Þjóðviljinn - 27.01.1984, Blaðsíða 2
2 SÍfiA - Þj'Ófi'VÍLjÍr^N L'öátudagur 27.'. janúár 1984
Fyllti tvo flutningabíla
Stolið frá Aðalverktökum
Starfsmaður Aðalverktaka
staðinn að verki með
fullan bílskúr af góssi
íslenska lögreglan á Keflavíkur-
flugvelli handtók á dögunum starfs-
mann íslenskra Aðalverktaka þar
sem hann var að bera birgðir af
kjöti úr mötuneyti fyrirtækisins í
bfl sinn um miðja nótt.
Starfsmaður þessi var nætur-
vörður hjá fyrirtækinu og hafði
sem slíkur aðgang að ýmsum húsa-
kynnum aðalverktaka á Keflavík-
urflugvelli. í vetur hefur orðið vart
við rýrnun á ýmsum vörutegundum
og verkfærum í eigu Aðalverktaka
á Vellinum. Fylgdist lögreglan því
með ferðum næturvarðarins í síð-
ustu viku og handtók hann er hann
kom klyfjaður út úr mötuneytinu.
Við leit í bílskúr næturvarðarins
við heimili hans í Keflavík fannst
mikið af verkfærum og öðrum
hlutum sem horfið höfðu úr húsa-
kynnum aðalverktaka. M.a. fannst
í bílskúrnum mikið af frystu kjöti,
byggingarefni, verkfæri, málning,
bensín í miklu magni og einnig vél-
avinnuspíri sem maðurinn hugðist
eima. Þurfti að flytja allt þýfið í
tveimur flutningabílum upp á völl
aftur.
Hljótt hefur verið um þessi tíð-
indi ofan af Velli og mun það stafa
af áskorun forstjóra fyrirtækisins
um að halda þjófnaðarmáli þessu
leyndu fyrir fjölmiðlum, vegna ál-
itshnekkis sem það gæti valdið
fyrirtækinu.
-lg-
íslenskir Aðalverktakar
Leyndinni verði aflétt
milli íslenskra aðalverktaka og
varnarliðsins;
Hverjir eiga íslenska Aðalverk-
taka, hvað um tollfrjálsan innflutn-
ing og annan innflutning tengdan
hernum? Lögð hefur verið fram
beiðni um skýrslu á alþingi með út-
listuðum svörum við spurningum
sem slíkum. Það eru þingmenn Al-
þýðuflokksins og Bandalags jafn-
aðarmanna sem leggja fram beiðn-
ina til utanríkisráðherra.
í skýrslunni eigi að koma fram
m.a.:
1. hverjir eru eignaraðilar í ís-
lenskum aðalverktökum, ann-
aðhvort beint eða gegnum
önnur félög, og í hvaða hlut-
föllum;
2. eiginfjárstaða íslenskra aðal-
verktaka og matsverð varan-
legra rekstrarfjármuna í árslok
1982
a) húseignir
b) bifreiðar
c) aðrar eignir;
3. hvernig húseignin Höfðabakki
9 hefur verið fjármögnuð og
hvaða starfsemi fer þar fram;
4. heildarvelta íslenskra aðal-
verktaka árin 1980, 1981 og
1982;
5. árlegur hagnaður fyrirtækisins
árin 1980,' 1981 og 1982 og
hvernig honum hefur verið
ráðstafað;
6. hverjar tekjur íslenska ríkisins
hafa verið og eignaaukning hjá
íslenskum aðalverktökum s.l.
ár og hvernig það hefur verið
fært í ríkisbókhald;
7. stofnfjárframlagíslenska ríkis-
ins og verðmæti eignarhluta
þess í árslok 1982;
8. hversu miklum gjaldeyri ís-
lenskir aðalverktakar hafa
skilað inn s.l. 5 ár, hversu háar
gjaldeyrisyfirfærslur þeir hafa
fengið vegna innflutningsskrif-
stofu fyrirtækisins í Bandaríkj-
unum og hvernig háttað hefur
verið skilagrein til bankanna;
9. hvort íslenskir aðalverktakar
hafa fengið umboðslaun og ef
svo er h ver þau hafa verið s. 1.5
ár og hvernig háttað hefur ver-
ið skilagrein til banka;
10. hverjir viðskiptabankar fyrir-
tækisins eru og hver var hlut-
fallsleg skipting innistæðna í
þeim bönkum í árslok 1981 og
1982;
11. verðmæti tollfrjáls innflutn-
ings fslenskra aðalverktaka
s.l. þrjúársem heimilaðurhef-
ur verið af varnarmáladeild
utanríkisráðuneytisins vegna
eftirfarandi:
a) varnarliðsframkvæmda
sem unnar eru á grundvelli
verktakasamninga við varnar-
liðið
b) annars innflutnings sem
ekki er skráður á ákveðna
verksamninga;
12. upphæð umsaminna efnis-
kaupa samkvæmt verktaka-
samningum fyrir sama tímabil
Herra ritstjóri.
Ég undirritaður kannast ekki við
að hafa átt það viðtal við Þjóðvilj-
ann, sem birtist á forsíðu blaðsins í
dag.
Virðingarfyllst,
Guðlaugur Þorvaldsson,
ríkissáttasemari
Athugasemd
frá blaðamanni
Reykjavík 26. janúar 1984
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær þar sem hann segist ekki
kannast við að Þjóðviljinn hefði átt
við sig viðtal það sem birtist á for-
síðu blaðsins í gær. Af því tilefni
vill undirritaður blaðamaður Þjóð-
viljans taka fram eftirfarandi:
Yfirlýsing Guðlaugs Þorvalds-
sonar ríkissáttasemjara hlýtur að
byggjast á misskilningi. Strax eftir
að Síðdegisvöku útvarpsins lauk í
gær fór ég til skrifstofu ríkissátta-
semjara og var kominn þangað um
kl. 18.30. Tilgangur minn var sá að
leita viðbragða samninganefnda
starfsmanna í álverinu í Straumsvík
og annarra sem þar kynnu að vera
staddir. Ræddi ég við allmarga
menn, þar á meðal Guðlaug Þor-
13. eftirgjöf ríkisins s.l. 3 ár (fært
fram til verðlags í dag) í tollum
og aðflutningsgjöldum af vél-
um, tækjum og búnaði vegna
verktakastarfsemi við Kefla-
víkurflugvöll;
14. hvort yfirvöld hafi kannað
hvort innflutningur tækja, véla
og varahluta hvers konar, sem
ekki eru skráð á ákveðna
verktakasamninga, séu í sam-
ræmi við raunverulega þörf fs-
valdsson. Fór samtal okkar fram
við ljósritunarvél embættisins,
framan við aðsetur skrifstofustjór-
ans.
Ég spurði Guðlaug hver hann
teldi áhrifin af orðum Sverris Her-
Aðalfundur Verkalýðsmálaráðs
Alþýðubandalagsins verður hald-
inn um aðra helgi, og hefst kl. 13.30
Iaugardaginn 4. febrúar, í flokks-
miðstöðinni Hverfisgötu 105.
Fundinum verður framhaldið á
sunnudag ef þurfa þykir.
Aðalmál fundarins auk venju-
legra aðalfundastarfa eru kjara-
El Salvadornefndin á íslandi
boðar til fundar á Hótel Borg nk.
sunnudag og hefst hann kl. 15.00.
A fundinum mun Jón Gunnar
lenskra aðalverktaka;
15. hvernig háttað er eftirliti með
innflutningi samkvæmt 8. gr.
6. tl. fylgiskjals með varnar-
samningi milli íslands og
Bandaríkjanna og hverjar hafa
verið tollatekjur íslenska ríkis-
ins af þeim innflutningi;
16. verkamannakaup pr. klst. í
verksamningum á árinu 1983
og starfsmannafjöldi fyrirtæk-
isins s.l. 3 ár;
17. utanríkisráðherra hafi áform
um að breyta fyrirkomulagi
mannssonar í Síðdegisvökunni og
svaraði Guðlaugur á þessa leið: -
Þessar yfirlýsingar ráðherrans á
afar viðkvæmu augnabliki í samn-
ingaviðræðum eru furðulegar og
geta haft ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar á gang mála í deilum starfs-
manna og íslenska álfélagsins. Því
miður er þetta ekki í fyrsta skipti
sem ráðamenn láta slík orð falla á
viðkvæmu augnabliki, -
Virðingarfyllst,
Valþór Hlöðversson,
blaðamaður
samningar og atvinnumálin. For-
ystumenn í stærstu stéttarfélögun-
um munu skýra stöðu samninga-
mála.
Fundurinn er opinn öllum stuðn-
ingsmönnum Alþýðubandalagsins
en liðsmenn þess í verkalýðssam-
tökunum eru sérstaklega hvattir til
að mæta. Formaður stjórnarinnar
er Benedikt Davíðsson.
Grétarsson segja frá frelsuðu svæð-
unum í E1 Salvador og Björk Gísla-
dóttir greinir frá jólasöfnuninni og
starfinu framundan.
verkútboða á vegum varnar-
liðsins og ef svo er þá hvernig,
og hvort það fyrirkomulag
verkútboða, sem hér ríkir, eigi
sér hliðstæður við samsvarandi
aðstæður í öðrum löndum og
sé ekki svo, hvernig því sé þá
háttað.
Þess sé óskað með beiðninni að
skýrsla utanríkisráðherra verði
tekin til umræðu á alþingi fljótlega
eftir að henni hefur verið útbýtt
meðal þingmanna.
Eins og fram hefur komið í Þjóð-
viljanum, fór Svavar Gestsson
fram á slíka skýrslu í október sl. og
er hún langt komin í vinnslu. Það
má því vænta hennar mjög fljót-
lega.
Lífleg
sala
a
snjósleðum
Frá því í september í haust og þar
til nú um miðjan mánuðinn hefur
Véladeild SÍS selt samtals 44 snjó-
sleða. Deildin hefur flutt inn Yama-
ha sleða frá Japan í 15 ár og mun
vart meira af annarri tegund snjó-
sleða hérlendis.
Lengst af hefur salan verið mest
til Austfjarða en í vetur hefur
Norðurlandið verið einna drýgst.
Annars dreifist salan um allt land.
Sleðarnir eru fáanlegir frá 18 og
upp í 90 hestöfl. f ár er mest eftir-
spurn eftir 50-60 hestafla sleðum.
Verðið er yfirleitt á bilinu 100-200
þús. kr., eftir vélarafli. Bændur
hafa lengi verið í greinilegum meiri
hluta meðal kaupenda, en upp á
síðkastið hafa „sportmenn“ sótt
mjög í sig veðrið.
Að loknum fundinum á Hótel
Borg er svo ætlunin að ganga í blys-
för að bandaríska sendiráðinu við
Laufásveg. _ v<
Yfírlýsing frá
ríkissáttasemj ar a
Reykjavík 26. janúar 1984
Aðalfundur Verkalýðsmálaráðs AB:
Kj ar asamningar
og atvinnumál
-mhg
El Salvadornefndin
Opinn fundur á sunnudaginn