Þjóðviljinn - 26.11.1983, Page 20

Þjóðviljinn - 26.11.1983, Page 20
Veistu... að Brattagata í Grjótaþorpi í Reykjavík var oft nefnd Rósustígur á fyrri öld, eftir skörungskerlingu sem bjó í húsi við götuna. að þar sem nú stendur húsið Vinaminni í Grjótaþorpi . (Mjóstræti 3) var bærinn Brekka. Þar bjó Sigríður Ein- arsdóttir, en um hana var frægur húsgangur ortur: „Sig- ríður, dóttir hjóna í Brekku- bæ, sú kann að gera skóna, ha-hæ, ha-hæ“, o.s.frv. að Óli skans sem kvæðið er um bjó í Skansinum, sem enn stendur í landi Bessastaða á Álftanesi. ÓIi var kotbóndi og kenndur við Skansinn. að Frakkastígur í Reykjavík er kenndur við Franska spítal- ann neðst við götuna, en það hús hýsir nú Tónmenntaskóla Reykjavíkur. að Eimskipafélag íslands er stofnað í Fríkirkjunni í Reykjavík. að Bókhlöðustígur í Reykjavík er nefndur eftir Bókhlöðu Menntaskólans í Reykjavík sem yfirleitt er kölluð íþaka, en enskur maður arfleiddi skólann að peningum til þess að húsið mætti rísa. að elsta bókasafnshús hér á landi er í Flatey á Breiðafirði. að gamli Glaumbær, sem á að hýsa Listasafn ríkisins í fram- tíðinni, var upphaflega íshús og var þá kallað Herðubreið. að Tónlistarskólinn í Reykjavík hóf göngu sína í Hljómskál- anum við Tjörnina árið 1932. að fyrsta myndastyttan eftir alís- lenskan mann', sem reist var í Reykjavík er stytta af Jónasi Hallgrímssyni sem nú er í Hljómskálagarðinum. Hún var sett upp árið 1907 og var þá á lóð svokallaðs Gunn- laugssenshúss. að tvö fræg skáld á síðustu öld bjuggu í Fjalakettinum við Aðalstræti, sem reyndar var kallað Hákonsenshús um það leyti. Þetta voru þeir fjandvin- irnir Sigurður Breiðfjörð og Jónas Hallgrímsson. bæjarrölt Nú er tæpur mánuður í vetrar- sólstöður og verður æ erfiðara að vakna á morgnana og æ betra að kúra undirheitri sænginni. Ég tek mér yfirleitt hálfan annan tíma til að vakna, læt útvarpið vekja mig upp úr sjö og er svo að smávakna og smásofna á víxl til klukkan hálf níu. Þá hef ég mig yfirleitt upp þó að ekki sé það einhlítt. Ég vakna allvel við fyrstu frétt- ir kl. 7.10ensteinsofnasvoíbæn- inni nema í henni sé pólitískur áróður sem kemur fyrir. Oftast verð ég svo strax var við þáttinn Á virkum degi en greini þó stund- 20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 26.-27. nóvember 1983 Nr. 399 sunnudagskrossgatan Morgunseremómur um ekki á milli drauma minna og hans. Um daginn heyrði ég t.d. konu spyrja þessarar spurningar í þættinum: „Hver er lágmarks- kurteisi húsmæðra sem bjóða gömlum konum í jólakaffi?" Ég veit ekki nema þetta hafi verið draumur. Mesta hættan er á ferðinni þeg- ar morgunleikfimi Jónínu Bene- diktsdóttur byrjar því að þá hættir mér við að seilast í útvarp- ið og skrúfa alveg niður í þvi og steinsofna sfðan. Jónína fer nefnilega dálítið í taugarnar á mér. Hún er svo ógeðslega hress og heilbrigð. Svo segir hún líka „hæg-vinst, hæg-vinst“ þegar hún á við „hægri-vinstri, hægri- vinstri". Þessi asi fer í taugarnar á mér. Jónína á stundum sök á því að ég kem of seint í vinnuna. Blessuð stelpan. En um kl. hálf níu tek ég sem sagt á öllu því þreki sem ég á til, velti sænginni ofan af mér og rís úrillur upp við dogg og sit stund- arkorn á rúmgaflinum áður en ég Iæt til skarar skríða og stend upp. Svo klæði ég mig hægt og bítandi, fer inn á baðherbergi, þvæ stír- urnar úr augnkrókunum og pissa. Þegar hér er komið sögu er skapið að komast í gott lag. Kon- an er löngu komin á fætur og búin að hita kaffi og setja súrmjólk, smjör og ost á eldhúsborðið. Það er góðra gjalda vert og ég get sest beint að morgunverði og dag- blöðum. Yfirleitt er þó stjúp- sonur minn einmitt með það blað, sem ég vildi fyrst Iíta í, og stundum ríf ég það af honum með frekju. Á þessum tíma dags verð- ur mér stundum á að gefa frá mér viss búkhljóð og yfirleitt kem ég því yfir á stjúpsoninn með meinfýsnu glotti og er þá óðar kominn í ljómandi skap. Hann tekur því sannarlega ekki með þegjandi þögninni og baunar ein- hverju illyrmislegu á mig í stað- inn. En allt er þetta þó góðlátlegt og notalegt. Klukkan fimm mínútur fyrir níu er allt tilbúið til brottfarar nema þá daga sem Jónína hefur látið mig sofá yfir mig. Og þá er haldið út í myrkrið og morg- unsvalann og sest inn í ískaldan bílinn. Nokkur tími fer í að koma honum í gang og svo er brunað í Síðumúlann og smám saman fer miðstöðin að gefa frá sér hita. f vinnunni þarf líka ákveðnar ser- emóníur til að komast í gang. Fyrst þarf að fá sér kaffi og í pípu og grandskoða morgunblöðin. Þegar loks er sest við ritvélina er farið að skíma vel af morgni. - Guðjón. / Z 5 v— r ; 7- <V 9 JO 3— V II 31 V W~ 3 6 ir~ J+ (s> T~ /r 12 s t> /(* 77~ /s 18 19 20 V- (? 3 r 10 // 3 T' £ S' (p + V 6~ 2 7 2/ 2/ t, s? 2 V- zz i? V V- 2 7 n V 23 W 7 zi s 7 K 9- iT (o 3 V 2 7 23 ?- s- 7- 23 J(? Z 12 R? H> 18 ZS /8 s? £> v 5 T~ é> V 2J 19 G 22 21 V 3 22 jT /5 7 V s? W 9* V / 7 /<Á d 26 22 9 jsr á> é> V 3 2 7 21 & 2 'Y' 2 2? T T /5' // r 7 23 21 <2 3 28 w 7 2! Zt W J9- 3 /</■ S? s s V /0 "m 5" V 30 5 6 V IO R/ 29 3 2 7- H u ~T~ aábdðeéfghiíjklninoóprstuuvxyýþæö Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá kven- mannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj- ans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 399“. Skila- frestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. 3 7 2/ ó~ 9 28 3/ 3 26 Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lá- eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér- hljóða og breiðum t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt. Verðlaunin Verðlaun fyrir krossgátu nr. 395 hlaut Ragnar Hansen, Háaleitisbraut 57, 105 Rvík. Þau eru bókin Mómó eftir M. Ende. Lausnarorðið var Völuspá. Verðlaunin að þessu sinni er Poppbókin eftir Jens Guð- mundsson en hún er nýkom- in út hjá Æskunni.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.