Þjóðviljinn - 14.12.1983, Síða 9
Eysteinn
í eldlínu
stjornmálanna
í þessari forvitnilegu bók Vil- j
hjálms Hjálmarssonar um ævi og
störf Eysteins Jónssonar fyrrum
ráðherra er vitnað í ýmsar heimild-
ir, sem ekki hafa verið gerðar opin-
berar fyrr. t>á varpa svör Eysteins |
við spurningum Vilhjálms einnig
ljósi á sitt af hverju sem gerðist í
stjórnmálunum á árum áður. Tugir
ljósmynda.
Verð kr. 986.-
Vaka.
Jói Konn
og söngvinir hans
Gísli Sigurgeirsson skráði.
Minningar Jóhanns Konráðssonar
söngvara ásamt viðtölum við nán-
ustu söngvini hans, og ívafi úr sögu
söngsins á Akureyri ummiðja öldi-
na. Jói Konn var dæmigerður al-
þýðusöngvari, sem varð vinsæll af
þeim hæfileikum er hann fekk í
vöggugjöf. Bókin er mikill fengur í
sögusafn um Akureyringa.
Verð kr. 741.-
Skjaldborg.
Minningar
og Sko ðanir
Einar Jónsson
í Minningum rekur listamaðurinn
æviferil sinn frá bernsku og þar til
hann aldraður er farinn að huga að
leiðarlokum. Hann greinir frá dvöl
sinni í Kaupmannahöfn og öðrum
heimsborgum, kynnum af fjölda
fólks og erfiðri baráttu fyrstu árin á
listabrautinni. í Skoðunum fjallar
hann um list- og trúarviðbrögð sín
og eru þær merkileg heimild um
hugmyndaheim hans. Ríkulega
myndskreytt. 356 bls.
Verð kr. 988.00
Skuggsjá.
Eitt rótslitið blóm
Valgarður Stefánsson
Saga Skúla Skúlasonar fyrsta ís-
lendingsins sem hlaut myndlistar-
styrk frá Alþingi árið 1893. Hann
dvaldi í Höfn í sex ár, og var þar
samtíða Ásgrími Jónssyni, Þórarni
t>. Porlákssyni og Einari Jónssyni.
Verk Skúla er þó ekki að finna í
listasöfnum, og hljótt hefur verið
um nafn hans.
Hér er skemmtileg lýsing tíðarand-
ans á gömlu Akureyri, er þar voru
ölkrár og menn heilsuðust uppá
dönsku, en blessuð bömin fengu
„bolsíur" á sunnudögum.
Verð 679 kr.
Skjaldborg.
Saga stríðs
og starfa
Æviminningar
Hallgríms Jónssonar
frá Dynjanda.
Erlingur Davíðsson
bjó til prentunar og ritar formála.
Hér er sögð saga þjóðfélagsb-
reytinganna eftir stríð, er þéttbýlið
efldist en strjálli og afskekktari
byggðir lögðust í eyði. Úr Grunna-
víkurhreppi fluttust allir á braut.
Hallgrímur á Dynjanda ogfleiri at-
orkumenn spyrntu við fótum, en
börðust við ofurefli, og stigu síðast-
ir frá borði. Það hefur verið mikil
þrekraun að standa yfir moldum
sveitar sinnar, en Hallgrímur er
ekki kalinn á hjarta, þvert á móti er
hann mildur í dómum sínum, og
frásögnin hógvær og glettin.
Verð kr. 678.
Skjaldborg.
Bókablað Þjóðviljans — SÍÐA 9
Kraftaverk
einnar kynslóðar
í annarri endurminningabók Ein-
ars Olgeirssonar rekur hann bar-
áttu verkalýðs á íslandi fyrir stofn-
•un samtaka til að bæta kjör sín.
Sagt frá fjölda fólks á miklum um-
brotatímum frá sjónarhóli manns
sem alla tíð stóð í fylkingarbrjósti.
Jón Guðnason skráði. 400 bls.
Verð kr. 883.
Mál og menning.
Jóhann 0
Briem ~
Jóhann Briem
Bókin um Jóhann Briem listmálara
og verk hans sem Halldór B. Run-
ólfsson listfræðingur hefur skrifað,
er þriðja bókin í ritröð um íslenska
myndlist. í bókinni eru eftirprent-
anir fimmtiu og fjögurra málverka
og vatnslitamynda auk pennat-
eikninga og eru myndirnar frá
fimmtíu ára tímabili. Vönduð bók
um einn af okkar bestu og sérstæð-
ustu málurum.
Verð kr. 1.235.-. Kr. 9887701 fé-
lagsmanna í Hinu íslenska bók-
menntafélagi.
Listasafn ASÍ og Bókaútgáfan
Lögberg gefa út.
Æviskrár samtíð-
armanna l-R
Torfi Jónsson
Þetta annað bindi Æviskránna
geymir æviskrár u.þ.b. 2000
manna, sem bera nöfn er byrja á
stöfunum I - R. Hér er um að ræða
karla og konur, er gegnt hafa eða
gegna meiriháttar opinberum
störfum í þágu ríkis, bæjar- og
sveitarfélaga, athafnamanna, for-
stöðumanna, fyrirtækja, forvígis-
manna í félagsmálum og menning-
arstarfsemi, listamanna o.s.frv.
613 bls.
Verð kr. 944.80.
Skuggsjá.
Ritsöfn og bókaflokkar
Rað viðillumöndum
Ráð við
illum öndum
í þessu sjöunda bindi í ritsafni Wil-
liams Heinesen í þýðingu Þorgeirs
Þorgeirssonar er fyrst stutt skáld-
saga og síðan ljóðrænar endur-
minningar og smásögur, allar frá
Færeyjum nema ein sem gerist í
Frakklandi. Zacharias Heinesen
myndskreytti. 233 bls.
Verð kr. 648.
Mál og menning.
SKUGGSJA
Ritsafn II
Þorgils gjallandi
í þessu öðru bindi rita þingeyska
bóndans og skáldsins eru tvær
lengstu sögur hans, „Ofan úr sveit-
um“ og „Upp við fossa“. Þessar
sögur vöktu úlfaþyt, þegar þær
fyrst komu út, mönnum ofbauð af-
staða höfundarins til kirkju og trú-
mála og ekki síður hversu berorður
hann var um holdlegar ástir. 237
bls.
Verð kr. 759.50.
Skuggsjá.
Heildarútgáfa
ritverka
ÓOYÍf
<3tmnsscrL>
)\Vd
^ ^Favraskcri
O ö
AD NORDAN1
Svaniö'fpörjr Kvst.<» Kvxftjur N\ Kvaoi
Helgafell hefur nú að nýju útgáfu á
ritsafni Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi, en það kom síðast út í
heild árið 1965. Ritsafnið verður í
^níu bindum og eru sjö þegar komin
;út. Hin, tvö bindi með leikritum,
eru væntanleg innan skamms. Þeg-
ar eru komin út:
Sólon Islandus I-II. Skáldsagan
Sólon Islandus segir frá uppvexti
og ævi hagleiksmannsins, sérvitr-
ingsins og heimspekingsins Sölva
Helgasonar, sem uppi var á ofan-
verðri öldinni sem leið, og lýsir lífs-
baráttu fólks við kröpp kjör í erfiðu
árferði. 1. bindi er 263 bls.. 2. bindi
248 bls. Verð kr. 1.679.60.
Ljóðasafnið Að norðan I-IV. í
þessum fjórum bindum eru allar tíu
ljóðabækur Davíðs. I Svartar
fjaðrir - Kvæði - Kveðjur - Ný
kvæði. Bókin er 293 bls. II í byggð-
Davíðs Stefánssonar
frá Fagraskógi
um - Að norðan - Ný kvæðabók.
Bókin er 252 bls. III í dögun - Ljóð
frá liðnu sumri. Bókin er 371 bls.
IV Síðustu ljóð. Bókin er 308 bls.
Verð kr. 3.359.20 eða kr. 839.80
hvert bindi.
Mælt mál hefur að geyma óbundið
mál: ritgerðir Davíðs um samtíma-
menn hans og málefni sem á döf-
inni voru og ræður sem hann flutti
við ýmis tækifæri. Bókin er226 bls.
Verð kr. 839.80.
Bækurnar eru prentaðar í Víkings-
prenti.
Bókband Bókfell. Kápur hannaði
og teiknaði Ragnheiður Kristjáns-
dóttir auglýsingateiknari.
Kápur eru prentaðar í Hólum.
Helgafell