Þjóðviljinn - 27.01.1984, Blaðsíða 1
janúar 1984
föstudagur
49. árgangur
22. tölublað
„ViS áskiljum okkur allan rétt ef iðnaðarráðherra lætur orð sín eftir ganga“. Ásbjörn Vigfús-son trúnaðarmaður starfsmanna í kerskálum Aiversins lýsir stöðunni á fundi með starfsmönn
um síðdegis í gær. Þjóðviljamynd - eik.
VERKFALL
„Það hefur sýnt sig að hér fœst ekkert í gegn nema rrieð verkfalli.
Verkfall er það eina sem þessir menn skilja. Við rísum upp núna, það
er einungis spurning hvenærþolinmæðin þrýtur hjá öðru launafólki, “
sögðu starfsmenn í Straumsvík á fundum sínum í gær.
Ummœli iðnaðarráðherra Sverris Hermannssonar hafa blásið mikilli baráttu í
verkamenn, sem segjast ekki œtla að sitja og standa eins og þessi ráðherra boði.
Engu líkara sé aftali hans en hann sé einn af éigendumfyrirtœkisins. „Mérfinnast
þessi ummœli ráðherra alveg forkastanleg. Pessi maður er ekki hœfur til að sitja á
ráðherrastóli. Ég lýsi fyllsta vantrausti á þennan mann“, sagði einn starfsmanna
Álversins í gær.
Straumsvík. Eigendur fyrirtækisins
völdu að haldið yrði heitu á
bræðslukerjum í stað þess að
slökkva undir þeim.Þarsem verka-
lýðsfélögin eru bundin af því í
samningum að ekki verði skemmd-
ir á framleiðslutækjum álversins,
eru nú 13 starfsmenn við eftirlits -
störf í kerskálunum.Verður þeirri
skipan haldið fram á laugar-
dagsmorgun en þá verða kallaðar
út aukavaktir til að áltaka kerin og
skipta um skaut.
Á fundum sem trúnaðarmenn
verkalýðsfélaganna héldu með
starfsmönnum í Álverinu í gær
kom fram að starfsmenn eru til-
búnir í langa baráttu ef á þarf að
halda.
Sjá frásögn af fundi starfs-
manna og samtöi við
starfsmenn á bls. 3.
Hótanir iðnaðarráðherra Sverris
Hermannssonar í garð starfsmanna
í Straumsvfk eiga ekki minnstan
þátt í samstöðu þeirra hundruða
starfsmanna fyrirtækisins sem hófu
verkfall vegna launadeilna við fyr-
irtækið á miðnætti sl. nótt.
Þetta er í fyrsta skipti sem alls-
herjarverkfall skellur á í Álverinu í
Hitaveita Reykjavíkur
Líffræðingar
svara Hafrann-
903% hækkun
á fjórum árum
Rafmagnsveita Reykjavíkur hefur
hœkkað um 868% á sama tíma
Á síðustu fjórum árum hefur
vatnið hjá Hitaveitu Reykjavíkur
hækkað um 903% og rafmagns-
verð Rafmagnsveitu Reykjavíkur
um 868% á sama tíma og laun hafa
hækkað um 345% og byggingarvís-
itala um 474%. Segja þeir sem gerst
vita að verð á heitu vatni frá Hita-
veitu Reykjavíkur hafi ekki verið
hlutfallslega hærra síðan árið 1955.
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá á
dögunum hækkaði heita vatnið hjá
HR um 119% á síðustu 12 mánuð-
um en heimtaugagjaldið um rúm
70%. Þessar tölur voru lagðar sam-
an í fréttinni en ber að halda að-
skildum, nóg er það nú samt.
Það vekur athygli á sama tíma
sem þessar hrikalegu hækkanir
urðu hjá HR var henni gert að skila
11 miljónum króna til borgarsjóðs
að kröfu Alþjóða gjaldeyrissjóðs-
ins fyrir árið 1983. Þá hefur Hita-
veita Reykjavíkur byggt yfir starf-
semi sína eitt af stærstu og giæsileg-
ustu húsum borgarinnar á sama
tíma og heita vatnið hefur hækkað
um 903%. Hún er einnig að greiða
fyrir mistök sem yfirmenn hennar
gerðu í kringum 1970 þegar farið
var út í tilraunastarfsemi við lagnir
í Fossvogshverfi og Breiðholt I,
lagnir sem nú eru ónýtar og verður
að endurnýja. _ S dór
Bls. 7
Álver við Eyjafjörð
Engar ákvarðanir
„Umræðan um álver við Eyja- álvers við Eyjafjörð. Hún sagði að
Qörð hefur skyggt á aðra og mikil- • Jón Sigurðarson formaður At-
vægari umræðu um atvinnumál á vinnumálanefndar hafi lagt á þetta
Akureyri. áherslu.
Rannsóknum á lífrfki fjarðarins Sigríður sagði að stefna Alþýðu-
er ekki lokið en niðurstöður þeirra bandalagsins varðandi byggingu ál-
eru forsendur þess að raunhæf um- vers yrðu grundvölluð á niðurstöð-
ræða um byggingu álvers geti haf- um rannsókna og því að tryggt yrði
ist. forræði íslendinga yfir iðjuverinu.
Signður Stefánsdóttir bæjar- Umræðan um álver við Eyja-
fulltrúi Alþýðubandalagsins á Ak- fjörð er ekki ný á Akureyri og Sig-
ureyri sagði í samtali við Þjóðvilj- ríður sagði að ekkert nýtt væri að
ann að Framsóknarmenn í bæjar- gerast í málinu annað en það að
stjórn gangi nú fram fyrir skjöldu Framsóknarmenn væru orðnir
og styðji við byggingu hugsanlegs meðmæltariþvíenfyrrhefðiverið.