Þjóðviljinn - 26.01.1984, Side 3
»HV’ ' • - ' ' t/ vV-'V'.V.’"'.’ * e K ■’*1 .* • •’s ' J :* - .
Fimmtudagur 26. janúar 1984 ÞJOÐVÍLJINN — SÍÐA 3
Starfsmenn í skautsmiðju
svöruðu Sverri í gærkvöldi
Verkamenn í Straumsvík
gerðu hlé á störfum sínum síð-
degis í gær, meðan iðnaðarráð-
herra Sverrir Hermannsson
flutti þeim boðskap sinn í
launamálum. Mikil undrun og
reiði greip starfsmenn Áivers-
ins að ávarpi ráðherra loknu og
voru menn á einu máli að þessar
yfírlýsingar hefðu ekki orðið til
annars en þjappa verka-
mönnum enn fastar saman í
kröfum sínum nú þegar dregur
að boðuðu verkfalli.
Eftirfarandi yfirlýsing barst
Þjóðviljanum í gærkvöldi frá
starfsmönnum sem þá voru á vakt í
skautsmiðju Álversins.
„Við starfsmenn í skautsmiðju
(ISAL) viljum koma á framfæri
þakklæti til (háttvirts) iðnaðarráð-
herra fyrir orð þau er hann lét falla
í útvarpsviðtali í dag, í garð starfs-
manna íslenska álfélagsins þar sem
Starfsmenn álverksmiðju Alusuisse hafa ætíð getað staðið saman þegar á hefur reynt. Á miðnætti í kvöld
leggja þeir niður vinnu nema samningar hafí tekist. Ljósm. eik.
iðnaðarráðherra lét í ljós stuðning
með erlendum auðhring gegn ís-
lensku verkafólki í
bættum lífskjörum.
baráttu fyrir Eftir áðurnefnt viðtal greip um
sig mikil reiði og undrun meðal
starfsmanna yfir því, að maður sem
á að heita ráðherra láti slík orð falla
sem hann gerði í áðurnefndu við-
tali. En afleiðing orða hans urðu
þess valdandi, að samstaða verka-
manna efldist til muna í kjarabar-
áttunni. Sætir það undrun að ráð-
herra skuli ekki hafa meiri innsýn í
þessi mál sem rætt var um en raun
ber vitni.
Gaman væri að vita hvort svona
orð hafi verið töluð þegar hann átti
að heita forsvarsmaður launþega,
þegar hann hefur í hótunum um
valdbeitingu, og innsýn hans virð-
ist ekki meiri í kjaramál en þekking
hans á réttritun.
Að endingu viljum við taka fram
að byrjunarlaun hjá ófaglærðum
verkamanni hjá ÍSÁL eru á bilinu
frá 12.886 kr. - 15.214.
Virðingarfyllst,
Pétur Jónsson
Þór Mýrdal
Ævar Agnarsson
starfsmenn á vakt
í skautsmiðju ÍSAL.“
Hin hliðin á ríkisstjórninni:
Bætír kjör hínna ríku
Stjórnarfrumvarp um 7500 kr. á mánuði
til efnamanna, sagði Ragnar Arnalds
- Það er áberandi einkenni þess-
arar ríkisstjórnar hvernig hún hef-
ur beitt meiri kjaraskerðingu en
dæmi eru um gagnvart almennu
launafólki á sama tíma og hún
stendur fyrir lagasetningu til að
bæta kjör þeirra sem allra best eru
settir í þjóðfélaginu, sagði Ragnar
Arnalds þingflokksformaður Al-
þýðubandalagsins á alþingi í gær
þegar frumvarp ríkisstjórnarinnar
um skattaívilnanir til efnameiri ein-
staklinga og fyrirtækja var til um-
ræðu.
Albert Guðmundsson fjármála-
Neyðarástand í hjúkrunarmálum í Grundarfirði
Læknir varð að ganga
20 kflómetra langa leið
- Hér á Grundarfirði ríkir algjört
neyðarástand í heilsugæslumálum
og má ncfna sem dæmi að sl. mánu-
dag varð Pálmi Frímannsson hér-
aðslæknir í Stykkishólmi að ganga
20 kflómetra leið til að geta þjónað
sjúklingum hér í plássinu, sagði
Ingi Hans Jónsson fréttaritari
Þjóðviljans í Grundarfírði.
Alþingi samþykkti í fyrra að í
Grundarfirði skyldi starfrækt svo-
kölluð H-1 heilsugæslustöð sem
þýðir að þar skuli vera starfandi
einn læknir og einn hjúkrunarfræð-
ingur. Hvorugt starfið er mannað í
dag og hefur svo verið síðan í ágúst
í fyrra. Hefur héraðslæknirinn í
Stykkishólmi farið þrisvar í viku
inn til Grundarfjarðar en í ófærð-
inni núna hefur það brugðist hvað
eftir annað að hann kæmist.
- í haust hafnaði fjárveitinga-
nefnd því að við fengum að ráða
hingað lækni sem er þó skylt lögum
samkvæmt og einnig er búið að
taka af okkur fjárveitingu til að
ráða hingað hjúkrunarfræðing.
Heimamenn hafa hins vegar
ákveðið að hafa það að engu og-
auglýst eftir hjúkrunarfræðingi til
starfa hér, sagði Ingi Hans enn-
fremur.
- Þegar Pálmi héraðslæknir var á
hinni löngu göngu sinni til að líkna
Grundfirðingum átti hann leið
fram hjá bænum Eiði, en í sömu
mund vildi svo til að bóndinn þar
slasaðist á hendi og var útlit fyrir að
hann missti fjóra fingur. Algjör til-
viljun réð því að héraðslæknirinn
átti leið um og því gat hann gert að
sárum bónda sem aðeins missti
framan af einum fingri fyrir bragð-
ið. Þetta er til marks um það ástand
sem hér ríkir og heimamenn lýsa
ábyrgð á hendur stjórnvalda á því
hvernig komið er, sagði fréttaritari
Þjóðviljans í Grundarfirði að lok-
ráðherra mælti fyrir þessu frum-
varpi í efri deild alþingis í gær, en
áður hafði það verið kynnt á fundi
Verslunarráðsins fyrr í vetur eins
og Þjóðviljinn sagði frá á sínum
tíma. Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins kynnti frum-
varpið þar.
7500 króna gjöf
til hinna ríku
Þetta er hin hliðin á ríkisstjórn-
inni, sagði Ragnar. Að minnka
tekjur sameiginlegs sjóðs lands-
manna með því að gefa hátekju-
mönnum. í frumvarpinu væri gert
ráð fyrir að arður af hlutafjáreign
hjóna verði t.d. frádráttarbær allt
að 10% nafnverði hlutabréfa eða
hluta, allt að 50.000 krónum. Þá
verður heimilt að draga frá tekjum
sínum árlega aukningu á fjárfest-
ingu f atvinnurekstri allt að 40.000
krónum hjá hjónum. Þetta sam-
svarar um 7.500 króna gjöf úr ríkis-
sjóði til hátekjumanna á mánuði,
sagði Ragnar Arnalds.
Þá er lagt til að hlutafjáreign
verði heimilt að draga frá eignum
einstaklinga við álagningu eigna-
skatts allt að 500.000 krónum hjá
hjónum sem þýðir 5000 króna eftir-
gjöf á ári til hátekjumanna.
Hjá fyrirtækjunum sjálfum er
gert ráð fyrir enn meiri eftirgjöf af
ýmsu tagi. Sagði Ragnar að með
hinum nýju reglum væri verið að
opna alls konar glufur á skattaregl-
um til að auðvelda mönnum í fyrir-
tækjarekstri að draga undan fé í
ríkari mæli en þekkst hefur.
Brot á Iögum
Þá kvað Ragnar Arnalds fráleitt
að leggja þetta frumvarp fram án
þess að geta þess hve tap ríkissjóðs
yrði mikið. Viðurkennt er í frum-
varpinu að ríkissjóður komi til með
að tapa fé á frumvarpinu ef það
verður að lögum. Benti Ragnar á,
að framlagning frumvarpsins sem
felur í sér slíka skerðingu á tekjum
ríkisins væri brot á gildandi lögum,
þar sem kveðið er á um að upphæð-
ir verði að fylgja með í slíkum
frumvörpum.
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra og Eyjólfur Konráð Jóns-
son kváðu nauðsynlegt að málið
yrði afgreitt sem allra fyrst og boð-
aði Eykon fjárhags- og viðskipta-
nefnd deildarinnar á fund þegar í
morgun. -óg
Keðjurnar renna út
Gífurleg sala hefur verið í fólks-
bílakeðjum á höfuðborgarsvæðinu
þessa síðustu ófærðardaga. Er nú
svo komið að einungis örfáar versl-
anir eiga þennan eftirsótta varning,
en parið kostar á bilinu 1750 til
2800 eftir dekkjastærðum.
„Það hefur verið rosaleg sala í
þessu eins og eðlilegt er“, sagði einn
afgreiðslumaður í varahlutaversl-
un í samtali við Þjóðviljann í gær.
„Við leystum út keðjur úr tolli í dag
og verðum að gera það aftur á
morgun, en birgðirnar fara að
minnka.“ Þess má geta að keðjurn-
ar endast ekki lengi hjá þeim sem
mikið keyra, 3 dagar eru hámark
að sögn eins leigubílstjóra, sem við
ræddum við í gær.
-ÁI
STÓRMARKADSVERÐ
Gerið verðsamanburð
Leyft Okkar
Þykkvabæjar verð verð
franskar kartöflur 750 gr. 64.65 48.50
Þykkvabæjar Parísar 750 gr .... 57.95 43.50
Ritzkex 37.40 29.70
Kellogs kornflex 1 kg .... 109.00 81.75
Coop kornflex 750 gr. 78.80 59.15
Coop tómatsósa .... 31.05 23.30
Hveiti Juvel 2 kg. 29.00 24.90
Strásykur 2 kg. 40.65 29.00
Gevalía kaffi 31.00 24.90
Ananas 567 gr. 43.00 31.80
Leni wc pappír 4 stk. 52.30 41.60
Leni eldhúsrúllur 2 stk. 47.60 36.70
Brugsen Nyvit þvottaefni 3 kg. 157.40 124.90
Kjúklingar tilboðsverð 1 kg. kr. 115.50 Þorramatur, þorrabakkar
Opið:
Mánud.-miðvikud.
9-18
Fimmtudaga 9-19
Föstudaga 9-21
Laugardaga 916
STORMARKAÐURINN
Skemmuvegi 4A Kópavogi