Þjóðviljinn - 14.12.1983, Síða 12
12 SÍÐA — Bókablað Þjóðviljans
Að vestan. 1.-4.
bindi
Þjóðsögur og sagnir, skráð af
Arna Bjarnasyni.
Snjólfur Jóhannsson Austmann
Guðmundur í Húsey
Sigmundur M. Long.
Ritsafn þetta sem áætlað er að
verði 16 bindi, er einstætt í íslenskri
bókaútgáfu. Hér er safnað saman í
eina heild því helsta sem íslending-
ar í Vesturheimi hafa skráð af
þjóðsögum, sagnaþáttum, ferðam-
inningum vesturfara, æviþáttum,
alþýðukveðskap og bréfum. Hér er
vitnisburður um andlega starfsemi
og bókmenntaiðju í nýja landinu. j
Ritsafn sem er einstakt í sinni röð. j
Ómetanlegur fróðleikur um frænd-
ur og vini vestanhafs.
Verð 1.-4. bindi 1.729 kr.
Skjaldborg.
nss~
MINNINGAÞÆTTIR
GUÐMIINOAH
f III SKV
A 'f ^{«
Pfj* ;* * ,
SAGNAÞÆTTIR
SICMUNDAR
^ ’ M. LONG
, —p--... .. ■ v i
> ii ' SV* ■■ s
< . * . ! >. /
JSi5-
A» VCSIAN
ÞJÓÐSÖGUR
OG
SAGNIR
S >
■lí"
Andardráttur
mannlífsins
Andardráttur
mannlífsins
Ritsafn Einars Kristjánssonar
frá Hermundarfelli.
Skjaldborg sendir nú frá sér 5.
bindið af Ritsafni Einars Herm-
undarsonar, en hann er löngu land-
skunnur af skáldverkum sínum, og
stórskemmtilegum erindaflutningi
í Ríkisútvarpinu.
í þessari bók er úrval smásagna
Einars, en smásagnasöfn hans eru
nú löngu uppseld.
Verð 679 kr.
Skjaldborg.
ALDNIR
HAFA
ORDII)
Aldnir hafa orðið
Skráð af Erlingi Davíðssyni.
Bókaflokkur þessi varðveitir mik-
inn fróðleik um líf, starf, siðvenjur
og atvinnuhætti þeirrar kynslóðar
sem nú er að kveðja.
Þeir sem segj a frá í þessari bók, eru
sprottnir úr ólíkum jarðvegi, með
mismunandi starfsvettvang og
lífsreynslu. Frásagnirnar spegla
liðna tíma sem nú virðast fjarlægir,
og miðla okkur af lífsvisku sögu-
manna.
Verð 679 kr.
Skjaldborg.
LÆIDÓMSRIT BÓKMBNNTAFÉLAGSINS
PLATÚN
Síðustu dagar
Sókratesar
©
HID lSUNZKA BÓKHBNNTAFÉLAG
Síðustu dagar
Sókratesar
Bókin kemur út í ritröðinni Lær-
dómsrit Bókmenntafélagsins og i
geymir Varnarræðu hins forn-
gríska spekings og tvö rit önnur
sem Platon hefur einnig stflað og
fært í letur. Rit sem ávallt er á dag-!
skrá þegar fjallað er um mannlega I
reisn og rök lífs og dauða. í íslensk-;
um búningi eftir Sigurð Nordal,!
sem einnig ritar inngang, og Þor-:
stein Gylfason.
Þetta er önnur útgáfa betrumbætt.
Til félagsmanna 296 kr.
Úr búð 370.50 kr.
Hið íslenska
bókmenntafélag.
Faðir min -
Kennarinn
Auðunn Bragi Sveinsson ritstýrði
Fjórtán þættir um landskunna og
virta kennara, sem allir hafa haft
mikil áhrif í uppeldis- og fræðslu-
málum. Þættirnir eru skráðir af
bömum þeirra. Kennararnir eru:
Gísli R. Bjarnason, Kristján Jó-
hannesson, Sigurjón Jóhannsson,
Steinþór Jóhannsson, Magnús Pét-
ursson, Friðrik Hansen, Ingimar
Jóhannesson, Jóhannes Guð-
mundsson, Halldór Sölvason, Jó-
hann Þorsteinsson, Helgi Ólafs-
son, Guðmundur Þorláksson, Ben-
edikt Guðjónsson og Ólafur Hans-
son. Myndskreytt. 254 bls.
Verð kr. 759.50
Skuggsjá.
Jskmkir
.(ImrHritir
pciinitifior*já>ur
Föðurland vort
hálft er hafið
íslenskir sjávarhættir III,
Lúðvík Kristjánsson.
Fyrri bindi þessa mikla ritverks
komu út árin 1980 og 1982. Þau em
stórvirki á sviði íslenskra fræða.
Meginkaflar þessa nýja bindis em:
Skinnklæði og fatnaður, uppsátur
og uppsátursgjöld, skyldur og
kvaðir, veðurfar og sjólag, veðr-
átta í verstöðvum, fiskimið, við-
búnaður vertíða og sjóferða, róður
og sigling, flyðra, happadrættir og
hlutarbót, hákarl og þrennskonar!
veiðarfæri. í bókinni er 361 mynd,!
þar af 30 litmyndir.
Verð kr. 2.532.-
Menningarsjóður
PETER FREUCHEN
IARION
SKUíaGSJÁ
Laríon
Peter Freuchen
Heillandi frásögn um hinar miklu
óbyggðir Alaska og frumstætt líf
indíánanna, sem landið byggðu, er
fyrstu skinnakaupmennirnir komu
þangað með byssur sínar og brenn-
ivín. Laríon var ókrýndur konung-
ur þessara miklu óbyggða og frá-
sögn Freuchens af þessum mikla
höfðingja er æsileg og spennandi
og nær hámarki með blóðbaðinu
mikla við Núlató. 270“bls.
Verð kr. 642.20
Skuggsjá.
THORKILD HANSEN
ÞRÆLA
EYJARNAR
Þrælaeyjarnar
er þriðja bókin í bókaflokknum um
þrælahald og þrælasölu Dana í
Vestur-Indíum. Thorkild Hansen
hlaut bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs 1971 fyrir þessar bækur.
455 bls.
Verð kr. 796.60.
Ægisútgáfan - Bókhlaðan
SKUGGSJÁ
Rit ///.
Benedikt Gröndal
í þessu lokabindi rita Gröndals er
ævisaga hans, „Dægradvöi" og rit-
gerðin „Reykjavík um aldamótin
1900“. „Dægradvöl“ er eitt merk-
asta bökmenntaverk sinnar tíðar
og fyrir löngu talið til sígildra bók-
mennta. „Reykjavík um aldamótin
1900“, geymir ýmsan fróðleik um
mannlíf í Reykjavík undir lok 19.
aldarinnar og er eitt hið
skemmtilegasta sem Gröndal skrif-
að á efri árum. 463 bls.
Verð kr. 796.60.
Skuggsjá.
ÍSLENSKIR
SAGNAÞÆTTIR
íslenskir
sagnaþættir
II. bindi, saman teknir af Gunnari
Þorleifssyni
í þessu II bindi íslenskra sagna-
þátta eru m.a. þessir þættir: Sagna-
þættir, þjóðlífsþættir, skipsströnd,
þættir fýrri alda, sérkennilegir
menn o.fl. Bókin er 208 bls.
Verð kr. 642.-
Hildur.
morgní
Ég græt
að morgni
Ævisaga Lilian Roth
kemur nú út í þriðju útgáfu í tak-
mörkuðu upplagi. Þessi sívinsæla
bók segir frá örlögum heimsfrægr-
ar konu sem berst hetjulegri bar-1
áttu við alkóhólið og sigrar að lok-
um. Bókin er sígild saga örlaga
milljóna manna, Þar sem sigrar og
ósigrar skiptast á. Bókin er 208 bls.
Verð kr. 488.-
Hildur.