Þjóðviljinn - 21.12.1983, Page 13

Þjóðviljinn - 21.12.1983, Page 13
Miðvikudagur 21. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Opið bréftil ritstjórnar Helgarpóstsins frá Súsönnu Svavarsdóttur Hugur og markaðstorg holdsins Þann 12. desember s.l. kom ég að máli við annan ritstjóra blaðs ykkar og bauð honum að skrifa rit- dóm um bókina „Sérherbergi“ eftir Virginiu Woolf, sem er nú, loksins, komin út í íslenskri þýðingu. Var ritstjóri þessi sammála mér í því að einkennilega lítið væri um það að konur skrifuðu ritdóma í blöðin og úr því þyrfti að bæta. Bað téður ritstjóri mig að koma með greinina næsta dag til þess að hún kæmist í blaðið 15. desember, sem ég og gerði. Þetta eintak Helgarpóstsins átti að fjalla um bókmenntir og ekki vantaði þáð, fjallað var um bók- menntir, en nær eingöngu um karl- abókmenntir. Tíu karlmenn skrif- uðu ritdóma um níu karlhöfunda og einn kvenhöfund. Þessi sami kvenhöfundur var kynntur í viðtali í sama blaði, sem er vissulega góðra gjalda vert, en hreint ekki nóg til að þið eigið skilið viður- kenningu frá Jafnréttisráði. Ég leitaði lengi að greininni um „Sérherbergi" og vildi alls ekki trúa því að þið hefðuð sannað kenningar og niðurstöður Virginiu Woolf með því að leggja til hliðar grein sem fjallar um bók hennar um nákvæmlega þetta efni, þ.e. að skrif karlmanna séu tekin fram yfir skrif kvenna. Allt kom þó fyrir ekki, greinin var ekki þarna. Á skrifstofu HP var mér sagt að henni hefði verið kippt út vegna einhvers annars efnis. Ég fór að skoða efni blaðsins betur, sem og eldri eintök HP og ég verð að segja sem er að ykkur færi best að leggjast í Pent- house eða Playboy og toga í spott- ann á ykkur. Ékki nóg með að öll bókmenntaumfjöllun blaðsins sé skrifuð af körlum og þeirra sjónar- miðum eingöngu þröngvað upp á Jesendur, ritstjórar, ritstjórnarfull- trúi og blaðamenn séu allir karlkyns, heldur takið þið eina karlabók fyrir og bókstaflega svið- setjið hana og í grein sem þið kallið „Einkamál“ kemur berlega í ljós hver afstaða ykkar til kvenna er. Þar skrifar greinarhöfundur: „Ég sé reyndar ekki hvernig stúlkan sem þarna bíður, líklega eftir Breiðholtsvagninum, er af guði gerð, því henni er vandlega pakkað inn í vetrarflíkur - Álafossúlpu, lopatrefil, skíðahúfu.“ Þetta sýnir, svo að ekki verður um villst að greinarhöfundur skoðar konuna Furður og fyrirbæri Furður og fyrirbæri nefnist bók, sem Erlingur Davíðsson hefur skráð og leiðir hann fram í bókinni þrjá kunna miðla, Einar Jónsson á Einarsstöðum í Reykjadal, Guðrúnu Sigurðardóttur frá Torfufelli og Önnu Kristínu Karls- dóttur, Seltjarnarnesi, og segja þau frá dulrænni reynslu sinni. Einnig segja frá: Erla Ingileif Björns- dóttir, Svanfríður Jónasdóttir, Frey- gerður Magnúsdóttir, Leó Guðmunds- son, Ásta Alfreðsdóttir, Sigríður Jó- hannsdóttir og Sigríður Pétursdóttir. Þetta er um 200 bls. bók. Útgefandi er Skjaldborg. eingöngu sem líkama, þar sem hann telur fötin ein hylja allan leyndardóm hennar. Mig undrar mest að svona maður skuli vera að leita sér að konu þegar hann getur keypt sér uppblásna gúmmídúkku til að fullnægja þeirri einu kröfu sem hann gerir til kvenna. Mér varð litið á eldri eintök HP og sá að svona umfjöllun er bara ykkar tegund af „KLASSÍK'". Þið hafið kitlað sjálfa ykkur með grein- um um líkamlega tilveru kvenna aftur og aftur. Fyrir stuttu með mjög sjúklegri grein um vændi og í sumar birtuð þið viðtal við hám- enntaða konu, sem stendur hverj- um ykkar jafnfætis, undir fyrirsögn sem hljóðaði eitthvað á þessa leið: „Kynhvötin hefur alltaf verið stór þáttur í lífi mínu.“ Viðtalið sjálft átti ekkert skylt við þessa fyrirsögn fyrir utan það að vera asnalega og illa unnið. Fyrirsagnir þessara tveggja greina sem ég hef tekið hér sem dæmi, æptu á mann af forsíð- um blaðsins. Þið voruð hreinlega að selja þessar konur! En svo ég víki aftur að bók- menntablaði HP sem út kom 15. desember, þá tók steininn fullkom- lega út, þegar birtir voru kaflar úr ÓSELDU BÓKARHANDRITI höfundar sem hefur verið sekur fundinn í undirrétti um klámskrif. Þótt endalaust sé hægt að undrast yfir slíkum dómi hjá þjóð sem býr við stjórnarskrárbundið ritfrelsi verður manni þó að spyrja: Hvað lá á að fjalla um þessa tilvonandi bók, þegar næg skrif voru til um bækur sem þegar eru á markaðn- urn? Margumræddur ritstjóri bauð mér að sjá urn skrif um kvennabók- menntir í Helgarpóstum framtíðar- innar. Égþakka, en ykkar tittlinga- vettvangur er ekki rétti staðurinn fyrir heiðarleg og fordómalaus skrif á jafnréttisgrundvelli. Súsanna Svavarsdóttir Fjörog frískir vödvar Vaxtarræktarbók fyrir fólk á ollurn aldri. Fjöldi skýringarmynda er í bókinni. Tilvalin jólagjöf fyrir kyrrsetufólk. Styrkið líkamann í skammdeginu. y ® Skjaldborg Bordstofuhusgögn sem borgar sig að skoða betur Efni: Bæsuð eik íslensk framleiðsla Veljum vandað - veljum íslenskt HÚSGAGNAVERSLUN GUÐMUNDAR Smiðjuvegi 2, sími 45100 Trésmiðjan Síðumúla 23, sími 39700 Gísti Rafnsson og > Sigurður Gesísson tóku bókina saman

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.