Þjóðviljinn - 08.12.1983, Page 16
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mónudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt aö ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Vilhjálmur Egils-
son hagfrœðingur
Vinnuveitenda-
sambandsins:
Fella
gengið á
morgun
- Ég myndi telja þörf fyrir
gengisfellingu strax á morg-
unm sagði Vilhjálmur Egils-
son hagfræðingur Vinnu-
veitendasambandsins I við-
tali við Þjóðviljann.
- Ýmislegt af því sem ég benti á
sl. sumar hefur komið fram í geng-
isþróuninni. Ég hef alltaf talið að
gengislækkunin hafi verið of lítil í
sumar. Hins vegar hefur spá Pjóð-
hagsstofnunar að miklu leyti ræst.
Þannig hafa togararnir ekki verið
seldir á uppboði eða stöðvast með
öðrum hætti. Spurningin er sú
hvort grundvöllur sé fyrir hendi um
fast gengi eða ekki. Ef grundvöllu-
rinn er ekki fyrir hendi springur
þetta fyrr eða síðar, sagði Vil-
hjálmur Egilsson hagfræðingur.
Vilhjálmur sagði ennfremur að
tölur Seðlabanka um breytingar á
raungengi íslensku krónunnar
(87.8 stig á fyrsta ársfjórðungi,
93.2 stig á fjórða ársfjórðungi)
segðu ekki alla söguna. Éessi mæ-
ling væri vísbending og ekkert
meira. Sú mæling sem segði mest
um þessa gengisþróun væri fram-
leiðslukostnaðarvísitala, en hún
væri ekki mæld hér á landi.
-óg
Sjá 3
Orkukostirnir á
Reykjanesi gefa
okkur möguleika
umfram aðra
Þannig lítur Sandhverfan út, en hún er sjaldgæfur fiskur við íslands-
strendur.
Sandhverfueldi
á Suðumesjum
Fiskifélag íslands er nú að
kanna móguleika á eldi
Sandhverfu hérlendis og
horfa menn til sjóefnavinnsl-
unnar á Reykjanesi og
þeirrar orku sem par er að fa
ur borholum sem ákjósan-
legan stað fyrir eldisstöð.
Sandhverfan er mjög dýr
fiskur og eftirsóttur.
„Það er verið að skoða þessa
möguleika, sagði Ingimar Jóhanns-
son fiskifræðingur hjá Fiskifé-
laginu í samtali við Þjóðviljann.
Ingimar sagði að frumeldi
Sandhverfunnar væri mjög flókið
og erfitt, en nú nýlega hefði náðst
góður árangur í þeim efnum í fisk-
eldisstöð sem Norðmenn reka í
„Erum að skoða
þennan mögu-
leika“, segir Ingi-
mar Jóhannsson
hjá Fiskifélaginu
Skotlandi og menn væru nú
bjartsýnni en áður á eldi Sand-
hverfunnar þótt enn væru ýmis
vandamál óleyst.
„Þetta er geysilega dýr fiskur, í
sama verðflokki og laxinn og góður
markaður fyrir hann í Evrópu. í
Bretlandi er notast við kælivatn frá
kjarnorkuveri við eldið, en fiskur-
inn þarf að alast upp í 14 gráðu
stiga heitum sjó en það gefur okkur
hérlendis einmitt möguleika um-
fram aðrar nágrannaþjóðir að
rækta þennan fisk vegna þeirra
orkukosta sem vi búum við eins og
á Reykjanesi“, sagði Ingintar.
Sandhverfa getur orðið 12 kg að
þyngd. Fiskurinn hefur lítið veiðst
hér við land en aðalheimkynni
hans eru í austanverðu Atlanshafi
frá vesturströnd Noregs, Eystras-
alti , við Bretlandseyjar og allt inn í
Svartahaf. Sandhverfan er feitur
fiskur og bragðgóður og ekki síst
verðmætur.
-Ig-
Skeiðarár-
hlaup
hófst í gær
Skeiðarárhlaup hófst í gærmorg-
un og er vatnsmagnið í ánni sem að
sumarlagi. Vatnið er mjög dökkt og
leggur af því mikinn fnyk. Hlaupið
fer hægt af stað og óx ekki teljandi í
gær. Kunnugir telja að ráða megi
af upphafinu að hlaupið geti staðið
í marga daga, jafnvel vikur.
Skeiðarárhiaup eiga upptök sín í
Grímsvötnum eða öðrum jarðhita-
svæðum undir norðanverðum
Vatnajökli.
— ekh
Alþýöubandalagið
Miðstjórnar-
fundur
Miðstjórnarfundur hefur
verið boðaður í Alþýðubanda-
laginu á laugardaginn 10. des.
kl. 14 að Hverfisgötu 105, og er
þetta fyrsti fundur nýkjörinnar
miðstjórnar. Rætt verður um
stöðuna í efnahags- og kjara-
málum, verkefni er landsfund-
ur fól miðstjórn og kosið verður
í framkvæmdastjórn.
Símgjöld
út lækka
Talsímagjöld til útlanda lækka
um næstu helgi og sem dæmi má
nefna að símagjöld til Danmerkur,
Færeyja, Noregs og Svíþjóðar
lækka um 21%, Finnlands og Hol-
lands um 23%, Bretlands um 17%,
Þýskalands, Frakklands, Belgíu,
Luxemborgar, Spánar og Sviss um
19% og til Austurríkis, Grikk-
lands, Ítalíu og Portúgals lækka um
20%. Símagjöld til Bandaríkjanna
og Kanada lækka aðeins um 10%.
Ungir Framsóknarmenn gefa út tímarit
Alusuisse og ráðu-
neytið styrkja útgáfuna
Heilsíðu litaauglýsing frá
sjávarútvegsráðuneytinu eru
meðal auglýsinga í nýút-
komnu hefti af .„Sýn“, sem
Samband ungra Framsóknar-
manna gefur út. Formaður
sambandsins er Finnur Ing-
ólfsson aðstoðarmaður sjáv-
arútvegsráðherra. Ritstjóri
tímaritsins er Heiga Jónsdótt-
ir aðstoðarmaður forsætis-
ráðherra. Þá vekur og athygli
að Alusuisse á íslandi hefur
styrkt útgáfu tímaritsins.
Fjöldi kaupfélaga hafa og
styrkt útgáfu tímaritsins fyrir
utan Tomma hamborgara, SÍS
fyrirtæki, kjötpokaverksmiðjuna
og Fasteignasöiuna í Keflavík.
Sérstaka athygli vekur einnig að
Hraðfrystihús Patreksfjarðar
sem verið hefur í miklum
fjárhagskröggum að undanförnu
og er á. góðri leið með að
Eftirfarandi
aðilar hafa
styrkt útgáfu
blaðsins:
I Iraðfrystiluis
Patreksfjarðar
Patreksfirði
☆
Vírnet hf.
Borgarbraut
Borgarnesi
☆
Islenska
Álfélagið
Straumsvík
innlimast í hermangsféð í gegn-
um Reginn og Olíufélagið, hefur
einnig átt aflögu fyrir unga Fram-
sóknarmenn.
Framsóknarflokkurinn undir
forystu Eysteins Jónssonar var
skeleggur í andstöðu sinni við
Alusuisse-hringinn og erlenda
stóriðju, utan þess að Steingrím-
ur Hermannson þáverandi samn-
inganefndarmaður með Nordal
stóð að Aiusuisse-samningnum
1965. Á síðasta þingi gerðist það
svo, að Halldór Ásgrímsson stóð
að áliti með varaformanni Sjálf-
stæðisflokksins, Eggert Haukdal
og fleirum af sama toga um að
gera samninga við Alusuisse í
stað þeirrar kröfugerðar sem þá
var til orðin að undirlagi Alþýðu-
bandalagsins í ríkisstjórn. Hall-
dór Ásgrímsson er nú ráðherra
þess ráðuneytis sem auglýsir í
„þjóðmálaritinu Sýn“ ásamt Al-
usuisse.
-óg
;í hörðustu
Vel skípulögð
úi-valsgæði sjávaraíurða okkar tryggir hátt
verö sem er hagsmunamáí allrar
þjóðarinnar.
um gæði Islenskra
og starfefólk í
að bættum
Cott fiskvínnslunni kleift að fram
leíða úrvals ti5íafurðir, sem verða seldará
hæsta fóanlega verði viðsvegar um heim.
Sjávarútvegsráðuneytið
Kynnirtgarstörf fyrir bættum fiskgæðum