Þjóðviljinn - 21.12.1983, Side 5
Eftir 20 ár:
Miðvikudagur 21. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA S
Breytingartillögur stjórnarandstöðu
við afgreiðslu fjárlaga
Aðeins ein í gegn
Aðeins ein tillaga stjórnarand-
stöðunnar fékk náð fyrir augum al-
þingis við afgreiðslu fjárlaga í gær,
en það var tillaga Svavars Gests-
sonar og fleiri þingmanna Alþýðu-
bandalagsins um hækkun á gjald-
færðum stofnkostnaði við Blindra-
bókasafn úr 800 þús. kr. í 1 miljón
kr. Allar aðrar tillögur stjórnar-
andstöðunnar við þriðju umræðu
voru felldar, en nokkrar breyting-
artillögur frá 2. umræðu höfðu ver-
ið teknar inn í endanlega afgreiðslu
fj ár veitinganefndar.
Tillögur þingmanna Alþýðu-
bandalagsins um sambýli fyrir fatl-
aða í Kópavogi og fræðslustarf
gegn fíkniefnum voru báðar teknar
inn í endanlegar tillögur fjárveit-
inganefndar en tillögur um stór-
hækkun á framlagi til þróunarsam-
vinnustofnunar Islands, til Bygg-
ingarsjóðs þjóðarbókhlöðu, til
niðurgreiðslna vegna lækkunar
húshitunarkostnaðar, útgáfu sér-
kennslugagna og almennrar bóka-
útgáfu hjá Námsgagnastofnun og
fyrirhleðslna vegna hamfarahættu
á Skeiðarársandi voru allar felldar.
Þá var tillaga þingmanna Al-
þýðubandalagsins um að nýta það
lán sem fyrirhugað er til byggingar
nýrrar flugstöðvar á Keflavíkur-
flugvelli til endurhönnunar þeirrar
nýbyggingar, til greiðslu á nýrri
björgunarþyrlu fyrir Landhelgis-
gæsluna og til kaupa á öryggistækj-
um og til lagningar slitlags á flug-
velli landsins, felld að viðhöfðu
nafnakalli. -Ig.
Blaðastyrkurinn samþykktur
13 miljónir króna
koma til skipta
Sameinað alþingi samþykkti við
afgreiðslu fjárlaga í gær að við-
höfðu nafnakalli að veita styrk að
upphæð 13 miljónir kr. til dagbiað-
anna á næsta ári. Fjármálaráð-
herra skar blaðastyrkinn niður í
upphaflegu fjárlagafrumvarpi sínu
en breytingatillaga um að taka
styrkinn upp kom fram frá for-
mönnum þingflokka Alþýðubanda-
lags, Alþýðuflokks og Framsóknar-
flokks.
Alls greiddu 33 þingmenn blaða-
styrknum atkvæði, allir þingmenn
Alþýðubandalags, Alþýðuflokks,
Framsóknarflokks og 2 þingmenn
Samtaka um kvennalista auk
Sverris Hermannssonar iðnaðar-
ráðherra. Á móti styrknum
greiddu atkvæði þingmenn Sjálf-
stæðisflokks og Bandalags jafnað-
armanna. Lárus Jónsson formaður
fjárveitinganefndar greiddi ekki
atkvæði og Kristín Halldórsdóttir
var fjarstödd.
Blaðastyrknum 13 miljónum
króna verður skipt milli dagblað-
anna eftir ákveðnum reglum að til-
lögum stjórnskipaðrar nefndar.
Upphæðin til skipta er um 85%
hærri en á síðasta ári.
-Jg-
UM ALLAN HEIM
„ísland er einnig erlendis," segir Matthías.
í þessu úrvali íerðasagna íer hann
með okkur um Skaítaíellssýslu, Dali og Djúp,
Austíirði og Óddðahraun, Bandaríkin og
Norður- og Suður-Evrópu.
Matthías er hinn besti leiðsögumaður,
íundvís d menningarverðmœti og
kryddar íerðasögur sínar skemmtilegum
hugdettum og léttum ljóðum.
Sameiginlegt einkenni rispanna
er írjdlsrœði stílsins, léttleiki
og gamansemi.
Ný íslensk orðabók
frá Menningarsjóði
í gær kom út hjá Menningarsjóði
ný íslensk orðabók í ritstjórn Arna
Böðvarssonar, cand. mag.. Gamla
orðabókin, frá 1963 sem gefín hef-
ur verið út í 20 þúsund eintökum og
8 prentunum, er nú uppurin. Nýja
bókin er um 400 blaðsíðum lengri
en sú gamla, orðaforði hefur verið
aukinn um 40% auk þess sem fjöl-
margar skýringarmyndir eru í nýju
bókinni, en engin í þeirri gömlu. Þá
“fylgir nýja bókin núgildandi staf-
setningu frá 1973-1976 og hefur þar
af leiðandi enga z og ekki stóran
staf í orðum eins og „iðnaðarráðu-
neyti“.
Við upphaf hvers stafkafla getur
að líta forstaf úr Flateyjarbók, auk
ýmissa dæma um stafagerð, allt frá
íslensku rúnaletri til tölvuleturs
með viðkomu hjá Jóhanni Guten-
berg og Hallgrími Péturssyni. Þá
getur að líta við uppflettiorðið
„skrift“ rithandarsýni ýmissa
merkra íslendinga og má af núlif-
andi mönnum nefna Halldór Lax-
ness og Vigdísi Finnbogadóttur.
Ennfremur Benedikt Gröndal,
skáld, Jón Steingrímsson, eldk-
lerk, JónasHallgrímsson, skáld, og
Torfhildi Hólm, rithöfund.
Af öðrum nýjungum má nefna
að í fýrsta sinn eru nú uppteknar
skýringar á íslenskum mannanöfn-
um, auk þess sem í bókinni er nú
heilmikið af sérnöfnum, heitum er-
lendra staða og landa, íbúaheitum
og fleiru slíku.
Undirbúningur nýju útgáfunnar
hófst strax árið 1971 og hefur hvílt
að mestu á Árna Böðvarssyni,
cand. mag., og nefnir hann sérstak-
lega í formála af aðstoðarmönnum
sínum Ásgeir Blöndal Magnússon,
sem hann telur fróðastan núlifandi
manna um íslenskan orðaforða.
Víða hefur þó verið leitað fanga í
bókina, stórtækastir í athuga-
semdum við fyrri útgáfu voru þeir
Aðalsteinn Davíðsson, mennta-
skólakennari og Örnólfur Thorlac-
ius rektor. Aðalsteinn fór yfir alla
bókina í sambandi við störf sín að
sænsk-íslenskri orðabók og Örn-
ólfur fór yfir fjölda orða úr náttúru-
fræði auk annarra athugasemda.
Björn heitinn Franzson lét Orða-
bók Háskólans eftir eintak sitt af
fyrstu útgáfu bókarinnar með at-
hugasemdum og ýmsum viðbótum,
Elsa Guðjónsson, safnvörður, fór
yfir orðalista um búninga kvenna,
dr. Kristján Sæmundsson um jarð-
fræði, Sigurlaug Jóhannesdóttir,
vefnaðarkennari um vefnað og dr.
Þorsteinn Sæmundsson um tímatal
og stjarnfræði. Frá Sigurði Nordal
prófessor eru komnar skilgreining-
ar á bókfestukenningu, hjátrú og
sagnfestukenningu, en einnig hef-
ur verið tekið tillit til athugasemda
í ritdómum um fyrri útgáfu.
Flestar myndir í bókina hafa
myndlistarmennirnir Bjarni Jóns-
son, Guðrún Svava Svavarsdóttir
og Haraldur Guðbergsson gert, en
einnig voru gerðar myndir eftir
teikningum Tryggva Emilssonar,
rithöfundar, af eyrnarmörkum
sauðfjár.
Þegar er hafinn undirbúningur
að þriðju útgáfu bókarinnar, enda
komst Árni Böðvarsson svo að orði
ígær, að nýjabókinværi lOárum of
seint á ferð. Prenttækni hefur
fleygt svo fram að vinnslutími
orðabókar er mun skemmri en
áður og verður athugasemdum,
leiðréttingum og nýjum orðskýr-
ingum komið á tölvubanka í
Prentsmiðjunni Odda jafnóðum,
þannig að auðvelt verður að grípa
til þeirra þegar ákvörðun um
þriðju útgáfu verður tekin.
íslcnsk orðabók er 1256 blað-
síður að stærð, sett, prentuð og
bundin í Prentsmiðjunni Odda.
Hún kostar 2.532 krónur í búð, en
2.200 krónur hjá Bókaútgáfu
Menningarsjóðs, Skálholtsstíg 7,
Reykjavík.
-Á1
Sýnishorn af einni opnu nýju orðabókarinnar. Eins og sjá má er hún n\jög
frábrugðin þeirri gömlu, sem engar skýringarmyndir hafði.