Þjóðviljinn - 21.12.1983, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN' Miðvikudagur 21. desember 1983
PIOOVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson,
Umsjónarmaöur Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi ólafsson, Lúðvík Geirsson,
Magnús H. Gíslason, ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson,
Valþór Hlöðversson.
íþróttafróttaritari: Víðir Sigurðsson.
Utlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson.
LjÓ8myndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og augiýsingar:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent hf.
Rangt hjá Geir
Sjónvarpið greindi frá því um miðjan nóvember að
bandaríska hermálaráðuneytið hefði látið semja áætlun
um að koma fyrir stýriflaugum af Tomahawk gerð í
Noregi, Danmörku, Islandi, Tyrklandi, Japan, Kóreu,
Sikiley, Alaska og á eyjunni Diego Carcia í Indlands-
hafi. Þær áttu að vera búnar hefðbundnum sprengjum
og þjóna margvíslegum tilgangi, m.a. að villa um fyrir
Sovétmönnum sem ekki gætu greint þær frá kjarnork-
uflaugum og ryðja brautina fyrir staðsetningu kjarn-
orkuvopna í tilgreindum löndum síðar meir.
Skýrslu þessarar hefur verið getið í breskum blöðum
og sl. sunnudag greindi Sunday Times frá því að hún
væri í opinberri athugun hjá Pentagon, bandaríska
hermálaráðuneytinu. Pessar upplýsingar breska stór-
blaðsins hafa orðið til þess að áætlunin um stýriflaug-
arnar er stórmál í fjölmiðlum dönskum og norskum.
Á Alþingi íslendinga gerði Geir Hallgrímsson utan-
ríkisráðherra sér far um að draga sem mest hann mátti
úr mikilvægi umræddrar skýrslu. Af máli hans mátti
ráða að hér væri um að ræða eina af mörg þúsund
skýrslum sem Pentagon léti gera, hún væri unnin af
aðila „úti í bæ“ og lægi nú sem skúffumatur sem ekki
væri virtur viðlits fremur en margt annað hjá banda-
rísku herstjórninni. Utanríkisráðherra studdist sérstak-
lega við vitnisburð bandaríska sendiherrans á íslandi,
sem lét hafa eftir sér í utanríkisráðuneytinu að skýrslan
sem var kveikja sjónvarpsfréttarinnar væri „algerlega
marklaus“.
Bandaríski sendiherrann sem er atkvæðamikill í okk-
ar pólitík hefur látið sér sæma að nota málpípu sína á
Alþingi til þess að blekkja íslenskan almenning. Það
kemur semsé á daginn að skýrslan um Tomahawk-
flaugarnar er í alvarlegri athugun hjá Pentagon og er
síður en svo nokkur skúffumatur þar á bæ. Þetta er
alvarlegt mál og ættu þeir ráðuneytismenn í utanríkis-
ráðuneytinu að taka á sig rögg, kalla sendiherrann fyrir
sig og víta hann fyrir villandi upplýsingar.
En við skulum minnast þess að Geir Hallgrímsson
gaf mikilvæga yfirlýsingu við umræðurnar um stýri-
flaugarnar á Alþingi. Hann sagði afdráttarlaust að
það kæmi aldrei til greina að eldflaugar fengju vist á
Islandi. Vonandi kemur bandaríski sendiherrann þeim
skilaboðum inn fyrir dyr í Pentagon áður en lengra
verður haldið.
Aldrei eins dýrt
að lifa í Reykjavík
Eins og áður hefur verið rakið í Þjóðviljanum þarf
einstaklingur sem hefur meðallaun Dagsbrúnartaxta að
leggja á sig 53% meiri vinnu til þess að greiða útsvarið
sitt í Reykjavík á næsta ári en hann þurfti í ár. Þar með
er ekki öll sagan sögð um stórauknar álögur á borgar-
búa undir stjórn Sjálfstæðisflokksins. Fasteignagjöld
eiga að hækka um 57% á milli ára á sama tíma sem
kaupgjald hækkar um 21,2%. Vatnsskattur hækkar um
57%, stöðumælagjöld hækka um 100%, gjaldtaka á
leikvelli sem hófst í fyrra hækkar um 50%, kort Borgar-
bókasafnsins hækka í verði um 100%, aðgangur að
lyftum í Bláfjöllum og sundstöðum hækkar um tugi
prósenta. Með þeirri hækkun á taxta Hitaveitu Reykja-
víkur sem Davíð Oddsson borgarstjóri hefur boðað í
byrjun næsta árs hafa hitaveitugjöld í Reykjavík hækk-
að um 181.36% á rúmu ári en á sama tímabili hefur
kauphækkunun rétt slefað yfir 20%.
Okkur er sagt að verðbólga fari hjaðnandi í landinu.
Ef svo er þá gildir það ekki um Reykjavík þar sem
Sjálfstæðisflokkurinn ræður. Þar er slík óðaverðbólga í
öllum gjöldum að það sem ekki hækkar um 50% hækk-
ar með þriggja stafa tölum. Það hefur aldrei verið eins
dýrt að lifa i Reykjavík eins og í borgarstjóratíð Davíðs
Oddsonar. - ekh
klippt
Zeta Guðs
Það var merkileg frétt á bak-
síðu Morgunblaðsins í gær. Þar
segir frá því, að Sverrir Her-
mannsson iðnaðarráðherra hafi
ákveðið að láta landslýð sjá, að
hann sé maður með mönnum og
herra yfir sínu ráðuneyti. En ekki
einhver Albert. Hann ætlar að
láta skrifa zetu í bréfum ráðu-
neytisins. Og hann ætlar að láta
skrifa Iðnaðarráðuneyti með
stórum staf.
Síðan er birt opnuviðtal í
Morgunblaðinu við hinn vaska
ráðherra. Hannsegir, að sigvarði
ekkert um reglugerð um stafsetn-
ingu frá menntamálaráðuneyt-
inu. Það séu bara mannasetn-
ingar.
Með þessu síðasta orði á Sverr-
ir Hermannsson náttúrlega við
það, að hans zeta sé komin beint
frá guði almáttugum.
Ógurlegt
Ennfremur játar ráðherrann
ást sína á íslenskri tungu með
þessari ljóðrænu setningu: „Mér
er ógurlega mikið niðri fyrir út af
íslensku máli“. Og er ekki nema
gott eitt um þá geðshræringu að
segja.
Og með zetu sinni ætlar
ráðherrann að eigin sögn að
„ryðja subbuskap burt úr ís-
lensicri réttritun".
Ég segi nú bara eins og Steinn
Steinarr: Hvaða læti eru þetta?
En kannski á maður að bregð-
ast öðru vísi við. Kannski er hér
komin sjálf frétt ársins.
Hetjuskapur
í þeim skilningi, að fréttin
varpar einkar skæru ljósi yfir
hátterni vissrar tegundar ís-
lenskra stjórnmálamanna.
Þeir eru gj arna litlir kappar út á
við. Þar eru þeir hinir mestu re-
alpólitíkusar eins og það heitir.
Þar eru þeir jafnan fúsir að laga
sig að aðstæðum.
Ef þeir eiga til dæmis í höggi
við alþjóðlegan auðhring eins og
Alusuisse, þá vita þeir að það
þýðir ekkert að vera að rífa kjaft.
Það er ekki kurteisi á alþjóð-
legum peningavettvangi að
„ryðja burt subbuskap“ í bók-
haldi slíkra aðila. Það er vonlaust
verk. Slíkt reyna aðeins angur-
gapar eins og Hjörleifur Gutt-
ormsson.
Nei, gagnvart Alusuisse og
skyldum öflum eru þessir menn
hófsamir og vita að auðhringur er
auðhringur en þeir sjálfir bara
litlir karlar norður við ysta haf.
Aftur á móti eru þeir afkom-
endur fornkappa og lesa til dæmis
Víga-Glúms sögu miklu heldur
en Hjörleifsþátt og Álkónga. Og
einhversstaðar verður garpsskap-
urinn að koma fram.
Og nú er hann fram kominn.
Sverrir er í hetjulegri baráttu
fyrir sjálfri zetunni. Og þótt allir
aðrir ráðherrar svíki þennan staf-
setningardýrgrip, þá ætlar Sverrir
hvergi að sleppa af hólmi. Óttast
ekki einu sinni sjálfa frú Ragn-
hildi menntamálaráðherra.
Margir
möguleikar
Og af því að fleiri ráðherrar en
Sverrir Hermannsson þurfa að
finna sér hjartfólgið mál til að
berjast fyrir á þessum hugsjóna-
litlu tímum, þá megum við vænta
hinna æsilegustu frétta af staf-
setningarvígvellinum í stjórnar-
ráðinu.
Albert gæti til dæmis tekið það
upp að yfsilon yrði kippt úr
skjölum Fjármálaráðuneytisins.
Geir gæti skipað svo fyrir, að
UTANRIKISRAÐUNEYTIÐ
verði skrifað með eintómum stór-
um stöfum.
Steingrímur gæti látið krók
koma á móti bragði og strítt virð-
ulegasta íhaldinu (og ýmsum
kommum í leiðinni) með því að
gefa út tilskipun um að banna
ættarnöfn.
Jón Helgason kirkjumálaráð-
herra gæti lögleitt latneska
beygingu á Jesú.
Plássið fer að verða búið og við
látum lesendum eftir að finna það
út hvað afgangurinn af ráðherr-
unum á til bragðs að taka.
Hitt er svo víst og satt, að við
lifum á stórbrotnum tímum.
ÁB.
Stafsetningarœfing
fyrir byrjendur
Víga-Glúmur er enginn bógur í
zamskiptunum við Muller, May-
er Alusuizze. Uzz, ekki vekja
Zverri. Zverir er zmámæltur
einsog Bezzí. Zverrir skrifaði ál-
hringnum, að hjörleifur hefði
verið ózanngjarn. Zverrir segir
að albert sé gáfaður. Zjúklinga-
skatturinn er zvoleiðis hluti af
kjaraskerðingu að zmá Raforku-
verðshækkun gleymizt. Zum mál
eru zmá, önnur Ztór. Zetu-málið
er Ztórmál, Aluzuizze-málið er
Zmámál.
Zamþykkt var að nýju Ríkis-
stjórninni yrði valinn staður sem
lægi vel Zamgöngum og virkjun-
um. iðnaðarráðherrann sagði að
sér fyndist Morguninn ævinlega
drýgsti zamningatíminn. Zýndu
fyllstu Zanngirni, forðastu illsku
og áreitni. Zverri er vorkunnar-
laust að vera á Þingi. Morgunsól-
in hellti geizlum zínum yfir
Gróinn völlinn og Álverið skart-
aði sínu fegursta. Þeir höfðu hist,
kyzt og klezt nefjunum saman.
(Nemendur færi í staðlað horf
a) samkvæmt stafsetningu utan-
ríkisráðuneytisins b) samkvæmt
stafsetningarstöðlum iðnaðar-
ráðuneytisins) - óg