Þjóðviljinn - 21.12.1983, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 21.12.1983, Blaðsíða 20
UODVHUNN Miðvikudagur 21. desember 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra startsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt aö ná í afgreiðslu blaösins í sima 81663. Prentsmiðjan Prenl hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Almennur borgarafundur á Flateyri: Engar radarstöðvar á Vestfirði Á almcnnum borgarafundi sem haidinn var á Flateyri fyrir skömmu var samþykkt eftirfarandi ályktun: „Almennur borgarafundur á Flat- eyri lýsir yfir andstöðu sinni við þær hugmyndir, sem nú eru uppi um aukin hernaðarumsvif á Is- landi. Jafnframt skorar fundurinn á Alþingi og ríkisstjórn íslands að heimila ekki uppsetningu þcirra radarstöðva, sem nú er rætt um að bandaríska hernum verði heimilað að reisa, m.a. á Vestfjörðum.“ Flutningsmenn þessarar tillögu á fundinum voru úr fjórum stjórnmálaflokkum, þar á meðal einn Sjálfstæðismaður. Þegar til- lagan kom fram á fundinum varð uppi fótur og fit hjá öðrum Sjálf- / stæðismönnum og gerðu þeir hvað þeir gátu til að koma í veg fyrir að tillagan kæmi til atkvæða. Oddvit- inn á staðnum bar fram frávísun- artillögu, sem var snarfelld. Þá misnotaði fundarstjórinn, sem var Sjálfstæðismaður, aðstöðu sína og óskaði tvívegis eftir því að tillagan yrði dregin til baka. Þegar það fékkst ekki heldur tóku þeir íhalds- menn það til bragðs að halda uppi málþjófi í eina og hálfa klukku- stund og marg braut fundarstjóri fundarsköp meðan á því stóð. Þegar ekki varð komið í veg fyrir að tillagan yrði borin undir at- kvæði, hvorki með bolabrögðum eða málþófi, var það gert og hún samþykkt sem fyrr segir. Allir þeir sem greiddu atkvæði gegn henni voru Sjálfstæðismenn. Það sem íhaldinu svíður sárast, að sögn Guðvarðar Kjartanssonar á Flateyri, er að Þorvaldur Garðar kallaði Flateyri höfuð vígi Sjálf- stæðisflokksins á Vestfjörðum í kosningabaráttunni í vor er leið. Þótti þeim sárt til þess að vita að þaðan kæmi tillaga, samþykkt á borgarfundi, þessa efnis. -S.dór Blysför á Þorláksmessu: s Island gegn kjarnorkuvá Fjölmargar friðarhreyfingar taka saman höndum „Island gegn kjarnorkuvá“ er yfirskriftin á blysför sem fjölmörg félagasamtök á höfuðborgarsvæð- inu standa fyrir á Þorláksmessu. Gengið verður undir blysum frá Hlemmi niður á torg og hefst gangan kl. 17.30. Þeir sem standa að göngunni eru: Friðarhópur ein- stæðra foreldra, Friðarhópur fóstra, Friðarhópur innan Sam- taka herstöðvaandstæðinga, Friðarhópur þjóðkirkjunnar, Friðarhreyfing íslenskra kvenna, Samtök lækna gegn kjarnorkuvá og Samtök eðlisfræðinga gegn kjarnorkuvá. „Ég vonast til þess að sem flestir mæti í þessa göngu og taki undir með okkur í þeirri kröfu að stór- veldin láti af hinu gegndarlausu vígbúnaðarkapphlaupi,“ sagði Þorkell Sigurbjörnsson fulltrúi Friðarsamtaka listamanna í samtali við Þjóðviljann í gær. Þorkell sagði að það hefði orðið að samkomulagi hjá þeim sem að göngunni standa að sleppa öllum ræðuhöldum og meiriháttar slagorðum. „Við höf- um hinsvegar fengið Hamrahlíð- arkórinn og Háskólakórinn til að syngja nokkur lög á meðan á göng- unni stendur. Þá er í ráði að leikhópar verði með sérstaka dag- skrá. Allir þeir aðilar sem taka þátt í þessu hafa staðið að samningu sérstaks ávarps sem dreift verður til almennings,“ sagði Þorkell. Gangan hefst eins og áður segir kl. 17.30 á Þorláksmessu þ.e. á þeim tíma þegar hvað flestir eru á ferli í miðbænum. Þeir sem hyggj- ast taka þátt í blysförinni munu fá blys í hendur á Hlemmi stuttu áður en lagt verður af stað. -hól. í gær var undirbúningur fyrir blysförina í fullum gangi og gengið úr skugga um að blysin væru í góðu lagi. Áœtlun Pentagon um stýriflaugar á íslandi: Óska skýringa frá sendiráðinu segir Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra - Ég hef ekki lesið þessa grein í Sunday Times og hef þess vegna ekki annað en frásögn Þjóðviljans á að byggja. Samkvæmt henni gæti þetta allt að eins verið sama fréttin eins og birtist í sjónvarpinu og Þjóðviljanum fyrir rúmum mán- uði. Sunday Times gæti að þessu leyti verið seinna á ferðinni en ís- lenskirfjölmiðlar. Ég hef óskað eftir upplýsingum og skýringum hjá bandaríska sendiráðinu hér. Með- an ég hef hvorki fengið grein Sund- ay Times né þær upplýsingar þá er ekkert sérstakt um þetta að segja. Megurinn málsins er þó sá, hvað sem þessu líður, að við íslendingar höfum ákvarðanavaldið í okkar höndum, hvers konar vígbúnaður er uppi hafður hér á landi. En þú hefur þá fullar sönnur, miðað við þær upplýsingar sem þú fékkst hjá bandaríska sendiherran- um á sínum tíma, að þcssi mál séu alls ekki á dagskrá í Pentagon? - Það er það sem mér hefur verið tjáð. Finnst þér eðlilegt að verið sé að ræða vígbúnaðarmál í Pentagon sem varða ísland, án þess hérlend stjórnvöld hafi nokkra vitneskju um það? - Eg tel eðlilegt að við fylgjumst með öllu sem okkur snertir. Við höfum því miður ekki fylgst nægi- lega vel með. Það er ekkert um þetta meira að segja frá rnínu sjón- armiði fyrr en ég hef haft aðstöðu til að kynna mér amk. grein Sun- day Times. En myndir þú nokkurn tíma fall- ast á uppsetningu slíkra stýriflauga hér? - Þú skalt lesa bara þingtíðindin. En svona til áréttingar...? - Þú mátt birta það sem ég segi um málið þar, sagði Geir Hall- grímsson utanríkisráðherra. -Ig- Ólafur P. Pórðarson Henti þingskjölum og skellti hurðum Mikið gekk á í sal neðri deildar alþingis í fyrrinótt þegar Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðis- flokksins var að hefja framsögu fyrir frumvarpi formanna stjórnmálaflokkanna um brcyting- ar á lögum um kosningar til Alþing- is. Samkomulag hafði náðst milli þingflokkanna um að mælt yrði fyrir frumvarpinu fyrir þinghlé, en Framsóknarmenn voru lengi ósátt- ir við þá'málsmeðferð og Ólafur Þ. Þórðarson þingmaður Framsóknar á Vestfjörðum barði í borðið og óskaði eftir að fá að taka til máls að lokinni framsögu Þorsteins. Ingvai Gíslason forseti neðri deildai neitaði Ólafi um orðið, sem óskað: þá eftir að fá að ræða þingsköp. Enn á ný neitaði Ingvar flokks- bróður sínum um orðið. Brásl Ólafur reiður við, henti þings- kjölum sínum út um sal neðri deildar, stóð upp og arkaði út úi salnum. Skellti hann hurðum svo undir tók í þinghúsinu. Ólafui strunsaði síðan rakleiðis út úr þing- húsinu og skellti einnig harkalega hinni stóru aðalhurð þinghússins. -Ig- Happdrætti Þjóðviljans Enn er hægt að gera skil! Dregið hefur verið en númerin innsigluð hjá borgarfógeta. Vinningsnúmerin birt innan skamms. ... Greiða má með gíró 6572 í aðalbanka Alþýðubankans Laugavegi 31

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.