Þjóðviljinn - 21.12.1983, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 21. desember 1983
stóð um stofnun Kron fyrir 46
árum. Það var sannarlega reitt hátt
til höggs á síðum blaðsins um það
leiti sem Mikligarður var að opna.
En nú brá svo við að fáir tóku mark
á áróðri blaðsins og ofstæki gegn
samvinnuhreyfingunni. Áhugi al-
mennings fyrir nýrri og hagstæðri
verslun var slíkur að til nokkurra
vandræða horfði með að afgreiða
fólkið fyrstu dagana. Borgarstjór-
inn í Reykjavík virðist hinsvegar
haldin sama ofstækinu og Morgun-
blaðið gegn frjálsri samkeppni og
fyrirskipaði lokun á annari aksturs-
leið viðskiptamanna frá verslun-
inni.
Þáttur verkalýðs-
hreyfingarinnar
Það fer ekki á milli mála að opn-
un Miklagarðs og sú verðlækkun í
lífsnauðsynjum sem af henni leiðir
er eitt það jákvæðasta sem gert hef-
ur verið í kjaramálum launafólks á
þessu ári. Það er því gott að minn-
ast þess að nokkur verkalýðsfélög
lögðu máli þessu mjög gott lið á
þeim tíma sem erfiðast var að fjár-
magna þessar framkvæmdir. Verð-
ur sú liðveisla seint fullþökkuð.
Það er mörgum forustumönnum
launafólks löngu ljóst að það er
ekki síður mikilvægt að lækka
verðlag í landinu en að hækka
launin. Kron var stofnað í lok
heimskreppunnar að frumkvæði
verkalýðshreyfingarinnar í
Reykjavík. Kaupfélagið var þá
einn þáttur í sókn launafólks til
betri lífskjara. Við núverandi að-
stæður, þegar lífskjörin hafa verið
skert þá er öflugt kaupfélag einnig
mikilvægt til varnar og sóknar.
Þegar Kron var stofnað þá var
einokun kaupmanna í Reykjavík
rofin og vöruverð stórlækkað. Nú
er aftur verið að gera slíkt átak með
því að opna stórverslun með vöru-
úrval fyrir alla fjölskylduna.
Máttur
hinna mörgu
Áratuga barátta samvinnu-
manna fyrir því að koma upp al-
hliða markaðsverslun í Reykjavík
hefur nú ræst þrátt fyrir erfitt
ástand í fjármálum þjóðfélagsins á
þessu ári. Að því verkefni hafa
margir einstaklingar unnið gott
verk. En það sem úrslitum réði að
það skyldi takast nú var það að
mætti samtakanna, hinna 40.000
samvinnumanna í landinu, var ein-
beitt að þessu verkefni. Slíkir á-
fangasigrar eiga að vera hvatning
til sem flestra að gerast virkir þátt-
takendur í samvinnufélögum.
Að síðustu vil ég benda félags-
mönnum Kron, og þeim sem gerast
vilja félagar, á þá staðreynd að
þrátt fyrir alía verðlækkanir stóru
markaðanna þá gera þeir bestu
jólainnkaupin í sinni hverfaverslun
með því að nota afsláttarkortin,
sem gilda nú til áramóta.
Einn merkasti atburður þessa
árs hér á höfuðborgarsvæðinu er
ótvírætt opnun Miklagarðs, stór-
verslunar samvinnumanna í Holta-
görðum. Það var mikið afrek, sem
sýnir styrk samvinnuhreyfingar-
innar, að opna slíka stórverslun
þrátt fyrir þá efnahagskreppu sem
nú gengur yfir þjóðina.
A sama hátt er opnun Mikla-
garðs einn merkasti áfanginn í
verslunarsögu Kron síðan kaupfé-
lagið var stofnað árið 1938. Þá var
tekist á af fullri hörku um verðlag
og þjónustu í verslunínni og versl-
unarálagning lækkuð mjög veru-
Iega. Þá beittu kaupmenn viðskipt-
abanni og ofsóknum gegn Kron, en
höfðu lítinn sóma af þeim aðgerð-
um.
Morgunblaðinu og öðrum áróð-
urstækjum kaupmanna var á þeim
tíma miskunarlaust beitt gegn
kaupfélaginu og þá var máttur þess
mikill í skoðanamyndun fólks um
einstök mál.
Starf kaupfélagsins hefur jafnan
beinst að því að halda niðri vöru-
verði á nauðsynjavörum og skilað
neytendum góðum árangri á því
sviði. Hinsvegar hefur ekki tekist
fyr en nú að ná forustu á sviði vöru-
dreifingar, vegna óvildar og þröng-
sýni borgaryfirvalda. Það var ekki
fyr en nýr meirihluti myndaðist í
borgarstjórn að leyfi fékkst til þess
að reka markaðsverslun í Holta-
görðum.
Samkeppni á
jafnréttisgrundvelli
Þegar það leyfi var fengið var
fyrst komin aðstaða til þess að taka
Opnun Míklagarðs
hefur lækkað vöru-
verð í Reykjavík
upp nýja verslunarhætti í smásölu-
verslun í höfuðborginni og keppa
við kaupmannastéttina á jafnréttis-
grundvelli. Þar verður reynt að
nýta til hins ítrasta hagkvæmni
stórverslunar í rekstri og inn-
kaupum.
Um stofnun og rekstur Mikla-
garðs s.f. hefur náðst gott samstarf
allra samvinnumanna á höfuðborg-
arsvæðinu og er það eitt merkur
áfangi. Eignarhlutföll í sam-
eignarfélaginu eru þau að Kron á
52% af stofnfénu, SÍS 32% og
kaupfélögin í Mosfellssveit, Hafn-
arfirði og Keflavík 6% hvert.
Það hefur þegar komið í ljós að
Mikligarður getur vegna stærðar
og aðstöðu gert mjög hagstæð
innkaup og lækkað verðlag í flest-
um vöruflokkum.
Það er því þegar ljóst að brýn
þörf var á því fyrir neytendur í
Reykjavík að samvinnuhreyfingin
fengi aðstöðu til samkeppni við
Hagkaup og aðrar stórverslanir í
Reykjavík. Það er fullljóst að Hag-
kaup hefur ekki stefnt að því einu
að lækka vöruverð hér í höfuð-
borginni heldur einnig að safna
verulegum gróða. Verslunin hefur
þegar byggt stórhýsi á Akureyri og
í Njarðvíkum og stefnir nú að því
að fjárfesta hundruð miljóna í
óþörfu verslunarævintýri við
Miklubraut.
Viðbrögð kaupmanna
Hagkaup og aðrar markaðs-
verslanir hafa nú þegar lækkað
verð á fjölmörgum vörutegundum
til samræmis við verð sömu vara í
Miklagarði. Smákaupmenn hafa
brugðist þannig við að þeir hafa
myndað ný samtök, sem nefna
mætti Hræðslubandalag til verndar
sinni atvinnustarfsemi. Verði þau
samtök notuð til þess að gera hag-
stæðari innkaup og fækka millilið-
um í verslun þá nýtur almenningur
þess í lægra vöruverði.
Ástæða er til þess að leiðrétta
þann málflutning kaupmanna að
með Miklagarði sé stefnt að því að
leggja niður verslun kaupmannsins
á horninu. Svo er alls ekki. Stór-
verslanir ná meiri hagkvæmni í
rekstri og því oft lægra vöruverði
og geta haft fjölbreyttara vöruúr-
val, en hverfaverslanir eiga fullan
rétt á sér og hafa miklu hlutverki að
gegna þó að þær nái ekki í öllum
tilfellum eins lágu vöruverði.
Kron rekur nokkrar matvöru-
verslanir í íbúðahverfum og mun
gera það áfram þó að rekstur þeirra
verði ekki jafn hagstæður og rekst-
ur markaðsverslana.
Ofstœki Morgun-
blaðsins óbreytt
Lítið hefur málflutningur Morg-
unblaðsins breyst síðan baráttan
Ólafur Jónsson formaður stjórnar Kron:
Kaflar úr ri / , • / >c />•>>
ávarpi Þrastar tll Clð lettCl
Olafssonar
Miklagarðs undir með launafólki
Góðir gestir.
Fyrir hönd stjórnar Miklagarðs
s.f., býð ég ykicur öll velkomin.
Við fögnum í dag langþráðum
áfanga. Stærsta verslun landsins,
Mikilgarður, verður opnuð í být-
ið á morgun.
Hugmyndin um stórverslun
samvinnumanna í Reykjavík er
ekki ný af nálinni - þetta hefur
verið takmark okkar um langan
tíma. En það þótti óneitanlega
jaðra við nokkra ofdirfsku, er
ákveðið vai að hefjast handa ein-
mitt á þeim tíma, þegar halla tók
undan fæti í þjóðarbúskap okkar
íslendinga.
Þegar menn nú horfa til baka,
hygg ég að flestir viðurkenni að
þetta var rétt ákvörðun.
Með þessari verslun vilja Sam-
vinnumenn sýna að þeir eru þess
megnugir að keppa á erfiðasta og
stærsta markaðssvæði landsins.
Við viljum sýna að félagslegt
framtak getur verið samkeppnis-
fært bæði í verði og vörugæðum,
við það besta sem til er hérlendis.
Á erfiðleikatímum er hollt að
minnast þess að lækkað neyslu-
vöruverð er mikilvæg kjarabót.
Verðið hér er okkar framlag til að
létta undir með launafólki á
þrengingartímum.
Ekki mikil fjárfesting
Um það hafa spunnist nokkrar
umræður, hvort fjárfesting í
verslun sé ekki komin í nokkrar
ógöngur. Auðvitað hafa fjárfest-
ingar í verslun sín þjóðhagslegu
takmörk, eins og aðrar fjárfest-
ingar. Þau takmörk verða þó að
miðast við þau áhrif sem ný versl-
un hefur á vöruverð. Lækki það
hlýtur fjárfestingin að vera rétt-
lætanleg.
Ekki verður samvinnuverslun
á höfuðborgarsvæðinu ásökuð
um ógætilegar eða umfangsmikl-
ar fjárfestingar.
Hér í Miklagarði erum við að
hagnýta okkur hús sem byggt var
fyrir áratug. Við erum því ekki að
fjárfesta hér í steinsteypu heldur
eingöngu í seljanlegum vörum.
Mikligarður s.f., er meirihluta-
eign KRON, Sambandið á einn
þriðja hluta en kaupfélögin í
Hafnarfirði, í Kjalarnesþingi og á
Suðurnesjum eiga afganginn.
Það er trúa mín að þetta félags-
form sé til fyrirmyndar meðal
samvinnumanna og til eftir-
breytni, enda hefur samstarfið
gengið með ágætum.
Vitanlega hafa skoðanir verið
skiptar á stundum og mat og
áherslur ekki ætíð þær sömu. En
upp höfum við staðið sáttir með
farsælar lausnir.
Heildarhúsnæði verslunarinn-
ar er 7680m2, en sjálft sölugólfið
er 4700 m2. Starfsfólk er um 100
og bifreiðastæði utanhúss eru ríf-
lega 500, svo eitthvað sé nefnt.
30.000 vörutegundir
Búðinni er skipt í um 20 deildir
og hefur yfir 30 þúsund vöruteg-
undir á boðstólum. Hér fæst allt
milli himins og jarðar. Eitthvað
fyrir alla, enda er mikið úrval
gæðavöru ásamt lágmarks verði
aðalsmerki okkar. Einnig hefur
verið reynt að hugsa um þægindi
viðskiptavinanna. Hér er krakk-
akrókur, kaffitería og hvíldarað-
staða fyrir þreytta viðskiptavini.
Þannig mætti lengi halda áfram,
af nógu er að taka.
Margir hafa lagt okkur liðsinni
í þessu máli. Ég vil sérstaklega
minnast þess stuðnings sem
verkalýðshreyfingin hefur veitt
okkur. Samstarf verkalýðshrey-
fingar og samvinnuhreyfingar
hefur oft verið meira í orði en á
borði - því miður. Hér hefur það
orðið í reynd. Megi þetta verða
upphaf að fleiri sameiginlegum
verkefnum.
Fullsœla fjár
í Sigurðar sögu Jórsalafara
segir, að sagt hafi verið til forna,
að í Miklagarði hafi norrænir
menn fengið fullsælu fjár.
Rætist sú von, að í okkar Mikl-
agarði fái sem flestir fullsælu fjár
- þá er tilganginum náð.