Þjóðviljinn - 26.11.1983, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 26.11.1983, Blaðsíða 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 26.-27. nóvember 1983 Arni Bergmann skrifar bókmenntir urson sinn, sem er oröinn mikill húskross á fylliríum áöur en lýkur, bfladellu Hlyns, snargeggjaða kók- drykkju nískrar fjölskyldu á Þor- láksmessu. Samúðin Gamanmál sögunnar eru ekki eins ærslafengin og í „Þetta eru asnar Guðjón“ - enda eins gott, því rammari hnútar eru bundnir bragg- afólkinu en nýlegri útflippandi kynslóð menntskælinga. Einar Kárason hefur, eins og fyrr segir, utangarðsfólk milli handanna. En hann vill bersýnilega forðast þá eftirlætisiðju margra raunsæishöf- unda að vísa með lýsingu sinni; beint á þjóðfélagslega sökudólga, sem bera ábyrgð á volæði. Hitt er svo ljóst, að sögusamúðin er með braggafólkinu, þó nú væri. En þessi samúð er nokkuð svo kald- tempruð. Lesandinn getur stund- um verið á báðum áttum um það hvort hann sér skopleikinn fremur en harmleikinn í því sem fram fer. Gerir reyndar ekkert til þótt hann lendi í þeim bobba, líklegast að hann verði fyrir bragðið enn áhugasamari um braggahverfið. Að lokum skal minnst á einn kafla bókarinnar þar sem kostir sögunnar í frásagnargleði og sam- þjöppun koma einkar skýrt fram. Hann segir frá „degi í lífi“ bragga- búa, mánudeginum þe'gar Baddi og Grjóni seldu Vísi sem þeir áttu að bera út, brutust inn í geymslur í Listamannablokkinni er Hregg- j viður setti heimsmet í kúluvarpi ! sem var byggt á vitlausri kúlu, þeg- ar Diddi litli var fullur og Lína spá- kona kvað í kútinn kvörtunarnefnd úr fínna húsi með mælsku sinni. Og verður gaman að fylgjast með því hvað höfundur gerir næst við þá súpu sem nú kraumar glatt á hans hlóðum. ÁB. lítið utanveltu sumir. Aftur á móti verður lýsing á bálför sænsks vík- ingahöfðingja austur á Kúrlandi mjög vel virk í sögunni - sjálfur atburðurinn hinn hrikalegasti, og tengist um leið við örlög sögu- mannsins, Ubba Ragnarssonar: það er ambáttin sem á að deyja með höfðingja sínum sem verður konan hans elskuleg, Tófa. Persónur Enn misjafnari verður árangur- inn þegar nútímamaðurinn fer að skoðast um í hugarheimi víkinga- aldarfólks. Verst gengur Jónasi - eins og reyndar mörgum höfund- um öðrum sem hafa notað efni úr fornbókmenntum - þegar tilfinn- ingamál eru á dagskrá, þá gerist nútímamaðurinn frekastur til fjörs- ins og breiðir út sinn skilning og sitt málfar. Það er hinsvegar miklu minna um slík vandræði þegar komið er að bardögum og víga- mennsku, ránum og nauðgunum og öðru þesslegu; þar er höfundur miklu betur settur og tungutak hans allt miklu sterkara og betur sannfærandi. Persónulýsingar eru fremur tví- víðar en þrívíðar og þá athyglis- verðust lýsingin á ívani beinlausa, bróður sögumanns, miklum hag- leiksmanni og herstjóra og í raun útsmognum valdapólitíkus. En Ubbi sjálfur er sá sem látinn er skipta mestu máli - sonur víkinga- höfðingja og friðsemdarkonu, sem klerkar segja einn þeirra sem sé kristileg sál í eðli sínu. Hann er teygður á milli tveggja heima, er kristinn bóndi heima fyrir en varg- ur í hernaði og nauðgari - fær þó kristileg iðrunarköst einatt þegar vígamóður og annar losti er runn- inn af honum. Höfundi hættir til að ofsegja um þessa hluti, útskýra óþarflega margt, en engu að síður verður lesanda ýmislegt eftirminni- legt úr þessari sálarstyrjöld, sem er sannfærandi svo langt sem hún nær. Fjallar sagan þá um átök heiðni og kristni í huga eins þeirra, sem var blendinn í trú á víkingaöld? Að nokkru leyti - en það væri misskiln- ingur að leggja of mikið upp úr þessum hlutum sem kjarna máls- ins. Miklu líklegra er að Jónas Kristjánsson hafi blátt áfram viljað bregða á leik með þekkingu sína á þessum tíma sér og öðrum „til fróð- leiks og skemmtunar" eins og þar segir: hvað er hægt að komast með efnivið þennan? Þó nokkuð, já þó nokkuð langt, svarar einnig sá, sem hefur nokkra tilhneigingu til að tortryggja sögulegar skáldsögur yfirhöfuð. vitum ekki enn hvert höfundur ætl- ar sér. Hópur og einstaklingar En skemmtileg er þessi saga og fjörið gott í frásögninni, sögu- ramminn fýllist greiðlega af hús- um, pollum, lykt, ljósi - og fólki. Það er galli á mörgum „hópsögum" að einstaklingar vilja í þeim eins og hverfa í hópinn, í „andrúmsloftið" en sá háski er hér ekki verulegur. Höfundur hefur einmitt augljósan áhuga á að sérkenna persónur sínar með vissum ofstopa í viðbrögðum þeirra við uppákomum lífsins - og hefur þar eftir takmarkaðan áhuga á því hvunndagsfólki úr hinum lit- litla meirihluta sem hefur lengri eða skemmri dvöl í braggahverf- inu. Sama hvort er um að ræða fót- boltaofstopa strákanna, takmarka- laust eftirlæti Línu við Badda dótt- Afsonum Ragnars loðbrókar Jónas Kristjánsson. Eldvígslan. Söguleg skáldsaga. Bókaklúbbur Arnar og Örlygs 1983. 324 blaðsíður. Þessi saga er réttlætt á þann hátt, að kristinn víkingur frá Danmörk, Ubbi sonur Ragnars loðbrókar, hefur leitað skjóls í írsku klaustri og er hvattur til að skrifa ævisögu sína. Og hefur að sönnu úr nógu að moða, því margt hefur á daga hans drjfið. Höfundur gefur mikið rúm kynningu víkingaaldar á Norður- löndum í fyrsta hluta bókarinnar sem fjallar um uppvaxtarár Ubba í Hleiðru, kynningu á híbýlum og búskaparlagi, veislum og leikjum, heimkomu víkinga úr hernaði og fleiru þesslegu. Svo líður fram tím- inn og Ubbi er sjálfur orðinn þátt- takandi í atburðum, hann er með í Frakklandsferð þegar Parísarborg er tekin og brennd og hann fer í leiðangur austur í Svíþjóð og Kúr- land, bæði til að hjálpa til við að hressa upp á kristindóm og aðstoða hálfbróður sinn við skattheimtur. Hann er einnig með í för þegar bræður hans taka austurhéruð Englands og setja upp ríki þar en er út úr þeim hildarleik árið 874 og klausturhvíld feginn á írlandi, enda ekkjumaður barnlaus með margt óuppgert við Hvítakrist. Fræði og skáidskapur Það er um margt skemmtilegt að fylgjast með því, þegar fræðimaður tekur upp á því að sigla skáldskap- arskútunni um sjó sinna fræða. Fylgjast með því, hvernig tekst að bræða saman staðgóða þekkingu á fornum sögum, sögu, þjóðlífshátt- um víkingaaldar og viðhorf og reynslu samtímamannsins. Verk- efnið er í senn þakklátt og erfitt. Þakklátt vegna þess, hve miklu af góðu söguefni hinir fornu textar miðla og vegna þess að fáir okkar komast hjá því að hafa áhuga á þessum fjarlægu, grimmu og ævin- týralegum tímum. Erfitt vegna þess, hve óralangt sögufólkið er frá okkur og þar eftir erfitt að vita nokkuð með sanni um hugarfar í kröggum í bröggum Einar Kárason. Þar sem djöflaeyjan rís. Mál og menning 1983. 208 blaðsíður í fyrstu bók sinni, Þetta eru asn- ar Guðjón, dró Einar Kárason upp háðska mynd af ýmislegu villuráfi eigin kynslóðar og hafði einn ráð- lítinn nýstúdent að samnefnara einskonar fyrir liðið. í þessari nýju bók hverfur Einar lengra aftur í tíma og skrifar hópsögu um bragg- ahverfi eftirstríðsáranna, athvarf utangarðsmanna, sérvitringa og ’annarra fátæklinga. Lýsir hvunn- idagsleika sem er snúinn saman úr drykkjuskap, slagsmálum, nokkuð augljósu kvennafari, klögumálum yfir krakkaandskotunum, stríði þeirra við íbúa betri húsa, lögreglu- heimsóknum - og samstöðu í sport- Fjölskyldan Ein fjölskylda situr í sögumiðju og tekur til sín mesta athygli - Tommi karlinn sem rekur litla búð þar í hverfinu, konan hans, spá- konan Lína, og dotturbörn hennar sem eru komin í heiminn með að- stoð ýmissa útlendinga. Þetta fólk á sér óðal í stórskrýtnu forsköluðu timburhúsi í braggahverfinu miðju og þangað liggja margir straumar því þau Tommi eru á sinn hátt bjarghringir í eymdarelgnum allt um kring. Þar í „Gamla húsinu“ eiga harðsvíraðir strákþrjótar og síðar glæponar eins og Grjóni at- hvarf, þar er fundið upp á því eina félagslega framtaki sem braggabú- um dugar til nokkurs - stofnun fót- boltafélagsins Kára. Braggabörnin eru fyrirfram sek í hverju máli, en í fótboltanum einum eiga þau sér nokkra uppreisn. Allar persónur bókarinnar eru í einhverjum tengsl- um við þetta hús - ekki bara Tóti frændi og Fía, sem eru sjúklega nísk og komast í nýja blokk skammt frá, heldur og Hreggviður, sá drykkfelldi kúluvarpari, Hlynur hinn laghenti, meira að segja Sæ- unn kattakerling, sem brann inni. Einar Kárason kann vel með þennan efnivið að fara. Hann hefur kosið sér þá leið að líkja eftir Einar Kárason. endurminningum - þó með þeim hætti að sögumaður er horfinn á bak við einhvern forvitinn náunga sem heyrir margt og sér, þó ekki allt. Það er í þessum anda, að hann fer frjálslega með tímann, hneigir sig ekki fyrir almanakinu. Sagan hefst á fyrstu jólunum sem haldin eru í Gamla húsinu, smíðasaga þess kemur nokkru síðar, og það er ekki fyrr en eftir svosem hundrað síður að lesandi fréttir, hvernig stendur á þessum skrýtnu hjónum, Tomma og Línu - og þá að gefnu tilefni. Þessi sami stjórnandi sög- unnar getur svo átt það til að skjóta inn fréttum af sögufólkinu sem eru nær okkar en sögutíminn og gefur þar með til kynna að hann hefur ekki sagt skilið við hverfið þegar þessari bók lýkur. Lesandinn getur bersýnilega búist við framhaldi, þótt ekki sé það tekið fram sérstak- iega - og þar með verður að bíða með umfjöllun ýmissa atriða - við Jónas Kristjánsson þess — nema þá kannski að ^>ví er varðar vígaferli og garpskap. Og hvernig tekst þá Jónasi Krist- járnssyni, margfróðum handrita- meistara, að kveikja saman þessa þræði? Það er skemmst frá að segja, að niðurstaðan er einkar læsileg bók og oft „spennandi“ með þeim hætti sem gerist í sögu- legum skáldsögum: ekki þarf að kvarta yfir atburðaleysi. En í ein- stökum þáttum gengur verk hans misvel. Til að mynda er alloft brugðið upp myndum af hvunn- dagslífi og siðum víkingaaldar, sem bera sterkan keim fræða: það er sagt frá vinnu þræla, undirbún- ingi víkingaferða, veisluhöldum og skemmtun, húsagerð í víkingabæ og fleiru þesslegu. Þessir kaflar eru góðir fyrir sinn hatt en kannski dá-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.