á nokkurn hlut sem er ! eins erfitt að festa puttann á. Hún er í eðli Karólína: Fjögur ný íslensk verk verða flutt á tónleikunum á þriðjudag. Ljósm.: - eik.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.