Þjóðviljinn - 08.12.1983, Blaðsíða 7
__________________________________________________________________________________Fimmtudagur 8. desember 1983 ÞJÖÐVILJÍNN r- SÍÐA 7
Jafntefli í 8. skák Smyslovs og Riblis í Lundúnum í gær:
Aðstaða Riblis hartnær vonlaus
■4
Ungverjanum Zoltan Ribli tókst
ekkert að komst áleiðis þó hann
hefði hvítt þegar 8. skák einvígis
hans við Vasily Smyslov var tefld í
Lundúnum í gær. Ribli náði að vísu
heldur betri stöðu út úr byrjuninni
svo sem vænta mátti, en Smyslov
tefldi þó af óaðfinnanlegu öryggi og
gaf hvergi höggstað á sér. Jafntefli
var samið um þegar Ribli hafði leikið
sínum 41. leik.
Með hverju jafnteflinu þokast Smysl-
ov nær sigri í einvíginu og jafnteflisúr-
slitin í gær hreinlega neyða Ribli til að
beina þeim skákum sem eftir eru inn á
skarpari leiðir. Hann verður að ná
a.m.k. þrem vinningum í þeim fjórum
síðustu skákum sem eftir eru til að eiga
vonir um áframhaldandi þátttöku í á-
skorendakeppninni. Eins og tafl-
mennska Smyslovs hefur verið hingað
til er ekki að vænta neinna stór-
breytinga þannig að í augnablikinu
bendir allt til þess aö þeir setjist að tafli
hinn tvítugi Garrí Kasparov og Vasily
Smyslov, sem er 42 árum eldri maður.
Næsti hluti áskorendakeppninnar fer
að öllum líkindum fram seinni part fe-
brúarmánaðar eða í byrjun mars.
8. einvígisskák:
Hvítt: Zoltan Ribli
Svart: Vasily Smyslov
1. d4 dS
2. C4c6
3. Rc3 Rf6
4. e3 g6
5. Rf3 Bg7
6. Bd3 0-0
7. 0-0 Bg4
8. h3 Bxf3
9. Dxf3 He8
10. Hd1 Dd6
(Smyslov stillti öðru vísi upp í 6. skák einvígis-
ins sem tefld var sl. föstudag. Þá lék hann -
e6 - Rd7 og síðar - e5. Drottningarleikurinn
þjónar því markmiði að koma Ribli á óvart.)
11. e4 dxe4
12. Bxe4
(Eftir 12. Rxe4 Dxd4! er ekki að sjá að hvítur
hafi bætur fyrir peðið.)
12. .. Rbd7
13. a3 Rxe4
14. Rxe4 De6
15. b3
(Svartur þarf litið að óttast eftir 15. d5 cxd5
16. cxd5 Da6 - ekki 16. - Df5 17. Dxf5 gxf5
18. Rg3! o.s.frv.)
15. .. b5
16. cxb5 cxb5
17. a4 Dd5!
(Það virðist dálítið glannalegt að stilla drottn-
ingunni á þennan reit vegna möguleikans -
Rf6+. En á meðan riddari svarts stendur á
d7 þarf ekki að óttast þann möguleika.)
18. axb5 Dxb5
Viðtalsbók
yið Sigurð
Sigurðsson
Bókaútgáfan Vaka hefur sent frá
sér viðtalsbók við Sigurð Sigurðs-
son, fyrrum íþróttafréttamann út-
varps og sjónvarps. Það er Vilhelm
G. Kristinsson sem skráð hefur
bókina, sem heitir Komiði sœl.
í bókinni Komiði sæl sem er tæp-
ar þrjú hundruð síður að stærð er
víða komið við á lífsferli Sigurðar
Sigurðssonar undanfarna áratugi.
Frásögnin er ekki síst opinská
varðandi það, sem gerðist á bakvið
tjöldin í ríkisfjölmiðlunum og kem-
ur þar að sögn Sigurðar fram
margt, sem ekki var hægt að segja í
hljóðnemann.
Sigurður talar einnig tæpitungu-
laust um íþróttahreyfinguna og
rifjar upp sitt af hverju úr keppnis-
ferðum íslenskra íþróttamanna til
útlanda á ýmis norræn og evrópsk
stórmót og einnig á olympíuleika.
Fjöldamargt annað ber á góma í
bókinni, sem er „morandi af góð-
Stuð-búðin
opnuð á ný
Frá því Stuð-búðin margfræga
fór á hausinn s.l. sumar hafa unn-
endur nýskapandi verið óhugg-
andi. Nú geta þeir tekið gleði sína á
ný. Harðasti kjarni áhugafólks um
framsækna poppmúsík hefur tekið
höndum saman og opnað Stuð-
19. Bf4 Rb6
20. Hac1 Had8
21. Be5!
(Skemmtileg tilraun til þess að flækja taflið.
En Smyslov er orðinn gamall og er búinn að
sjá margar gildrurnar um dagana. Hann fellur
því ekki í þá sem Ribli leggur fyrir hann með
þessum leik.)
21. .. Bxe5
22. Hc5 Db4
23. Hxe5 Rd7
(Hugmyndin hjá Ribli var að eiga sem svar
við 23. - Hxd4 hinn geysisterka leik 24.
Rf6+! og hvítur vinnur.)
24. Hd5 Kg7
(Ekki 24. - Rb6 25. Rg5! f6 26. Hxd8 Hxd8
27. Re6! og svartur er í miklum nauðum
staddur.)
25. h4 Rf6
(Einfaldar taflið. Nú blasir jafnteflið við.)
26. Rxf6exf6
27. Hxd8 Hxd8
28. h5! Dd6
(Auðvitað ekki 28. - Hxd4 29. h6+1 og svart-
ur er illa beygður.)
29. De3gxh5!
(Hvíta peðið getur valdið miklum óþægindum
komist það til h6.)
30. d5 Hd7 35. Df3 Hc4
31. Dh3 Kh6 36. b5 Hg4
32. b4 He7 37. De3 h4
33. Dc3 Hc7 38. Hd4 h5
34. De3+ Kg7
(Ef eitthvað er þá hefur heldur hallað á Ribli,
sem sýnir hvílik yfirburðatök Smyslov hefur.
En auðvitað er ávinningur svarts óverulegur
enda stutt í að keppendur slíðri sverðin.)
39. Hxg4+ hxg4
40. Dd4 g3
41. Dxh4
- Ribli bauð jafntefli um leið og hann lék
þessum leik. Framhaldið gæti orðið 41. -
gxf2+ 42. Dxf2 Dxd5 43. Dxa7 Dxb5 o.s.frv.
Staðan í einvíginu: .
Vasily Smyslov 5 - Zoltan Ribli 3. Næsta
skák verður tefld á föstudaginn.
um sögum," að því er segir á bókar-
kápu. Er þar ætíð getið kunningja,
samstarfs- og samferðamanna Sig-
urðar gegnum tíðina, en alls koma
á fjórða hundrað nafngreindir
menn við sögu í bókinni. Myndir í
bókinni skipta tugum og hafa fæst-
ar komið áður fyrir almennings-
sjónir.
Þetta er fyrsta bók Vilhelms G.
Kristinssonar, en hann starfaði
lengi við blaða- og fréttamennsku,
og vann meðal annars með Sigurði
Sigurðssyni í rúman áratug á frétta-
stofu útvarpsins.
búðina á ný. Það er takmark þessa
hóps að reka nýju Stuð-búðina á
sama grundvelli og gömlu Stuð-
búðina: þ.e. að Stuð-búðin sé vett-
vangur nýskapandi popptónlistar.
f Stuð-búðinni geta menn nálgast
sjaldgæfar plötur, plaköt, skyrtu-
boli og fleiri sem tilheyrir fram-
sæknu rokki.
Nýja Stuð-búðin er á sama stað
og sú gamla var, á Laugavegi 20.
Síminn er 27670.
(F rét tatilky nning).
S A.M VINNUTRYG GIN G AR
BRJÓTA BLAÐ í TRYGGINGAÞJÓNUSTU
að ersjónarmið okkarhjá Samvinnutryggingum að seintverði nóg
að gert í trygginga- og öryggismálum fjölskyldu og heimilis. Til þess
að auðvelda fólki tryggingainnkaupin opnum við afgreiðslu í nokkra
daga í desember í stórmarkaðnum Miklagarði. Hún er í beinu tölvu-
sambandi við aðalskrifstofu okkar í Ármúlanum.
Þjónusta Samvinnutrygginga Miklagarði:
1 Starfsfólk okkar þar svarar öllum fyrirspurnum þínum um
tryggingamál án nokkurra skuldbindinga af þinni hálfu.
Ef þú óskar eftir er gengið frá tryggingu strax, beint gegnum
“ tölvukerfi okkar.
Dæmi um verð á Heimilistryggingu:
Andvirði 400.000.- Steinhús, kr. 1.524,- til eins árs.
Andvirði 400.000,- Timburhús, kr. 1.994,- til eins árs.
^ Upplýsingabæklingar um fjölmarga tryggingavalkosti Sam-
vinnutrygginga liggja frammi.
Núverandi viðskiptavinir Samvinnutrygginga geta m.a. fengið yfirlit
yfir stöðu sína.
Opnunartími fyrst um sinn:
fimmtudaginn 8/12 - opið frá kl. 10-20
föstudaginn 9/12 - opið frá kl. 14-22
laugardaginn 10/12 - opið frá kl. 11-18
NÚ GETURÐU TRYGGT ÖRYGGI ÞITT, FJÖLSKYLDUNNAR
OG HEIMILISINS TIL ALLS ÁRSINS
MEÐ EINNI FERÐ í MIKLAGARÐ.