Þjóðviljinn - 21.12.1983, Side 16
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 21. desember 1983
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Árshátíð og þorrablót
Árshátíð og þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður laugardaginn
28. janúar 1984. Þegar eru bókanir farnar að berast og eru menn hvattir til
að skrá sig fyrir miðum sem allra fyrst. í fyrra komust færri að en vildu.
Dagskrá og skemmtiatriði auglýst siðar. - Skemmtinefnd ABR
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Opið hús
Opið hús verður í Skálanum (Strandgötu 41) á Þorláksmessu
frá kl. 17.00.
Kaffi, kókó, heitar vöfflur. Fáum okkur hressingu í jólaamstrinu i
og hittum félagana. — Stjórnin.
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Skrifstofan opin
Alla þriðjudaga og fimmtudaga verður skrifstofa Æskulýðsfylkingar-
innar opin frá kl. 17-18.30, í flokksmiðstöðinni, Hverfisgötu 105. |
Áhugafólk er hvatt til að líta við eða hringja, síminn er 17500.
Stjórnin.
Stangveiðin er drjúg tekjulind
Borgum 6 miljónir
fyrir Norðurá
segir formaður
Stangveiðifélags
Reykjavíkur
Við erum opnir fyrir nýjung-
um í laxarækt og hafbeit á laxi,
sagði Ólafur G. Karlsson for-
maður Stangveiðifélags
Reykjavíkur í samtali við Þjóð-
viljann, og við teljum að blanda
mætti saman stangveiði og haf-
beit í sumum ám. En ég er
hræddur um að bændur myndu
ekki hagnast af því að leggja
niður stangveiðina.
Tilefni samtalsins var viðtal sem
birtist við Úlfar Antonsson vatna-
líffræðing hér í blaðinu síðastliðinn
fimmtudag þar sem hann hélt því
m.a. fram að tvöfalda mætti nýt-
ingu laxveiðiáa með breyttum
veiðiaðferðum. Ólafur sagði að
ekki væri rétt að taka eingöngu
veiðileyfi útlendinga inn í dæmið
þegar arður væri reiknaður af lax-
veiðinni og nefndi sem dæmi að
Stangveiðifélag Reykjavíkur
myndi greiða 6 miljónir króna fyrir
veiðileyfi í Norðurá í Borgarfirði
einni saman á næsta ári.
Ólafur taldi hafbeitina áhættu-
sama þar sem afföll væru oft svo
mikil. Hins vegar tækju stangveiði-
menn á sig áhættuna og keyptu
veiði sem oft væri sýnd en ekki gef-
in. Hann sagði einnig að hæpið
væri að taka mið af Elliðaánum,
því þótt þær hefðu verið fullar af
laxi eftir að veiðitímabilinu lauk í
haust, þá hefði t.d. verið lítið af
laxi í ám á Vesturlandi undanfarin
haust og áberandi lítil laxagengd
hefði verið í ár á norðausturlandi.
Þá sagði Ólafur það misskilning
hjá Úlfari að Færeyingar veiddu
bara stærri lax úr sjó en íslandslax-
inn, þar sem þeir hentu öllum þeim
laxi, sem næði ekki máli. Sagði
Ólafur að Stangveiðifélagið væri
alfarið á móti laxveiðum í sjó og
hefði gert sérstaka samþykkt þar
að lútandi. ólg. i
Samvinnusjóðurinn hf.
Fær góðan byr
Fyrsti reglulegi aðalfundur Sam-
vinnusjóðs íslands var haldinn
hinn 24. nóv. sl. Sjóðurinn var
stofnaður 18. nóv. 1982 af 52 aðil-
um: Sambandinu, 37 kaupfélögum
og 14 samstarfsfyrirtækjum.
Sjóðurinn hefur engan sérráðinn
starfsmann en Samvinnubankinn
annast bókhald hans og fjárreiður.
Söfnun hlutafjár hefur gengið vel.
Sjóðurinn hefur gerst hluthafi í
fyrirtækinu Marel hf. og ýmislegt
hefur verið í athugun svo sem að
sjóðurinn veiti Sambandinu og
Kaupfélagi Skagfirðinga lán til
fyrirhugaðra hlutafjárkaupa þeirra
í steinullarverksmiðju á Sauðár-
króki. Kaupleiguviðskipti eru
mjög á dagskrá hjá sjóðnum, og er
að því stefnt að hefja þau svo fljótt
sem kostur er.
Stjórn Samvinnusjóðsins skipa:
Þorsteinn Ólafsson fulltrúi
Reykjavík, Finnur Kristjánsson,
fv. kaupfél.stj. Húsavík, Benedikt
Sigurðsson, Samvinnutryggingum,
Árni S. Jóhannsson, kaupf.stj.
Blönduósi, og Þorsteinn Sveins-
son, kaupf.stj. Egilsstaðakaup-
túni. - mhg. |
Alafoss upp
úr öldudalnum
Eins og fram kom í fréttum hér
í blaðinu fyrir nokkru var
allmörgum starfsmönnum á
Álafossi sagt upp vinnu vegna
þess hve illa horfði þá um sölu á
framleiðsluvörum verksmiðj-
unnar.
Nú hafa horfur í markaðsmálun-
um sem betur fer batnað og síðustu
dagana hefur fólk verið ráðið til
starfa á ný. Mun nú svo komið að
starfsmenn hjá Álafossi eru orðnir
álíka margir og þeir voru áður en til
uppsagnanna kom. - mhg. j
Konunga-
leíkrít
Shake-
speares
Almenna bókafélagið er eins og
kunnugt að gefa út heildarútgáfu af
leikritum Shakespeares 8 bindi í
þýðingu Helga Hálfdanarsonar.
Gefur félagið leikritin út í bóka-
flokki sínum Úrvalsrit heimsbók-
menntanna. Annað bindið í þess-
um bókaflokki er nýkomið út og
hefur það að geyma leikritin Hinr-
ik sjötta, fyrsta leikrit, Hinrik
sjötta, annað leikrit, Hinrik sjötta,
þriðja leikrit, og Ríkharð þriðja.
Þessi konungaleikrit eru sífellt á
fjölunum erlendis, bæði í Bretlandi
og víðar, og hér heima mun eiga að
sýna Ríkarð þriðja innan skamms.
Leikritin þrjú um Hinrik sjötta
eru talin meðal fremstu verka
Shakespears og Ríkarður þriðji
mun samið 1592 eða 93. Þessi
leikrit eru öll reist á sögulegum
heimildum, þótt höfundur fari í
ýmsum atriðum frjálslega með efn-
ið.
Þessi konungaleikrit Shakespe-
ares eru öll stórbrotin og skemmti-
leg hvort heldur horft er á þau á
leiksviði eða þau lesin. Um snill-
darþýðingu Helga Hálfdanarsonar
þarf ekki að spyrja.
Laxveiðimenn
segja frá
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
hefur sent frá sér bókina: Varstu að
fá hann? eftir Guðmund Guðjóns-
son blaðamann og hefur bókin að
geyma viðtöl við 17 kunna laxveiði-
menn sem segja frá ýmsu ævintýra-
legu sem þá hefur hent í laxveiðum.
Varstu að fá hann? er spurning
sem hljómar títt þegar laxveiði-
menn hittast og þeirri spurningu
geta viðmælendur höfundar svarað
játandi, þar sem þeir hafa lent í
glímum við stórlaxa, hvort sem
þeir hafa komið á land eða ekki.“
Sumir segja að laxveiðimönnum
hætti til að ýkja, en það er ómót-
mælanlegt að mörg ævintýri hafa
gerst í laxveiðum á íslandi og það
sem hljómar eins og lygasaga er
oftast heilagur sannleikur", segir í
bókarkynningu.
Bókin er mjög myndskreytt og
er hún í stóru broti.
s
Islensk
málfræði
Iðunn hefur gefið út nýja, endur-
skoðaða útgáfu af íslenskri mál-
fræði eftir Kristján Árnason, lekt-
or við Háskóla íslands. Er þetta
önnur útgáfa bókarinnar sem út
kom í fyrsta sinn fyrir þremur
árum. Nú hefur höfundur gert
nokkrar breytingar á bókinni, úr-
fellingar, viðbætur og leiðrétting-
ar, og er það gert samkvæmt þeirri
reynslu sem fengist hefur af notkun
bókarinnar og eftir ábendingum
frá kennurum.
Kvöld-
gestir
Jónasar
Kvöldgestir Jónasar Jónassonar
eru eitthvert vinsælasta útvarps-
efni, sem flutt hefur verið hin síðari
ár. Nú birtist úrval samtala úr þess-
um síðkvöldsþáttum í bók, frá
bókaútgáfunni Vöku.
í bókinni ræða 15 kvöldgestir
Jónasar Jónassonar opinskátt um
líf sitt, reynslu og áhugamál og
segir á bókarkápu, að gestirnir
njóti sín ekki síður á prenti en á
öldum ljósvakans. Mikill fjöldi
mynda af fólkinu og ýmsu, sem því
tengist, er birtur í bókinni og gefur
efninu aukið gildi.
Guðni Kolbeinsson, rithöfundur
og íslenskufræðingur, hefur búið
þetta vinsæla útvarpsefni til prent-
unar.
Ættartölu-
bók Jóns
Halldórssonar
Sögusteinn-bókaforlag hefur
sent frá sér Ættartölubók séra Jóns
Halldórssonar í tveimur bindum, í
ritsafninu íslenskt ættfræðisafn.
Bókin er ljósprentuð eftir handriti
séra Ásgríms Vigfússonar Hellna-
prests frá 1795, og er samtals um
410 bls.
Jón Halldórsson fæddist í
Reykholti í Borgarfirði 1655. Hann
vígðist að Hítardal sumarið 1692 og
var þar prestur til æviloka 1736.
Ættartölubók séra Jóns Hall-
dórssonar er með merkustu ættar-
tölubókum okkar. - Ekki er ástæða
til að fjölyrða um það, en að lokum
er rétt að vitna í ummæli Hannesar
Þorsteinssonar sem öllum öðrum
var kunnugri handritinu, enda var
það í eigu hans um áratugi. Hannes
segir: „Ættartölur þessar eru mjög
Fjör og
frískir
vöðvar
Fjör og frískir vöðvar - Vaxtar-
rækt fyrir konur og karla, er ein af
bókum Skjaldborgar á þessu ári.
Höfundur er Svíinn Andreas
Chaling, sem hlotið hefur
Heimsmeistaratitil. Gísli Rafnsson
og Sigurður Gestsson tóku bókina
saman. Um 120 ljósmyndir til skýr-
ingar fylgja æfingunum. Bók þessi
hentar jafnt þeim, sem vilja byrja
að stunda vaxtarrækt og þeim sem
lengra eru komnir. Hún hentar líka
þeim, sem hugsa sér að keppa og
ná langt, alveg upp á toppinn.
Einnig hentar hún vel öllum þeim,
sem vilja hugsa um og styrkja lík-
ama sinn og halda sér í góðu líkam-
legu ástandi, sem sagt öllum al-
menningi. Ekki skiptir heldur máli
hvort æft er heima eða í æfingar-
stöð.
Sakamála-
sagan Tilræðið
Út er komin sem aukabók hjá
Bókaklúbbi Almenna bókafélags-
ins skáldsagan Tilræðið eftir
danska höfundinn Poul-Henrik
Trampe. Sagan gerist í Kaup-
mannahöfn. Þingmaður er skotinn
til bana í þinginu og skotið hefur
komið ofan af þingpöllunum. Snýst
sagan einkum um afar spennandi
leit að hinum seka.
Poul-Henrik Trampe var einn af
fremstu sakamálahöfundum Dana,
fæddur 1944. Hann lést síðast liðið
sumar, týndist af ferjunni milli Os-
Ióar og Kaupmannahafnar eins og
frægt var í sínum tíma.
nákvæmar og áreiðanlegar, og
halda margt sem hvergi finnst ann-
arsstaðar". (Annálar II 588). Er
hérmeð auðsæ ástæða þess að
Sögusteini-bókarforlagi þótti
ástæða til að koma ættartölum sér
Jóns Halldórssonar á framfæri við
áhugamenn um íslenska ættvísi".