Þjóðviljinn - 14.12.1983, Page 5
Bókablað Þjóðviljans - SÍÐA 5
Einar Már Guómundsson
1ÆNGJASLNTUR
IMKREWUM
Vængjasláttur
í þakrennum
Skáldsaga eftir Einar Má
Guðmundsson.
Einn af hugkvæmustu og
skemmtilegustu höfundum ungu
kynslóðarinnar. Bókin lýsir
reykvískum unglingum, lífi þeirra
og tiltektum. Þetta er fersk saga,
kímin og bráðskemmtileg. 191 bls.
Verð kr. 648.50.
Almenna bókafélagið.
Vík milli vina
Skáldsaga Ólafs Hauks Símonar-
sonar segir frá hópi fólks sem er
komið á fertugsaldur en hefur
haldið saman síðan á námsárunum.
Rithöfundurinn Pétur raðar saman
atvikum úr lífi þeirra í fortíð og
nútíð - en um framtíðina er allt
óvíst. Harkalegt uppgjör við ’68
kynslóðina. 210 bls.
Verð kr. 648.
Mál og menning.
Inga
Birgitta Hrönn Halldórsdóttir
Opinská lífsreynslusaga ungrar
stúlku. Sögusviðið er sjávarpláss á
Suðurlandi, og atburðarásin er
hröð og spennandi. Lýst er daglegu
lífi Ingu, ástum hennar og þrá, von-
brigðum og sorgum.
Þetta er fyrsta bók ungrar konu, og
lofar bókin góðu um framhaldið.
Verð 593 kr.
Skjaldborg.
Þórarinn Eldjárn
Kyrr kjör
Þórarinn Eldjárn,
Kyrr kjör, ný skáldsaga Þórarins
Eldjárns mun ekki valda hinum
stóra lesendahóp hans vonbrigð-
um. Saga Guðmundar Bergþórs-
sonar sem hvergi er frjáls nema í
draumum sínum og skáldskap. í
veruleikanum liggur hann mátt-
vana og bjargarlaus. En í eymdinni
lifir draumurinn um frelsið og
tekur á sig margvíslegar myndir í
huga þess sem ekki unir kyrrum
kjörum. Hér togast á leiftrandi fjör
og djúp alvara.
„Þórarinn Eldjárn hefur með
Kyrrum kjörum sameinað skáld-
skap og þjóðsögn á heillavænlegan
hátt, stefnt okkur til fundar við
fortíðina í því skyni að skemmta
okkur og líka til þess að við megum
sjá samtímann í skýrara ljósi“.
Jóhann Hjálmarsson í ritdómi.
Verð kr. 648.40.
Iðunn.
Þar sem
Djöflaeyjan rís
Saga Einars Kárasonar gerist í
braggahverfi í Reykjavík einkum á
árunum upp úr 1950. Frásögnin er
breið og persónur margar en í
sögusmiðju eru strákarnir í hverf-
inu, fyrst útsmogin hrekkjusvín,
svo svalir, briljantíngreiddir gæjar.
208 bls.
Verð kr. 648.
Mál og menning.
FORLAGA-
CT JCU M
* MmJnL*
W/Utr** Ijtwmil UMi\
Forlagaflækja
ísól Karlsdóttir.
„Slys varð þegar vélin var að hefja
sig til flugs. Af einhverju óskiljan-
legum ástæðum, hlekktist henni á í
flugtaki og húnkom niður á annan
vænginn. Það orsakaði sprengingu
í bensíni og á fáum augnablikum
varð vélin alelda". Þannig segir á
fyrstu síðu bókarinnar. Síðan
spinna forlögin sinn flókna vef.
Ótrúlega spennandi skáldsaga,
ungs höfundar er nú sendir frá sér
sína fyrstu bók.
Verð 593 kr.
Skjaldborg.
Drekar
og smáfuglar
Þriðja bindið í sagnabálki Ólafs Jó-
hanns Sigurðssonar, framhald af
Gangvirkinu og Seiði og hélogum.
Einn örlagaríkasti tími í þjóðarsög-
unni er hér magnaður fram í dags-
birtuna í andstæðum fortíðar og
nútíðar, þjóðhollustu og þjóð-
svika. 559 bls.
Verð kr. 883.
Mál og menning.
Týnda brúðurin
Aðalheiður Karlsdóttir
frá Garði.
Brúðurin mætir ekki til kirkjunnar
á brúðkaupsdaginn. Hennar er
leitað án árangurs. Við þennan at-
burð tekur líf brúðgumans miklum
breytingum, sem leiða hann meðal
annars í ferðalag, þar sem margt
óvænt hendir, og margar persónur
koma fram. Margt undarlegt gerist
er dregur að sögulokum.
Verð 593 kr.
Skjaldborg.
Sagan um Önnu
Stefanía Þorgrímsdóttir
Sagan um önnu litlu í Selsmýri í|
Selásshreppi, fallegustu stúlkuna í
Grundarskóla sem fór út í heiminn
með próf upp á níufimm, gagn-
fræðingur frá Ási upp á sexsex,
saltaði sfld á Vík, afgreiddi í sjoppu
á Akureyri, svo hann Helgi á
Fremra-Hóli féll í menntaskól-
anum, giftist henni, fór til Reykja-
víkur og varð rafvirki. En sólin skín
á Fremra-Hóli og taðan angar, svo
þau fluttu heim og fóru næstum
sveitavillt því Selásshreppur hafði
fengið sér andlitslyftingu.
Sagan um Önnu er glæsileg frum-
raun ungs höfundar. Hún lýsir ið-
andi mannlífi á íslandi nútímans og
yfir frásögninni vakir draumur
ungrar stúlku um að finna til-
ganginn með lífi sínu.
Verð kr. 548.35 lb./385.30 kllja.
Iðunn.
Beðið eftir strætó
Páll Páisson
Beðið eftir strætó, ný saga eftir Pál
Pálsson, höfund Hallærisplansins
sem vakti mikla athygli í fyrra.
Sögusviðið er Hlemmur þar sem
börn og unglingar ráfa um í svikul-
um sæluheimi vímugjafa. Raun-
sönn og átakanleg mynd af eymd
og tilgangslausu lífi utangarðsung-
linga í Reykjavík. í fjörlegri og
snarpri frásögn vekur höfundur
máls á staðreyndum sem ekki er
hægt að loka augum og eyrum
fyrir.
Beðið eftir strætó - saga um ungt
nútímafólk, fyrir ungt nútímafólk,
- hörku stöff.
Verð kr. 398.00.
Iðunn.
STEINUNN SIGURíMKD&rriR
IÐUNN
Skáldsögur
Stelnunn Sigurðardóttlr
Skáldsögur, nýtt smásagnasafn
Steinunnar Sigurðardóttur, bera
sannarlega nafn með rentu. Senni-
legt eða jafnvel óhugsandi er að
þær gætu gerst í raunveruleikan-
um. Tökum sem dæmi: Hvenær
hefur skáti lent í öðru eins og
Röddum úr hrauni? Og hvað um
performansa reykvískrar húsmóð-
ur á Þingvöllum? - Hámarki nær
þó skrumskæling veruleikans í
sagnaklasanum Fjölskyldusögur.
Arnviður Sen og Ártemis Flygen-
ring eru lifandi dæmi um það. Slíkt
fólk er vonandi ekki til.
En Steinunn kann þá list að láta
okkur gleypa við sögunum - því
það gerum við.
Verðkr. 587.85ib. 444.60 kilja.
Iðunn
Barnabœkur
myndum eftir Ragnhildi Ragnars-
dóttur. Ása vill ekki sofa í rúminu
sínu, það er miklu betra að sofa
milli pabba og mömmu. En þá
kemur Pési og vill fá að sofa í rúm-
inu...
Verðkr. 159.
Mál og menning.
Lena-Sól
Skemmtileg saga fyrir byrjendur í
lestri eftir Sigríði Eyþórsdóttur
með fjölda fallegra mynda eftir
Önnu Cynthiu Leplar. Hér segir
frá fyrsta skóladegi Lenu-Sólar
sem varð allt öðruvísi en hún hafði
búist við. Prentuð með góðu letri.
40 bls.
Verð kr. 198.
Mál og menning.
Litla rauða rúmlð
Barnasaga handa yngstu hlustend-
um eftir Áslaugu Ólafsdóttur með
Dagur barnanna
í Olátagarði
Myndabók eftir Astrid Lindgren
og Ilon Wikland um daginn þegar
öll börnin ætluðu að skemmta
henni Stínu, litlu systur Óla. En
það reyndist ekki eins auðvelt og
þau héldu. Þuríður Baxter þýddi.
Verð kr. 198.
Mál og menning.