Þjóðviljinn - 21.12.1983, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 21.12.1983, Blaðsíða 11
I Miðvikudagur 21. desember 19831 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Skemmtun af skáldsögum Ámi Sigurjónsson skrifar Steinunn Sigurðardóttir: Skáldsögur. Iðunn 1983. Frá Steinunni Sigurðardóttur hafa komið þrjár ljóðabækur, en þetta er annað smásagnasafn henn- ar. Meira en helmingur þessarar bókar eru það sem Steinunn nefnir Fjölskyldusögur (fyrir alla fjöl- skylduna); þær eru sextán stuttar sögur um fólk sem er tengt inn- byrðis. Auk Fjölskyldusagna eru fimm smásögur í bókinni. Sagan Skrifað í stjörnur segir frá fundi einstæðrar móður í Skjólunum við amerískan túrista og með þeim tak- ast fyrirvaralítið ástir í göngutúr; Hálft andlit fjallar um unga stúlku sem kemur úr utanlandsferð og hefur skaddast mjög á öðrum and- litshelmingi og sér fyrir, hvernig það muni breyta lífi hennar. í Sjó- rekin ljóð er sagt frá Reykjavíkur- húsmóður sem skellir sér hér um bil vikulega til Þingvalla til að skrifa ljóð niðri í gjá. Raddir úr hrauni er saga af Olafi skáta (sbr. liljurós) sem villist á Hellisheiði og hefur mök við álfkonu. Hvítar rósir er efnismest þeirra af sögunum, sem ekki falla undir flokkinn Fjöl- skyldusögur: þar greinir frá hér- aðslækni sem drekkur sig fullan og sofnar í opinni gröf að vetrarlagi daginn sem fyrrum hjákona hans giftist; en hann hefur það annars gott hjá eiginkonu sinni, og draumurinn um unnustuna rætist kannski á henni án þess að honum sé það ljóst. Allt eru þetta að mínu áliti góðar sögur, en með Fjölskyldusögunum er færst mest í fang í bókinni. Þar er ekki aðeins lýst afmarkaðri stemmningu eða sniðugu atviki, heldur glímir Steinunn þarna við að skapa söguheim og sögufléttu. Þarna eru líka skemmtileg tilþrif með formið, og eru á því þrjú meg- intilbrigði: frásögn höfundarper- sónu, frásögn sögupersónu, sendi- bréf eða dagbók sögupersónu. Sömu atburðum er þannig lýst frá ýmsum sjónarhornum, og skyggnst er í hugsunarhátt karakteranna. Tekst það vel. í kynningu á þessari bók hefur verið ýjað að því að sögurnar séu óraunverulegar eða skrumskæling á veruleikanum, en að mínu mati er sá þáttur nú ekki áberandi í þeim. Þetta eru raunsæíslegar sögur, en þær eru hins vegar fullar af skopi og persónurnar óvenjulegt fólk. Þanníg verður það að teljast furðu gróf nágrannahnýsni þegar Bjarnþór og Jóna múta póstinum til að ljá þeim bréf Gríms svo þau geti opnað þau og lesið, og sömu- leiðis eru gerningaleiðangrar fyrr- nefndrar húsmóður á Þingvelli sérkennilegt hátterni, en ég get nú ekki ábyrgst að þvílíkt eigi sér ekki stað í veruleikanum. Og ekki er víst að álfkonan hans Ólafs sé ann- ars heims. Fyndnar og skringilegar persónur þurfa vitanlega ekki að vera óraunsæislegar í skáldverki, en spyrja má hvort slíkt skringifólk sé kallað skrumskæling eða óraun- sæi af því að nú hafa menn vanist því um skeið að skáldin eltist við normaljóna í bókum í þeim til- gangi, að ég vænti, að sem flestir geti séð sjálfa sig í þeim. En þeir sem þola grín um sjálfa sig fá allt það af svoleiðis speglunarlosta sem þeir þurfa í broslegum sögupersón- um á borð við Steinunnar. í Fjölskyldusögum eru þessar aðalpersónur: Arnviður Sen, ís- lenskunemi sem hefur gífurlega minnimáttarkennd af nafni sínu; Geirþrúður sem er vinkona hans dkalD sdgur SrElNUNNSIGUWARDÓniR IÐUNN um skeið og sálfræðingur; fjöl- skyldan á Jófríðargötu 103, en það eru Grímur rafvirki og Elínborg ásamt sonum þeirra, Illuga, Aðal- steini og Arnari fríportista; Bjarn- þór og Jóna í næsta húsi; Eyvindur Egilsson bróðir Gríms og kona hans Halldóra ásamt börnum tveim; Jens sem hættir með Geir- þrúði og byrjar með Soffíu sem er úr borgarastétt; Marvin sem er fað- ir Eggerts nokkurs sem Geirþrúður er með eftir Aðalstein. Geirþrúður er einnna skýrast dregin persóna í Fjölskyldusögum. Gaman væri að rekja frekar hvernig sjónarhornum er víxlað milli þáttanna, enda er það laglega gert. Um Arnvið Sen er aðalbarand- arinn hið ljóta nafn hans og er tals- vert spunnið um það. Það er nú kannski ekki efni í langa skrýtlu út af fyrir sig (frekar en t.d. líkams- lýti), en ég skemmti mér nú samt ágætlega við að lesa um það. Fjöl- skyldan á Jófríðargötu einkennist af áráttu að segja skrýtlur sem hún telur ofboð smellnar en sem skv. höfundarpersónu og líklega les- Alþýðleg stríðssaga Árnl Bergmann skrifar Tómas Þór Tómasson. Heimsstyrjaldarárin á íslandi 1939-1945. Fyrra bindi. Örn og Örlygur 1983. Þetta er fyrsta bók í flokki alþýð- legra rita um sögu okkar aldar. Og líklega nokkuð góð til síns brúks. Það er ljóst, að höfundur er ekki að rannsaka ný gögn, hann bætir ekki miklu við vitneskju þeirra, sem muna stríðsárin að nokkru leyti og hafa bætt við þá reynslu með lestri. En frásögn hans má vel verða nota- drjúg þeim sem eru síðar komnir í heiminn eða hafa mörgu gleymt. Höfundur fer yfirleitt skýnsam- lega með, reynir ekki að efna til æsilegra skrifa, heldur sig við heim- ildir og hefur víða leitað fanga. Vit- anlega munu lesendur hafa sitth- vað við áherslur og túlkun að at- huga - til dæmis mundi þessi lesari hér láta uppi aðra túlkun á aðdrag- anda að hingaðkomu bandaríska hersins, eða þá dreifibréfsmálum, svo dæmi séu nefnd. Ekki mundi ég heldur vorkenna mjög atvinnurek- endum í skæruhernaðinum 1942, eins og höfundur hefur til- hneigingu til („áttu atvinnurekend- ur ekki sjö dagana sæla“ segir hann - vegna þess aðþeir gátu ekki lengur deilt og drottnað með ráðn- ingum eða brottrekstrum). En slík- ar athugasemdir skulu ekki gerðar að stórmáli á þessum stað. Með frásögn af stjórnmálum, hernámi, verklýðsmálum og sam- bandsslitamálum fylgja innskot- stextar sem auka bókinni líf og lit: um ástandsböll, hrakninga, lista- mannastríð Jónasar frá Hriflu og fleira. Myndakostur er mikill í bók- inni, en sá galli á uppsetningu að einatt verður langt á milli mynda og þess texta sem á opnunni er. Merkilegt reyndar með gamlar myndír: flestar hafa þær fengið mikinn sjarma þótt ekki séu nema þrítugar, hvað þá fertugar. Kann- ski vegna þess, að þegar nær okkur dregur í tíma eru teknar svo margar myndir að enginn tekur lengur eftir þeim. Á.B. anda eru aulafyndni. Eyvindur og Halldóra flytja í óbyggðir, sem þau telja vera, til að losna við frekjuna í börnunum sínum og láta þeim þá eftir einbýlishúsið nýja og dýra. Marvin verður fyrir því að tengda- dóttirin Geirþrúður fer, með (að dómi hans) illum afleiðingum, að skipta sér af móður hans og taka hana í sálfræðimeðferð einhverja, og rennir lesandinn grun í að höf- undi sé í nöp við þá fræðigrein. Þá er gefin mynd af heimilisanda efna- fólks gegnum frásögn Jens, og ein- kennist það fólk, að mér virðist, af lífsleiða, slefburði og þörf á að eigna öðrum lesti sína. Geirþrúð- ur, helsti karakter sagnanna, er skemmtilega forpokuð, og er eins og einhverjar víddir mannlegra samskipta séu henni lokuð bók, sbr. t.d. að hún fellur fyrir skrýtlu- hamförum Jófríðargötufjölskyld- unnar og nefnir „mergjaða kímni- gáfu“, þótt hún viðurkenni síðar að „léttleikinn" þar á bæ jaðrar við veikindi. Ritdæmendur eru oft að tala um að eitthvað vanti í bækur, en því miður gengur ekki alltaf vel að benda á hvað það er. Líklega verð- ur leiðarljós þess, sem skrifar bókaumsagnir, að vera, að láta það eiga sig sem vantar í bækurnar og fjalla frekar um hitt sem stendur í þeim. Þó gæti ég haft samúð með þeim, sem héldi fram, að það vanti einhvers konar hugmyndafræði í nýju bókina hennar Steinunnar, - eða kannski átakameira lífsvið- horf. Steinunn er einn af uppá- haldshöfundum mínum, penninn leikur í höndum hennar. Og þegar skrattanum er réttur litli fingurinn o.s.frv.: mér finnst það ekki verð- ug glíma fyrir hana að semja smá- sögur um fáránleg mannanöfn, aulafyndni Jófríðargötufj ölskyldu eða skilningsleysi sálfræðinga á sál- inni. Þessi yrkisefni eru dauf, bæði frá sjónarmiði samfélagsstarfsemi og heimspeki. Auðvitað er víðs fjarri að þetta séu einu yrkisefnin hjá Steinunni, enda kemur hún ótal umhugsunarverðum atriðum að meðfram þessu, og í raun réttri eru sögur hennar vandtúlkaðar. En þær eru engu að síður byggðar kringum þessi efni og önnur á lík- um nótum skv. mínum lestri. Ég held að Steinunn geti nýtt skáld- skapargáfu sína betur í umfangs- meira verki, t.d. heilli skáldsögu, og hlakka ég til að lesa slíkt verk frá hendi hennar. Þó að skáld verði kannski ekki krafin um stjórnmálainnlegg né heimspekiframlög í verkum sínum, leita margir lesendur ósjálfrátt að slíku efni í skáld- og smásögum. Er nóg að sögur séu skemmtilegar? Eru ekki til fleiri aðferðir til að halda lesendum vakandi en segja þeim brandara? Um Skáldsögur get ég sagt óhikað: mér þykja þær skemmtilegar. Arni Sigurjónsson Pú veist ekki af mér en ég stend héma samt Árni Bergmann skrifar Vigdís Grímsdóttir. Tíu myndir úr lífi þínu. Sögur um þykjustulciki og alvörudrauma. Metri - Svart á hvítu. Rcykjavík 1983. Ein þessara „mynda" Vigdísar Grímsdóttur var leikin hjá Stúd- entaleikhúsinu á dögunum: þar var brugðið upp formálalaust hvers- dagsheimi móður og dóttur og ótta telpunnar í draumi um dauða móð- urinnar og von hennar í draumi um að pabbi sé kominn aftur og allt orðið gott. Og það mátti finna þann næmleika á aðstæður og hug- arflug sem við þær tengjast að hver sem heyrði hlaut að bíða með for- vitni eftír bók Vigdísar, fyrstu bók hennar. Og lesandinn verður ekki fyrir vonbrigðum. Höfundur „Tíu mynda“ þarf svo sannarlega ekki á neinum afsök- unum að halda í þá veru að hún sé byrjandi. Sögur hennar eru skrif- aðar af öryggi og mikilli sparsemi. Kynningar eru engar: við erum leidd rakleiðis á fund kvenna sem hafa orðið, stundum tvær í hverri mynd. Við lifum með þeim stutta stund, sem ekki er endilega atburð- arík, en er nægileg til að leyfa okk- ur að höndla heilt iíf í fáum orðum. Líf sællar frúar, sem er að halda upp á afmæli, líf drykkjukonu sem sætir barsmíð og nauðgun, líf konu sem vill skrifa en vantar „sérher- bergið", líf ekkju sem bíður eftir einhverjum sem aldrei kemur. Og á milli eru ágæt ljóð, sem tengjast hugblæ hverrar myndar. Vigdís fer oft með efni sem eru vel þekkt í nýlegum kvennabók- menntum og jafnréttisumræðu. Og þá er ástæða til að taka það sérstak- lega fram, hve vel hún kemst hjá því að fara auðveldar leiðir. Tökum dæmi. Önnur mynd sýnir efnaða frú og fyrirmyndar húsmóð- ur sem allt gengur í haginn hjá. Algengt að láta undan þeirri freistingu að rffa slíka konu út úr sjálfumgleðinni með beiskju og hörku. Vigdís lætur hana reyndar ekki í friði - en aðferðin við afh j úp- unina er einkar mild á yfirborðinu og kannski þeim mun sterkari. Annað dæmi: drykkjukonan margdrepna í fjórðu mynd er líka laus við þær grófu einfaldanir sem svo algengar eru upp úr fljóta- skriftum úr félagssálfræðinni. Vigdís Grímsdóttir Þriðja dæmi er tíunda mynd sem er af tveim konum í einni - og er önnur þræll í veruleikanum og hin baðar sig í nautn valdsins í þeim sama stóra banka - og það er borin fram sú velkomna spurning: hvað eiga þær sameiginlegt? Því það þyrfti ekki að klippa á marga þræði í sögunni til að úr yrði tvær sjálf- stæðar manneskjur á sama veru- leikaplani. Víða í þessum sögum er vikið að því, hvort fólk „ráði hlutskipti sínu sjálft" eins og þeir hafa til- hneigingu til að segja sem vel vegn- ar í lífinu („það er mér að þakka"), eða hvort félagslegar aðstæður taki af mönnum ráðin. Hvorug kenn- ingin fær að vera í friði í þessari bók. Það er að mfnu viti partur af styrk hennar. Fyrir nú utan það sem skiptir sköpum og fyrr var nefnt: næmi á aðstæður og fólk, hæfileiki til að eignast það frelsi sem mætti kalla að losna úr viðjum persónuleikans - geta komið sér fyrir á bak við hálflukt augu margra manngerða. áb

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.