Þjóðviljinn - 27.01.1984, Blaðsíða 15
-íKucmi. Af. /YWfAlta'CIA - /GS *.r
Föstudagur 27. janúar 1984 ÞJÖÐVÍLJÍNN — SIÐA 15
RUV 1
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum
degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Eriings Sigurðarsonar frá
kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Ragnheiður Haraldsdóttir tal-
ar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Skóladag-
ar“ eftir Stefán Jónsson Þórunn Hjartar-
dóttir les (15).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
10.45 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar
Kristjánsson frá Hermundarfelli sér um þátt-
inn (RÚVAK).
11.15 „Vegferð í myrki“, Ijóð eftir Garðar
Baldvinsson Höfundur les.
11.30 „Sjaldan hef ég orðið eins hissa“ Brot
úr dagbók leiðsögumannsins eftir Jón R.
Hjálmarsson. Höfundur les.
11.50 Tónleikar
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.25 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
14.00 „lllur fengur“ eftir Anders Bodelsen
Guðmundur Olafsson les þýðingu sína (4).
14.30 Miðdegistónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitin í Liege leikur Rúmenska rapsódíu nr.
1 op. 11 eftirGeorges Enescu; Paul Strauss
stj.
14.45 Nýtt undir nálinni Hildur Eiriksdóttir
kynnir nýútkomnar hljómplötur.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar Heimz Holliger og
útvarpshljómsveitin í Frankfurt leika Óbó-
konsert í g-moll eftir Bernard Molique;
Eliahu Inbal stj./Eva Knardahl og Fílharm-
óníusveitin í Osló leika Píanókonsert í Des-
dúr op. 6 eftir Christian Sinding; Öivin Fjel-
dstad stj.
17.10 Síðdegisvakan
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnandi: Guðlaug Mar-
ía Bjarnadóttir.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsen kynrtir.
20.35 Ísland-Noregur í handknattleik Her-
mann Gunnarsson lýsir síðari hálfleik þjóð-
anna í Laugardalshöll.
21.15 Hljómskálamúsík Guðmundur Gilsson
kynnir.
21.40 Fósturlandsins Freyja Umsjón: Hösk-
uldur Skagfjörð. Lesari með honum: Guðrún
Þór.
22.15. Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Traðir Umsjón: Gunnlaugur Yngvi Sig-
fússon.
23.15 Kvöldgestir - þáttu- Jónasar Jónas-
sonar
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá Rás 2 he.st með veður-
fregnum kl. 01.00 og lýkur kl. 03.00.
RUV 2
■.......................
10-12 Morgunvaktin. Alltaf sömu morgun-
hanarnir á vaktinni.
14-16 Pósthólfið. Hróbjartur Jónatansson og
Valdís Gunnarsdóttir sjá um opinn vettvang
fyrir óskalög og persónuleg sögukom hlust-
enda.
16-18 Helgin framundan. Jóhanna Harðar-
dóttir sér um umferðarþátt á mesta annat-
ima vikunnar. Lifandi útvarp í samræmi við
hraða mannlífsins á þessum tíma, ásamt
innskotum um það sem verður á döfinni
þegar helgin gengur í garð og ró kemst yfir
fólk.
23.15 Næturútvarp. Ólafur Þórðarson sér um
galsakenndan þátt í anda næturinnar. Eftir
veðurfréttir kl. 01 tengist rás 2 við rás 1 og
útvarpað verður um allt land.
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.50 Skonrokk Umsjónarmaður Edda And-
résdóttir.
21.20 Kastljós Þáttur um innlend og erlend
málefni. Úmsjónarmenn: Helgi E. Helgason
og Ögmundur Jónasson.
22.20 Skriftarkeppni vonbiðlanna Kinversk
bíómynd. Leikstjóri Yan Bili. Aðalhlutverk ■
Wang Bozhao og Zhao Jing. Sagan gerist í
Kina endur fyrir löngu og segir frá ungum
menntamanni sem miklaðist mjög af því hve
hann var snjall skrautritari. Á þetta reynir
þegar hann verður að keppa í ritlist við með-
biðil sinn um hönd stúlku sem ann honum.
Þýðandi Ragnar Baldursson.
frá lesendum
Meðlagsgreiðandi svarar meðlagsgreiðanda:
Um kjör ein-
stæðra foreldra
í Þjóðviljanum þann 11. janú-
ar 1984 skrifar meðlagsgreiðandi
og fráskilinn faðir og viðrar sjón-
armið sín. Ég sem er í nákvæm-
lega sömu stöðu og hann sem
meðlagsgreiðandi og fráskilinn
faðir, ætla að leggja orð í belg um
fyrirbærið, hina einstœðu móður.
Ég hef svolítið kynnst kjörum
einstæðra mæðra í gegn um tíðina
og eru þau ekki góð. Eg er félagi í
Félagi einstæðraL foreldra og vil
biðja meðlagsgreiðandann að
nálgast framfærslukönnun félags-
ins. Einnig langar mig til að nefna
eitt dæmi um einstæða móður
sem hefur það helvíti skítt og gæti
ég nefnt dæmi um fleiri.
Dœmi um
einstœða móður
Hún á tvo drengi og vinnur á
skinnasaumastofu. Hún getur
ekki unnið yfirvinnu vegna þess
að hún þarf einnig að sinna börn-
um sínum og heimili.
Tekjur hennar:
Iðjutaxti fyrir skinnasaum, 6 ára
starfsreynsla kr. 11.501.-.
Meðlag með tveimur börnum á
mánuði kr. 3.230.-.
Mæðralaun með tveimur börnum
á mánuði kr. 1.809.-.
samtals kr. á mánuði 16.540.-.
Gjöld hennar:
Húsaleiga fyrir íbúð á frjálsum
markaði kr. 9.300.-.
Gjöld fyrir drengina á dagheimili
og skóladagheimili kr. 3.800.-.
samtals kr. á mánuði 13.100.-.
16.540-t-13.100 eru 3.440 krón-
ur.
3.440 krónur þarf hún að láta
sér nægja fyrir mat, fatnaði á
hraðvaxandi stráka og sjálfa sig,
rafmagni, síma, hita og fargjöld-
um. Hún hefur ekki ennþá haft
efni á að kaupa sér sjónvarp.
Þessi einstæða móðir hefur það
erfitt. Erfiðara en þú meðlags-
greiðandi góður sem hefur þó
krónur 13.708 plús vaktaálag.
Þessi einstæða móðir hefur hrak-
ist íbúð úr íbúð á hverju ári með
börnin sín. Hún hefur til dæmis
sótt um íbúð þrisvar sinnum í
Verkamannabústað en úthlutun-
arnefndin þar hefur ekki talið
hana þess verða að fá þar íbúð og
hefur dæmt hana í útlegð og bar-
áttu á markaði hinnar frjálsu
húsaleigu en úthlutað í staðinn
ýmsu vafasömu fólki.
Bœði fjárhagslegir og
félagslegir erfiðleikar
Ég veit ýmislegt um kjör ein-
stæðra mæðra sem ég hef kynnst í
gegnum vinnu mína sem barna-
Einstæðar mæður eiga við enn meiri erfiðleika að etja en einstæðir
feður í hlutverki meðlagsgreiðanda.
kennari, meðferðarfulltrúi og
starfsmaður á geðdeildum Ríkis-
spítalanna. Þó að kjör sumra
karlkyns launþega séu slæm eftir
mesta kjararán í sögu launþega á
íslandi þá hafa einstæðar mæður
með börn miklu meiri byrði að
bera bæði fjárhaglega og félags-
lega. Þær eru t.d. einangraðar
heima sjö kvöld í viku, komast
aldrei út, geta ekki tekið þátt í
félagsstörfum og búa einar að
sínu vonleysi og er þá oft stutt í
það að rauðvínsflaskan sé keypt
um helgar og reynt að gleyma.
3.440.- krónur
á mánuði
Heldur þú meðlagsgreiðandi
góður að Steingrímur forsætis-
ráðherra myndi láta sér nægja
3.440 krónur á mánuði? Þær
myndu ekki einu sinni nægja hon-
um fyrir bensíni á Blazerinn og
grænum baunum í matinn.
Kennaralaun
Varðandi kennarann sem þú
Ráðlaust
Ráðlaust húkir ríkisvald
rúið sannri œru.
Albert fyrir hundahald
hefur fengið kœru.
S.H.
tekur sem útgangspunkt í skrifum
þínum þá veit ég sem kennari að
kjör þeirra eru svo léleg að flestir
karlmenn hafa hrakist úr þeirri
stétt svo að kennarastéttin er að
verða algjör kvennastétt. Ég
hafði meira að segja hærra kaup
fyrir að keyra 15 tonna Internat-
ional vörubíl fyrir S.Í.S en ég
hafði sem kennari þó kennara-
námið sé þriggja ára háskóla-
nám.
í dag þarf ég að standa undir
mörgum þeim útgjöldum sem þú
gerir, nema það að Albert borgar
mér sem meðferðarfulltrúa krón-
ur 15.843 á mánuði plús vaktaá-
lag. Ég er að mörgu leyti ánægður
með lífið og tilveruna þrátt fyrir
léleg laun, enda er ég ekki í sömu
sporum og einstæð móðir og ég
borga aðeins með einu barni.
Aramótaávarp
Steingríms
Þess vegna ætla ég sem með-
lagsgreiðandi, lágtekjumaður og
fyrst og fremst sem stuðnings-
maður bændastéttarinnar og fyrr-
verandi framsóknarmaður að
fara eftir áramótaávarpi Stein-
gríms forsætisráðherra á gamlárs-
dag og taka gömlu Löduna mína,
því miður á ég ekki nýjan Blazer
og snjósleðakerru eins og forsæt-
isráðherrann, og halda til fjalla
við fyrsta tækifæri þegar ég á næst
helgarfrí. Ég ætla að gleyma
kreppu og bágum hag mínum
eins og Steingrímur gerir og von-
andi hef ég efni á bensíni og^ræn-
um baunum í Kaupfélagi Arnes-
inga.
Virðingarfyllst
Jóhann Þórhallsson
meðferðarfulltrúi
sími 12253
Rás 1 kl. 21.40:
Fóstur-
landsins
Freyja
Þátturinn Fósturlandsins Freyja
veröur á dagskrá útvarpsins í kvöld kl.
21.40. Höskuldur Skagfjörð sér um þátt-
inn sem er hinn fyrsti í samnefndri þáttar-
öð.
I hverjum þaetti verður fjallað um eina
konu sem fædd er fyrir aldamót og er
móðir einhverra merkra Islendinga.
Synir og dætur þessara kvenna hafa gef-
ið Höskuldi upplýsingar um þær.
Höskuldur sagði Þjóðviljanum að
hann ætli að fjalla um 8 konur, eina úr
hverju kjördæmi.
I þættinum í kvöld verður fjallað um
Sigrúnu Sigurhjartardóttur frá Tjörn í
Svarfaðardal. Hún var móðir Kristjáns
Eldjárns. Síðan verðurfjallað um Bersa-
be á Kirkjubóli móður Guðmundar Inga
skálds, Ingibjörgu á Torfalæk, Grétu Ás-
geirsson, Guðrúnu frá Deildartungu og
Steinunni Friðjónsdóttur móður Huldu
Stefánsdóttur. Kristin frá Skútustöðum
verður í sjöunda þættinum og Sigríður
Jónsdóttir Bjarnason úr Reykjavík mun
reka lestina.
I hverjum þætti verður lesið eitt kvæði
frá heimabyggð konunnar sem fjallað er
um og tilheyrandi tónlist verður leikin
milli atriða.
bridge
Flestir kannast við bévitis aftursætis
ökumanninn sem er alfullkominn í akstr-
inum þegar ÞÚ ert við stýrið.
En árinn sá hefur alltof oft rétt fyrir sér!
Norður
S K7432
H A9
T 732
L 753
Vestur
S 65
HK103
T AD95
L A986
Austur
S-
H 87654
TG108
LKG1042
Suður
S ADG1098
H DG2
TK64
L D
Spiliö kom á borð í hrað sveitakeppni i
Breiðholti einmitt i sama mund og ég
hlammaði mér í stúkusætið.
Sögnum var hespað af; tvö pöss og 4
spaðar í suður. Dobl. Útspil: Hjarta-3.
Spilið er afar skemmtilegt og eftir þvi
vandasamt en í augum sagnhafa var
það aðeins eitt í röð margra. Hjarta nía
átti fyrsta slag. Ás og kóngur í trompi og
lauf á drottningu og ás. Vestur var ekki
svo vænn að skila laufi til þaka, spilaði
hjarta og niu slagir náðust. Samgangs-
leysi í trompinu bannaði allar bjargir.
Þetta var nú ekki vel leikið. Ef þú færðir
þig í framsætið og tækir við?
1 öðrum slag spilar þú laufi úr borði.
Austur er enginn kappi I vörn, lætur litið
og vestur á slaginn á ás. Spilar hjarta, á
ekkert betra. Eftir að hafa trompað lauf
tekur þú tvisvar tromp, endar í þlindum
og trompar enn lauf. Hjarta drottning,
yfirtekin og þú biður um tígul úr borði, OG
stillir þig um að glotta framaní vestur.
Ekki átti HANN lauf kónginn.
Tikkanen
Hvers vegna er síminn hleraður
hjá fólki sem enginn þykist vilja
hlusta á opinberlega?
Gœtum
tungunnar
Sagt var: Ég á ekki annars úr-
kosta en að borga.
Rétt væri: Ég á ekki annars úrk-
osti en að borga.
(Ath.: Það eru mínir úrkostir;
ég á ekki úrkosti neins annars.)
Einnig væri rétt: Ég á ekki ann-
að úrkosta.