Þjóðviljinn - 14.12.1983, Page 3
SIGGE STARK
Engir karlmenn,
takk
Engir karlmenn,
takk
Sigge Stark
í sveitaþorpinu var hlegið dátt að
þeim, furðufuglunum sex, sem
höfðu tekið Steinsvatnið á leigu.
Þær hugðust reka þar búskap, án
aðstoðar hins sterka kyns, - ekki
einn einasti karlmaður átti að stíga
fæti inn fyrir hliðið. - En Karlhat-
araklúbburinn fékk fljótlega á-
stæðu til að sjá eftir þessari ákvörð-
un. 148 bls.
Verð kr. 494.00
Skuggsjá.
ELSE-MARIH /VOIIR
SYSTIR MSARÍA
Systir María
Else-Marie Hohr
Nunnan unga var hin eina, sem
möguleika hafði á að bjarga flug-
manninum særða, sem svo óvænt
hafnaði í vörslu systranna. En slíkt
björgunarstarf var lífshættulegt.
Yfir þeim, sem veitti óvinunum að-
stoð, vofði dauðadómur, - og flug-
maðurinn ungi var úr óvinahern-
um. Æsispennandi og fögur ástar-
saga. 184 bls.
Verð kr. 494.00
Skuggsjá.
HAMSKIFTIN
Hamskiptín
Franz Kafka
í ár er þess minnst að öld er liðin
síðan Franz Kafka fæddist, einn
hinna miklu brautryðjenda nú-
tímalegs skáldskapar í lausu máli.
Eftir hann birtist fremur fátt á
prenti meðan hann var uppi. Lang-
lengsta sagan sem hann lét frá sér
fara og jafnframt eitt frægasta verk
hans fyrr og síðar er Hamskiptin
sem nú kemur út í endurskoðaðri
þýðingu Hannesar Péturssonar
skálds. Hamskiptin er sérstæð og
áhrifamikil saga, reyndar um
margt ógnþrungin. Hún er fléttuð
ýmiss konar táknum og tilvísunum
sem eiga sér undirrætur í lífi skálds-
ins en öðlast víddir langt út fyrir
það eins og er aðalsmerki sannrar
ritlistar.
Verð kr. 494.00.
Iðunn.
AUEJO CARPENTIER
Ríki af
þessum heimi
Alejo Carpentier
Alejo Carpentier er mesti rithöf-
undur Kúbu og einn fremsti höf-|
undur Suður-Ameríku. Ríki af;
þcssum heimi er byggt á sönnum
atburðum, þrælauppreisn á Haíti á
átjándu öld. Hún er þó ekki sögu- j
leg skáldsaga í venjulegum skiln-;
ingi, öllu heldur áleitinn sannleikur |
um líf og andlegt ástand þjóða. I
Guðbergur Bergsson þýddi bókina I
og ritar ýtarlegan eftirmála um
höfundinn og baksvið verksins.
Ríki af þessum heimi veitir ein-
stæða innsýn í fjarlægan menning-!
arheim og gerist á mörkum raun- j
veru og goðsagnar, þrungin ofsa og j
átökum.
Verð kr. 548.35.
Iðunn. i
AFÞESSUM
Maðurinn sem
féll til jarðar
Walter Tevis
Maðurinn sem féll til jarðar var
raunar enginn maður. Hann kom
utan úr geimnum. En hann leit út
eins og maður. Og hæfileikar hans
gerðu honum ótal vegi færa... Hér
er um að ræða spennandi vísinda-
skáldsögu og skemmtilega aflestr-
ar. En hún er líka umhugsunarefni.
Fyrir nokkrum árum var sýnd hér á
landi kvikmynd sem gerð var eftir
sögunni með David Bowie í aðal-
hlutverki.
wi.wiii.'rai.fvii
KIWVU T* Mt'M A i ISTHA »4"< >X>
HI.WKSIAWH»."»HA TT
zrrut .«.*« iiótvno c*r> ntAixmtm-H
AfNÁÍS rVIN
SMA-
FUQLAR
GLÉDÍSÚOUR
Smáfuglar
Anais Hin
Smáfuglar - safaríkar gleðisögur
eftir Anais Nin, höfund Unaðsreits
sem út kom í fyrra. Hér er kyn-
nautn kvenna og ýmsum tilbrigð-
um kynlífsreynslunnar lýst af
mikilli list og hispursleysi. Anais
Nin er viðurkennd sem einn frem-
sti og listfengnasti höfundur erótí-
skra sagna á öldinni.
Smáfuglarnir flögra um leyndustu
afkima í húsi ástamautnarinnar og
sögumar em bomar uppi af tilfinn-
ingahita sem lyftir þeim hátt yfir
aðrar erótískar sögur.
Verðkr. 548.35 ib. 428.55 kilja.
Iðunn.
Fanginn í
ijöllunum
AJ.Cronm
Fanginn í
fjöiiunum
eftirA.J. Cronin.
Margir þekkja bækur þessa fræga
rithöfundar, svo sem Borgarvirki
og Lykla himnaríkisins. Hér er á
ferðinni skemmtileg saga eftir
þennan vinsæla höfund. 153 bls.
Verðkr. 494.-
j Sögusafn heimilanna
Æska og ástir
Endurútgáfa á einni afhinum vin-
sælu bókum norsku skáldkon-
unnar Margit Ravn.
Þetta er 24. bókin eftir Margit
Ravn, en sögur þessar virðast í
engu hafa misst vinsældir sínar frá
því þær komu fyrst út hér á landi
fyrir um 30 ámm. Bókin er 176 bls.
Verð kr. 494.00.
Verð kr. 395.-
Iðunn.
Hildur
Valdimar
munkur
eftir Sylvanus Cobb.
Þetta er bókin sem amma og afi
lásu þegar þau vom ung, og myndu
eflaust njóta að lesa að nýju. Ó-
gleymanleg og ódauðleg í endur-
minningunni. 156 bls.
Verð kr. 494.-
Sögusafn heimilanna
ELSE-MARIE IMOHR
RAUOU ASTARSOGURNf', SKUGGSJÁ
EINMANA
Einmana
Else-Marie Hohr
Hún á von á barni með unga mann-
inum, sem hún elskar, og hún er
yfir sig hamingjusöm. En hún hafði
ekki minnstu hugmynd um, að hin-
ar sérstöku aðstæður í sambandi
við þungunina hafa stofnað lífi
bæði hennar sjálfrar og barnsins í
hættu. - Hugljúf og spennandi ást-
arsaga. 192 bls.
Verð kr. 494.00
agatha christie
^gHmsswr
Morð er
leikur einn
Fyrsta bindið í flokki bóka eftir'
Agöthu Christie,
einn víðlesnasta höfundinn í sinni
grein. Flestar bækur Agöthu em
orðnar sígildar og svo er með
þessa. Óvæntur endir kemur les-
andanum í opna skjöldu. Þýðandi
Magnús Rafnsson. Bókin er 207
bls.
Verð kr. 385.-
Hagall
Bókablað Þjóðviljans — SÍÐÁ 3
Krókur á
móti bragði
eftir Agöthu Christie,
þekktasta höfund sakamálasagna
fyrr og síðar. Það sofnar enginn yfir
þessari bók. Hér em birtar 10 smá-
sögur sem sumar voru sýndar í
þáttum sjónvarpsins sl. vetur. 164
bls.
Verð kr. 555.75
Ægisútgáfan - Bókhlaðan
Á5T i 5K<JQQfl ÓTT4N5
Ást í
skugga óttans
eftirhina sívinsælu Anne Mather.
Spennandi saga um ástir og örlög,
þar sem dularfullir atburðir spinna
örlagaþráð ungrar konu, sem er
gift eldri manni. Þýðandi Ingibjörg
Jónsdóttir.
Verð kr. 494.-
Prentver.
MONSJÖR
KIKOrfe
Monsjör
Kíkóti
Skáldsaga eftir Graham Greene,
í þýðingu Áslaugar Ragnars. Hér
segir frá Kíkóta nútímans, sem er
velviljaður og hrekklaus prestur,
og Sansjó Pansa, sem er afsettur
bæjarstjóri og sanntrúaður komm-
únisti. Þeir félagar takast á hendur
ferðalag um Spán nútímans og
hendir margt skemmtilegt og fynd-
ið í þeirri för. 225 bls.
Verð kr. 648.50.
Almenna bókafélagið.